Morgunblaðið - 07.02.1989, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
mmoruTMM
Við bjóðum þér á kynningarfund
Hefur þú tök á:
* Ritvinnslu?
* Tölvubókhaldi?
* Töflureikni?
* Innflutningsmálum?
* Og fleira er viðkemur störfum
á nútíma skrifstofú?
Kennarar og útskrifaðir nemendur lýsa náminu og reynslu sinni.
Fundur hefst í kvöld kl. 20.30 í okkar glæsilega húsnæói í
Borgartúni 28.
Allir velkomnir — Kaffi og veitingar
Tölvufræðslan
SIEMENS -gceði
HRÍFANDI OG ÞRÍFANDI
RYKSUGA FRÁ SIEMENS!
Tilvalin ryksuga fyrir minni heimili og skrifstofur.
Mm—"i
i!
Lítil, létt og lipur
Kraftmikil (800 W) en
sparneytin
Stór rykpoki og sýklasía
Sjálfinndregin snúra og
hleðsluskynjari
SIEMENS framleiðsla tryggir
endingu og gæði
Verð kr. 8.320,-
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Hverfisteinar
Sambyggöur hverfisteinn meö hjóli til blautslípunar
og hjóli úr gúmmíbundnum ál-ögnum til brýningar.
Hljóðlátur iðnaðarmót-
or 200W, 220v, 50 HZ,
einfasa, snýst 70 snún-
inga á mín.
Laust vatnsílát.
Sérstök stýring ffyrír
sporjárn o.þ.h.
Verðkr. 13.650.
Laugavegi 29
Símar 24320 — 24321 — 24322.
UJlittKi
Ananaustum
Sími 28855
KVÖLDNAMSKEIÐ I HUGARÞJALFUN
HUGEFLI
Bolholti 4
10. feb. kl. 19.00.
Námskeiölð byggir á nýjustu
rannsóknum í dáleiöslu,
djúpslökun, tónlistarlækningum
-og beitingu ímyndunaraflsins.
Með sjálfsdáleiðslu getur þú m.a.:
A Opnað aðgang að öflugustu hlut-
um undirmeðvitundarinnar.
A Náð djúpri slökun og sofnað á
nokkrum mínútum.
A Fyrirbyggt taugaspennu, kvíða
og áhyggjur.
A Hætt reykingum og ofáti.
A Auðveldað ákvarðanatöku og
úrlausn vandamála.
Mótmæli gegn hunda-
haldi ekki ástæðulaus
Til Velvakanda.
Hundur er elskulegt dýr. Öllum á
heimilinu þykir vænt um hann. Börn-
um er hann ómissandi leikfélagi og
fullorðnum er hann kær vinur. Hann
er af öllum meðhöndlaður sem einn
af fjölskyldunni, dekraður og dáður,
og öllum sýnir hann sönn vinarhót.
Húsbændurnir gæta hans vel, venja
hann á þrifnað og láta hann ekki
óhreinka gangstíga við hús sitt eða
grasflatir í garði sínum. Hjá allt of
mörgum nær gæsla hundsins ekki
lengra en þetta.
Því miður eru alltof margir hunda-
eigendur tillitslausir í garð nágranna
sinna og láta hundinn sinn leika laus-
um hala um garða og gangstíga
nágranna sinna, þar sem hann skítur
allt út; grasflatir, gangstíga, blóma-
beð, svo börnin > þeim húsum eru
hvergi óhult fyrir þessum óþverra,
og húsmæðurnar geta ekki annast
um blómin sín, án þess að eiga á
hættu að verða útbíaðar í þeim við-
bjóði sem þessi óvelkomnu dýr leggja
frá sér út um allt.
Og ef þetta blessaða fóik ber fram
aðfinnslur við rétta eigendur hunds-
ins, fær það stundum ónot ein í stað-
inn, og þykist hafa fullan rétt á að
láta hundinn sinn haga sér að eigin
geðþótta.
Það er þessi tillitslausa framkoma
sumra hundaeigenda, sem gerir þá
og hundana þeirra óvinsæla í meira
lagi.
Ekkert gagna strangar reglur um
hundahald, ef ekki er eftir þeim far-
ið. Hundaeigendur mega sannarlega
sjálfum sér um kenna, ef hundahald
verður bannað í Reykjavík. Með því
að mótmæla afnámi hundahalds, við
þessar aðstæður, er í raun verið að
halda hlífiskildi yfir þeim hundaeig-
endum sem þverbtjóta allar reglur,
sem þeim hafa verið settar um með-
ferð hunda sinna.
Leitt er til þess að vita, að börn
og fullorðnir skuli ekki fá notið vin-
áttu og nærveru þessara elskulegu
dýra, vegna hroka og tillitsleysis til-
tölulega fárra sóða, sem gera návist
sína og hunda sinna öðrum óþolandi.
Hval vilja hundaeigendur (hver
einasti þeirra) á sig leggja til að fá
að halda hund í friði? Hver og einn
ætti að skilja að hundur, sem sóðar
allt út hjá nágrannanum og er þar
með gjammi og gelti, hlýtur að vera
með öllu óalandi og ófeijandi.
Hundaeigendur almennt verða mjög
að taka sig á, ef þeir eiga aftur að
vinna glataða hylli almennings, og
fá í friði að njóta návistar við þessi
dýr, sem sannarlega gætu verið öll-
um kær, ef réttri meðhöndlun væri
beitt.
Hundavinur
Yíkverji skrifar
Ifréttaskýringu, sem Agnes
Bragadóttir skrifaði um málefni
Arnarflugs í Morgunblaðið sl. laug-
ardag, kom m.a. fram, að samráð-
herrum Steingríms J. Sigfússonar,
samgönguráðherra, þætti fyndið að
fylgjast með því, hvað þessi só-
síalíski samgönguráðherra væri
hallur undir þá skoðun, að bezt
væri fyrir ríkið að losa sig við Arn-
arflug í hendur Flugleiðamanna. í
sjónvarpsviðtali um helgina gaf ráð-
herrann í skyn, að þetta væri úr
lausu lofti gripið.
Stjómmálamenn ættu að varast
að gefa slíkar yfírlýsingar að lítt
athuguðu máli. Staðreynd er, að
þetta viðhorf til samgönguráðherra
er að finna innan ríkissljórnarinn-
ar. Nú eru mörg dæmi þess, að
blaðamenn fari með rangt mál eða
treysti heimildum, sem ekki er
treystandi. Það er föst regla á
Morgunblaðinu, ef slíkt kemur upp,
að beðið er afsökunar á mistökum
af því tagi. Hins vegar eiga stjórn-
málamenn ekki að komast upp með
að afgreiða fréttir eða aðrar frá-
sagnir með því, að þær séu úr lausu
lofti gripnar, jafnvel þótt fréttirnar
geti verið óþægilegar fyrir þá.
Stjómmálamennirnir verða að gera
sér grein fyrir, að þeir geta verið
að vega að starfsheiðri blaðamanna
með slíku ábyrgðarlausu tali.
Yfirleitt em samskipti stjórn-
málamanna og blaðamanna ágæt.
En margs er að gæta í þeim efnum.
Fyrir nokkmm ámm birti Morgun-
blaðið frétt, sem byggð var á upp-
lýsingum þingmanns, sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Samtal blaða-
manns við þingmanninn var hins
vegar tekið upp á segulband og var
því til. Sama daginn og fréttin birt-
ist í blaðinu kom þessi þingmaður
fram í útvarpsfréttum og lýsti því
yfir, að frétt Morgunblaðsins væri
röng. Þessj þingmaður á enn sæti
á Alþingi. í samræmi við þá megin-
reglu blaðamanna að gefa ekki upp
heimildir átti blaðið ekki annan
kost en láta þingmanninn komast
upp með þessi ósannindi.
Námskeiðið verður haldið á
hverju föstudagskvöldi í 4 vikur.
Leiðb. er Garðar Garðarsson.
Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá Gulu Línunni,
62 33 88
XXX
Fróðlegt verður að fylgjast með
því, hvernig staðið verður að
auglýsingum um bjór eftir 1. marz
n.k. Að sjálfsögðu er heimilt að
auglýsa bjór, sem inniheldur áfeng-
ismagn í tilteknu lágmarki. Um
helgina kom fram í Morgunblaðinu,
að settar yrðu nýjar reglur væntan-
lega til þess að koma í veg fyrir
auglýsingar á áfengum bjór!
Auðvitað er útilokað að koma í
veg fyrir, að innlendir bjórframleið-
endur og erlendir framleiðendur
auglýsi vörumerki sín, eins og þeir
hafa gert undanfarin ár. Vonandi
taka opinberir aðilar ekki upp á því
að setja einhvetjar barnalegar regl-
ur um þetta eins og gert var hér
fyrir nokkrum áratugum, þegar
bannað var að auglýsa dansleiki!
XXX
Greiðslukortum fjölgar nú hér.
Auk þeirra tveggja, sem fyrir
eru, er nýtt kort komið til sögunnar
á vegum samvinuhreyfingarinnar
og í blaðafréttum um helgiúa var
talað um nýtt kort á vegum ferða-
skrifstofa.
Um þetta er allt gott að segja
út af fyrir sig. Nú er nokkur reynsla
komin á notkun greiðslukorta hér.
Sennilega er það almenn reynsla
fólks að eyðsla sé mun meiri, þegar
greiðslukortjeru notuð að staðaldri.
Þess vegna er ekki ólílegt, að fólk
dragi úr notkun þessara korta á
næstu árum, enda bjóða verzlanir
víða staðgreiðsluafslátt, ef greitt
er með reiðufé.