Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 8
IfíOlf 8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 r) A ri er sunnudagur 4. desember, 2. sd. í jóla- föstu. 339. dagur ársins 1988. Árdegis- flóð í Reykjavík kl. 2.58 og síðdegisflóð kl. 15.07. Sólarupp- rás í Rvík kl. 10.54 og sólarlag kl. 15.42. Myrkur kl. 16.54. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.18 og tunglið er í suðri kl. 8.29. (Almanak Háskóla íslands.) Því að ég er þess fiillviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum. (Róm. 8, 38.) ÁRNAÐ HEILLA Q JT ára afinæli. í dag, 4. OO desember, er 85 ára Þórey Sverrisdóttir, Ás- braut 9, Kópavogi. Hún er að heiman. f7A ára aftnæli. í dag, 4. I V/ þ.m., er sjötugur Sig- urður Ingimundarson, Smáratúni 19, Selfossi. Hann ætlar að taka á móti gestum í Tryggvaskála þar í bænum, kl. 16—19, í dag, afmælisdaginn. f7A ára afinæli. Á morg- I \/ un, mánudaginn 5. þ.m., er sjötugur Þorgils Þorgilsson, bóndi, Efri- Hrísum í Fróðárhreppi, Snæf. Hann ætlar að taka á móti gestum á heimili systur sinnar, í Rauðagerði 64 hér í bænum, eftir kl. 20 á af- mælisdaginn. GULLBRÚÐKAUP. í dag, sunnudag, 4. desember, eiga gullbrúðkaup hjónin frú Bergljót Guttormsdóttir frá Hallormsstað og Ólafiir H. Bjamason, Lynghaga 8, hér í bænum, deildarstjóri við Tollstj óraembættið. ÞETTA GERÐIST ERLENDIS gerðist þetta þennan dag, 4. desember: 1586: Elizabet drottning staðfestir dauðádóm Maríu Skotadrottningar. 1676: Danski herinn sigrað- ur í harðri orrustu viðjLund. 1798: Frakkar segja Nap- oli-ríki stríð á hendur. 1893: Bretar og Frakkar ná samkomulagi um Síam. 1919: Stofnun konungsríkis Serba, Króata og Slóvena lýst yfir. 1962: Hundruð andstæð- inga Ben Bella í Alsír hand- teknir. 1966: Harold Wilson og Ian Smith ræðast við um upp- reisn í Rodesíu. 1971: Indverskt herlið gerir árás á A-Pakistan. LÁRÉTT: 1 vont, 5 að- LÓÐRÉTT: 2 kassi, 3 komumanna, 8 skapvond, 9 nagdýr, 4 kjafta, 5 kæta, 6 lofa, 11 bál, 14 miskunn, 15 bókstafur, 7 spils, 10 kemur gegnsætt, 16 truntu, 17 að óvörum, 12 með díla, 13 keyra, 19 kvenmannsnafn, fullorðinn, 18 urgur, 20 flan, 21 hræðsla, 22 furða sig á, 21 mynni, 23 lést, 24 sam- 25 leðja, 26 hugarburð, 27 tök. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÓÐRÉTT: 1 fjara, 5 skáli, 8 ólina, 9 hlass, 11 ældir, 14 ill, 15 rólið, 16 dreps, 17 afa, 19 efir, 21 agni, 22 tómlæti, 25 nýt, 26 álf, 27 róa. LÓÐRÉTT: 2 jól, 3 rós, 4 alsiða, 5 snælda, 6 kal, 7 lúi, 9 hermenn, 10 afleitt, 12 drengir, 13 ristina, 18 fall, 20 ró, 21 at, 23 má, 24 æf. MÁLSTOFA í lyfja- firæði verður á morgun, mánudag, 5. þ.m. í Hugvís- indahúsi háskólans, Odda, stofu 101, kl. 20. Baldur Símonarsson, dósent í lífefnafræði, flytur fyrirlestur er nefnist: Snefilefnið selen og hlutverk þess í næringu og heilsu manna og dýra. SAMTÖKIN um sorg og sorgarviðbrögð halda fræðslufund í safnaðarheimili Hallgrímskirkju nk. þriðju: dagskvöld kl. 20.30. „í myrkrum ljómar lífsins sól.“ Dr. Sigurbjöm Einarsson ræðir um Guð og sorg. HÁDEGISVERÐAR- FUNDUR presta verður á morgun, mánudag, í safnað- arheimili Bústaðakirkju. BASAR Guðspekifé- lagsins verður í húsi þess, Ingólfsstræti 22, í dag, sunnudag, og hefst kl. 14. KVENFÉLAG Keflavíkur heldur jóla- fundinn annað kvöld, mánu- dagskvöld, í Kirkjuhvoli kl. 20.30. KVENFÉLAG Garða- bæjar heldur jólafundinn nk. þridjudagskvöld í Garðaholti kl. 20.30. ÞJÓÐFRÆÐAFÉLAG- IÐ heldur fund annað kvöld, mánudagskvöld, kl. 20 í stofu 301 í Ámagarði, Suðurgötu. Minnst verður þess að á þessu árí voru liðin 100 ár frá dauða Jóns Amasonar. SAFNAÐAFÉLAG Ás- prestakalls heldur jólafund sinn nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Sóknarprestur flytur hug- vekju. MANNAMÓT KVENFÉLAG Háteigs- sóknar heldur jólafundinn nk. þriðjudagskvöld í Sjó- mannaskólanum kl. 20 og verður þár borinn fram jóla- matur. KVENFÉLAG Lang- holtskirkju heldur jóla- fundinn nk. þriðjudagskvöld í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 20.30 fyrir félagsmenn og gesti. Fjölbreytt dagskrá að loknum fundarstörfum. FÉLAG eldri borgara. Opið hús í dag, sunnudag, í Goðheimum, Sigtúni 3 kl. 14. Fijálst spil og tafl, dansað kl. 20. Á morgun, mánudag, opið hús í Tónabæ kl. 1.30 og spiluð félagsvist kl. 14. KVENFÉLAG Laugar- nessóknar. Jólafundur verður annað kvöld, mánu- dagskvöld, í safnaðarheimil- inu kl. 20. Jólapakka-skipti, kaffiveitingar m.a. KVENNADEILD Barð- strendingafél. heldur fund á Hallveigarstöðum nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30. KVENFÉLAG Hafnar- flarðarkirlq'u heldur jóla- fund í Gaflinum við Reykja- nesbraut í kvöld, mánudags- kvöld, kl. 20.30. Kórsöngur, einsöngur, efnt til jólahapp- drættis og flutt hugvekja. KFUK, Hafnarfirði, að- aldeild heldur jólakvöldvöku nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í húsi félaganna. Fjölbreytt dagskrá, cand. theol Bene- dikt Amkelsson talar. Kaffi- veitingar. FÉL. svæðameðferð. Jólafundur félagsmanna og gesta þeirra verður í Hollyday Inn á morgun, mánudag, kl. 21.15. Gestur fundarins, Vemharður Guðmundsson, sem talar um aðventuna. SYSTRAFÉLAG Alfa heldur árlegan ijölbreytan basar í dag, sunnudag, í Ing- ólfsstræti 19 og hefst hann kl. 14. DANSK Kvindeklub heldur jólafundinn, julemöde, nk. þriðjudagskvöld í Risinu, Hverfisgötu 105 kl. 20. Ýmis- legt til skemmtunar og jóla- kaffi borið fram. KVENFÉLAG Selja- sóknar heldur jólafundinn nk. þriðjudagskvöld í kirkju- miðstöðinni kl. 20.30. JÓLAKAFFI Hrings- ins er í dag, sunnudag, á Hótel íslandi, hefst kl. 14 og lýkur kl. 17. Jafnframt fer fram sala happdrættis- miða. Skemmtiatriði verða flutt. FRÉTTIR______________ FATAÚTHLUTUN á vegum Mærðastyrksnefiid- arinnar hér í bænum fer fram í Traðarkotssundi 6 í þessum mánuði sem hér seg- ir: 6., 7., 8., 13., 14., 15., 20., 21. og 22. desember, allt- af á sama tíma kl. 15—18. FRÆÐSLUFUND heldur Fuglavemdarfélagið nk. þriðjudagskvöld í Lögbergi, húsi lagadeildarinnar. Þar flytur fyrirlestur dr. Ólafur Karl Nielsen, fuglafræð- ingur, og mun fjalla um rann- sóknir sínar á fálkanum. Fræðslufundurinn er sem aðr- ir fundir á vegum félagsins opinn öllum. SKIPIN RE YK JA VÍKURHÖFN: Togarinn Ögri kom í gær úr söluferð. Á morgun, mánu- dag, er Eyrarfoss væntan- legur frá útlöndum og togar- inn Skafti kemur inn til lönd- unar. ORÐABÓKIN Hverju var hann sviptur? Því miður hafa allt of margir ekið ógætilega um greiðfærar götur og á stundum svo glanna- lega, að löggæzlumenn hafa neyðzt til að svipta ökuþórana réttindum á staðnum. í þessu sam- bandi er farið að bera á nýstárlegri notkun so. að svipta í fjölmiðlum. Þar segjar sumir stutt og laggott: Hann var svipt- ur. Ég býst við, að marg- ur spyiji þá sjálfan sig. Hveiju var hann sviptur? Vissulega sést af sam- henginu, að hann hafði umsvifalaust verið svipt- ur ökuréttindum sínum. Þessi noktun so. að svipta í þolmynd hefur einkum skotið upp kollinum á síðustu mánuðum eða svo, enda verða engin dæmi fundin um hana í orðabókum. Nú er það svo, að so. að svipta tekur með sér tvö föll, þ.e. að svipta e-n e-u. Lögreglan svipti manninn ökuleyfi er þá sagt í svokallaðri germynd. Sé þessu breytt í þolmynd, helzt að jafn- aði annað fallið óbreytt. Maðurinn var sviptur ökuleyfí, segja menn þá. Enda þótt fiinna megi hliðstæðu þessarar notk- unar í sd. að ræna, sbr. hann var rændur, er með öllu þaflaust að ýta undir þessa þróun. Hún slævir einungis máltilfinningu manna. — JAJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.