Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 6

Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Morgunblaðið/Sigrún Sigfusdóttir Bifreiðin var mikið skemmd eftir ákeyrsluna á Hótel Ljósbrá í Hvera- gerði. Hveragerði: Ekið á Hótel Ljósbrá Hveragerði. Sá atburður gerðist nýlega í Hveragerði, að ekið var á Hótel Ljós- brá. Húsið stendur á lóðarmörkum og er gangstétt meðfram hús- hliðinni. Svo er að sjá að bifreiðin, sem er fólksbíll af BMW-gerð, hafi lent upp á stéttinni við norðurhom húss- ins, síðan runnið eftir allri húshlið- inni og hafnað loks á ljósastaur sem stendur á stéttinni stutt frá húsinu. Nokkrar skemmdir urðu á hús- inu, en öllu meiri á bifreiðinni, sem er mikið skemmd. Ekki urðu slys á fólki. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem hótelið verður fyrir ákeyrslu. Húsið var byggt 1930 og var til þess vandað og virðist ekki af veita. - Sigrún * Iþróttahús fatlaðra: 7,5 millj. króna gefiiar „Um 7,5 milljónir króna hafa verið gefiiar til byggingar íþróttahúss íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og nágrenni en áætlað er að húsið kosti 55 til 60 miljjónir króna,“ sagði Ólafur Jensson, formaður íþrótta- sambands fatlaðra, í samtali við Morgunblaðið. „íþróttafélag Reykjavíkur og ná- grennis þarf að greiða 20% í húsinu eða um 12 milljónir króna en félagið þarf einnig að greiða kostnað við tæki í húsinu," sagði Ólafur. „Því má reikna með að félagið þurfi sjálft að greiða 15 til 20 milljónir króna vegna hússins þegar fjármagns- kostnaður er tekinn inn í dæmið. Borgarráð samþykkti einróma síðastliðinn þriðjudag 5 milljóna króna fjárveitingu.til íþróttahússins á næsta ári en með því skilyrði að Alþingi geri slíkt hið sama,“ sagði Ólafur Jensson. Reykhólar: Tvær bókabúðir opnaðar Miðhúsum. INGIBJÖRG Björgvinsdóttir leiðbeinandi opnaði bókabúð hér á Reyk- hólum fyrir um það bil einu ári og fékk öll þau leyfi sem til þess þarf. Taldi hún þá að reglur bóksala útilokuðu að annar aðili gæti fengið leyfi. Til þess að hafa tvær bókabúðir á sama stað þarf íbúafjöldinn að vera 3.000 en hér eru ekki íbúar nema 375. Ingibjörgu var lofað að eftir þessum reglum yrði farið. í haust veita svo bókaútgefendur öðrum aðila einnig sölulejrfi. Þessu vildi Ingibjörg ekki una og lokaði bókabúð sinni. Hún telur að bókaút- gefendur hafi brugðist heitum sínum enda sé enginn grundvöllur fyrir tvær bókabúðir á þessu svæði. - Sveinn Metnaðarfullur og skapstór VIGGÓ Sigurðsson, þjálfarí fyrstu deildar liðs FH í hand- knattleik, setti allt á annan end- ann með ummælum sínum um dómara að loknum fyrsta leik FH í Islandsmótinu. Hann sagði að dómarar leiksins væru óhæfir til að dæma í 1. deild og í kjölfar- ið ákváðu 13 dómarar af 16 að dæma ekki fleirí leiki hjá FH. V iggó hefur alla tíð sett mikinn svip á umhverfi sitt og oft lent í deilum við menn. „Það er aldrei lognmolla í kringum þá sem standa upp úr. Allir vilja að afreksmenn hafi kraft og afl til að láta að sér SVIPMYND ejtir Steinþór Gudbjartsson bitni fyrst og fremst á honum sjálf- um. Sumir segja að hann geri þetta vísvitandi til að fá dómarana á sitt band en aðrir segja að hann sé fyrst og fremst að hugsa um hag handboltans. Leikmenn og þjálfar- ar leggi sig alla fram og hann geri þá réttlátu kröfu að dómarar standi sig einnig í stykkinu. ,(Viggó þekkir handknattleikinn út og inn. Hann sér hlutina oft í öðru ljósi en dómaramir og lætur kringum hann,“ sagði Gunnar Kjartansson, milliríkjadómari í handknattleik með meiru. „Viggó hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari og hefur staðið sig vel, bæði heima og erlendis. Hann er mikill skapmaður og fylginn sér og það er ekkert nýtt að hann lendi í útistöðum, en hann er drengur góður og vill handboltanum vel.“ í sama streng tók Ólafur Jóns- son, sem lék með Viggó í áratug. „Hann er einn metnaðarfyllsti þjálfari landsins, er einlægur í sínum metnaði, harður fyrir, skap- bráður og óhræddur við að standa á sínu. Viggó hefur farið í gegnum harðasta skóla íþróttarinnar og gjörþekkir handboltann. Hann er viggó Sigurösson kveða og Viggó hefur staðið vel fyrir sínu enda afburða keppnis- maður með mikla réttlætiskennd," sagði Karl Benediktsson, sem þjálf- aði Viggó á fyrstu árum hans í meistaraflokki. Mikið keppnisskap er nauðsyn- legt hveijum, sem vill ná árangri í íþróttum. Kunnugir segja að Viggó hafí alla tíð verið mjög skap- bráður og það hafi stundum komið honum í koll, en lýsi um leið áræðni hans og hugrekki. Viggó hefur verið sérlega iðinn við að skamm- ast út í dómara, sem margir telja að sé ekki vænlegt til árangurs og þá heyra það. Viggó er einn af lærisveinum Bogdans landsliðs- þjálfara, sem innprentaði að því andstyggilegri og heiftugri menn væru við dómara, þeim mun meiri möguleikar væru á að þeir yrðu hagstæðari í næsta leik,“ sagði Björgvin Björgvinsson, sem lék með Viggó í Víkingi og landsliðinu. Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði FH og landsliðsins, sagði að Viggó væri fyrst og fremst að gagnrýna dómaramál almennt, en ekki ein- staklinga. „Ég hef þekkt Viggó frá bams- aldri og það hefur alltaf gustað í Fæðingardagur: 11. febrúar 1954. Eiginkona: Éva Haraldsdóttir. Börn: Jón Gunnlaugur 6 ára og Rakel Margrét 7 ára. Atvinna: íþróttakennari og þjálfari í handknattleik. Félög: Víkingur 1971-1979 og 1982-1986. Fjórum sinnum ís- landsmeistari (þar af einu sinni utanhúss) og fimm sinnum bik- armeistari. Barcelona 1979-1980. Spánar- meistari 1980. Bayer Leverkusen í Vestur- Þýskalandi 1980-1982. Landsleikir: 78. Þjálfiiri: FH síðan 1986. Ungl- ingalandsliðið 1986 og U-20 landsliðið 1987. oft ómyrkur í máli, en ljúfur í umgengni og stendur ávallt með þeim, sem hann telur vera beitta órétti." Vill bara svo vel til FJÁRLÖGIN hafa að sjálfsögðu veríð í brennidepli i liðinni viku, svona út á við, en á göngum Alþingis hefiir meira veríð skrafað um hvaða stefiiu Borgaraflokkurinn taki ef Albert hverfúr til Parísar sem sendiherra, auk þess sem yfirlýsing Kvennalistans um að kveðja til varamenn að vild hefúr oft boríð á góma og sýnist sitt hveijum. ví er ekki að neita, að þrátt fyr- ir staðhæfingar Borgaraflokks- manna um að fráleitt sé að tengja tilboð Jóns Baldvins til Alberts um sendiherrastöðuna í París einhvetj- um hrossakaupum, er ýmislegt sem hangir á spýtunni sem bendir til þess að valdahlutföll gætu raskast á Alþingi og ríkisstjómin jafnvel breyst í stjóm fjögurra flokka, í stað þriggja. Þingmenn stjómarflokkanna hafa gefíð það í skyn að ekki sé útilokað að Borgaraflokkurinn myndi koma inn í ríkisstjómina, ef Albert færi til Parísar, og tryggja þannig öruggan meirihluta stjómár- innar, en Borgaraflokksmenn segja með öllu ótímabært að ræða þann möguleika. Samsetning ríkisstjóm- arinnar er nú þannig að Jón Sigurðs- son fer bæði með ráðuneyti við- skipta og iðnaðar og Steingrímur Sigfússon sömuleiðis með ráðuneyti landbúnaðar- og samgöngumála. í sjálfu sér væri ekkert því til fyrir- stöðu að hvor um sig léti eftir ann- að ráðuneytið. Er ríkisstjómin svona samsett, af því að þið höfðuð alltaf þennan möguleika í bakhendinni, spurði ég Steingrím Hermannsson, nú í vikunni. Forsætisráðherra hló við og sagði: „Það er ekkert farið að ræða þetta. Það vill bara svo vel til!“ hDACBÓKh STfÓRNMáL eftir Agnesi Bragadóttur Þeir hafa hneykslast hver um annan þveran þingmennirnir okkar blessaðir á „yfirgangi og frekju" kvennalistakvenna sem lýstu því yfir á Lýsuhóli síðasta sunnudag að hver þingmaður þeirra myndi hverfa af þingi a.m.k. í tvær vikur og þær myndu kveðja til varaþingmenn hvar af lista sem þeim sýndist. Guðrún Helgadóttir, forseti Samein- aðs þings, sagðist ekki geta skilið þessa afstöðu þeirra á annan hátt en þann að Kvennalistinn vildi gera Alþingi að stjómmálaskóla fyrir frambjóðendur sína. Slíkt kæmi að sjálfsögðu ekki til greina í augum þingforsetans. Þessari staðhæfingu Guðrúnar vísaði Kristín Halldórs- dóttir alfarið á bug, er þær stöllur leiddu saman hesta sína í sjónvarps- þætti. í húsakynnum Alþingis heyrast aðrar og mildari raddir í garð gras- rótartilburða Kvennalistans. Svo sem eins og: Hvað er svona brotlegt við þessa afstöðu? Það hefur tíðkast áratugum saman að þingmenn hafi vikið sæti um stundarsakir, einung- is til þess að „leyfa" varaþingmann- inum að „prófa“ þingsetu. Þetta hefur tíðkast svo lengi sem menn muna, þótt opinberar skýringar á athæfinu hafí verið margvíslegar. Brot „kvennó" getur því ekki falist í athæfinu sjálfu, heldur hinu að lýsa því yfir fyrirfram að þetta skuli gert. Brotið hlýtur því að vera í því fólgið að fela ekki þennan ásetning nógu vel. Niðurstaðan: Kvennalista- konur skortir kannski ekki hæ- versku, en augljóslega er skorturinn á sýndarmennsku alvarlegur. Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist þegar forseti Sameinaðs þings og varaþingmenn Kvennalist- ans, varavaraþingmenn eða jafnvel varavaravaravara—o.s.frv.-þing- menn mætast. Kannski mætast þar stálin stinn og mun slík tilbreyting í skammdeginu áreiðanlega fita margan púkann á fjósbitanum. Ekki tjóir þó að hefja tilhlökkun þegar í stað, þar sem Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs þings, og varafor- setar hennar verða erlendis þessa viku og liggur þinghald því niðri — engir varamenn kvaddir til af þeim sökum, bara gefið viku frí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.