Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 ntÉTTASKÝRING EHGAR REGLIJR ll\GAR Yll» II! AIAHK LIIIÐAÐHALD eftir Svein Guðjónsson Samanlagður risnukostnaður ríkisins árið 1986 nam rúmum 80,7 miiyónum króna á þágildandi verðlagi, sem eru 119,4 miiyónir króna á verðlagi dagsins i dag. Þótt ekki liggi fyrir opinberar tölur fyrir árið 1987 má með einföldum framreikningi, með hliðsjón af hækkunum frá 1983 til 1986, ætla að kostnaður vegna risnu sé nú farinn að nálgast 200 miiyónir króna. Kostnaður vegna áfengiskaupa vegur þar þó sáralítið enda megnið af áfenginu keypt á kostnaðarverði frá ÁTVR, sem nemur um 10% af útsölu verði til almennings. Auk forseta íslands, handhafa forsetavalds, forstjóra ÁTVR og Alþingis njóta ráðuneytin slíkra kjara og reyndar einnig Eimskipafélag íslands, Rikisskip og Fríhöfiiin á Keflavikurflugvelli, samkvæmt bréfi frá 1964, sem virðist vera eina skráða heimildin um hvaða reglur gilda í þessum efiium. Hvað þremur síðastnefiidu fyrirtækjunum viðvíkur er þetta þó eingöngu bundið við áfengi sem ekki kemur til neyslu innanlands. Staðreyndin er hins vegar sú að skýrar reglur um framkvæmd eða viðmiðanir áfengiskaupa á sérkjörum eða risnu hins opinbera eru ekki til og virðist sem menn hafi þar byggt á einhverjum óljósum hefðum og viðkomandi embættismenn orðið að meta það hver fyrir sig hvað hóflegt sé í þessum efiium. Ólafúr Ragnar Grímsson fjármálaráðherra hefúr í samtali við Morgunblaðið lýst því yfir, að hann muni beita sér fyrir því að þessar reglur verði nú þrengdar og meðal annars, að heimild handhafa forsetavalds til áfengiskaupa á sérkjörum verði afnumin. Fríðindi æðstu embættis- manna ríkisins, hvað varðar áfengiskaup á vildarkjör- um, hafa verið í brennidepli undanfama daga. Magnúsi Thor- oddsen, fyrrum forseta hæstaréttar, hefur verið veitt lausn frá embætti hæstaréttardómara vegna ætlaðra ávirðinga í sambandi við áfengiskaup hans á kostnaðarverði frá ÁTVR meðan hann gegndi hlutverki sem einn af handhöfum forsetavalds. Mál hans verður lagt fyrir dómstóla og úr því skorið hvort honum verður endanlega vikið úr embætti með tilv- ísun til 61. greinar stjómarskrárinn- ar. En angar þessa máls teygja sig víðar. Fyrir liggur, að hefð er fyrir því að einstaka embættismenn og ráðuneyti nýti sér heimild til áfengis- kaupa á sérkjörum þótt í misjöfnum mæli sé. Sumar þessar hefðir em áratuga gamlar, þar á meðal sú hefð að ráðuneyti þeih-a flokksforingja sem við völd sitja hveiju sinni greiði fyrir hanastélsboð á flokksþingum viðkomandi flokka. Einnig er löng hefð fyrir því að ráðuneyti kosti stór- afmæli ráðherra sinna, þótt dæmi séu um að einstaka ráðherrar hafi ekki nýtt sér þau hlunnindi. Þá má til gamans nefna að áratuga hefð er fyrir því að starfsfólk alira ráðuneyta fái tvær flöskur af áfengi á kostnað- arverði á hveiju vori, en hefð þessi er upphaflega tilkomin vegna vor- ferðalags ráðuneytanna, sem nú er löngu aflagt þótt hefðin gildi enn. En þetta er þó sparðatíningur, sem veit hefur verið upp í tengslum við áfengiskaup fyrrum forseta Hæsta- réttar, þar sem ýmsar spumingar hafa vaknað. Menn vijja fá skýr svör um það, hvaða aðilar hafi heimild til áfengiskaupá á sérkjörum og hvemig þeir hafa nýtt þá heimild. Önnur grein af sama meiði varðar umfang opin- berra vínveitinga og risnukostnað á vegum hins opinbera. Það er hins vegar athyglisvert, að hvort heldur um er að ræða persónuleg fríðindi einstakra embættismanna eða risnu- kostnað ríkisins em engar skráðar reglur til um hámark eða skilyrði fyrir þessum áfengiskaupum á sér- kjöram. Það eina sem við er að styðj- ast í þessum efnum er bréf frá árinu 1964 þar sem tilgreindir eru þeir aðilar sem hafa heimild til kaupa á áfengi á kostnaðarverði, með breyt- ingum sem samþykktar voru í ríkis- stjóm árið 1971. ■ Fjármálaráðherra: Heimild handhafa forsetavalds til áfengiskaupa á sérkjörum afnumin í ársbyijun 1964 skrifuðu alþingis- mennimir Skúli Guðmundsson og Bjöm Kr. Bjömsson Áfengis- og tó- baksverslun ríkisins bréf með fyrir- spum um hveijir geti fengið áfengiá „kostnaðarverði". ÁTVR svaraði bréfinu 12. febrúar 1964 í samráði við fjármálaráðuneytið, samkvæmt gögnum í skjalasafni ráðuneytisins. I nefndu bréfi segir svo: „Sem svar við bréfi yðar dags. 23. f.m. viljum vér upplýsa eftirfarandi: 1. Þeir íslenskir aðilar búsettir hér á landi, er fá áfengi keypt hjá oss á kostnaðarverði eru þessin Forseti íslands, handhafar forsetavalds, ríkisstjóm, ráðherrar, ráðuneytin, Alþingi, forseti sameinaðs þings, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, Eimskipafélag ísiands, Ríkisskip, Fríhöfnin á Keflavíkurflug- velli. Þá hafa deildarforsetar Alþingis heimild til að kaupa áfengi á kostnað- arverði fyrir allt að 2.000 og varafor- setar Alþingis fyrir allt að 1.000 á hveiju þingi. Tekið skal fram, að handhafar for- setavalds hafa aðeins rétt til slíkra áfengiskaupa þann tíma, sem forseta- ■ Risnukostnaður ríkisins yfir 100 milljónir þótt stærsti hluti áfengiskaupa sé á kostnaðarverði valdið er í þeirra höndum. Áfengi það, er Eimskipafélag íslands og Ríkisskip kaupa er einungis selt í sigl- ingum milli landa og kemur því ekki til neyslu innanlands. Fríhöfnin selur aðeins farþegum flugvéla við brottför þeirra af landinu, og kemur því held- ur ekki til neyslu innaniands áfengi það, er hún selur." Á fundi ríkisstjómar 14. október 1971 var samþykkt: „1. Fríðindi þau við innkaup áfengis og tóba(<s, til einkanota, er ráðherrar og forsetar Alþingis hafa notið, skulu afnumin. 2. Við innkaup áfengis og tóbaks vegna boða, sem ráðherra heldur í embættisnafni, skuli þó haldast sömu reglur og verið hafa, enda annisthlut- aðeigandi ráðuneyti umrædd inn- kaup.“ Samþykkt þessi var kynnt ÁTVR 22. október 1971. Fríðindi einstakra embættismanna Ekki hefur reynst unnt að fá tæmandi upplýsingar um áfengis- kaup einstakra embættismanna ríkisins á kostnaðarverði og hafa forsvarsmenn ÁTVR borið því við að ekki séu gefnar upplýsingar um ■ Viðtekin hefð að handhafar forsetavalds nýti sér heimild til áfengiskaupa á kostnaðarverði einstaka viðskiptavini. Aðspurður um eigin úttektir kvaðst Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, ekki sjá ástæðu til að tjá sig nánar um þær á þessu stigi. Úttekt sú sem fjár- málaráðherra óskaði eftir nær ein- göngu til handhafa forsetavalds aftur til ársins 1982. Eins og áður segir hafa engar sérstakar reglur eða viðmiðanir gilt um þessi viðskipti og ef til vill ligg- ur þar hundurinn grafinn. Magnús Thoroddsen hefur borið því við að sér hafi ekki verið kunnugt um neinar slíkar reglur (sem von er) og því miðað vínkaup sín við þau laun sem hann hafi haft sem hand- hafi forsetavalds hveiju sinni. Enn- fremur e_r haft eftir Þorvaldi Garð- sameinaðs þings, að hann hafi keypt um 100 til 200 flöskur á ári þau ár sem hann var þingforseti og handhafi forsetavalds og hafi hann litið svo á að áfengiskaupin væru hluti af risnukostnaði síns embættis. (Reyndar voru flöskumar / v

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.