Morgunblaðið - 13.11.1988, Síða 16
Ud
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
SALIN VERÐI
SAMFERÐA
Aldrei hefði mér nú dottið í hug, að ég ætti eftir að skemmta mér
í kirkju, hvað þá skella upp úr eins og í gamanleikhúsi.
Reyndar er kirkjusókn ekki meðal forgangsatriða í mínu lífí,
mér finnst aimættið auðfúndnara úti i náttúrunni, í briminu við
ströndina eða læknum á heiðinni, í norðangarranum eða mildurn
sunnanþeynum, í leiftri norðurljósanna eða yl sólarinnar. En þó
framar öllu í litlu barni, undri lífsins með framtíðina í augunum.
Kirkja vekur helst með mér hugleiðingu um harða bekki, sem
gegni þvi hlutverki að hindra menn í að sofna undir stólræðunni.
Aðra skýringu er erfítt að finna á því, hvers vegna kirkjubekkir
eru oft einhver verstu sæti, sem fyrirhitt verða.
Sem bami fannst mér þó svolítil
tilbreyting í kirkjuferðum þrátt
fyrir hörðu bekkina, og vissulega
áttum við stelpumar stundum bágt
með okkur að skella ekki upp úr í
miðri messunni, en það hafði ekk-
ert með blessaðan prestinn okkar
Reykdælinga að gera, heldur tengd-
ist flissaldrinum óhjákvæmilega.
í seinni tíð em það fá önnur til-
efni en árleg þingsetning, sem
draga mig til kirkju, og sannast
sagna hafa þær kirkjuferðir ekki
skilið mikið eftir í huganum né
vakið neina sérstaka gleði, enda
sennilega ekki til þess ætlast.
En svo gerðist hið óvænta undir
stólræðu séra Úlfars Guðmundsson-
ar á þingsetningardaginn síðasta,
að orð hans og kímileg framsetning
kveiktu bros á hveiju andliti og
jafnvel skellihlátur. Enginn þurfti
að beijast við svefninn undir ræð-
unni þeirri, sem skildi meira eftir
en margar heimsósómaprédikanir,
sem sumum þykir mátulegt vega-
nesti handa þingmönnum inn í vet-
urinn.
Fáeinir hafa séð ástæðu til að
býsnast yfir kátínu þingmanna und-
ir stólræðu séra Úlfars, og Pressan
spurði m.a.s. 6 kennimenn um af-
stöðu þeirra til þvílíks háttalags.
Þeim sýndist sitt hveijum, en sem
betur fer vora hinir umburðarlyndu
fleiri.
Séra Úlfar talaði við þingmenn
um kærleikann og hinar ýmsu
myndir hans og hversu mikilvægt
það væri að ástunda kærleika að
yfírlögðu ráði. Hann talaði um
kraftinn til að elska ■■■■■■■
þá sem ekki era el-
skanlegir og jafnvel
þá sem okkur þætti
hundleiðinlegir, eins
og hann orðaði það.
Það var ekki síst sú
athugasemd, sem
kitlaði hláturtaug-
amar. Betri áminn-
ingu er vart hægt
að hugsa sér til
starfsstéttar, sem
eyðir dijúgum hluta
tíma síns í hávaðas-
ama og hlífðarlausa
gagnrýni á annarra
verk og skoðanir.
Mér hefur oft orð-
ið hugsað til orða
séra Ulfars, en ekki
síður til þess, hvemig hann reiddi
fram sinn boðskap. Hvergi örlaði á
yfírlæti né ásökun, heldur var hvert
orð umvafið góðlátlegri gamansemi
og hlýju. Betur að slíkur tjáningar-
máti væri fleiram eiginlegur.
HUGSAD
UPPHÁTT
/ dag skrifar Kristín
Halldórsdóttir,
þingkona Kvennalista
Alþingi er einkennilegur vinnu-
staður, og væri nú synd að segja,
að andi vinsemdar og hlýju svifí þar
yfír vötnum. Reyndar er mér löngu
orðið ljóst, að í þeim efnum er ekki
allt sem sýnist, því þar geta svokall-
aðir andstæðingar í pólitík verið
meiri og betri vinir en þeir sem
samheijar teljast. Samflokksmenn
þurfa því ekki síður en pólitískir
andstæðingar á því að halda að
ástunda kærleika að yfírlögðu ráði
í anda séra Úlfars, að ekki sé nú
minnst á þá sem sitja hlið við hlið
á ríkisstjómarfundum.
Þarna er leikinn
ákveðinn leikur með
skráðum og óskráð-
um reglum, sem
mótast hafa í ár-
anna rás, og beygi
menn sig undir þess-
ar reglur era þeir
velkomnir í klúbb-
inn, annars geta þeir
átt sig. Dómaramir
sitja svo í stúku
fréttamanna og
koma úrslitum á
framfæri. Mörkin
skora þeir sem
kunna að tala í fyrir-
sögnum, og ekki
sakar að krydda mál
sitt með meinhæðn-
skeytum til
um
Teikning/Pétur Halldórsson
pólitískra andstæðinga.
Margir strákanna hafa óskaplega
gaman af þessum leik og era snjall-
ir iðkendur, enda er þetta beint
framhald af mælskukeppni fram-
haldsskólanna og JC-námskeiðun-
um. Þessi leikur var mér stöðugt
rannsóknarefni fyrsta kastið á
þingi, og ég minnist sérstaklega
eins starfsbróður míns, sem kunni
svo vel við sig í ræðustólnum, að
ég hefði ekki orðið undrandi þótt
hann tæki með sér brauðsneið að
maula á milli ræðukaflanna.
Auðvitað er lúmskt gaman að
þessum skylmingum, þegar hnyttn-
ir orðhákar eiga í hlut, en mikið
skelfíng era þær oft ófijóar. Þessa
dagana einkennast þær aðallega af
„þú gerðir það“-uppgjöri milli fyrr-
verandi og núverandi ráðherra, sem
hafa í heiðri spakmælið góðkunna,
lítillega endurbætt: „Það er mann-
legt að skjátlast, en að skjátlast og
kenna öðram um það, það eru
stjórnmál."
Á slíkum stundum er gott að
minnast orða séra Úlfars um kær-
leika að yfírlögðu ráði, jafnvel í
garð þeirra, sem manni þykja hund-
leiðinlegir.
Stundum geri ég mér það til
dundurs að reyna að ímynda mér,
hvemig þessi starfsvettvangur
Vetrarskoðun
fyrir
Skipt um kerti
Skipt um platínur
Skipt um loftsiu
Skipt um viftureim ef þarf
Stillt kveikja
Stilltur blöndungur
Stillt tímakeðja
Stillt ljós
Stillt kúpling
Rakavarið kveikjukerfl
Smurt í hurðalæsingar
ísvari i bensín
ísvari á rúðusprautu
Mælt frostþol á kælikerfl
Mæld hleðsla
Sett silikon á þéttikanta
Ath. bremsuslöngur
Ath. bremsuvökvi
Ath. undirvagn
Hreinsuð geymasambönd
Hert á handbremsu
Prufuakstur
Verð aðeins kr. 5.800 með varahlutum.
Varahl.: Kerti, platínur, loftsía, ísvari og rakavari.
Samara, verð aðeins kr. 5.000,- með varahlutum.
Ath.: Erum einnig með smurþjónustu fyrir LADA.
Bifreiðaverkstæðið Auðbrekku 4, Kóp.
Sími 46940.
Þýskar jakkapeysur
v/Laugalæk, sími 33755.