Morgunblaðið - 07.02.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSHPn AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
29
Tölvur
Versnandi rekstraraf-
koma hjá tölvuframleið-
andanum NixdorfAG
Lögfræðiskrifstofa
Hef opnað lögfræðiskrifstofu á
Suðurlandsbraut 22, sími 680068.
Hreinn Loftsson,
héraðsdómslögmaður.
Frá Kctilbirni Tryggvasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞÝSKI tölvuframleiðandinn Nixdorf AG (aðalstöðvar í Pader-
born) hefur mikið verið í sviðsljósinu á undanförnum vikum hér-
lendis vegna orðróms um versnandi rekstrarafkomu fyrirtækisins.
Á seinustu vikum nýliðins árs
urðu hlutabréf Nixdorf, sem í mörg
ár höfðu verið mjög erftirsótt og
stöðugt hækkað í verði, fyrir miklu
verðfalli eða u.þ.b. 30%. Verðfall
þetta kom í kjölfar yfirlýsinga
ýmissa bankastofnana um að arðút-
borgun Nixdorf til hluthafa myndi
lækka stórlega á árinu 1988 vegna
versnandi rekstrarstöðu og jafnvel
ekki verða nein.
Þessar spár og hið mikla verð-
fall á hlutabréfum fyrirtækisins
sem þeim fýlgdu, urðu til þess að
stjórn Nixdorf sá sig knúna til að
skýra opinberlega frá áformum um
arðútborganir. I þeim upplýsingum
var lækkandi arðútborgun til hlut-
hafa staðfest en jafnframt bent á
að ástæðan væri ekki taprekstur
heldur nauðsynleg notkun eigin
fjármagns til fjárfestinga.
Á fyrstu dögum þessa árs fékk
umræðan um rekstrarerfiðleika hjá
Nixdorf aftur byr undir báða vængi
þegar stjóm fyrirtækisins gaf út
yfirlýsingu um að starfsmönnum
yrði fækkað um 1000 á þessu ári.
Yfirlýsingunni fylgdi reyndar sú
staðhæfing að hér væri einungis
um stöðvun á nýráðningum að ræða
og eðlilegt fráhvarf eldri starfs-
manna, en flestum þótti með þessu
sýnt að erfiðleikar fyrirtækisins
væru meiri en stjóm þess hefði vilj-
að viðurkenna.
Flestum kemur saman um að
ástæðan fyrir versnandi rekstraraf-
komu Nixdorf liggi í veikum Banda-
ríkjadollar. Mikill hluti framleiðslu
fyrirtækisins fer til Bandaríkjanna
eða til markaða þar sem verðsam-
keppnin fer fram í dollurum og
hafi því tekjur af þessum mörkuðum
lækkað stórlega á seinasta ári sam-
fara verðfalli Bandaríkjadollars.
Verksmiðjur Nixdorf eru hinsvegar
flestar í Þýskalandi og hefur inn-
kaupsverð til framleiðslunar því
ekki lækkað í sama hlutfalli og
lækkun söluverðs framleiðslunnar
þar sem innkaupsverð á þýskum
mörkum hefur haldist nær til
óbreytt eða jafnvel hækkað.
ITALIA — Tveir starfsmenn Fiats að fægja Tipo-inn áður en
hann var kynntur opinberlega.
Ítalía
Hagnaður FIA T
yfír 100 milljarðar
Tórino, frá Bryiyu Tomer fréttantara Morgunblaðsins.
FIAT-verksmiðjurnar, sem hafa aðalaðsetur í Tóríno, hafa á undanf-
örnum árum tekið yfir rekstur allra ítalskra bílaverksmiðja. Alls
voru ítalskar bifreiðir seldar fyrir 45.000 mifijarða italskra líra á
árinu 1988, eða 1.575 milljarða íslenskra króna.
Nettó hagnaður af rekstri FIAT
var um 105 milljarðar íslenskra
króna á síðasta ári. Cesare Romiti,
aðalframkvæmdastjóri FLAT,
greindi frá stöðu fyrirtækisins í við-
tali við ítalska ríkissjónvarpið fyrir
skömmu. Þar sem FIAT hefur á
undanförnum árum keypt aðrar bíla-
verksmiðjur á Ítalíu eru nú Alfa
Romeo, Ferrari og Laneia undir
sama þaki og Fiat.
„Við erum ánægðir með rekstrar-
afkomu FIAT á síðasta ári,“ sagði
Romiti. FIAT hefur verið mikið í
sviðsljósinu undanfarið þar sem
nokkrir verkamenn verksmiðjanna
sögðu að eina leiðin til starfsframa
innan fyrirtækisins væri að hætta
störfum innan verkalýðsfélags síns.
FIAT-menn hafa neitað því að um-
mælin séu á rökum reist.
Málið mun hins vegar hafa byijað
þannig að starfsmaður FIAT, (Alfa
Itomeo, sem áður var ríkisrekið og
heyrir nú undir FIAT) sem var mjög
virkur í verkalýðsfélaginu og gegndi
stöðu stjórnarmanns þar, lagði fram
opinber mótmæli vegna þess að hann
hafði ekki fengið stöðuhækkun inn-
an FIAT. Hann sagði að yfirmaður
sinn hefði sagt að meðan hann ynni
einnig hjá verkalýðsfélaginu ætti
hann enga möguleika á stöðuhækk-
un innan FLAT. Umræddur yfirmað-
ur hefur hins vegar fullyrt að starfs-
maðurinn fari ekki með rétt mál.
Hann hafi ekki getað unnið fullan
vinnudag hjá FTAT vegna sífellt
aukinna starfa innan verkalýðsfé-
lagsins. „Ég benti manninum ein-
faldlega á að aukin vinna fælist í
stöðuhækkun og þvi gæti hann ekki
leyft sér miklar fjarvistir vegna ann-
arra starfa, í þessu tilfelli í þágu
verkalýðsfélagsins." Málið hefur
vakið miklar og heitar deilur á Ítalíu
og í kjölfar þessa máls kvörtuðu
aðrir starfsmenn undan hinu sama,
að þeir fengju ekki stöðuhækkun þar
sem þeir ynnu í þágu verkalýðs-
félagsins. FIAT hefur hins vegar
mótmælt þessum ásökunum og er
líklegt að málið leysist sjálfkrafa á
næstu vikum.
Önnur ástæða sem sumir vilja
meina að valdi Nixdorf erfiðleikum
í augnablikinu er of mikill starfs-
mannakostnaður fyrirtækisins sam-
fara of miklum nýráðningum sein-
ustu ára. (Til dæmis má nefna að
á árinu 1987 voru ráðnir til Nix-
dorf 3.900 nýir starfsmenn og á
fýrri hluta seinasta árs 1100).
í greinum viðskiptablaða og
tímarita um málefni Nixdorf, kemur
fram að fæstir greinahöfunda telja
rekstrarerfiðleika fyrirtækisins
mjög alvarlega einsog þeir líta út
í dag. Flestir eru sammála um það
að þessir erfiðleikar séu einskonar
vaxtarverkir ungs fyrirtækis sem
hefur vaxið gífurlega á seinustu
árum. Vaxtarverkir þessir muni
jafnvel verða til þess að styrkja
fýrirtækið í frekari vexti.
\
Psoriasis-
sjúklingar
Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 12. apríl næst-
komandi til eyjarinnar Lanzarote, á heilsugæslustöðina
Panorama. Þeir, sem hafa þörf fyrir slíka ferð, snúi sér
til húðsjúkdómalækna og fái vottorð hjá þeim og sendi
það merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til
Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114, 3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 28. febrúar.
Tryggingastof nun ríkisins.
Verslunarráð íslands kynnir:
Viðskiptaþing 1989
ÍSLAIMD OG
EVRÓPUBAIMDALAGIÐ
Áttunda Viðskiptaþing Verslunarráðsins verður haldið á Hótel Sögu, Súlnasai, þriðju-
daginn 14. febrúar nk., kl. 10.00-17.30.
Þingið snýst um ísland og Evrópubandalagið.
Lagðar verða fram og kynntar fyrstu niðurstöður EB-nefnda Verslunarráðsins. Um 40 manns í fjórum nefndum
hafa síöan í nóvember brotið til mergjar málefni Evrópubandalagsins, iið fyrir lið, og lagt mat á stöðu okkar
gagnvart innri markaði EB 1992. í nefndunum eru fulltrúar allra atvinnugreina, en forysta nefndanna er í hönd-
um fimm manna framkvæmdastjórnar Verslunarráðsins. Nefndirnar hafa ennfremur notið atbeina hagfræöinga
ráðsins, Steingríms Ara Arasonar og Vilhjálms Egilssonar, framkvstj.
Niðurstöður EB-nefndanna verða lagðar fram á Viðskiptaþinginu í 200 síðna möppu (handbók) og síðan kynntar
og ræddar. Kynninguna annast:
Jón Ásbergsson, forstjóri Hagkaups,
Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur VSÍ,
Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur Stéttarsambands bænda,
Ólafur Ó. Johnson, forstjóri O. Johnson & Kaaber hf.,
Stanley Pálsson, verkfræðingur, Verkfræðistofu Stanleys Pálssonar hf.,
Ólafur Friðriksson, framkvæmdastjóri verslunardeildar S(S,
Ásbjörn Björnsson, markaösstjóri, Útflutningsráði íslands,
Birgir Rafn Jónsson, forstjóri Magnúsar Kjaran hf.,
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvá-Almennra trygginga hf.,
Gunnar Helgi Hálfdánarson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélags islands hf.,
Jón Atli Kristjánsson, hagfræðingur, Þróunarfélagi islands,
Ólafur Örn Ingólfsson, framkvstj., Landsbanka fslands,
Tryggvi Pálsson, bankastjóri Verslunarbanka islands hf.,
Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri, Hf. Eimskipafélagi islands,
Erling Ásgeirsson, forstjóri Skrifstofuvéla hf.,
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur VSÍ,
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða hf.,
Kristinn Björnsson, forstjóri Nóa-Síríus hf.,
Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins,
Maria E. Ingvadóttir, fjármálastjóri Útflutningsráðs islands.
Þá mun Ólafur Davíðsson, sem nú gegnir formennsku í ráðgjafanefnd EFTA, fjalla um hvað framundan er í
málefnum EB og næstu hugs^njeg skref okkar varðandi bandalagið.
Sérstakur fyrirlesari mætir til þingsins frá Brússel, Hans'Joachim vom Búlow, sem er framkvæmdastjóri Euro-
chambers, verslunarráðs EB-þjóðanna. Verslunarráöum annarra Evrópuþjóða gefst kostur á aukaaöild aö því.
Heiðursgestur þingsins verður Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands.
Þingið setur Jóhann J. Ólafsson, formaður Verslunarráðsins, en þingforseti verður Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Hf. Eimskipafélags islands.
Þar sem Viðskiptaþing 1989 verður fyrirsjáanlega mjög fjölmennt, er
nauðsynlegt að tilkynna bindandi þátttöku í síðasta lagi 10. febrúar nk.
til Verslunarráðsins í síma 83088. Þátttaka er opin öllum, sem áhuga
hafa, á meðan sæti eru laus.
Þátttökugjald er 4.800 krónur, fyrir dagskrána með hádegisverði, kaffi og móttöku
að þingi loknu, svo og handbók EB-nefnda Verslunarráðsins.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS