Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
vera uppreisnarmenn úr röðum
Tamíl-tígranna, sem hafa barizt
fyrir sérstöku ríki Tamíla á Sri
Lanka í sjö ár. Samkvæmt einni
heimild fékk ein hreyfing þeirra
(LITE) tvær milljónir Bandaríkjad-
ala fyrir að útvega málaliðana. Um
50,000 indverskir hermenn hafa
tekið þátt í baráttunni gegn tígrun-
um“ síðan þeir voru sendir til Sri
Lanka í fyrra að beiðni stjórnarinn-
ar þar.
Talið er að fyrrverandi forseti
Maldiveyja og aðrir kunnir menn
þaðan hafi skipulagt byltingartil-
raunina. Þeir eru Saguru Nasir, sem
sumir töldu að væri dulnefni Amirs
Ibrahims Nasirs fv. forseta, Ibrahim
Maniku, Mohammed Didi og Abd-
ullah Luthufi, 38 ára gamall kunnur
og efnaður kaupsýslumaður, sem
hefur búið á Sri Lanka síðan 1985.
Þeir eru allir pólitískir andstæðing-
ar Maumons Abdul Gayoons forseta
og talið er að Nasir hafi greitt
málaliðunum laun, en félagar hans
notað sambönd sín á eyjunum.
Nasir var forsætisráðherra og
forseti í 21 ár unz hann sagði óvænt
af sér 1978 og Gayoon, sem sakaði
hann um fjárdrátt, var kjörinn eftir-
maður hans. Maldiveyjar, sem eru
um 2,000 að smáeyjum meðtöldum,
(aðeins 210 eru í byggð og 57 eru
ætlaðar auðugum ferðamönnum),
voru brezk nýlenda 1887-1965 og
soldándæmi til 1968 þegar lýst var
yfir stofnun lýðveldis. Flestir íbú-
amir, sem eru um 200,000, eru
súnnítar og lifa aðallega á fiskveið-
um, ferðamannaþjónustu og land-
búnaði. Flestir tala ensku, en fomt
afbrigði af tungu Sínhala á Sri
Lanka er ríkismál.
Gayoon, sem var samgönguráð-
herra áður en hann varð forseti
1978, er af gamalli yfirstétt, sem
hefur stjómað eyjunum frá fomu
fari. Hann var endurkjörinn 1983
og aftur í september sl. Enginn
bauð sig fram gegn honum í haust
og hann hlaut yfir 90% atkvæða.
Þótt hann hafi reynt að varðveita
gamla islamska menningu hefur
hann opnað landið fyrir erlendum
ferðamönnum og stuðlað að fram-
förum.
Hann hefur aukið samskiptin við
Sri Lanka og Indland, fengið Jap-
Maldíveyjar
íbúafjöldi: um 200 þús.
Landsvæði:
210 eyjar í byggð.
Heitt og rakt loftslag.
Ríkistrú:
Sunní-múhameðstrú.
Atvinnuvegir: Fiskveiðar,
landbúnaður og ferðamanna-
þjónusta (kókoshnetur).
Saga: Bresk nýlenda til 1965;
soldánsríki til 1968.
Ihlutun Indverju sýnir hernaðarntcvtf þeirra
INDVERSKT herskip Godavari, kom á þriðjudaginn til
Male, höfuðborgar Maldiveyja á Indlandshafi, með 65
málaliða frá Sri Lanka, sem höfðu gert misheppnaða
byltingartilraun nokkrum dögum áður og neyðzt til að
gefast upp. Auk þeirra kom herskipið með tvo maldiv-
ska vitorðsmenn þeirra og átta af um 30 gíslum, sem
þeir höfðu haffc á brott með sér í 5,000 lesta flutninga-
skipi, Progress Light.
Byltingartilraunin fór út um þúfur
tæpum sólarhring eftir að hún
hófst, þegar 1600 indverskir fall-
hlífahermenn komu á vettvang að
beiðni forseta landsins og komu á
Iögum og reglu. Godavari, fleiri ind-
versk herskip og flugvélar veitti
Progress Light þegar hluti málalið-
anna flúði með skipinu frá Male.
Tuttugu sinnum var hótað að skjóta
á skipið og í hvert skipti fóru mála-
liðamir með gísla sína upp á þiljur.
Málaliðamir vildu komast til
Colombo, höfuðborgar Sri Lanka,
og semja um gíslana við stjómar-
fulltrúa Indveija og Breta þar, en
kröfu þeirra var hafnað. Að lokum
stukku indverskir fallhlífahermenn
um borð í Progress Light úr þyrlum
og náðu skipinu á sitt vald, 90 km
frá strönd Sri Lanka. Skipið hafði
laskazt mikið þegar Indvetjar skutu
á það við brottförina frá Male og
daginn eftir fór það á hliðina og
sökk. Þá höfðu allir, sem voru í
Progress Light, verið fluttir um
borð í Godavari og aðra indverska
freigátu.
Lík íjögurra gfsla fundust eftir
töku Progress Light. Þriggja eða
fjögurra gísla er saknað og talið
er að þeir hafi verið drepnir. Sjö
særðust og vom fluttir flugleiðis til
Trivandrum á Suður-Indlandi
ásamt sjö, sem særðust í bardögun-
um í Male.
Tamíl-tígrar
Þeir sem tóku þátt í árásinni á
Male töluðu tamílsku og virtust
VörAur vlö bygglngu herlAgreglunnar: harðir bardagar í nokkra klukk-
utíma.