Morgunblaðið - 04.12.1988, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
FORLAGIÐ KYNNIR
Bemie S. Siegel
KÆRLEIKUR - LÆKNINGAR -
KRAFTAVERK
Hér er sagt frá einstæðum hæfileika sjúklinga
til að læknast af sjálfsdáðum, þeim sjúklingum
sem hafa svo sterkan vilja til að sigrast á
sjúkdómum sínum að þeim tekst að lifa af.
Boðorð læknisins er einfalt: Hægt er að ná
undraverðum árangri með því að beita
kærleik, skilningi og innsæi. Ef sálarlífið er í
jafnvægi eykst líkamanum styrkur. Bókin á
ekki aðeins erindi til sjúklinga heldur líka til
lækna og hjúkrunarfólks og allra fullfrískra
manna sem láta sér annt um heilsu sína.
Kenneth og Valerie McLeish
TÓNLISTARSAGA ÆSKUNNAR
í fyrsta skipti eiga íslensk börn og unglingar
þess kost að fræðast um tónlist á móðurmáli
sínu í vönduðu og íburðarmiklu alfræðiriti.
Fjallað er um sígilda tónlist Vesturlanda, fræg
tónskáld, popptónlist, djass og tónlist
framandi þjóða. Einnig er leiðbeint um tónlist
á hljómplötum til að hlusta á. í bókinni eru
rúmlega 1000 myndir sem hafa ómetanlegt
upplýsingagildi. Bókin er einkum ætluð
börnum sem eru að hefja tónlistarnám eða vilja
vita meira um þá tónhst sem þau heyra á
hljómplötum, í útvarpi eða sjónvarpi.
Colin Spencer
GRÆNT OG GÓMSÆTT
Nýjung á íslandi. Fjölbreytt safn uppskrifta
fyrir þá sem neyta vilja jurtafæðis, eftir einn af
frægustu matreiðslumeisturum Breta. Hér er
matur við allra hæfi, þeirra sem hafa neytt
jurtafæðis lengur eða skemur og hinna sem
vilja prófa það til tilbreytingar og sér til
heilsubótar. ítarlegir kaflar um hollar máltíðir
og hugað er að þörfum barna, þungaðra
kvenna, íþróttamanna og roskins fólks. Þá er í
bókinni myndskreytt orðaskrá um krydd,
ávexti og grænmeti sem matreiða skal.
HEIMSBÓKMENNTIR
Á ISLENSKU
Dorís Lessing
DAGBÓK GÓÐRAR GRANNKONU
Ung og glæsileg kona í ábyrgðarstöðu kynnist
gamalli og snauðri konu sem alla ævi hefur
barist fyrir tilveru sinni. Meistaraleg saga um
sárar tilfinningar þess sem er sviptur getu sinni
og rétti til að varðveita mannlega reisn. Við
kynni sín af gömlu konunni lærir sú unga að
meta líf sitt á ný og gefa því tilgang - handan
sýndarmennsku og sjálfumgleði. Þuríður
Baxter þýddi.
Juan Benet
ANDRÚMSLOFT GLÆPS
Á auðnum Spánar hefur morð verið
framið. Um nokkra hríð umturnar
atburðurinn lífi þeirra sem silast
áfram í lognmollu héraðsins og les-
andinn er leiddur inn í „andrúmsloft
glæpsins“, inn í kæfandi andrúmsloft
valdbeitingar og niðurlægingar á tím-
um Francos. Marglofuð verðlauna-
bók eins fremsta rithöfundar Spán-
verja. Guðbergur Bergsson þýddi.
Ævintýri bamanna
RAUÐHETTA - PÉTUR PAN
HANS HUGPRUÐI
Sígild ævintýri sem börn hafa skemmt sér við, kynslóð
fram af kynslóð. Hér eru þau endursögð við
hæfi yngstu barnanna.
Sigrún Eldjám
KUGGUR TIL SJÁVAR OG
SVEITA
Nýjar sögur um Kugg og vini
hans: þær Málfríði og mömmu
hennar - kostulegar kerlingar
sem ekki kalla allt ömmu sína
þegar taka skal til hendinni, að
ógleymdum Mosa - glaðlyndu
og hrekkjóttu kríh sem býr yfir
'ótrúlegum hæfileikum.
Rúmlega 40 litmyndir eftir
höfundinn.
Jane Elliot - Colin King
HEIMUR í HNOTSKURN
Þessi litríka bók hefur að geyma
ógrynni af hagnýtum fróðleik
við hæfi barna. Hvað veistu um
jörðina, dýralíf og gróður á
hnettinum, sögu mannkyns og
þróun vísindanna? Fjörlegar
litmyndir eiga ríkan þátt í að
gera flókna hluti svo auðskilda
að hvert barn getur notið þeirra.
Lars Welinder - Harald
Soneson
JÓLAGJÖFIN
Grástakkur gamli var búálfur og
bjó einn í kofa. Hann var líka
fjarska einmana. En dag
nokkurn birtist heil fjölskylda í
kofanum. Hvílíkt gleðiefni fyrir
gamla búálfinn. Og nú tók hvert
ævintýrið við af öðru. Heillandi
saga, prýdd fjölda litmynda.
BARNABÆKUR
FORLAGSINS
FORLAGIÐ
ÆGISGÖTU 10, SÍMI 91-25188
Marit Claridge -John Shackell
LIFANDI HEIMUR - LÍFIÐ
f KRINGUM OKKUR
Hvaða gagn gerir sólin? Hvers
vegna geta fuglarnir flogið? Geta
fiskar cirukknað? Hvað er nátt-
úruvernd? Hér fá börnin svalað
forvitni sinni um náttúruna og
svör við spurningum um lífið í
kringum okkur. Bók sem er
ætlað að temja börnum virðingu
fyrir öllu því sem lifir og andar í
kringum okkur.