Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 24

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER HÚSGaNGflR okkar á milli... M Það eru ekki mörg ár síðan Goodtemplarareglan á íslandi átti 100 ára afinæli. Voru þess- um tímamótum gerð nokkur skil í Qölmiðlum, m.a. í sjón- varpi, þar sem sýnt var frá hát- iðafimdi reglunnar. Tveir Húsvíkingar sátu heima í stofú og voru að kíkja í glas og fylgd- ust með myndum frá afinælis- fagnaði Goodtemplara. Þótti Húsvikingum afinælisgestir flestir vel við aldur, og sagði annar þeirra um leið og hann lyfti glasinu: „Þetta eru greini- lega aflt stofnfélagar." — JS I Fyrir nokkrum árum kom fúlltrúi frá einhverri trúar- hreyfingu í Gagnfræðaskólann á Húsavik og ræddi við nemend- ur um trúmál. M.a. sagði þessi fúlltrúi að eina leiðin til þess að tryggja frið í heiminum væri að hafa aðeins eina þjóð, eina trú og einn flokk. Einn nemenda sem var ákaflega pólitískt með- vitaður spurði þá að bragði: „Ætti það þá kannski að vera Framsóknarflokkurinn?" — JS ■ VESTUR-ÞÝ SKUM stjóm-málamönnum og dýrasér- Sræðingum ofbýður sú staðreynd að hundar bíta 5.000 börn i landinu á ári. Þeir vilja að hunda- eigendur verði skikkaðir til að hafit hundaskírteini eins og vél- hjólaeigendur verða að hafa ök- uskírteini. „Hundar geta verið alveg jafn hættulegir og vélhjól," sagði krati sem berst fyrir mál- inu á þingi. Hann vill að hunda- eigendur verði knúnir til að taka „hundapróf*. íhaldskona tekur undir orð hans og segir að það aé timabært „að setja hundaeig- endur í beisli“. ■ íslenska þjóðin er víst skáksjúk. Að minnsta kosti var getið um það i fréttum á dögun- um að engri annarri þjóð væri eins gjarnt að Qölmenna til að horfa á menn tefla. Ekki virðast þó allir nægi- lega vel að sér I þessari list og kalla skákina leik þar sem menn sitji tímum saman og ýti útskomum trékubbum fram og aftur um köflóttan dúk. Og Örnólfi f Ytra-Ási varð á orði þessi vísuræfill um daginn að ioknum sjónvarpsfréttum: Menn eru að hamast og hefla, - eða heitir það kannski að tefla? Þeir gera það suður í sveitum á sextíu og eitthvað reitum.-spe. ■ ÞRÍR unglingar undir 18 ára aldri deyja daglega af skotsárum i Bandaríkjunum. Tveir eru myrtir og einn ferst af slys- förum. 1 Flórída er sérstaklega algengt að unglingar skjóti hver áannan. Tilaðdragaúr þeirri þróun er nú boðið upp á tíma í meðferð skotvopna fyrir fólk á öllum aldri. Þar á að reyna að koma unglingum i skilning nm að skotvopn séu hættuleg, að það er hægt að særa og jafnvel drepa sjálfa sig og aðra með þvi að handleikaþau. ■ SVISSARAR, sem taka lífið og tilveruna yfirleitt mjög hátf- ðlega, hafa mestar áhyggjur af umhverfinu og eiturlyQum heimafyrir. í heimsmálum valda alnæmi og hungursneyð þeim mestum áhyggjum. Þetta kom fram f nýlegri könnun sem einn stórbankanna lét gera. Umhverf- ismálin hvíla sérstaklega þungt á þýskurnælandi Svisslendingum. 83% þeirra höfðu mestar áhyggj- ur af þeim á meðan aðeins 45% frönskumælandi landa þeirra nefiidu umhverfið sem helsta áhyggjuefni sitt. Þeir höfðu helst áhyggjur af framboði á fbúðar- húsnæði. Þjóðhátíð í Sovét Einhvem tíma heyrði ég að síðasta ósk Lenins hefði verið að ekkert yrði nefnt eftir honum. Hann ku sumsé ekki hafa verið hégómagjarn eins og síðar varð regla með leiðtoga sovésku þjóðar- innar. Sá sem eyðir flestum vinnudögum vikunnar á Lenín- bókasafiiinu, ferðast innanbæjar með Lenín-neðanjarðarlestunum og býr á Leninhæðum (þó ekki í Leníngrad) getur varla varist brosi þegar þessa meintu síðustu ósk byltingarleiðtogans ber á góma. Óskaplega hlýtur Vladimir Íljítsj að líða illa í grafliýsi sínu á Rauða torginu. Hitt er svo annað mál að hann á það vafidaust skilið að hans sé minnst með einhveijum hætti. Til dæmis þegar haldið er upp á „hina miklu sósialisku októberbyltingu" þann 7. nóvember. Fró Ama Þór Sigurðssyni í MOSKVII Hér mætti svo sem hugsa sér að láta fylgja skýringu á því hvers vegna októberbyltingin var í nóvember, en ég kýs að ganga út fiá því sem vísu að lesendur muni það úr mannkynssögunni að skipt var um tímatal eftir byltingu, svo engar skýringar fylgja hér. Ekki alls fyrir löngu var ég að þvæiast í bænum að kvöldi til með félögum mínum. Þar sem við ökum eftir litlu stræti og ætlum út í Gorkíjgötu, eina af höfuðgötum Moskvuborgar, heyrum við ægileg- ar drunur og lögregluvörður vamar okkur útkeyrslu á Gorklj. Þegar við svo förum út til að kanna á hveiju gengur, blasir við okkur röð af skriðdrekum og herbflum sem koma rúllandi niður Gorkíjgötu með stefn- una á Kreml. Mér dettur fyrst í hug að nú séu Tékkar komnir til að greiða gamla skuld, þeir kæra sig jú ekkert um umbótastefnu Gorb- atsjovs. En fljótlega er ég leiddur í allan sannleika. Hér er vitaskuld um að ræða „generalprufu" fyrir 7. nóvember-hátíðahöldin. Þau hef ég stundum séð í sjónvarpi og mér þykir aldrei nokkur munur á þeim frá ári til árs (nema kannski að skipt hefur verið um slagorð), svo ég botna ekkert í því að það þurfi að æfa sérstaklega hersýninguna, einungis að muna hvemig hún var í fyrra. En auðvitað. Nú em ef til vill aðrir dátar, trúlega fá hetjumar frá Afganistan að vera f broddi fylkingar f ár. (Þessi athugasemd mín fellur ekki í góðan jarðveg — best að halda sig á mottunni.) Svo kemur 7. nóvember með venjulegri viðhöfn. Hersýning á Rauða torginu, vamarmálaráðherr- anum ekið í „lfmosínu" um torgið, stöðvað með reglulegu millibili og föðurlandið hyllt. Hver kannast ekki við „ritúalið“? Allt með sama hætti og í fyrra, ekkert ber út af. Ofan á Lenín blessuðum, það er að segja grafhýsinu, standa þeir svo allir saman leiðtogamir þessir jafn- ari (það ber að undirstrika þeir, því það getur varla heitið að konum sé hleypt í forysturaðimar), Gorb- atsjov, Ryzhkov, Shevardnadze og hvað þeir heita nú allir. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er á Rauða torginu í eigin persónu við svona hátíðahöld, það kitlar hé- gómagimina örlítið. En því verður ekki neitað að sovétmenn eru snill- ingar í að láta svona sýningar líta vel út. Einu sinni hélt ég að hver sem er gæti komið og verið við- staddur dýrðina í hjarta Moskvu- borgar en því er nú ekki þannig farið. Það er auðvitað bara útvalinn hópur sem verður þess heiðurs að- njðtandi að fá aðgöngukort að Rauða torginu. Almúginn verður að láta sér nægja imbakassann ef hann á annað borð kærir sig eitt- hvað um þessa sýningu. Flestir eru væntanlega fegnastir að fá frí úr vinnu enda frídagar fáir, a.m.k. samanborið við þau lönd sem leita sér að frídögum í Biblíunni. Þegar hátfðahöldunum f miðbænum er lokið er farið að undirbúa veislur kvöldsins og er þá ekkert til sparað. Eitthvað í þessum dúr líður þjóð- hátíðardagur Sovétmanna 7. nóv- ember. Snjallt hjá þeim hér að hafa daginn eftir einnig frídag. Sérstak- lega hlýtur Lenín að verða hvfldinni feginn eftir að hafa haft arftaka sína ofan á sér og hersveitir þramm- andi framhjá sér liðlangan daginn. Mig skyldi í öllu falli ekki undra. B MARGIR FORELDRAR ANDA LÉTTAR GESTIR AF GAGIMSTÆÐA KYIMINU BAIMNAEMR ÞEIR hafa bannað gesti af gagnstæða kyninu eftir klukkan 11 á kvöldin í heimavist Boston-háskóla (Boston Univers- ity, BU). Skólayfirvöld telja að stúdentar séu i skólanum til að læra það sem í bókum stendur og það sem af munni kennara rennur, en ekki til að gera „tilraunir“ í samvinnu við gagnstæða kynið. Og sagan segir að margir foreldrar andi léttar vegna hinnar nýju stefiiu skólans. Fró Óla Birni Kórasyni í Þegar John Silber, forseti (rektor) Boston-háskóla, gerði steftiu skólans opinbera brugðust margir nemendur ókvæða við. Mótmælagöngur voru skipulagðar og slagorðin um brot á mannréttindum og rétt til ein- kalífs hljómuðu um skólann. Á sjöunda áratugnum gengu nem- endur Boston-háskóla eins og nemendur margra annarra skóla og mótmæltu Víetnam-stríðinu. í lok áttunda og í byrjun þessa ára- tugar einbeittu þeir sér að and- stöðu gegn kjamorkuvopnum. En nú er viðfangsefnið „mikilvæg- ara“ en oft áður, enda stúdentar ekki tilbúnir til að gefa eftir rétt- inn, að hafa næturgesti af gagn- stæða kyninu, án baráttu. Nýju reglumar eiga að taka gildi í janúar, hvort sem stúdent- um líkar betur eða verr. En eins og alltaf er ólíklegt að nemendur deyi ráðalausir. Það er alltaf hægt að smygla einum og einum nætur- gesti inn á herbergi (auðvitað með góðu samkomulagi við herbergis- félaga) og gesturinn getur siðan Iaumast út í skjóli nætur eftir að „tilraunum" er lokið. Um 8.300 nemendur Boston- háskóla búa í heimavist og sam- kvæmt könnunum bjóða þeir að meðaltali um 4.500 gestum í hverri viku að dvelja næturlangt. Skólayfirvöld segja að ekki sé verið að reka hótel og að nauðsyn- legt sé að skapa gott og friðsam- legt andrúmsloft til náms. Of for- eldrar þeirra stúdenta sem fengið Boston: Þau mega ekki heimsækja hvert annað hafa ókeypis sýnikennslu í því sem fullorðna fólkið gerir að næturlagi frá herbergisfélögum og gestum þeirra, eru sammála skólayfír- völdum. En þar með er ekki öll sagan sögð. Yfirvöld Boston-háskóla hafa einnig kynnt nýja og harðari stefnu í áfengismálum. Sam- kvæmt nýjum reglum mega heimavistarbúar (þ.e.a.s. þeir sem eru 21 árs eða eldri) ekki geyma meira áfengi en sem svarar 6 bjór- dósum (sem er að vísu meira en íslendingar geta leyft sér) eða einni léttvínsflösku á herbergjum sínum, sterkt áfengi verður ekki leyft innan dyra skólans. Þessi regla virðist hins vegar ekki hafa valdið eins miklum deilum og bann við næturgestum, enda þeir ef til vill nauðsynlegri en áfengi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.