Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 44
 COShAOLVJX' sólbaösperur tryggja árangurinn. Páll Stefánsson, heildv. «sf 91-7 25 30 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Sparnaður minnkarum 26 milljarða , ^kSPARNAÐUR þjóðarbúsins hefur minnkað um 40%, eða rúmlega 26 milfjarða, á undanfbmum tiu árum. Spamaðurinn var 24—25% af vergri landsframleiðslu fyrir áratug en er nú um 14%. Fjárfest- ing hefur einnig minnkað og sýnir þessi þróun að eyðsla hefur aukist verulega -í þjóðfélaginu. Ólafur Davfðsson framkvæmda- stjóri Félags íslenskra iðnrekenda segir að þetta sé uggvænleg þróun , og að á meðan spamaðurinn sé þetta lítill megi búast við áframhaldandi viðskiptahalla og minnkandi kaup- mætti. Hann segir að til að auka spamaðinn þurfí afkoma fyrirtækj- anna að batna, ríkissjóður að eyða minna og heimilin að leggja meira T sparifé fyrir. Sjá „Spamaður þjóðarbúsins ... á miðopnu. 2,5% gengisfelling; Dollar skráð- urá 51,45 kr. SEÐLABANKINN hefur lækkað meðalgengi íslensku krónunnar ^un 2,5% samkvæmt heimild ríkis- stjóraarinnar. Jafnframt hefur Seðlabankinn ákveðið að dagleg gengisskráning geti vikið allt að 2,25% upp eða niður fyrir hið nýja meðalgengi ef tilefni verður tU, einkum vegna gengissveiflna á erlendum gjaldeyrismörkuðum. í samræmi við breytt gengi íslensku krónunnar og gengisskrán- ingu erlendis var sölugengi dollars 51,45 kr. í gær, en var 50,42 á mánudaginn, og nemur hækkunin 2,04%. Sölugengi sterlingspunds hækkaði um 2,3%, úr 87,36 kr. í 89,34. Þýskt mark hækkaði úr 26,73 kr. í 27,55, eða um 3,1%. Dönsk króna hækkaði úr 6,89 kr. í 7,09, eða um 2,6%, norsk króna hækkaði VJm 2,4%, úr 7,41 kr. í 7,61, sænsk króna hækkaði um 2,4% úr 7,89 kr. í 8,11, og fínnskt mark hækkaði einnig um 2,4%, úr 11,62 kr. í 11,94. Franskur franki hækkaði úr 7,86 kr. í 8,09, eða um 2,7%. Belgískur franki hækkaði um 1,6%, úr 1,28 kr. í 1,31. Svissneskur franki hækkaði um 2,8%, úr 31,46 kr. í 32,42. Hollenskt gyllini hækkaði úr 23,68 kr. í 24,40, eða um 2,7%. Spánskur peseti hækk- aði úr 0,43 kr. í 0,44, eða um 2,3%. Japanskt yen hækkaði um 2,6%, úr 0,39 kr. í 0,40 kr. Sjá Peningamarkaðinn bls. 24 «►>7: • * Morgunblaðið/PPJ Miklar annir vom í innanlandsflugi þjá Flugleiðum í gær, en í fyrradag féll allt flug niður vegna veðurs. Flogið var á alla áætlunarstaði i gær, og vora meðal annars faraar sjö ferðir til Akureyrar, en farþegafyöldinn var samtals um 1200 manns. Á myndinni sést snjó- plógur ryðja Reykjavíkurflugvöll. Allar helstu leiðir færar SAMKVÆMT upplýsingum Vegaeftirlitsins vora allir helstu veg- ir hreinsaðir í gær, og áttu þeir allir að vera orðnir feerir í gær- kvöldi. Víða er mikill snjór, sérstaklega á VestQörðum og Norður- landi, og hætt við að leiðir lokist á ný ef mikill skafrenningur verður. Vegurinn um Þrengsli var mokaður í gær, en leiðin um Hellisheiði er lokuð. Mokað var um suðurströndina til Austfjarða, og vegir á Héraði voru hreinsaðir. Vegir á Snæfellsnes voru hreinsaðir og einnig vestur í Dali og Reykhólasveit. Þá var vegurinn um Holtavörðuheiði hreinsaður og norður Strandir til Hólmavíkur, og vegir í ísafjarðar- djúpi voru mokaðir. Þá hefur leiðin norður til Siglufjarðar verið opn- uð, og einnig vegurinn um Öxnadalsheiði og til Akureyrar. Fært er frá Akureyri til Húsavíkur og vegir hafa verið hreinsaðir með strönd- inni austur til Þórshafnar. Greinargerð um stöðu lagmetisins rædd í ríkisstjórn: Liggja með 150 til 190 millj- óna króna birgðir fyrir Aldi „Ætlunin er að aðstoða þá með Qármögnun þessara birgða,“ segir sjávarútvegsráðherra Á FUNDI ríkisstjóraarinnar í gærmorgun var lögð fram greinargerð um stöðu lagmetis- iðnaðarins í kjölfar hransins á Vestur-Þýskalandsmarkaði. Greinargerð þessi var unnin af Félagi íslenskra iðnrekenda. í henni kemur m.a. fram að íslensku lagmetisfyrirtækin I'K83a nú með birgðir, sem áttu að fara á Þýskalandsmarkað, að mestu til Aldi-verslanakeðj- anna, en verðmæti þeirra er 150-190 milljónir króna. í gær Deila launþegahreyfíngarinnar og Flugleiða: Rætt við Arnarflug um ferðamöguleika FULLTRÚAR allra stærstu Iaunþegasamtakanna í landinu hafa Jtkveðið að kanna ferðamöguleika með öðram flugfélögum en Flug- leiðum vegna málshöfðunar Flugleiða á hendur Verslunarmannafé- lagi Suðurnesja. Fulltrúar Alþýðusambands ís- lands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna og Sam- bands íslenskra bankamanna ákváðu þetta á fundi í gær.,1 frétta- —tilkynningu segir að samtökin telji það mikilvægt að leitað verði allra leiða til viðskipta við íslenskt flugfé- lag og óskað hafí verið eftir því við Samvinnuferðir-Landsýn að ferða- skrifstofan hafí forgöngu um slíka könnun. Hefur fundur með Amar- flugi verið ákveðinn klukkan 11 í dag. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, sagði að samningar við Flugleiðir hefðu verið á lokastigi þegar þessi málshöfðun hefði komið upp. Sam- vinnuferðir-Landsýn hefðu fyrir hönd verkalýðshreyfíngarinnar ver- ið búin að semja um fjögur þúsund 3æti með áætlunarflugi Flugleiða Degar verkalýðshreyfíngin hefði iskað eftir að hætt yrði við samn- nginn og annarra leiða leitað. barst skeyti frá v-þýzka fyrir- tækinu Aldi-Nord, þar sem til- kynnt var að fyrirtækið hætti viðskiptum við íslendinga eins og hinn hluti verzlunarkeðjunn- ar Aldi-SUd vegna þrýstings út af hvalveiðum Islendinga. í greinargerðinni um stöðu lag- metisiðnaðarins kemur fram að hann er nú í þröngri og erfíðri stöðu vegna þess að Þýskalands- markaðurinn er fallinn. í þeim kafla hennar sem fjallar um sölu- mál fyrirtækjanna kemur fram að þau hafa framleitt töluvert magn sem átti að fara til Aldi á þessu ári. Fyrrgreind tala, 150-190 millj- ónir, nær bæði yfir hráefni á lager og fullunna vöru. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra segir að nú sé verið að ræða innan ríkisstjómarinnar hvemig stjómvöld geti bmgðist við þessum vanda og hvað sé hægt að gera til lausnar hans. „Meðal þess sem rætt hefur verið um er að aðstoða lagmetisiðnaðinn við að fjármagna þær birgðir sem til eru í landinu og fyrirtækin liggja með,“ segir Halldór. í máli sjávarútvegsráðherra kemur einnig fram að stjómvöld hyggjast aðstoða lagmetisiðnaðinn við markaðsöflun á nýjum mark- aðssvæðum eftir því sem möguleik- ar eru á. Halldór segir að hann muni athuga þetta á næstunni í samráði við Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra. Sjá bls. 2: Aldi Nord hættir viðskiptum við íslendinga og yfirlýsingu Halldórs Ásgríms- sonar um óbreytta stefiiu í hvalveiðimálum. Fiskmarkaður Suðurnesja: Metverð álúðu METVERÐ fékkst fyrir 267 kg af lúðu á Fiskmarkaði Suðurnesja í gær. Hæsta verð var 440 krónur, lægsta verð 275 krónur, en meðal- verðið var 364,93 krónur. Hæsta verð, sem áður hafði fengist fyrir lúðu á Fiskmark- aði Suðumesja, var 415 krónur í janúar síðastliðnum. Sjá Fiskmarkaðinn bls. 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.