Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLiT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
ERLENT
INNLENT
Bankarnir
lækka vexti
Viðskiptabankarnir lækkuðu
vexti verulega á fimmtudag og
enn frekari vaxtalækkanir verða
11. desember. Að mati Seðlabank-
ans verða bæði raunvextir og
nafnvextir af útlánum hér þá
orðnir svipaðir eða lægri en í ná-
grannalöndunum. Til að liðka fyr-
ir raunvaxtalækkun tilkynnti
Seðlabankinn að á næsta ári yrði
byrjað að greiða vexti af bindi-
skyldu bankanna í Seðlabankan-
um.
Vikið úr starfí
hæstaréttardómara
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, staðfesti form-
lega á föstudag, ákvörðun Hall-
dórs Ásgrímssonar dómsmála-
ráðherra um að víkja Magnúsi
Thoroddsen fyrrverandi forseta
Hæstaréttar úr starfi hæstarétt-
ardómara um stundarsakir vegna
áfengiskaupa hans á sérkjörum á
meðan hann var handhafi forseta-
valds.
Lækjargata 4
brotnaði
Ríkið hjálp-
ar Arnarflugi
Amarflug tapaði á annað
hundrað milljónum kr. á rekstrin-
um fyrstu níu mánuði ársins og
hefur félagið leitað til ríkisins um
aðstoð. Til greina kemur að selja
aðra Boeing 737 þotu félagsins
og að ríkið leggi fram hlutafé.
Tap fiskvinnslu
2 milljarðar
Tap fískvinnslunnar á þessu ári
er nú áætlað 2 milljarðar króna,
en ekki 8-900 milljónir eins og
Þjóðhagsstofnun hefur talið.
Steingrimur Hermannsson for-
sætisráðherra, segir að launa-
kostnaður fiskvinnslu sé of mikill.
Hann segir gengisfellingu ekki
vera á döfinni.
Löwenbráu á Akureyri
Sanitas byrjar á næstunni að
brugga þýska Löwenbrau-bjórinn
í verksmiðju sinni á Akureyri.
Neðri hæð hússins
Lækjargata 4 féll sam-
an og efri hæðin lagðist
upp að næsta húsi þeg-
ar verið var að flytja
húsið upp í Árbæjarsafn
um síðustu helgi. Þrátt
fyrir óhappið tókst að
kóma húsinu á áfanga-
stað en endurreisn þess
verður dýrari fyrir
bragðið.
ERLENT
Armenar flýja
Azerbajdzhan
Bhutto í ráð-
herrastólinn
Pakistanar fögn-
uðu ákaft á
fimmtudag er
Benazir Bhutto
var skipuð for-
sætisráðherra
landsins. Bhutto
er fyrst kvenna
til að gegna leiðtogahlutverki í
fslömsku ríki og jafnframt einn
yngsti þjóðarleiðtogi heims en hún
er 35 ára að aldri.
Ákvörðun^
Bandaríkjasljórnar
fordæmd
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna fordæmdi á miðvikudag þá
ákvörðun bandarískra stjómvalda
að neita Yasser Arafat, leiðtoga
PLO, um vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna. Arafat hugðist
ávarpa allsherjarþingið í New
York en umræður um málefni
Palestínumanna verða að líkind-
um fluttar til Genfar.
Stjórnarskrá
Sovétríkjanna breytt
Æðsta ráð Sovétríkjanna sam-
þykkti á fimmtudag víðtækar
breytingar á stjómar-
skrá Iandsins. Athygli
vakti að fimm fulltrúar
frá Lettlandi greiddu
atkvæði gegn breyting-
unum en 27 fulltrúar
frá Eistlandi og Litháen
sátu hjá. íbúar Eystral-
saltsríkjanna óttast að
breytingamar leiði til
aukinnar miðstýringar
en Míkhafl Gorbatsjov
hefur lýst yfir þvi að
tekið verði tillit til hags-
muna einstakra lýð-
velda.
Að minnsta kosti 40.000 Armenar
höfðu á miðvikudag flúið frá Sov-
étlýðveldinu Azerbajdzhan til
Armeníu. Átök Armena og Azera
hafa kostað ekki færri en 28
mannslíf undanfamar vikur og
hervörður er á götum borga í lýð-
veldunum tveimur.
Fjölflokkakerfi í írak
Saddam Hus-
sein, forseti ír-
aks, skýrði frá
því á sunnudag
að ákveðið hefði
verið að leyfa
starfsemi stjór-
málaflokka í
landinu. Flokur forsetans, Baath-
flokkurinn, hefur farið með völdin
undanfarin 20 ár.
Sjónvarpskappræður í
Póllandi
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
þótti bera sigurorð af formanni
hinnar opinberu verkalýðshreyf-
ingar í Póllandi er þeir mættust
í sjónvarpskappræðum á miðviku-
dagskvöld. Þetta er f fyrsta skipti
frá árinu 1981 sem Walesa kemur
fram í pólska ríkissjónvarpií.u en
kappræður sem þessar eiga sér
ekki fordæmi þar í landi.
Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna:
Umræða um Palestínu-
málið flyst til Genfar
Bandaríkin og ísrael á móti, Bretland situr hjá
Sameinuðu þjódunum. Reuter.
Allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti f atkvæðagreiðslu á
fostudag að flytja umræður um Palestínumálið til Genfar í Sviss. Einn-
ig var sú afstaða bandarfskra stjórnvalda hörmuð að endurskoða ekki
ákvðrðun sfna um að synja Yasser Arafat, formanni Frelsissamta Pa-
lestfnu, PLO, um vegabréfsáritun til að koma til New York og ávarpa
Allsheijarþingið.
Yfírgnæfandi meirihluti eða 154
ríki var fylgjandi því að umræð-
umar færu fram í Genf dagana
Rotary-klúbb-
ar stofiiaðir
aðir aust-
anjárnfjalds?
Chicago. Reuter.
ROTARY-félagsskapurinn freist-
ar þess nú að stofha klúbba í
Moskvu, Varsjá og öðrum helztu
borgum Austantjaldsríkja, að
sögn talsmanns alþjóðasamtak-
anna, sem hafa höfuðstöðvar f
útborginni Evanston í Chicago.
Philip Lindsey, framkvæmdastjóri
Rotary Intemational, sat á mið-
vikudag hádegisverðarfund með 160
sovézkum framámönnum í Chicago.
Fyrir fundinn sagði hann að viðræð-
ur hefðu ekki hafizt við sovézk yfir-
völd um stofnun Rotary-klúbbs í
Moskvu. Viðræður af því tagi stæðu
hins vegar yfir við yfirvöld í Varsjá,
þar sem Rotary-klúbbur var starf-
andi fram að seinna stríði.
í alþjóðasamtökum Rotary eru alls
um 23.800 klúbbar f 162 löndum og
eru félagar í þeim á aðra milljón.
Samtökin vinna í þágu aldraðra, fatl-
aðra og bágstaddra. Að sögn Lind-
seys getur stefna samtakanna og
reglur, m.a. um inntöku félags-
manna, gengið á skjön við opinbera
stefnu stjómvalda í sumum Áustan-
tjaldsríkjanna.
13.-15. desember en ísrael og Banda-
ríkin voru á móti. Bretland sat hjá.
Verður þetta í fyrsta skipti í 37 ár
sem Allsheijarþingið fundar í Evr-
ópu. Árið 1951 kom Allsheijarþingið
saman í Palais de Chaillot í París á
meðan verið var að reisa höfðustöðv-
amar í New York.
Bandarísk stjómvöld sögðu í gær
að þótt ónauðsynlegt hefði verið að
skipta um fundarstað þá mjmdu full-
trúar þeirra verða til staðar í Genf
um miðjan mánuðinn. Hins vegar var
ályktun allsheijarþingsins mótmælt
fyrir harkalegt orðalag.
Bandaríkjamaðurinn Joseph Reed,
aðstoðarframkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna með málefni Allsheij-
arþingsins á sinni könnu, hefur sent
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
bréf þar sem hann mótmælir með-
ferð ríkisstjómarinnar á Arafat-
málinu og segir hana „furðulega og
þversagnakennda." „Bandaríkin
beijast fyrir málfrelsi um allan heim.
Samt viija þau ekki leyfa Arafat að
koma til Bandaríkjanna til að tala á
almannafæri á alþjóðlegu yfirráða-
svæði," segir Reed sem er hæst setti
Bandaríkjamaðurinn í framkvæmda-
stjóm SameinuðU þjóðanna.
Bhutto fagnað
Ungir Pakistanar fagna því að Benazir Bhutto, forsætisráðherra
Pakistans, hefur aflétt banni við starfsemi námsmannahreyflnga
og verkalýðsfélaga. Bhutto var skipuð forsætisráðherra á föstu-
dag fyrst kvenna í ríki múhameðstrúarmanna.
Míkhafl S. Gorbatsjov
bregður sér af bæ
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi leggur
land undir fót á þriðjudag og dvelst Qarri heima-
högunum í viku. Verður firóðlegt að sjá hvort
greinar eða „lesendabréf ‘ gegn umbótastofh-
unni taka þá að birtast í sovéskum dagblöðum
líkt og yfirleitt hefur gerst þegar húsbóndinn
hefiir brugðið sér af bæ. Gorbatsjov mun fara
víða. Hann mun hitta Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, að máli í Lundúnum, kyssa
skeggjaðar kinnar Fídels Castro Kúbúleiðtoga
en fyrst mun hann halda til Bandarikjanna þar
sem hann ávarpar allsheijarþing Sameinuðu
þjóðanna og ræðir við Ronald Reagan Banda-
rikjaforseta og arftaka hans og lærisvein, Ge-
orge Bush.
Míkhaíl Gorbatsjov
etta verður í fimmta og síðasta
skiptið sem þeir Reagan og
Gorbatsjov koma saman en áður
hafa þeir átt fundi í Genf,
Reykjavík, Washington og Moskvu.
í þetta skiptið verður ekki um eig-
inlegan leiðtogafund að ræða því
ekki er gert ráð fyrir því að form-
legar samningaviðræður fari fram.
Sovétmenn Ieggja raunar áherslu
á að þeir telji viðræðumar mjög
mikilvægar en bandarískir embætt-
ismenn hafa sagt að samskipti risa-
veldanna verði rædd á breiðum
grundvelli og að farið verði yfir
stöðu mála á vettvangi afvopnunar-
viðræðna, mannréttinda og tvíhliða
samskipta ríkjanna.
Gorbatsjov er væntanlegur til
New York á þriðjudag en á mið-
vikudag ávarpar hann allshetjar-
BAKSVID
eflir Ásgeir Sverrisson
þingið. Síðar mun hann eiga hádeg-
isverðarfund með þeim Reagan og
Bush á Manhattan og er búist við
að hann standi í tvær klukkustund-
ir. Verður þetta f fyrsti fundur
þeirra Bush og Gorbatsjovs frá því
sá fyrmefndi var kjörinn forseti
Bandaríkjanna 8. nóvember síðast-
liðinn. Bush lýsti yfir því er hann
keppti við demókratann Michael
Dukakis um forsetaembættið að
hann hygðist leita eftir fundi með
Gorbatsjov hið fyrsta næði hann
kjöri. Síðar bætti Bush því reyndar
við að hann teldi ástæðulaust að
ræða við Sovétleiðtogann ef ekki
væri fyrirsjáanlegt að sá fundur
gæti skilað árangri.
Gorbatsjov mun að auki eiga
fund með bandarískum iðnjöfmm
þar sem einkum verða ræddir
möguleikar á auknum viðskiptum
auk þess sem hann mun opna sov-
éska vörusýningu á Manhattan. í
för með honum verða eiginkona
hans Raísa Maxímovna, Edúard
Shevardnadze utanríkisráðherra og
Alexander Jakolev, sem á sæti í
stjómmálaráði kommúnistaflokks-
ins._
Á föstudag heldur Gorbatsjov
suður til Kúbu á fund Fídels Castro
en á mánudag heldur hann til
Lundúna og ræðir við Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands. Að líkindum verða afvopnun-
armál ofarlega á. baugi, einkum
fyrirhugaðar viðræður um jafn-
vægi og niðurskurð hins hefð-
bundna herafla í Evrópu auk þess
sem Gorbatsjov mun að líkindum
freista þess að fá Thatcher til að
leggja blessun sína yfir að mann-
réttindaráðstefna verði haldin í
Moskvu árið 1991 en Thatcher og
ráðamenn í Bandaríkjunum hafa
látið í ljós efasemdir um að höfuð-
borg Sovétríkjanna geti talist eðli-
legur staður fyrir slík fundahöld.