Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 13

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 13 mars, en Alþýðubandalagið til 1. janúar. Hafí þó gefíð í skyn f öðru orðinu að þeir væru tilbúnir í þetta ; til 20. janúar. „Þetta var nú hrein l sýndarmennska allt saman. Ég lýsti því yfir að Verkamannasambandið, og ég talaði fyrir mig persónulega, hefði ekki nokkra verkfallsstöðu í ; janúar eða febrúar. Hins vegar gætu flugmenn, flugumferðarstjór- ar, háskólamenn og aðrir slíkir haft ! verkfallsstöðu á þessum tíma. Jan- úar er alls staðar dauðasti og telqu- ; lægsti mánuður verkafólks.“ Hann þagnar stutta stund og einmitt þá verðum við fyrir truflun. Dymar opnast og Guðmundur er spurður hvort hann geti talað við Olaf nokkum Ragnar nýskipaðan fjármálaráðherra. Ég bregð mér fram á ganginn á meðan og eftir : skamma stund kallar Guðmundur á mig aftur og heldur áfram þar sem frá var horfíð eins og ekkert hafi skorist. „Þetta var engin staða. ; Ég taldi aðalatriðið að þeir stæðu á verðstöðvuninni, sem þeir hafa ; því miður ekki gert með 3% gengis- i j lækkun. En að telja fólki trú um ; að 2,5% kauphækkun myndi dekka þær hækkanir sem hefðu flætt yfír er haugalygi. Auk þess em ótelj- andi dæmi þess að verkalýðsfélögin ; hafi samþykkt að falla frá kaup- hækkunum gegn því að landbúnað- S arvömr hækkuðu ekki. Hvert dæm- ið af öðm og aldrei hefur verið tal- að um sölu mannréttinda í því sam- ; bandi. En ef þetta er sala mannrétt- inda flugstjóra og flugumferðar- : stjóra, þá tek ég það á mig. Og : síðan geta fomstumenn háskóla- manna barist fyrir æviráðningu fískverkunarfólks, sem stendur frammi fyrir atvinnuleysi." Að þora að standa á sannfæringu sinni Hann tekur hraustlega í nefíð segjandi: „Helvitis undanhald og aumingjaskapur. Þora - ekki að standa á einum einasta punkti.“ Málum sé ekkert þannig fyrirkomið að verðlagshækkanir umfram græn strik kjarasamninga 1. nóvember leiði sjálfkrafa til samsvarandi hækkunar launaliða. Þvert á móti sé kveðið á um viðræður aðila og beri þær ekki árangur verði hægt að segja kaupgjaldsliðum samning- anna lausum 1. desember. „Hver ætlar að fara út í verkfall 1. desem- ber? Hverslags mgl og kjaftæði er þetta eiginlega? Hvar lifa menn? Það var hægt að fara út í verkfall 1. desember hér í gamla daga, en ekki nú. Þetta er bara spuming um að þora að standa á sannfæringu sinni eða aka seglum eftir vindi þeirrar ríkisstjómar sem situr að völdum hverju sinni. Ég hef haft sömu afstöðu til beggja þessara ríkisstjóma. Ég hef haft hagsmuni verkafólks að leiðarljósi. Hitt er dálítið einkennilegt að á sama tíma og ég er sakaður um sölu mannrétt- inda fæ ég upphringingar frá Ólafs- fírði, frá Vopnafirði, frá Þingeyri, frá Grindavík, frá Bolungarvík og frá öðm þessu fólki sem á að fara að reka út á gaddinn. Ég er alls ekki sammála því að atvinnurek- endur greiði meira í vexti en í launa- umslag fískverkunarfólks. Það sér hver maður að þetta er geggjun. Ég verð bara að standa og falla með þessari afstöðu," segir hann og fær sér aftur í nefíð og bætir við. „Ég fékk ekkert taugaáfall við þessar yfírlýsingar, en mér þótti vænt um upphringingamar utan af landsbyggðinni." Ekki hægt að hækka þálægstu — Nú er sífellt verið að tala um láglaunafólkið og að það þurfí að beijast fyrir því. Finnst þér ekki öll þessi umræða bera keim af tvískinnungi, til dæmis innan Al- þýðusambandsins? „Það sem er kannski dýpsta mein launafólks á íslandi er hversu erfitt er að halda á málum láglauna- fólks. Ef það er hækkað þá þola þeir hærra launuðu það ekki og heimta sömu hækkanir sér til handa. Meðan að jafnréttishugar- farið er ekki meira en þetta þá er ekki von um stóran árangur. Þetta er þegar farið að setja dálítið sterk- an svip á þjóðfélagið og það ömur- lega er að þetta mein skuli fyrst og fremst vera innan hreyfingarinn- ar.“ Hann þagnar og þögnin verður löng, svo löng að ég ætla að fara að spyija hann frekar þegar hann heldur áfram. „Mér virðist verka- lýðsfélög ófaglærðs fólks vera að veikjast og menn ættu að athuga sinn gang í þeim efnum. En félög sérfræðinga og sérmenntaðs fólks eru að verða helmingi harðvítugri og frekari og sérhyggjan veður þar uppi. Verkalýðsbaráttan er að verða hvað hörðust hjá hvers konar sér- hyggju- og sérhagsmunahópum. Það er nú það ömurlega." — En er þama raunveruleg verkalýðsbarátta á ferðinni? „Nei, ekki að mínu viti. Þetta er ekki sú _ verkalýðsbarátta sem ég þekkti. Ég vil ekki lýsa yfír andúð á sérmenntuðu fólki almennt, en það verður margt hvert miklu kröfuharðara og tillitslausara, en þeir sem minna mega sín. Sé sá lægsti eitthvað hækkaður, heimtar það í prósentuvís það sama yfír til sín plús eitthvað meira. En það er með jafnréttið og mannréttindin á vörunum, sko,“ og hann snýtir sér hraustlega. „Þetta er eiginlega sá hlutur sem almennt verkafólk ætti að fara skoða í dag. Hvort samtök þess séu ekki að verða veikari, en samtök annarra sterkari og hvort þetta boði ekki vaxandi stéttaskipt- ingu og launamisrétti á íslandi, sem hefur verið einkenni undanfarinna ára. Það er ekki hægt að hækka lægstu laun nema í andróðri þeirra hærra launuðu og það ískyggilega er að þessara sjónarmiða skuli gæta innan sjálfs Alþýðusambands- ins. Það og verkalýðsfélögin verða að athuga sinn gang og setja sér ákveðin markmið um lágmarks- kaupmátt og almenn atriði er snerti lífskjör fólks. Launamisréttið er vaxandi. Það er verið að tala um að laun hafí hækkað, en þau hækk- uðu mest hjá forstjórum og sérfræð- ingum. Þar varð launasprenging. Menn hneyksluðust og það réttilega þegar það kom upp úr kafínu að forstjóri SÍS í Bandaríkjunum var með eina og hálfa milljón á mán- uði. Hér er stór hluti forráðamanna fyrirtækja, forstjóra og sérfræðinga á launum frá 300—500 þúsund krónur á mánuði." Hann segir að veikleikinn liggi að verulegu leyti þar í að hreyfíng- in sé orðin sjálfri sér sundurþykk. „Hreyfíngin er {hættu,“ segir hann þegar ég spyr hvert steftii. „Menn verða að gera sér það ljóst. Hún getur klofnað upp í frumeindir hve- nær sem er. Það þarf ákaflega mikla stjómlist til að halda Al- þýðusambandinu saman.“ — Ertu bjartsýnn á að það ta- kist? „Þetta er dýpra heldur en að það sé hægt að ásaka einn mann eða tvo um það. Það þarf ákaflega djúp- an hugarfarsuppskurð á hreyfíng- unni. Vinnuveitendasambandið, þó slæmt sé, hefur því miður of mikið rétt fyrir sér þegar það segir. Ef við hækkum eitthvað við þá lægst- launuðu þá verður að yfírfæra það yfir á alla í prósentum." Vaxandi stéttaskipting Hann ræðir þróunina og bendir á að það færist í vöxt að eldra fólk kaupi sér þjónustuíbúðir í stað þess að fara inn á elliheimili, en það sé ekki verkafólk sem hafi efni á slíku. Það sé einungis á færi forstjóra og annarra slfkra að standa í svo rán- dýrum framkvæmdum í flestum til- vikum. „Er þetta ekki spegilmynd- in. Hvað yngra fólkið í verkalýðs- hreyfíngunni snertir þá er reglan sú að báðir foreldrar vinni og vinnu- dagurinn er oft langur og erfiður. Þá er ekki hægt að sinna sem skyldi skólanámi bamanna. Eru framhaldsskólamir ekki að greinast miklu meira en var? Eru ekki færri böm úr láglaunastéttum að fara upp i háskólana? Dragast þessi böm ekki aftur úr? Mér virðist þetta vera ákaflega áberandi og við séum að fjarlægjast hugsjónir jafnréttis- ins. Greind er svo afstætt hugtak. Það eru allir með sína hæfileika og það er spuming hvort böm verka- fólks dragist ekki aftur úr vegna þeirra aðstæðna sem þeim eru bún- ar. Það leiðir til þess með tímanum að hér verður stéttaskipting eins og í Bretlandi. Faðirinn kolanámu- maður í sex ættliði. Það má fínna að því að ítök verkalýðshreyfíngar- innar eru ekki nógu sterk í þjóð- félaginu á þetta lífsmunstur, þar sem neyslukapphlaupið vegur þyngst. Verðmætamatið er orðið svo skekkt. Ég treysti mér ekki til þess að predika yfir ungu fólki um hvemig það eigi að eyða peningun- um sínum, en mig hryllir við öllum þeim skuldbindingum sem ungt fólk tekur á sig vegna fánýtra hluta.“ Hrun ef kemur til atvinnuleysis Hann segir að það sem einkenni íslenskt þjóðfélag sé að hér sé ekk- ert atvinnuleysi. I þeim eftium greinum við okkur frá öðrum vest- rænum samfélögum, þar sem fólk er kannski komið um þrítugt án þess að hafa nokkum tíma fengið atvinnu. „Það eru engin smá verð- mæti sem fara í súginn; það er vinn- an sem skapar verðmætin. Undir- strikaðu það. Og það er undirstað- an. Bæði hjónin vinna og böm og unglingar vinna með skólum. Þetta er afstætt þjóðfélag. Það er óskap- lega háspennt og ég óttast mjög afleiðingar þess ef fer að draga mjög verulega úr vinnu. Ég tala nú ekki um ef það kemur til at- vinnuleysis. Þá verður hmn. Það gerist meira en gerist erlendis. Hér teflir fólk á tæpasta vað. Skuldir af húsnæði, bílum og hvers konar hlutum sem nútíminn krefst. Sumt af því er að vísu tilbúnar þarfir, en húsnæðismálin skipta sköpum. Þær em drápsklyfjar á ungu fólki. Eldra fólk, sem á orðið skuldlaust hús- næði, kemst betur af. Þess vegna er svo mikið í húfí. Ég er gífurlega hræddur við þessi gjaldþrot. Ekki þó einhver einn og einn fari á haus- inn heldur að gjaldþrotin verði keðjuverkandi og fleiri og fleiri fyr- irtæki velti. Hvar endar það þá? Hafa menn nokkuð hugsað út í sérstöðu íslands hvað þetta snertir? Þama verður verkalýðshreyfingin að marka sér ákaflega grimma og markvissa stefhu. Svo em það gengislækkaniraar og óðaverðbólg- an í kjölfarið, sem leiða beint til glötunar. Það hafa að vísu svo mörg illvirki verið framin í nafni baráttu gegn „verðbólgu" að fólk er tortryggið, en verkalýðshreyfíng- in verður að hafa það í huga að hún eykúr á misréttið." Enginn ótvíræöur pólitískur málsvari Guðmundur segir að verkafólk eigi sér engan ótvíræðan pólitískan málsvara í dag. Það sé sundrað á pólitíska sviðinu. „Alþýðubandalag- ið var að ýmsu leyti býsna sterkur verkalýðsflokkur, að visu alltaf umdeildur. Fýlgi þess meðal kenn- ara og annarra háskólamanna hefur ekki minnkað, en það hefur orðið gjörbreyting á fylgi Alþýðubanda- lagsins hjá almennu verkafólki." Hann þagnar og þögnin verður svo löng að ég sé mig tilneyddan til þess að spyija um skýringar á þvf að svo skuli komið. „Ég vil nú helst ekki svara því. Ég veit eigin- lega ekki hvemig maður á að rekja þróun þessa flokks. Hún er svo ömurleg og að sumu leyti and- sfygg*leg.“ segir hann og hálfhlær við. „Ég held að flokkur sem hefur upplifað þetta þurfí verulega að skoða rætur sínar. Hann er orðinn mjög sundurlaus og er Qarri því að vera afgerandi verkalýðsflokkur í þjóðfélaginu. Hann hefur glatað því. Síðan er ástandið í flokknum, valdabaráttan, illvígar persónudeil- ur um mannvirðingar og málgagn flokksins, sem var að ýmsu leyti mjög menningar- og verkalýðssinnr að blað. Að lesa blaðið nú er stund- um eins og skrúfað sé frá skólp- röri. Persónuárásir og persónuníð, sem byggjast á uppslætti og hasar- fréttum. Blaðið hefur ekki fylgst með tímanum. Það er einlitt mál- gagn ákveðins valdahóps f Alþýðu- bandalaginu og því verða stað- reyndir oft að víkja til að koma höggi á pólitískan samheija. Það er ákaflega slæm heimild um alla samtíðarsögu og þar eiga menn ekki inni með hlutlægar frásagnir af vandamálum verkalýðshreyfíng- arinnar eða þjóðfélagsins. Það er einhver afbrigðilegur hópur menntamanna sem stendur fyrir þessu og á ekkert skylt við þá gömlu verkalýðshyggju og jafnréttishug- sjón, sem flokkurinn stóð fyrir í eina tíð,“ segir Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.