Morgunblaðið - 16.10.1988, Side 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1988
Sigourney Weaver leikur náttúrufræð-
inginn Dian Fossey í nýrri mynd
Með górillum
í frumskógum
Afríku
þegar hún heimsótti mannfræðing-
inn Louis S. Leakey í Tanzaníu árið
1963. Hann ráðlagði henni að hefja
viðamiklar rannsóknir á górillum
svipuðum þeim sem Jane Goodall
hafði gert á simpönsum. Fossey
setti rannsóknarmiðstöð sína á fót
í fjöllum Rwanda árið 1967 og bjó
þar til dauðadags.
Þeir sem þekktu Fossey vel hafa
lýst henni sem mjög sérvitri konu
sem virtist tilbúin í hvað sem er
ef það mætti verða til þess að
vefnda það sem hún kallaði „górill-
urnar mínar" — Ijúfar, misskildar
skepnur eftir því sem hún sagði og
í mikilli útrýmingarhættu. Górillurn-
ar urðu hennar fjölskylda. Tvisvar
á hún að hafa brotið heit sitt við
menn sem ekki vildu laga sig að
hennar lifi. Fossey vann mikið ein
og einhverntíma átti hún að hafa
reynt að endurheimta stolið górillu-
barn með því að ræna dóttur konu
sem hún grunaði um þjófnaðinn.
Hún átti í stöðugu stríði við gór-
illuþjófa, sérstaklega Batwa-ætt-
bálkinn, sem fangaði górillur, skar
af þeim hendur og fætur og höfuð
og seldi sem minjagripi og slátraði
heilu górillufjölskyldunum til að
ræna börnunum og selja erlendum
dýragörðum.
Þrátt fyrir sérvisku, mikla skaps-
muni og eldlegan áhuga á verndun
górillanna mun Fossey undir niðri
hafa verið indæl, ástrík kona og
Weaver mun reyna að sýna báðar
þessar hliðar hennar i myndinni.
Svipmyndir úr
„Gorillas in the Mist“
með Sigourney
Weaver.
Áður en hún fór að vinna með
górillunum segist Sigourney Wea-
ver hafa stoppað við lítinn górillu-
kirkjugarð þar sem leiði bandaríska
náttúrufræðingsins Dian Fossey
er að finna. Fossey var heimsfræg
fyrir að hafa í 18 ár vingast við,
rannsakað og varið þær fáu fjallag-
órillur sem eftir eru í Afríku áður
en hún var myrt árið 1985 í Rwanda
en enginn veit hver eða hverjir
voru þar aðverki.„Ég sagði við
sjálfa mig, eins og Dian væri
þarna," segir Weaver, „eg vona að
þetta verkefni hafi blessun þína,“
og átti við hlutverk Fossey, sem
hún fer með í myndinni „Gorillas
in the Mist“, sem leikstýrt er af
Michael Apted og byggð á sjálfsæ-
visögu Fosseys. Með hlutverk auk
Weavers í myndinni fara Astralinn
Bryan Brown og Julie Harris. .
Það tók þrjá mánuði og ótrúlegt
erfiði að kvikmynda 20 ára dvöl
Fosseys með górillunum í Afríku.
Myndin var tekin í frumskógum
smáríkisins Rawanda þar sem
Fossey bjó og starfaði og þar sem
górillurnar er að finna. Kvikmynda-
liðið þurfti á hverjum degi að klífa
í gegnum regnskóginn nokkra kíló-
metra upp fjallshlíð frá aðalstöðv-
unum til að ná þangað sem Fossey
starfaði hátt uppi í fjöllunum. Ekki
má nema ákveðinn fjöldi fólks
dvelja hjá górillunum í einu og aldr-
ei voru fleiri en fimm úr kvikmynda-
liðinu með Weaver þegar hún var
mynduð með dýrunum. Það var til
að gera ekki górillurnar órólegar en líklega
hefur mannfólkið verið órólegra. Dag einn
nálgaðist ein górillan Weaver og virtist í
vinalegu skapi þegar önnur spratt uppúr
runnunum með miklum óhljóðum og barði
sér á brjóst og stefndi á leikkonuna. Þótt
henni hafi brugðið mjög setti Weaver sig
þegar í fyrirfram æfða stöðu sem hún
lærði hjá leiðsögumanni sínum. Górillur
vilja ekki að þeim sé ógnað svo þú mátt
ekki sýnast hærri en þær. Ekki máttu
heldur horfast í augu við þær lengi án
þess að eiga á hættu að þær reiðist.
Dýrið fór f ramhjá Weaver og svo í burtu.
Seinna varð górillan vinaleg og fékk
meira að segja hlutverk í mynd-
inni. „Ég vissi að þetta ætti eftir
að verða erfitt þegar ég tók þetta
að mér," segir Weaver.
Leikstjórinn, Apted, er Breti og
gerði áður Dóttur kolanámumanns-
ins og „Gorky Park“. „Þetta reyndi
mikið á kvikmyndatökuliðið og leik-
arana," segirhann.„Við þurftum á
sterku fólki að halda, ekki því sem
dýrkar lífið í upptökuverum."
Sigourney Weaver vann með
hópi górilla sem Fossey hafði rann-
sakað og hver stund með þeim var
kvikmynduð. Stjórnvöld leyfðu að-
eins eina klukkustund til kvikmynd-
unar í einu þegar unnið var með
górillunum, jafnvel þótt það tæki
kvikmyndaliðið margar klukku-
stundir að koma sér á staðinn.
Annar af framleiðendum myndar-
innar er Terence Clegg og hann
segir að hann hafi aldrei tekið þátt
í gerð erfiðari myndar á sínum
ferli; hann framleiddi einnig Jörð í
Afríku og Hróp á
frelsi.
Hinn framleið-
andinn er Arnold
Glimcher og
hann hafði ásamt
Universal Pic-
tures tryggt sér
réttinn til að kvik-
mynda sjálfsævi-
sögu Fosseys
áður en Fossey
lést og upphaf-
lega átti hún að
vera ráðgjafi við
gerð myndarinn-
ar. Árið 1985 fór
Glimcher til Rwanda að ræða áætj-
anir um gerð myndarinnar við
Fossey en nokkrum stundum áður
en þau áttu að hittast í fyrsta skipti
var náttúrufræðingurinn myrtur.
Fossey var 53 ára þegar hún
lést. Hún var hávaxin, grönn og
mjög sjálfstæð kona sem fengið
hafði áhuga á lífi og velferð górilla
IJE UEIMI l\VIEH>NI),4NNA
Refurinn bítur
frásér
Stjörnurnar í baráttunni um
metsölumyndirnar i Banda-
rikjunum þetta sumarið voru
Paramount og Disney en tuttug-
ustu aldar refurinn, 20th Cent-
ury Fox, kom mest á óvart.
Gamanmyndin „Big“ með
Tom Hanks í aðalhlutverkinu var
fyrsta Fox-myndin sem náöi inn
100 milljón dollurum frá því Ste-
ven Spielberg gerði Jedinn snýr
aftur árið 1983. Með hjálp „Ðie
Hard“, hasarmyndar með Bruce
Willis í aðalhiutverkinu, sem
hefur tekið inn meira en 70 millj-
ónir, og „Young Guns“, vinsæls
vestra með nokkrum helstu
stjörnum unga leikaraliðsins . í
Hollywood, náði Fox þriðja sæt-
inu í ár yfir tekjuhæstu Holiy-
wood-verin, en það er dágóð
útkoma fyrir Fox eftir að hafa
verið í fimmta og sjötta sæti
undanfarin ár.
Það má vera að það sé of
snemmt að opna kampávíns-
flöskurnar, batinn gæti verið
tímabundinn, en þegar er farið
að vænta mikils af jóiamyndum
fyrirtækisins; „Cocoon II: The
Return" er sögð betri en fyrri
mýndin frá ’85 og „Working Girl"
er gamanmynd eftir Mike Nic-
hols, sem flaggar Harrison Ford
og Sigourney Weaver í aðal-
hlutverkunum.
Uppsveiflan hjá Fox er þökk-
uð stjórnarformanninum Barry
Diller, en þegar hann tók við
fyrirtækinu tapaöi það 60 eða
70 milljón doliurum á ári. Reikn-
að er með að tekjur fyrirtækisins
þetta árið verði 120 milljónir.
Það eru ýmsir þætti sem hafa
áhrif á velgengni kvikmynda-,
vers. Rétta fólkið skiptir t.d.
miklu máli. Þannig er talað um
að hluti af velgengni Fox þetta
árið sé því að þakka að þegar
Diller, sem áður var hjá Paramo-
unt, flutti sig yfir til Fox tók hann
handritshöfundinn, leikstjórann
og framleiðandann James L.
Brooks með sér. Brooks fram-
leiddi „Big“ og skrifaði og leik-
stýrði Sjónvarpsfréttum.
Önnur ástæða er klók mark-
aðssetning á „Big“ og „Die
„Big“; fyrsta mynd Fox í fimm
ár til að fara yfir 100 milljóna
markið.
Hard“, myndum sem fólk gat
auðveldlega fengið andúð á ef
ekki var rétt með farið. „Big“
var fjórða myndin í röð sem fjall-
aði um líkamaskipti og áhuginn
á þeim hafði minnkað í réttu
hlutfalli viö fjöldann. Einnig
sýndu kannanir að Bruce Willis,
stjarna„Die Hard", féll ekki í
kram hasarsjúku áhorfendanna
sem hún var gerð fyrir. Diller tók
persónulega þátt í markaðsetn-
ingu myndanna. Auglýsingarnar
nefndu aldrei um hvað „Big“
fjallaði en hófu þess í stað
„Die Hard“; rétt markaðssetn-
ing.
stjörnuna, Tom Hanks, til skýj-
anna og fyrstu auglýsingarnar
um „Die Hard" nefndu aldrei
Willis á nafn.
Þegar Diller fór til Fox á sínum
tíma sundraöi hann þríeykinu
sem gert hafði Paramount að
stöndugasta fyrirtæki kvik-
myndaiðnaðarins. Frank Man-
cuso, sem verið hafði þriðji
æðsti yfirmaöurinn, tók viö af
Diller sem stjórnarformaður
Paramount og Michael Eisner,
annar i röðinni, gerðist stjórnar-
formaðurWalt Disneyfyrirtækis-
ins.
Bæði Mancuso og Eisner
tóku við traustum fyrirtækjum.
Paramount var t.d. með Eddie
Murphy, skærustu stjörnu iðn-
aðarins, á samning hjá sér og
framleiðendur, sem áttu eftir að
skila af sér myndum eins og
„Top Gun“ og Hættuleg kynni.
Diller lenti hins vegar i súp-
unni. Hann varð að skilja eftir
kvikmyndasamninga sem hann
hafði unnið að í áratug og tók
við skrifstofu sem hann hafði
engu ráðið um og kvikmynda-
samningum við fjölda minníhátt-
ar framleiðendur. Helmingur
mynda Fox á árunum 1985 til
1987 voru myndir sem fyrirtæk-
íð sá aðeins um dreifingu á fyrir
óháða framleiðendur. Mestu
peningarnir koma af myndum
sem kvikmyndaverin fjármagna
sjálf en hinar eru yfirleitt notað-
ar til uppfyllingar. Árið 1988
voru aðeins fjórar myndir Fox
af 11 frá óháðum framleiðend-
um.
Diller og forstjórinn, Larry
Gordon, unnu ekki vel saman á
skrifstofunni svo Gordon fór aft-
ur úti framleiðslu og sá Fox fyr-
ir metsölumynd fyrirtækisins í
fyrra, „Predator", líka metsölu-
mynd Fox i ár, „Die Hard".