Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 23

Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 23
esei .HAOflaa'i .8 fluoAaujnvöm GiðAjaviuoflOM a 22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 23 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. (lausasöiu 70 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Sovétmenn fara frá Kabúl Brottför sovésku hermann- anna frá Afganistan bind- ur ekki enda á átökin í landinu; frelsissveitir Afgana segjast ekki ætla að láta staðar numið fyrr en Najibullah, leppur Sov- étmanna í Kabúl, hefur sagt af sér. Haldi frelsissveitimar sínu striki líður varla á löngu, þar til þær hafa höfuðborgina Kabúl á valdi sínu og síðan landið allt, hver svo sem það verður, sem sest í æðsta valda- stólinn í umboði þeirra. Inn- byrðis ágreiningur andstæð- inga leppstjómar kommúnista hefur ekki verið jafnaður. Ýms- ir telja líklegt, að enn eigi margir eftir að týna lífí í grimmilegum átökum, áður en jafnvægi og friður skapast að nýju í þessu harðbýla fjalla- landi. Ógæfan reið yfír landið í apríl 1978, þegar marxistar- lenínistar hrifsuðu völdin í sínar hendur. Kremlveijar sendu síðan herafla sinn á vettvang um jólin 1979. Þá eins og 1968, þegar ráðist var inn í Tékkó- slóvakíu að undirlagi Kreml- veija, var vísað til Brezhn- ev-kenningarinnar svonefndu um „rétt“ sósíalískra ríkja til að hlutast til um innri málefni annarra sósíalískra ríkja, ef hætta steðjaði að sósíalisman- um. Kommúnistar um heim all- an lýstu stuðningi við herferð Kremlveija á hendur Afgönum og sögðu hana nauðsynlega til að „friða“ landið. Þeir sem höfðu verið háværastir í árás- um á Bandaríkjamenn vegna Víetnam-stríðsins nokkrum árum áður, sáu ekki ástæðu til að fara út á götumar og mót- mæla vegna styijaldarinnar í Afganistan; það stríð var ekki háð heima í stofu hjá okkur á sjónvarpsskermunum. Sovét- stjómin er ekki að láta undan þunga almenningsálitsins, þeg- ar hún kallar tugi þúsunda hermanna sinna heim frá Afg- anistan; hún er að beygja sig fyrir einbeittri andstöðu afg- önsku þjóðarinnar undir for- ystu frelsissveitanna og bág- indum sovéska efnahagskerfís- ins. Enn á við sem sagt var, þeg- ar sovéski innrásarherinn streymdi inn í Afganistan, að Kremlveijar hafa lengi verið með hugann við höfn í heitu höfunum sunnan landamæra sinna. Ef ráðagerðimar í Afg- anistan hefðu tekist, væru þeir nær því marki en nokkm sinni fyrr. í því stórpólitíska ljósi verður að skoða mikilvægi and- stöðunnar, sem frelsissveitim- ar hafa veitt. Samhliða því sem þær hafa bjargað þjóð sinni undan hrammi rússneska bjamarins hafa þær reist skorður við útþenslu Moskvu- valdsins. í heimspólitísku ljósi ber einnig að skoða þá staðreynd, að í Afganistan gerist það í fyrsta sinn frá því að byltingin var gerð í Rússlandi 1917, að sovéski herinn gefst upp fyrir almennri, vopnaðri mótspymu. Hvaða áhrif hefur þetta? Hvemig mótar þetta viðhorf þeirra, sem hafa barist leynt og ljóst í nafni kommúnismans víða um lönd og alltaf treyst á aðstoð frá Moskvu? Herflutningar Sovétmanna frá Afganistan, Víetnama frá Kambódíu og Laos og Kúbveija frá Angólu eru af sama meiði. Þeir em gleðilegt tákn um þá breytingu, sem orðið hefur eft- ir að Míkhafl Gorbatsjov varð leiðtogi Sovétríkjanna. Um leið og þessu er fagnað skal þeirra minnst, sem hafa staðið gegn yfírgangi kommúnismans í þessum löndum og hinum vott- uð samúð, er enn mega þola ómannúðlega stjóm kommún- ista, hvort heldur í Evrópu, Víetnam, Eþíópíu, Mósambík, Kúbu eða Nicaragua. Þegar litið er til Kabúl núna, hvarflar hugurinn óhjákvæmi- lega til Saigon 1975, er Banda- rflgamenn hurfu frá Víetnam. Það er rétt hjá breska vikurit- inu Economist að í báðum til- vikum verður stórveldi fyrir áfalli en að öðm leyti getur varla verið um trúverðugan samanburð að ræða. Þannig féll Saigon fyrir öflugum og þrautþjálfuðum her, er naut stuðnings bæði Sovétmanna og Kínveija, en umhverfís Kabúl em hópar skæruliða, sem deila innbyrðis og sameinast um fátt annað en hatrið á Rússum. Hávaðinn út af stríðinu í Afganistan hefur verið minni á Vesturlöndum en vegna Víet- namsstríðsins á sínum tíma. Þeir sem hlutu æfíngu við að mótmæla vegna Víetnams hafa haft hljótt um sig vegna Afgan- istans. Við skulum vona, að Afganir þurfí ekki að þola sam- bærilegar hörmungar eftir stríðið og Víetnamar, sem hafa orðið að ganga fátæktargöngu í nafni kommúnismans og verið notaðir til að beija á nágrönn- um sínum. Allar fijálshuga þjóðir þurfa að leggja sitt af mörkum til að auðvelda Afgön- um að láta djúp sár stríðsins gróa. Borgarráð: Kostnaður við ráðhúsið hefur hækkað um 249 miUjónir króna SAMKVÆMT áætlun um heildarkostnað við byggingu ráðhúss i Reykjavík, sem lögð hefur verið fram í borgarráði, hefur kostnað- aráætlun vegna framkvæmdanna hækkað um 19,8%, eða úr 1,258 milljónum króna eins og bráðabirgðaáætlun Verkefoisstjórnar frá 25. júlí síðastliðinn gerði ráð fyrir, í 1,507 miiyónir króna. Helstu kostnaðarliðir eru: 274,479 milljónir í hönnunar- og Ijósritunar- kostnað, 243 milljónir í uppsteypu kjallara, 202,713 milljónir í uppsteypu og burðarvirki þaksins og 117,090 milljónir i frágang utan við skrifstofobyggingu. í greinagerð Þórðar Þ. Þorbjam- arsonar borgarverkfræðings, sem fylgir kostnaðaráætluninni kemur fram að hönnun hússins er nú kom- in mun lengra en var við síðustu útreikninga en er þó fjarri því að vera lokið. Þá hafí að vísu verið búið að lækka upphaflegan kostnað innréttinga með því til dæmis að falla frá uppbyggðum tölvugólfom í skrifstofubyggingu og velja í ýmsu ódýrari lausnir en fýrri hugmyndir gerðu ráð fyrir. „Síðan þá hafa magntölur verið endurreiknaðar og ýmsir kostnaðarliðir skýrst. Nokkr- ar ákvarðanir hafa verið teknar um frekari lækkun kostnaðar, t.d. það að hafa tvöfalt gler á álgluggum í stað þrefalds, velja hefðbundnari loftklæðningar í skrifstofubygging- unni og fella niður steypulög utan á vatnsþéttingar kjallara þar sem þær verða sýnilegar." Form hússins sérstætt Þá segir að þrátt fyrir breytingar hafi áætlunin hækkað og er bent á að form hússins sé sérstætt og erf- itt í afsetningu. „Burðarvirkið krefst mikilla og flókinna útreikn- inga og meiri steypu- og jáma- magns en vanalegt er, þegar litið er á húsið sem heild. Magnaukning á þessum þáttum er nokkur frá fyrri áætlun. Bognir veggfletir em algengir og sjónsteypa krefst vand- aðri mótasmíði og niðurlagnir steypu en algengt er. Mosaveggur og vatnsfletir kosta sitt bæði í hönn- un og útfærslu. Álfrontar með sól- grindum og frístandandi súlum upp- úr vatnsfletinum upp í þakkant em vandaverk og dýrt. Gmndun húss- ins þar sem verið er að fást við uppdriftarkrafta leiddi til skoðunar á fíölmöigum valkostum við gerð kjallarans sem hleypti hönnunar- kostnaði upp. Almennt má segja að kostnaður við hönnun hússins sé nú áætlaður um 100 milljónum meiri en í júlí ’88 og að kostnaður við uppsteypu yfírbyggingar og gerð þaks sé nú allt að 40 milljónum meiri en þá var áætlað." Yfírlit yfír heildarkostnað í yfírliti jrfir heildarkostnað án húsgagna og lóðar miðað við að vísitalan sé 125 stig og samkvæmt verðlagi 1. janúar 1989 kemur fram að kostnaður við samkeppni og undirbúning er áætlaður: 16,149 milljónir, hönnun og ljósritun 274,479 millj., umsjón, eftirlit og annar óbeinn kostnaður 89,693 millj., jarðvinna og stálþil 102,7 millj., kjallarar-uppsteypa 243 millj., kjallarar-frágangur og lagna- kerfi 69,670 millj., uppsteypa og burðarvirki þaks 202,713 millj., frá- gangur utanhúss á skrifstofubygg- ingu 117,090 millj., frágangur ut- anhúss á borgarstjómarhúsi 30,993 millj., frágangur inni í skrifstofu- byggingu 79,6 millj., frágangur inni í borgarstjómarhúsi 43,1 millj., hita- og hreinlætislagnir 12,430 millj., raflagnir, lýsing og vararaf- stöð 66,510 millj., loftræstikerfí með hitun 53,258 millj., innrétting- ar í skrifstofubyggingu 18,480 millj., innréttingar í borgarstjómar- byggingu 13,510 millj., innréttingar fastar 26,8 millj. og ýmsir liðir, sérbúnaður og kerfí 47,477 millj. Samtals 1 milljarður, 507 milljónir og 652 þúsund. Hönnunarkostnaöur 17,5% Áætluninni fylgir einnig greina- gerð Stefáns Hermannssonar að- stoðarborgarverkfræðings, sem gerð er fyrir hönd verkefnisstjómar um byggingu ráðhúss. Þar segir að áður hafí verið gerð grein fyrir hönnunarkostnaði fyrir árin 1987 og 1988 en áætlaður heildarkostn- aður við hönnunina hafí ekki legið fyrir fyrr en nú. Samkvæmt áætlun- inni er gert ráð fyrir að kostnaður- inn verði í heild 274,479 millj. þar af sjálf hönnunin 264,479 millj. og er áætlunin miðuð við að vísitala byggingarkostnaðar sé 125 stig. Þá segir að: „Miðað við sömu heild- aráætlun er þvi áætlað að hönnun- arkostnaður verði 17,5% af heildar- kostnaði og þykir það ekki óeðlilegt hlutfall miðað við eðli máls og sam- anburð við önnur stór og vandasöm verkefni á þessu sviði hérlendis, en samt hærra en reiknað var með í fyrstu." • Kemur fram að hönnunarkostn- aður skiptist milli ára sem hér seg- ir 1987: 18,940 millj. 1988: 103,242 millj., 1989: 80 millj., 1990: 40,297 millj. og 1991: 22 millj. í greinagerðinni segir að þeg- ar í upphafi hafi verið óskað eftir að verkinu yrði hraðað og því hafí verið ákveðið að ráða eina verk- fræðistofu til að annast alla verk- fræðihönnun nema raflagnir og jafnframt að ráða erlenda verk- fræðistofu til að forhanna öll lagna- kerfí og ákveða stærðir á stokkum og götum og stærðir tæknirýma. Enska verkfræðifyrirtækið J. Roger Preston and Partners var ráðið til þessa verks, en þar í landi er til siðs að allar lagnir ogtækjabúnaður séu hönnuð af sama aðila. „Þetta hefur rejmst mjög vel og bæði flýtt fyrir og aukið gæði hönnunar að okkar mati, en er að hluta til kostn- aðarauki. Ferðakostnaður starfs- manna þessa fyrirtækis er í þessari sundurliðun talin með hönnunar- kostnaði. Þessum aðila er auk frumhönn- unar falið gæðaeftirlit með hönnun lagna. Lítilsháttar gæðaeftirlit er einnig kejrpt af innlendum aðilum. Þá er nokkuð um sérstök hönnunar- verkefni sem jrfirleitt ekki fylgja húsbyggingum, s.s. tilraunir með mosagróður, hönnun þéttilaga fyrir vatnsþrýsting, hönnun sérstakra steypublandna bæði fyrir kjallara- steypu og sjónsteypu og athugun á hljómburði, sem þó oft tilheyrir opinberum byggingum." Síðan segir: „Þegar hönnun ráð- hússins hófst leitaði verkefnisstjóm upplýsinga erlendis um hönnunar- kostnað slíkra bygginga sem vænta má að Ráðhús Reykjavíkur sé, og fengust þau svör að algengt væri 13 til 15% byggingarkostnaðar, en hærra hlutfall þekktist, einkum t.d. í þeim tilfellum sem um samkeppni er að ræða. í samræmi við þetta, en þó af nokkurri bjartsýni, áætlaði verkefnisstjóm fyrst hönnunar- kostnað 13,5%. Leitað hefur verið upplýsinga um kostnað við hönnun nokkurra stór- hýsa hérlendis og virðist ekki óal- gengt að kostnaðarhlutfall sé 15%, t.d. er áætlað að hönnunarkostnað- ur Borgarleikhúss verði 15,2%, en rétt er að geta þess að þá er eftir- lit hönnuða að mestu leyti innifalið, em ekkert eftirlit eða umsjón bygg- ingæ-deildar eða Leikfélagsmanna. Áberandi er þegar upplýsingar um hönnunarkostnað hinna ýmsu bygginga eru skoðaðar, að hinir ýmsu þættir hönnunarinnnar vega mjög misþungt eftir gerð og hlut- verki bygginga. Má af því draga þann lærdóm að fyrir sérhæfðar byggingar beri að varast að reikna með stöðluðum kostnaðarhlutföll- um fyrir kostnað við hina ýmsu þætti hönnunar s.s. arkitektateikn- ingar, innréttingar, raflagnir, loft- ræsikerfí, burðarþol o.s.frv. Hönnun unnin í tímavinnu Hönnun ráðhússins er öll unnin í tímavinnu. Reiknað er með að viss afsláttur fáist á tímagjaldi á síðari hluta hönnunartímans. Kostnaðar- áætlun byggist því á áætlun um fjölda tíma sem til verksins fer. Áætlun verkefnisstjómar er eilítið lægri en áætlun hönnuðanna sjálfra. Vonast er til að hluti verks- ins, s.s. vinna arkitekta, rejmist fljótlegri en hér er gert ráð fyrir. Ljóst er einnig að samvinna verk- taka, fjöldi útboða, verksamninga og verktaka, og þar með fjöldi út- boðslýsinga og jrfirferð tilboða hef- ur töluverð áhrif á þann þátt hönn- unar sem nú er eftir, einkum hjá verkfræðingum. “ Vinnubrögð hafa breyst Að lokum em taldar upp helstu ástæður fyrir því að hönnunar- kostnaður er áætlaður hærri en venja er til: 1. Almennt hafa vinnubrögð við byggingar og við hönnun þeirra gjörbreyst á sl. 20 árum. Fjöldi teikninga hefur stóraukist, sú vinna sem lögð er í hönnun sömuleiðis. Nýjar kröfur hafa komið til, s.s. um brunatæknilega hönnun, bmna- viðvöranarkerfi, bætt burðarþols- hönnun o.s.frv. Á móti kemur að einhveiju leyti notkun staðlaðra innréttinga og sérstakra bygging- arhluta s.s. lofta, en þegar um sér- stakar byggingar er að ræða hefur hönnunarvinnan aukist. 2. Söluskattur hækkaði hönn- unarkostnað um 12%. 3. Þetta verkefni er unnið með hraða, við höfum nefnt aðferða- fræðina „á hraðbraut" (þýðing á fast track), þ.e. hönnun fer fram samtímis framkvæmdum, teikning- ar koma Just in time." Af þessari aðferð leiddi einnig að boðið var út á gmndvelli frumhönnunar eða hönnunar á vissu stigi. Þetta hafði mjög mikla kosti þegar skoðaðir vom valkostir á stærð kjallara. Óraunhæfar hugmjmdir okkar um kostnað við kjallarann hefðu að öðmm kosti leitt til þess að 3ja hæða kjallari hefði verið fullhann- aður með miklum tilkostnaði. En vegna ýtarlegrar skoðunar á val- kostum og útfærslum jókst hönnun- arkostnaður verkfræðinga mikið. SKoðaðar vom 6 tillögur um út- færslu á IV2 kjallara og þær gróf- teiknaðar, magnteknar og kostnað- aráætlaðar bæði af hönnuðum og verktaka. Ágiskaður kostnaðarauki af þessum sökum er 1% af byggingar- kostnaði eins og hann er nú áætlað- ur. 4. Vegna hraða á hönnun fyrsta árið vom notaðir fleiri menn samtímis við hönnun heldur en hag- kvæmast er. Þá er að því óhagræði fyrir verkfræðinga að þurfa að teikna byggingarhlutana í þeirri röð sem framkvæmdir krefíast en ekki í þeirri röð sem þægilegast er út frá hönnunarforsendum og útreikn- ingum. Ymislegt verður því mar- greiknað. Ágiskaður aukakostnað- ur af þessu samanlögðu er 0,6% byggingarkostnaðar. 5. Erlendir ráðgjafar og annað gæðaeftirlit með hönnun er óvenju- legt en að okkar mati nauðsjmlegt. Ágiskaður aukakostnaður er 0,5% af byggingarkostnaði. 6. Með samkeppni er markið sett hátt varðandi arkitektúr húss, og verður að fylgja því eftir með vönduðum vinnubrögðum. 7. Hin flókna geometría hússins og mikil notkun boginna flata, mik- ill fjöldi hurða, stiga o.fl gerir hönn- un hússins vandasama. 8. osk arkitekta um léttleika byggingar og Iétt burðarvirki gerir jarðskjálftahönnun erfíðari. 9. Flotkraftar á kjallara og vandinn að hanna lekalaust mann- virki eykur á hönnunarkostnað. 10. Vafalaust hafa menn van- metið þær brejdingar sem gera þurfti á verðlaunatillögunni. Sam- keppnisteikningar em yfirleitt það hratt unnar og sýna fyrst og fremst hugmyndir og heildarsvip að gera verður ráð fyrir breytingum. Má í því sambandi nefna að undantekn- ing er að verkfræðingar hafí hjálp- að til við að ákveða burðarvirki svo eitthvað sé nefnt. í þessu tilfelli þurfti að stækka jrfirbyggingar úr 4.600 m2 í 5.365 m2 og fella út húsvarðaríbúð, aðstöðu fyrir heilsu- rækt, stækka eldhús, hætta við ut- análiggjandi lyftur og minnka kjall- ara úr 3 hæðum í IV2 Miklar kröfur um gæði í ræðu Davíðs Oddssonar borgar- stjóra, við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar fyrir árið 1989 kom fram að gert er ráð fyrir að veija 365 millj- ónum til framkvæmda við ráðhús- bygginguna á árinu að meðtöldum hönnunarkostnaði, sem er áætlaður 80 milljónir. Síðan sagði borgar- stjóri: „Ég hef áður gagnrýnt mik- inn kostnað við hönnun opinberra mannvirkja og vakið athygli á því, hversu erfitt er að hafa eftirlit með honum. En hvað Ráðhúsið varðar, er nauðsynlegt að benda á, að strax frá upphafí vom gerðar miklar kröf- ur um gæði hönnunar, og markmið sett hátt hvað varðar ágæti lausnar og útfærslu, bæði varðandi form, notagildi og fegurð. Þá er verð- launatillagan vissulega þannig úr garði gerð, að hönnun byggingar- innar er mjög vandasamt verk. Ég treysti hönnuðum til að leysa það verk vel af hendi og verkefnisstjóm- inni til að fylgja því vel eftir." Þá segir og: „Verkundirbúningur hefur rejmst góður, því engar þær hrakspár sem heyrðust um tækni- lega örðugleika hafa ræst og er verkið nú þremur vikum á undan upphaflegri tímaáætlun. Það er íhugunarefni að sérfræðingar, sem 'undir fullu nafni og fræðimanns- titlum hafa uppi rakalausar fullyrð- ingar og spár, sem í engu stand- ast, virðast hér á landi ekki þurfa að sæta ábyrgð orða sinna.“ Frá sýningu íslensku óperunnar á Don Giovanni. Myndband með upp- töku á Don Giovanni STYRKTARFÉLAG íslensku óperunnar hefor gefið út upptöku af sýningu Óperunnar á Don Giovanni, en upptakan var gerð á sýningu síðastliðið vor. Að sögn Árna T. Ragnarssonar, sem sæti á í stjóm Styrktarfélagsins, fæst myndbandið í flestum bókaverslun- um og hljómplötuverslunum, en einnig það það til sölu hjá ís- lensku Óperunni. Alls var 21 sýning á Don Gio- vanni hjá íslensku Ópemnni. Óvenju margir einsöngvarar komu fram í ópemnni, og vom sumir þeirra að stíga sín fyrstu skref á ópemsviðinu. Stjóm Stjrrktarfélagsins fannst brýn ástæða til að láta taka sýninguna upp til að eiga sem heimild, og eftir að hafa boðið báðum sjón- varpsstöðvunum upptökuréttinn, og þær báðar hafnað boðinu, ák- vað Styrktarfélagið að kosta upp- tökuna sjálft. Kvikmyndagerðar- fyrirtækið Sýn annaðist upptök- una, en mjmdbandið er með íslenskum skjátexta. Allir lista- menn sem hönd lögðu á plóginn við sýningu ópemnnar gáfu vinnu sína til útgáfu mjmdbandsins. Að sögn Ama T. Ragnarssonar nam kostnaður við gerð og útgáfu mjmdbandsins rúmlega einni milljón króna. Mjmdbandið kostar 3.000 kr. fyrir stjrrktarfélaga, en 3.500 kr. fyrir aðra, og ef hagnað- ur verður af sölunni mun hann verða notaður til að stofna sjóð til styrktar ópemskóla og nem- endasýninga á ópemm. Sparnaður þjóðar- búsins hefiir minnk- að um 26 milljarða Aframhaldandi viðskiptahalli nema sparn- aður aukist, segir Ólafiir Davíðsson SPARNAÐUR þjóðarbúsins hefor minnkað um 40% á tíu árum, úr um 24-25% i um 14% af vergri landsframleiðslu. Miðað við lands- framleiðsluna á síðasta ári þýðir þetta rúmlega 26 mil(jarða minnk- un sparnaðar. Sparnaðurinn er nú um 35 milþ'arðar en hefði þurft að vera jrfír 60 miljjarða til að halda sama hlutfalli og fyrir áratug. Fjárfesting hefúr á sama tima minnkað um 30%, úr 24% í 17-18% I af landsframleiðslu, eða um 16 milljarða. Fjárfestingin var um 30% á árunum 1971-75 og er þvi um 40% minni nú en þá. Ólafúr Daví- ðsson framkvæmdastjóri Félags fslenskra iðnrekenda segir þetta uggvænlega þróun og á meðan sparnaðurinn sé svona lítill megi búast við áframhaldandi viðskiptahalla og minnkandi kaupmætti. Ólafur sagði að minnkandi spam- kaupmætti en ella. ef meira væri aður og fjárfesting sýndi að neyslan hefði verið að aukast. Hann nefndi þijár ástæður fyrir minni spamaði þjóðarbúsins. Hann stafaði af versnandi afkomu atvinnufyrir- tækjanna, halla á ríkisbúskapnum og minni spamaði en meiri eyðslu heimilanna. Sem dæmi um það síðastnefnda sagði hann að hlutfall heimilanna í útlánum lánakerfísins væri óvenju hátt, eða yfír 32% um mitt síðasta ár og hefði aukist um þriðjung síðan 1981. Heimilin hefðu verið að auka skuldir sínar. Eðlilegt væri hins vegar talið að heimilin í heild spömðu meira en þau eyddu og stæðu undir útlánum til atvinnu- veganna. Hann sagði að sú breyting hefði verið að gerast á seinni ámm að lífejrissjóðimir hefðu orðið veigamesta uppspretta spamaðar í landinu og kæmi það niður á öðram spamaði heimilanna. - „Þetta er uggvænleg þróun," sagði Ólafur. „A meðan svona lítill spamaður er má búast við áfram- haldandi viðskiptahalla vegna þess að mismunurinn á sparnaði og fjár- festingum er viðskiptahalli." Hann sagði að til þess að auka spamaðinn þyrfti afkoma fyrirtækjanna að batna, ríkissjóður að eyða minna og heimilin að eyða minna og leggja meira sparifé fyrir. Ólafur sagði að ef spamaðurinn myndi ekki aukast þyrfti að draga sifellt meira úr kaupmætti til að ná jöfnuði í ut- anríkisviðskiptunum. A sama hátt væri hægt að halda uppi hærri sparað í þjóðfélaginu. Um áhrif vaxtanna á spamaðinn sagði Ólafur að svo virtist sem við brejitinguna úr neikvæðum vöxtum í jákvæða hefði peningalegur spam- aður aukist á áratug úr rúmlega 20% af vergri landsframleiðslu í yfir 32% á síðasta ári, eða um þriðj- ung. Hann sagði að það væri já- kvætt að stærri hluti af spamaðin- um færi nú um fjármagnsmarkað- inn en áður. Hann sagði ijóst að við þær aðstæður sem ríktu á fjár- magnsmarkaðinum væri mun meira aðhald veitt að fjárfestingu en áð- ur. „Við sjáum það alltaf betur og betur hvers konar tekjutap verð- bólgan hefur haft í för með sér undanfarin 10-15 ár vegna óarð- bærra fjárfestinga sem ráðist hefur verið í,“ sagði hann. Varðandi minnkandi fjárfestingu sagði Ólafur að 17-18% fjárfesting miðað við landsframleiðslu, eins og nú er, væri óeðlilega lágt hlutfall. íslendingar hefðu verið með hátt fjárfestingarhlutfall áður, eða um 30%, og ef til vill eðlilegt að það hefði lækkað eitthvað. Þá er fjár- festing atvinnuveganna orðin lægri hér en á hinum Norðurlöndunum. En ef fjárfesting héldist um ein- hvem tíma undir 20% væri það of Iágt hlutfall til að skapa þann hag- * vöxt sem íslendingar vildu búa við. Hætta væri á að tæknistig atvinnu- lífsins lækkaði og gæti okkur hefnst fyrir það síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.