Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 1
36 SIÐUR
261. tbl. 76. árg.
327 daga um
borð í „Mír“
Moskvu. Reuter.
TVEIR sovéskir geimfarar settu í gær
nýtt dvalarmet í geimnum er 327.
dagur þeirra Qarri Jörðu rann upp.
Geimfaramir, sem dveljast í geim-
stöðinni „Mír“, munu snúa aftur til
jarðar 21. desember næstkomandi og
verður þá ár liðið frá því för þeirra
hófst. Sovéska fréttastofan TASS
sagði methafana við hestaheilsu.
Palestínumenn
á fimdi í Alsír
Jerúsalem, Alsír. Reuter.
FUNDUR Þjóðarráðs
Palestínu hófst í Alsír
í gær en fastlega er
búist við að honum
lykti á þriðjudag með
því að lýst verði yfir
stofhun ríkis Pal-
estínumanna á herná-
mssvæðum ísraels.
Yasser Arafat, leið-
togi PLO, ávarpaði fulltrúana en
Þjóðarráðið er í raun útlægt þing
palestínsku þjóðarinnar. ísraelar hafa
komið á útgöngubanni á Gaza-svæð-
inu en þar búa um 600.000 arabar.
Sjá „Baksvið“ á bls. 4.
Fella Norðmenn
gengi krónunnar?
Ósló. Reuter.
GUNNAR Berge,
fjármálaráðherra
Noregs, hefur vísað á
bug orðrómi um yfir-
vofandi gengisfell-
ingu krónunnar.
Norska sjónvarpið
sagði i gær að seðlabankinn hefði
keypt fimm milljarða n.k.r. (35 millj-
arða ísl.kr.) á föstudag til að koma í
veg fyrir frekara fall krónunnar.
Mikill gjaldeyris-
skortur í Nígeríu
Lagos. Reuter.
MIKILL gjaldeyrisskortur er nú í
Nígeríu og hefúr seðlabankinn orðið
að draga verulega úr dollarafram-
boði. Gjaldeyrisvarasjóður Nígeríu er
að verða uppurinn vegna þess, að olíu-
verðið er lægra en gert hafði verið
ráð fyrir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hafði heitið Nigeríustjórn 500 milljón
dollara láni en hefúr þó ekki viljað
láta það laust enn sem komið er.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Waldheim fékk námsstyrk
skömmu eftir innreið nasista
ZUrích. Frá önnu Bjarnadóttur, íréttaritara Morgunblaðsins.
NÝFUNDIN skjöl, sem svissneska vikublaðið Die Weltwoche greinir frá í þessari
viku, benda til að Kurt Waldheim, forseti Austurríkis, hafi sagt ósatt i æviágripi
sínu sem hann samdi fyrir austurríska utanrikisráðuneytið í janúar 1946, þegar
hann hóf þar störf. Þar segist hann hafa misst námsstyrk Iðnaðar- og verslunar-
ráðs Austurríkis eftir innreið nasista í mars 1938 vegna hollustu sinnar við Aust-
urríki. Skjöl verslunarráðsins benda hins vegar til að honum og þremur öðrum
hafi ekki verið veittur styrkurinn fyrr en 25. maí 1938.
Samkvæmt grein Weltwoche var styrkur-
inn veittur á pólitískum forsendum. Tveir
nemendur urðu af honum vegna skoðana
sinna. Þrír styrkþeganna voru yfirlýstir nas-
istar. Waldheim var það ekki. En skólastjóri
Konsúlarakademíunnar, þar sem Waldheim
sótti nám, fullvissaði verslunarráðið um að
Waldheim hefði verið hlynntur nasistastefn-
unni í nokkur ár í bréfi frá 18. maí 1938.
Hann hefði ekki getað sýnt skoðanir sínar í
verki síðan haustið 1936 af því að hann
gegndi herskyldu.
Weltwoche veltir fyrir sér hvort Waldheim
hafi verið eins andsnúinn nasistastefnunni á
þessum árum eins og hann hefur látið í veðri
vaka. Blaðið segir að starfsferill Waldheims
hafi hafist á rangfærslu um fortíð hans og
kallar forsetann lygara. Gamall skólafélagi
Waldheims sagði í viðtali við austurrískt viku-
blað að forsetinn hefði verið félagi í nasista-
hreyfingu stúdenta.
Waldheim sagði í samtali við austurrískan
blaðamann á fimmtudag, að hann hefði ekki
vitað að þessi skjöl varðandi námsstyrk hans
væru til. Hann vefengdi þau ekki og sagði
að hann hlyti að hafa misst styrkinn ári
seinna en hann áður hélt. Forsetaskrifstofan
sendi frá sér tilkynningu sama dag þar sem
Weltwoche er sagt taka þátt í alþjóðlegri
smánarherferð gegn forsetanum.
Einhliða vopnahlé
San Salvador. Reuter.
SKÆRULIÐAR í E1 Salvador hafa
boðað einhliða vopnahlé meðan á
fúndi Samtaka Ameríkuríkja, OAS,
stendur. Fundurinn hefst á morgun
og sækja hann utanríkisráðherrar
Ameríkuríkja, þ.á m. George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.