Morgunblaðið - 07.02.1989, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR ,7. FBBRÚAR 1989
5
Islenska óperan:
Brúðkaup
Fígarós í
marsbyrjun
ÆFINGAR standa nú yfir á óper-
unni Brúðkaupi Fígarós eftir
Mozart i íslensku Óperunni. Að
sögn Garðars Cortes, óperu-
stjóra, verður hún frumsýnd í
byijun mars þegar sýningum á
Ævintýrum Hoffinanns eftir Off-
enbach lýkur i Þjóðleikhúsinu.
Með aðalhlutverk í Brúðkaupi
Fígarós fara þau Kristinn Sig-
mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, John
Speight, Hrönn Hafliðadóttir, Sig-
urður Bjömsson, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, sem syngur sitt fyrsta
óperuhlutverk, Viðar Gunnarsspn
og Sigríður Gröndal, ásamt kór ís-
lensku Óperunnar.
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir
óperunni og Anthony Hose stjómar
hljómsveit íslensku Óperunnar.
Búninga hannaði Alexander Vass-
eliev og Nikolai Dragan leikmynd.
Þau unnu öll einnig við uppsetningu
á Ævintýmm Hoffmanns. Ljósa-
meistari Operunnar, Jóhann Pálma-
son, hannaði lýsingu.
Viku varðhald:
Grunaður um
að hafa hagn-
ast á vændi
MANNI um fimmtugt hefur, að
kröfu RLR, verið gert að sæta
gæsluvarðhaldi til næsta föstu-
dags, vegna gruns um brot á 206.
gr. almennra hegningarlaga.
Tilvitnuð lagagrein kveður á um
allt að 4 ára fangelsi yfir þeim sem
stuðlar að því í ávinningsskyni, með
ginningum, hvatningum eða milli-
göngu, að aðrir hafi kynferðismök,
eða gerir sér lauslæti annarra. að
tekjulind.
Maðurinn hefur ekki áfrýjað úr-
skurðinum. RLR verst allra frétta
af rannsókninni og þar voru engar
aðrar upplýsingar fáanlegar um
málið.
Afengis-og tóbaks-
neysla minnkaði 1988
ÁFENGIS-og tóbaksneysla íslendinga minnkaði á árinu 1988 miðað
við árið áður. Áfengissalan dróst saman um 1,67% í lítrum talið. Sam-
drátturinn í tóbaksneyslunni nam 2,27%.
Heildarsala áfengis og tóbaks á
síðasta ári nam 7 milljörðum og 247
milljónum króna. Þar af seldist
áfengi fyrir 4,25 milljarða óg tóbak
fyrir tæpa 3 milljarða. Heildameysla
áfengis nam 3,23 milljónum lítra á
móti 3,28 milljónum lítra 1987.
Heildameysla vindlinga nam rúmum
431.000 lengjum á síðasta ári á
móti rúmum 441.000 lengjum árið
1987. Inn f þessar tölur er ekki tek-
in með áfengi/tóbak sem áhafnir
flugvéla og skipa taka inn í landið
með sér né það magn sem ferða-
menn koma með.
Af einstökum tegundum áfengis
var mest salan í Piat de Beaujolais
hvað rauðvín varðar eða 95.700
flöskur. Hvað magn rauðvíns varðar
var mest selt af Valpolicella eða
54.800 2ja lítra flöskur. Af hvítvíni
var mest selt af Hochheimer Daub-
haus eða 67.250 flöskur. Af rósavína
var mest selt af Matheus eða 54.000
flöskur.
Af koníaki var mest selt af Cam-
us Celebration á hálfflöskum eða
18.350 stykki. Remy Martin fylgir
fast á hælana með 15.000 flöskur.
Af sterku áfengi var langmest salan
á Smimoff vodka eða 295.650 flösk-
ur og á íslensku brennivíni eða um
225.200 flöskur. Af viskýtegundum
var Ballantine langvinsælast, alls
seldust 29.600 flöskur af venjulegu
Ballantine og 24.000 flöskur af 12
ára gömlu.
Af gini var mest selt af Beefeater
eða 65.750 flöskur. Af líkjörum var
Bailey's vinsælastur með 47.100
flöskur.
Hvað tóbakneyslu varðar er Wins-
ton með sérstöðu hvað vindlinga
áhrærir. Alls seldust 7.625.800
pakkar af rauðum Winston og rúm-
lega 3 milljónir pakka af „léttum"
Winston. Áf vindlum voru Fauna
vinsælastir, salan á þeim nam tæp-
um 3,3 milljón stykkjum.
Lögreglan:
Færri gistu fanga-
geymslur 1988 en 1987
Færri ölvaðir á almánnafeeri en fleiri þjófeir
MUN FÆRRI gistu fangageymsl-
ur Iögreglunnar á liðnu ári en
1987, 1.878 á móti 2.295. Þar af
voru 238 konur. Gistinóttum
fækkaði úr 6.514 í 5.924. Fjöldi
þeirra sem staðnir voru að inn-
brotum eða þjófiiuðum margfald-
aðist. Einnig fjölgaði þeim úr 979
í 1.078 sem óskuðu eftir gistingu
hjá lögreglu i vandræðum sínum.
Hins vegar voru mun fterri hand-
teknir ölvaðir á almannafteri árið
1988 en 1987.
í síðasttalda hópnum fækkaði úr
3.520 í 2.527. Einnig fækkaði þeim
verulega sem handteknir voru ölv-
aðir á veitingahúsum, í fyrra voru
þeir 454 en 543 í hitteðfyrra. Fleiri,
þ.e. 572, voru handteknir inni á
heimilum árið 1988 en 1987 þegar
lögreglan greip 456 sinnum til þess
úrræðis.
600 sinnum voru menn vistaðir í
fangageymslum eftir að hafa verið
staðnir að innbroti eða þjófnaði árið
1988, en slík tilfelli voru aðeins 215
talsins árið 1987.
Karlar voru miklum mun fleiri en
konur í hópi þeirra sem gistu fanga-
geymslur lögreglunnar. Konur, sem
voru 238 eins og fyrr sagði, gistu
460 sinnum en 1.640 karlar gistu
þar 5.464 sinnum.
Ný sakamál
í uppsigUngu
sem þeir
MATLOCK
Og
DERRICK
munu glíma við -
hvor á sinn hátt.
s
A fimmtudögum og
föstudögum í vetur.
Spennandi mál
fyrir augiýsendur.
SJONVARPIÐ
ekkert rugl.