Morgunblaðið - 08.02.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C
32. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandarísk mannréttindaskýrsla:
Israelsstjórn sætir
þungum ásökunum
Washington. Reuter.
í SKÝRSLU Bandaríkjastjórnar
um ástand mannréttindamála á
árinu 1988 eru ísraelar sakaðir
um „verulega aukin mannrétt-
indabrot" og aðallega gagnvart
Palestinumönnum á Vesturbakk-
anum og Gaza.
Skýrslan, sem bandaríska ut-
anríkisráðuneytið tekur saman, var
birt í gær og segir þar frá ástandi
mannréttindamála í 169 ríkjum. Er
þar meðal annars að fínna ná-
V-þýskt knattspymulið:
Verjuauglýs-
ingar leyfðar
Frankfurt. Reuter.
DÓMSTÓLL í Frankfurt hratt
í gær úrskurði annars dómstóls
frá þvi í apríl en hann hafði
bannað annarrar deildar knatt-
kvæma úttekt á uppreisn Palestínu-
manna á hemumdu svæðunum og
því lýst hvemig ísraelar hafa smám
saman skert mannréttindi þeirra.
Segir, að uppreisnin „sæki styrk
sinn til palestínskrar þjóðemisvit-
undar og vonarinnar um að hemámi
ísraela ljúki“ og hafí komið ísra-
elskum stjómvöldum og hemum i
opna skjöldu.
Æðsti lögfræðingur ísraelska
hersins fór í gær hörðum orðum
um skýrsluna og sagði að í henni
væri ekkert tillit tekið til þeirrar
hættu, sem biði ísraelskra her-
manna á hemumdu svæðunum.
í skýrslunni er þess einnig getið,
að „merkilegar breytingar" hafí átt
sér stað í Sovétríkjunum þótt enn
sé of snemmt að spá um fram-
haldið og Pólland, Ungveijaland,
Suður-Kórea, Taiwan og Pakistan
eru líka nefnd sem dæmi um ríki
þar sem miðað hafí í rétta átt.
Til úrslita dregur
Reuter
Talið er að um ein milljón manna hafí týnt iífí í styrjöld Sovétmanna og leppstjórnar þeirra í Afganist-
an. Erfítt er að geta sér til um tölu særðra en á myndinni sjást menn, er misst hafa fætur af völdum
jarðsprengja, biða þess á sjúkrahúsi í Kabúl að fá gervilimi. Áætlað er að sovéska herliðið hafí komið
fyrir 30 milljón jarðsprengjum víðs vegar um landið.
í Afganistan:
Stj órn Najibullah býr sig
undir umsátur skæruliða
Þrjátíu þúsund rifflum dreift meðal flokksfélaga í höfuðborginni
spyrnuliðinu FC Homburg að
auglýsa veijur á búningum
sinum. Vestur-þýska knatt-
spyrnusambandið hafði farið
fram á bannið.
í forsendum nýja úrskurðarins
segir að auglýsingin btjóti ekki
gegn almennu siðgæði sem lúti
sömu reglum í íþróttum og annars
staðar í þjóðfélaginu. Bent er á
að heilbrigðismálaráðuneyti lands-
ins hafí mælt með notkun veija
til að minnka hættuna á eyðnismit-
un.
FC Homburg gerir sér vonir um
að vinna sér inn 200 þúsund mörk
(6 milljónir ísl kr.) með auglýsing-
unum.
Kabúl. Moskvu. London. SÞ. Reuter.
STJÓRN Najibullahs f Kabúl, höf-
uðborg Afganistans, hefíir látið
30.000 félögum rikisstjórnar-
flokksins í borginni f té riffla og
segist staðráðin f að halda völdurn
enda þótt sfðustu sovésku her-
mennirnir séu nú á leið úr landi.
Sfjómin býr sig nú undir langt
umsátur. Sovéska fréttastofan
TASS skýrði frá hörðum bardög-
um f suð-austurhluta landsins.
Þar réðust skæruliðar á flugvöll-
inn f næst-stærstu borg landsins,
Kandahar, en flugvélar stjórnar-
innar vörpuðu sprengjum á stöðv-
ar skæruliða. Flutningaþota á
vegum Sameinuðu þjóðanna, er
átti að fara til Kabúl frá Isl-
amabad f Pakistan með 35 tonna
farm af matvælum og lyfíum
handa ungum bömum og bams-
hafandi konum, tafðist af ókunn-
um orsökum í Pakistan f gær, að
því er talsmenn SÞ sögðu.
Fulltrúar afganska stjómarhers-
ins hvöttu, að sögn TASS, íbúa við
Salang-þjóðveginn til að flýja heim-
ili sín vegna þess að búast mætti
við hörðum bardögum þar. íjóðveg-
urinn er mikilvæg flutningaleið milli
Kabúl og landamæra Sovétríkjanna
og sagði fréttastofan að skæruliðar
gerðu harða hríð að flutningabílum
með matvæli og eldsnéyti á leið til
höfuðborgarinnar. Háttsettir, sov-
éskir embættismenn ítrekuðu að
Sovétmenn myndu halda áfram að
veita stjóm Najibullah stuðning og
jafnframt að þeir væru sannfærðir
um að afganski stjómarherinn væri
fær um að hrinda árásum skæmliða-
herjanna.
Her stjómarinnar er mjög vel
búinn skriðdrekum, fallbyssum,
flugvélum og jafnvel nýtísku, sov-
éskum eldflaugum af Scud-gerð og
á pappímum em 55 þúsund manns
í heraflanum. Margir þeirra em þó
illa þjálfaðir eða ótryggir leppstjóm-
inni í Kabúl. Sovéskur höfuðsmaður
á leið frá landinu var ekki jafn bjart-
sýnn á styrk stjómarhermanna og
embættismennimir. „Tæknikunn-
átta þeirra er léleg og siðferðis-
þrekið lítið. Skæmliðamir hafa
trúna að bakhjarli og þá staðreynd
að almenningur styður ekki stjóm-
ina,“ sagði höfuðsmaðurinn og dró
enga dul á það að hann teldi innrás
Sovétmanna í landið hafa verið mis-
tök.
Síðastliðinn sunnudag gengu
nokkur þúsund varaliðsmenn fylktu
' liði fram hjá Najibullah á fjöldafundi
í Kabúl en Kalasníkoff-rifflar þeirra
vom ekki hlaðnir og fyrir gönguna
var leitað á liðsmönnum.
Enn munu nokkur hundmð sov-
éskir hermenn gæta flugvallarins í
Kabúl en allar vélar sovéska flug-
hersins em á brott.
Sjá ennfremur bls. 20: „Styrkja
hrakfarirnar ...?“ og forystu-
grein á miðopnu.
Sakharov í Páfagarði
SOVÉSKI nóbelsverðlaunahafínn Andrej Sakharov og kona hans,
Jelena Bonner, taka við gjöf frá Jóhannesi Páli páfa II. þegar
þau heimsóttu hann á mánudag. Ræddu þau meðal annars stöðu
kaþólikka i Sovétrikjunum. Sakharov, sem kom til Ítalíu á sunnu-
dag, sagði í gær að Vesturlandabúar ættu að beita sér fyrir því
að Armenar, sem fangelsaðir hafa verið fyrir að krefjast þess
að héraðið Nagorno-Karabak verði sameinað Sovét-Armeníu,
yrðu látnir lausir.
Sjá „Umbætur í Sovétrfkjunum . . . á bls. 20
Samstaða í Póllandi:
Reynt að stöðva
námuverkfall
Varsjá. Reuter.
VERKFALL, sem hófst á mánudag* hjá starfemönnnum brúnkolanámu
í Póllandi, breiddist út í gær og höfðu 4.500 manns lagt niður vinnu
er síðast fréttist. Lech Walesa, leiðtogi verkalýðssamtakanna Sam-
stöðu, er nú eiga í samningaviðræðum við stjórnvöld um mögulega
viðurkenningu á samtökunum, sendi fíilltrúa sína til námumanna til
að reyna að fá þá til að liefja aftur störf. Verkfallið gæti stöðvað
stærsta raforkuver landsins sem notar kol úr námunni.
Námumennirnir hafa krafist
kauphækkana én því hefur verið
hafnað. í gær voru kolaflutningar
til orkuversins stöðvaðir í 30 mínút-
ur og hótuðu verkfallsmenn að koma
í veg fyrir alla flutninga til versins
ef yfirvöld yrðu ekki við kröfunum.
Jerzy Urban, talsmaður stjórnvalda,
sagði að þau hefðu vaxandi áhyggj-
ur af kröfum um kauphækkanir
samtímis því sem reynt væri að vinna
bug á verðbólgunni. Að sögn tals-
mannsins voru 173 kaupdeilur og
39 verkföll í landinu í síðasta mán-
uði.
Fulltrúar stjómvalda hafa gefíð í
skyn að ókyrrðin í landinu geti orðið
til þess að afturhaldsseggir í komm-
únistaríkjunum fái aukinn byr í segl-
in og krefjist þess að tekið verði í
taumana í Póllandi.