Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
17
Stríðsglæpirnir og
tvöfeldni Bretans
Kunnir, þýskir vísindamenn voru fengnir til að vinna að uppbygg-
ingu bresks iðnaðar eftir stríð þrátt fyrir nasíska fortíð sína. Kem-
ur þetta fram í nýútkominni skýrslu frá þingne&id, sem skipuð var
fulltrúum allra flokka á breska þinginu.
eitthvað fleiri samkvæmt áður-
nefndri úttekt.) ,
Risna hins opinbera
Risna merkir, samkvæmt Orða-
bók Menningarsjóðs, gestrisni,
rausn eða veitingar af hálfu hand-
hafa embættis vegna stöðu sinnar.
Risnukostnaður hins opinbera er
fyrst og fremst vegna veisluhalda,
það er matur, drykkur og þjónusta
við slíkar veislur, auk þess sem
kostnaður vegna gistingar og ferða-
laga erlendra gesta er stundum
bókfærður sem risna. Samkvæmt
upplýsingum frá embætti ríkisend-
urskoðanda er kostnaður vegna
áfengiskaupa aðeins örlítið brot af
risnukostnaði ríkisins, enda fellur
stærsti hluti af risnukostnaði ráðu-
neytanna undir aðalskrifstofu þar
sem áfengi er fengið á kostnaðar-
verði frá ÁTVR. Öðru máli gegnir
hins vegar um einstaka stofnanir
og fyrirtæki, sem greiða fyrir áfengi
á útsöluverði nema að viðkomandi
veisla sé haldin í nafni ráðuneytis-
ins.
Nú skal það skýrt tekið fram að
risna þarf ekki endilega að þýða
það sama og bruðl. Kostnaður
vegna risnu er oft óhjákvæmilegur
og nauðsynlegur, með tilvísun til
gestrisni og rausnar, ef íslendingar
vilja standa uppréttir í samfélagi
þjóðanna. Má í því sambandi benda
á að risnukostnaður utanríkisráðu-
neytisins, sem felur m.a. í sér risnu
sendiráða íslands erlendis, virðist
ekki hafa verið tiltakanlega mikill
á undanförnum árum í samanburði
við önnur ráðuneyti. Ráðuneytið ber
að vonum hæstan risnukostnað
ráðuneytanna og til samanburðar
má nefna að árið 1985 nam heild-
arrisnukostnaður þess 10,7 milljón-
um króna á móti 8,5 milljónum hjá
iðnaðarráðuneyti og 7,8 milljónum
hjá menntamálaráðuneyti sem
koma næst í röðinni með risnu-
kostnað. Af þessum 10,7 milljónum
nam risnukostnaður vegna sendi-
ráðsins í Washington rúmri einni
milljón og annarri milljón vegna
sendinefndar íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum og þykir sú upphæð
ekki há á bandarískan mælikvarða.
Af einstökum stofnunum skulu
hér nefndar þtjár, sem samkvæmt
ríkisreikningum bera tiltölulega
háan risnukostnað í samanburði við
aðrar. Þess skal þó getið, að þær
eru í misjafnri aðstöðu hvað varðar
áfengiskaup á sérkjörum. Risnu-
kostnaður Alþingis nam árið 1986
rúmum 4,6 milljónum króna á þá-
gildandi verðlagi. Að sögn Friðriks
Olafssonar skrifstofustjóra vega
þar þyngst tíðar móttökur erlendra
gesta, svo sem þingmannanefnda
frá ýmsum löndum. Friðrik tiltók
einnig hina árlegu þingmannaveislu
Alþingis og starfsmannaveislu sem
einnig er haldin einu sinni á ári.
Póstur og sími ber tiltölulega
háan risnukostnað í samanburði við
aðrar stofnanir. Árið 1984 nam
hann um 1,4 milljónum króna á
þágildandi verðlagi (nú.v. 3,1 millj-
ón), 1985 rúmlega 1,8 milljónum
(nú.v. 3 millj.) og 1986 tæplega 2,6
milljónum króna (nú.v. 3,8 millj.).
Ólafur Karlsson aðalendurskoðandi
Pósts og síma sagði að árið 1986
hefði að því leyti verið frábrugðið
að þá varð Póstur og sími 80 ára
og hér á landi var þá haldinn stór
fundur Alþjóða símamálasam-
bandsins (CEPT). Þetta tvennt
hefði haft í för með sér verulega
aukinn risnukostnað fyrir stofnun-
ina. Ólafur sagði að reyndar hefði
risnukostnaður þetta ár verið bók-
aður of hár, hefði með réttu átt að
bókfærast 2.399.235 krónur.
Risnukostnaður Pósts og síma hefði
svo aftur lækkað árið 1987 og þá
farið niður í 1. 664.607 krónur.
Ólafur kvaðst hafa ástæðu til að
ætla að Póstur og sími bókaði meira
á risnu en mörg önnur ríkisfyrir-
tæki, en hjá þeim væri til dæmis
innifalinn allur kostnaður vegna
ýmiss konar fundahalda innan
stofnunarinnar. Ólafur kvaðst
ennnfremur ekki vita til að Póstur
og sími hefði keypt áfengi á sérkjör-
um, heldur greitt fyrir fullt útsölu-
,verð ÁTVR.
Risnukostnaður Háskóla íslands
nam árið 1986 rúmlega 1,8 milljón-
um króna á þágildandi verðlagi,
sem ef til vill er ekki há tala miðað
við umfang þeirrar starfsemi sem
þar fer fram. Fastir starfsmenn
háskólans eru um 400 talsins og á
launaskrá eru allt að 2.000 manns
þegar allt er talið. Að sögn Gunn-
laugs Jónssonar fjármálastjóra ber
háskólinn talsverðan kostnað vegna
erlendra gesta, sem bókfærður hef-
ur verið sem risna. Núverandi há-
skólarektor hefði auk þess tekið upp
þá stefnu að auka mjög samskipti,
bæði innan háskólans og við ýmsa
aðila utan hans og fylgdi því tals-
verður risnukostnaður vegna kaffi-
boða og annarra samkvæma.
Risnukostnaður ríkisins skiptist
í A-hluta og B-hluta á sama hátt
og fjárlög eftir eðli fyrirtækja og
stofnanna. Honum er svo skipt í
fastan kostnað sem er ákveðinn í
fjárlögum og annan kostnað sem
er greiddur samkvæmt reikningum.
Fasti kostnaðurinn er sáralítill og
fer sífellt minnkandi, en annar
kostnaður sem greiddur er sam-
kvæmt reikningi fer hlutfallslega
hækkandi. Samkvæmt upplýsing-
um ríkisendurskoðanda eru ekki
gerðar athugasemdir við fjölda eða
upphæðir þeirra reikninga sem ber-
ast og ríkisendurskoðun hefur fram
til þessa ekki séð ástæðu til að
gera athugasemdir við risnukostnað
einstakra stofnana eða fyrirtækja
ríkisins. í stöku tilfelli hefur ríkis-
endurskoðun borið fram fyrirspurn-
ir um tilefni risnu og gert athuga-
semdir ef reikningar hafa verið
ófullnægjandi, svo sem þegar undir-
skrift vantar. Að öðru leyti virðast
engar reglur, viðmiðanir eða aðhald
vera fyrir hendi til að styðjast við.
Ráðuneytisstjórar eru ábyrgir fyrir
áfengiskaupum ráðuneytanna og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins bera þeir í flestum tilfellum
slík mál undir viðkomandi ráðherra.
Aðhalds er þörf
Umræður um áfengiskaup fyrr-
um forseta Hæstaréttar hafa vissu-
lega varpað skugga á æðstu valda-
stofnanir landsins og valdið trúnað-
arbresti milli þeirra og almennings.
Mefrn spyija sig hversu víðtækar
launauppbætur embættismanna í
formi brennivínsafsláttar séu og
hvaða rök mæli með því að ÁTVR
gefi slíkan afslátt. Hvað risnukostn-
að hins opinbera áhrærir má enn-
fremur spyija hvort ekki sé full
ástæða til að bókfæra kostnað
vegna áfengiskaupa á útsöluverði
ÁTVR svo hægt sé að meta raun-
verulegan kostnað vegna veislu-
halda hins opinbera. Öneitanlega
vaknar einnig sú spurning, hvort
ekki sé full ástæða til að beita
strangara aðhaldi í þessum efnum
en verið hefur og hvort ekki sé orð-
ið tímabært að setja skýrar reglur
um áfengiskaup á sérkjörum, ef
ekki afnema þessi vildarkjör með
öllu?
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði að í framhaldi
af þessu máli yrðu reglur varðandi
áfengiskaup á sérkjörum teknar til
rækilegrar endurskoðunar. Kvaðst
hann myndu beita sér fyrir að þær
yrðu þrengdar og kveðið skýrar á
um tilgang og ákveðna fram-
kvæmdaþætti þannig að þær tengd-
ust eingöngu gestgjafaskyldu og
annarri opinberri risnu. „Eg tel til
dæmis einsýnt að heimild handa-
hafa forsetavalds til áfengiskaupa
á sérkjörum verði afnumin og ég
mun beita mér fyrir því. Ef þeir
þurfa að sinna einhveijum gest-
gjafaskyldum er eðlilegast að það
fari í gegnum embætti forseta ís-
lands,“ sagði íjármálaráðherra.
Hvað varðar risnukostnað hins
opinbera kvaðst Ólafur Ragnar
myndu kynna sér nánar hvernig
þeim málum væri háttað. „Það er
ljóst að almennt óhóf í þeim efnum
er hvorki eðlilegt né rétt og ef í
ljós kemur að brögð eru að slíku
þarf að taka þar upp ákveðin og
hófleg vinnubrögð. Hins vegar er
eðlilegt að embætti og stofnanir
gegni ákveðnum gestgjafaskyldum,
en það verður að vera í hófi og
með ákveðnum blæ og hvorki fyrir
neðan virðingu hins opinbera né
virðingu gestanna."
Iskýrslunni er fjallað um komu
stríðsglæpamanna og samstarfs-
manna þeirra til Bretlands og er
komist að þeirri niðurstöðu, að
vegna vinnuaflsskortsins í Bretlandi
eftir stríð hafi eftirlit með þessum
mönnum bara verið til málamynda.
Greville Janner, einn þingmann-
anna í nefndinni, sagði, að eftir
stríð hefðu „þúsundir“ fyrrverandi
SS-manna flust til Bretlands.
Merlyn Rees, fyrrum innanríkis-
ráðherra og formaður nefndarinnar,
sagði, að Bretar ættu að fara að
dæmi Ástrala og Kanadamanna.
„Við verðum að sjá til, að þessir
menn gjaldi glæpa sinna, það verð-
ur að draga þá fyrir rétt,“ sagði
hann.
Stríðsglæpanefndin var skipuð
eftir að fram komu ásakanir um
það í október árið 1986, að 17 þýsk-
ir stríðsglæpamenn byggju í Bret-
landi. Gefa nefndarmenn í skyn, að
breskir embættismenn hafi vitandi
vits lokað augunum fyrir glæpum
sumra þýskra vísindamanna. Vitna
þeir í því efni til lista, sem var sett-
ur saman eftir stríð, en á honum
voru nöfn 152 þýskra vísinda-
manna, sem bresk yfirvöld vildu
koma höndunum yfir, ekki til að
refsa fyrir hugsanleg glæpaverk,
heldur til að nýta þekkingu þeirra
i þágu iðnaðar og hernaðarlegrar
uppbyggingar.
Fimmtán þessara manna höfðu
unnið fyrir þýsk fyrirtæki, sem
nýttu sér vinnuafl fanga í útrýming-
arbúðunum, og einn þeirra, sem á
listanum voru, dr. Walter Reppe,
beið þess að vera dreginn fyrir rétt
í Niirnberg. Annar, dr. Leo Casa-
grande, var háttsettur SS-foringi
og hafði notað fanga sem þræla i
stríðinu.
í mars árið 1946 sagði Jowitt
lávarður, forsoti hæstaréttar, um
þau nokkur hundruð þýskra
vísindamanna, sem þá höfðu verið
fluttir til Bretlands: „Ég er fús að
taka þá áhættu, að þeir séu nas-
istar — og liklega eru þeir það —
svo fremi þeir búi yfir mikilli þekk-
ingu og geti kennt okkar fólki eitt-
hvað, sem það vissi ekki áður.“
í skýrslu þingnefndarinnar segir,
að vinnuaflsskorturinn hafi verið
svo mikill í Bretlandi eftir stríð, að'
lítið sem ekkert hafi verið farið ofan
í saumana á málefnum flóttamanna
frá meginlandinu. Eru nefnd dæmi
um sex menn, sem Bretar leyfðu
að setjast að í landinu eða annars
staðar á Vesturlöndum þótt þeir
væru grunaðir um stríðsglæpi. Er
einn þeirra, Nikolai Poppe, enn
sagður búa í Seattle í Bandaríkjun-
um.
Við réttarhöldin í Nurnberg var
því lýst yfir, að SS-sveitimar þýsku
hefðu verið samtök glæpamanna.
Nefndin segir, að samt sem áður
hafi lettneskir SS-menn unnið í
breskum námum á árinu 1948. Fór
það ekkert á milli mála því að þeir
vom með húðflúrið, merki SS-sveit-
anna, til ama og hneykslunar fyrir
breska vinnufélaga þeirra. Stjórn
ríkiskolafélagsins og ríkisstjórnin
ákváðu þá að nýta krafta þeirra
þar sem þeir þyrftu ekki að vera
berir að ofan.
- MICHAEL SMITH OG
SARAH BOSELEY
GoldStar
GSM 6330S hljómtækja-
stæðan er með: 2x15W
útvarpi, hálfsjálfvirkum
plötuspilara o. m. fl.
magnara, 5 banda tónjafnara, Jólaverð aðeins: 18.700,- eða
tvöföldu segulbandi, hrað-
upptöku, síspilun, 3 bylgja
16.900,-
stgr.
GCD 60M hljómtækjastæðan hálfsjálfvirkumplötuspilarao.
er með: 2x50W magnara, 5 m. fl.
banda tónjafnara, tvöföldu Jólaverð aðeins: 43.900,- eða
segulbandi m, hraðupptöku, aaa
geislaspilara,3bylgjaútvarpi, stgr.
V/SA
Og
greiðslukjör til allt að 11 mán.
SKIPHOLTI
SIMI29800