Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 19

Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 „Farkort44 VISA og FÍF VISA ísland og Félag Islenskra ferðaskrifetofa (FÍF) hafa gert með sér samkomulag um útgáfu sérstaks greiðslukorts til notkunar bæði innanlands sem utan. Greiðslukortið ber heitið Farkort, og veitir öll sömu réttindi og almenn Visa-kort um allan heim. Því til viðbótar mun handhöfiun þess bjóðast ýmis hlunnindi á sviði ferðalaga og skemmt- ana með aðild að Farklúbbi FÍF. Um er að ræða nýja gerð af Visa- korti, svonefnt fríðindakort, en þau ryðja sér nú til rúms víða um heim, að sögn Einars S. Einarssonar^ fram- kvæmdastjóra Visa ísland. A þeim er leyfilegt að merki samstarfsaðila birtist ásamt Visa-merkinu og nafni útgefanda á framhlið kortsins. Getur þar bæði verið um að ræða fyrir- tæki, samtök eða stofnanir. A blaðamannafundi þar sem sam- starfsnefnd Visa og FIF kynnti nýja greiðslukortið kom fram að meðal hlunninda sem handhafar þess munu njóta eru t.d. sveigjanleg greiðslu- kjör, sérstakt bónuskerfi, ferðatilboð, afsláttur í skoðunarferðum og hjá veitingastöðum á ferðamannastöðum og sérstakt ferðablað. Handhöfum Gullkorta Visa munu sjálfkrafa veit- ast sömu réttindi og Farkortið býður. Fyrstu Farkortin verða gefin út í maí næstkomandi, en fljótlega verður hægt að sækja um þau. Árgjald Far- korta verður nokkru hærra en al- mennra Visa-korta, eða um 2.800 krónur. Stofngjald verður 1.200 krónur, en 600 krónur fyrir þá sem eru Visa-korthafar fyrir. 19 Morgunblaðið/Bjami Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa ísland og Karl Sigur- hjartarson, formaður Félags íslenskra ferðaskrifetofa. Erfitt að selja ríkísskulda- bréf ef vextir lækka í 5% - segir Stefán Pálsson bankastjóri Búnaðarbankans „ÉG óttast, fyrir hönd ríkissjóðs, að það verði erfitt að selja ríkis- skuldabréf, ef vextir á þeim lækka i 5%. Það hefiir verið mjög dræm sala á þessum bréfiun undanfarið, þrátt fyrir að þau beri 6,8-7% vexti og það verður tími þar til markaðurinn tekur við sér með þetta lágum vöxtum,“ sagði Stefán Pálsson bankastjóri Búnaðarbankans og formað- ur Sambands íslenskra viðskiptabanka, um þá fyrirætlan ríkisstjórnar- innar að lækka vexti af ríkisskuldabréfiun. Ríkisstjórnin hefur jafnframt falið síðasta ári. Seðlabankanum að stuðla að því að aðrir vextir á lánamarkaðinum lagi sig að vöxtum á ríkisskuldabréfum. Hefur bankanum verið heimilað að beita lagaákvæði til að ná þessu fram, og auk þess er fyrirhugað að rýmka lagaheimildir Seðlabankans um vaxtaíhlutun. Stefán sagði um þetta, að bankar væru háðir erlend- um lánamörkuðum og lánskjör hefðu þyngst á erlendum mörkuðum á „Vextir á dollar hækkuðu úr 7,5% í 9,5% og pundið úr 9% í 13%. Við þetta ráðum við ekki. Útflutningsat- vinnuvegimir hafa verið í vaxandi mæli háðir þessum lánakjörum og stjómvöld ráða ekki við þennan þátt. Lánakjör á innlendum markaði vom há, þegar þenslan var sem mest hér, en þau hafa farið lækkandi. En auð- vitað hlýtur innlendur spamaður að vera jafti mikils virði og sá spamað- ur sem erlendir sparifjáreigendur fá,“ sagði Stefán. Ríkisstjómin stefnir að því að lengja lánstíma verðtryggðra §ár- skuldbindinga, og festa vexti á verð- tryggðum lánum. Stefán sagði að bankamenn teldu eðlilegt að einhver tími væri á verðtryggðum skuld- bindingum. Um fasta vexti á verð- tryggðum lánum, sagði Stefán að hann teldi eðlilegt að menn byggju við svipuð lánakjör, burtséð frá því á hvaða tíma lánið væri tekið. Breyti- legir vextir þýddu, að vaxtakjörin séu þau sömu hvenær svo sem lánið er tekið, og háir vextir á lánum, þegar mikil eftirspum væru eftir lánsfé, lækkuðu þegar eftirspumin minnkaði og vextir lækkuðu. Ríkissjóður er að draga sig út af verðbréfamarkaðnum - segir Gunnar Helgi Hálfdánarson „MIÐAÐ við óbreyttar aðstæður þýða 5% vextir á spariskírteinum að ríkissjóður er að draga sig út af markaðnum og hættir að selja sín bréf, sem þegar gengur illa að selja,“ sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins. Gunnar benti á, að þegar vextir á ríkisskuldabréfum vom lækkaðir ein- hliða 1986, hefði ríkissjóður misst markaðshlutdeild á verðbréfamark- aðnum, með þeirri afleiðingu að sala bankabréfa jókst. Fyrir þetta hefðu spariskírteinin liðið síðan. Seðlabankinn á að sjá til þess að vextir á lánamarkaðnum lagi sig að vöxtum á ríkisskuldabréfum. Gunnar sagði að ekki væri hægt að beita lögum á ýmsa hluta ijármagnsmark- aðaríns, til dæmis affallaviðskipti. „Ef ríkisstjómin ætlar að lækka vexti með handafii, þýðir það að spamaður minnkar og féð, sem fjármálastofn- anir geta lánað atvinnulífinu, minnk- ar. Það hefur síðan í för með sér, að vextir þess hluta flármagnsmark- aðaríns sem er frjáls, munu hækka. Jafnframt mun eyðsla aukast og er- lendar skuldir. Ég sé ekki að þetta haldi til lengdar ef skuldahlutfall íslendinga við útlönd hækkar enn frekar en nú er. Það gæti flýtt fyrir þjóðargjaldþrotinu hans Steingríms, og kannski er það stefnan," sagði Gunnar. Gunnar sagði að vonandi gerðu markaðsaðstæður almenna vaxta- lækkun mögulega. „Ef ríkissjóði tekst að hafa stjóm á sfnum útgjöld- um gæti samdrátturinn í þjóðfélag- inu leitt til lækkandi raunvaxta, en ég á eftir að sjá það gerast," sagði Gunnar Helgi. HONIG -ómissandi á matarborðið. ■M HONI©j macaro*11 250 9 Bráðabirgðaráðstaf- anir ennþá einu sinni - segir Ari Skúlason hagfræðingur ASÍ ARI Skúlason, hagfræðingur Alþýðusambands íslands, segir að efiia- hagsaðgerðirnar sem forsætisráðherra kynnti i upphafi þings standi ekki undir nafiii. Þetta séu ennþá einu sinni bráðabirgðaráðstafanir, sem kalli á nýjar aðgerðir eftir tvo til þijá mánuði. Þarna sé mikið um fyrirheit og óljósa stefiiumörkun, en minna fari fyrir beinhörðum aðgerðum. Sumt hafi einnig verið i síðustu ráðstöfimum eins og loforð um að fella niður söluskatt á raforku til útflutningsfyrirtælga og sama mætti segja um fyrirheit um að lækka vexti. ARNÁRogÖRLYGS „Það er alveg ljóst að vandamál sjávarútvegsins eru ekki leyst með þessum aðgerðum og eru nær þau sömu og áður. Þegar peningamir í verðjöfnunarsjóði til greiðslu uppbóta á freðfisk eru búnir í apríl eða maí, sem teknir voru að láni erlendis, stöndum við í sömum sporum og síðastliðið haust. Það er dálítið merkilegt að gera þurfi sífelldar efnahagsráðstafanir, þrátt fyrir að ástandið sé óbreytt," sagði Ari. Hann sagði að sífellt væri klifað á því að staða okkar gagnvart útlönd- um væri slæm, en það væri ekki alls kostar rétt. Vandinn væri að miklu leyti heimatilbúinn og það væri orðið þannig að þessar sífelldu efnahagsr- áðstafanir væru orðnar ansi mikið vandamál í sjálfu sér. Það sem væri gert stæði stutt. „Það er mikið talað um að gengisfelling sé afgangs- stærð. Mér er spum, afgangur af hveiju, þegar aðgerðimar saman- standa nánast ekki af neinu nema gengisfellingu." „Ríkisstjómin telur ekki að það sé svigrúm til kaupmáttaraukning- ar,“ sagði Ari um stefnuna í at- vinnu- og kjaramálum. „Við getum ekki sætt okkur við það, alla vega ekki fyrir hönd þeirra félaga okkar sem hafa lægstar tekjur. Staða þeirra er verri en oft áður. Ég get ekki séð annað en með þessu kaupmáttartali forsætisráðherra sé verið að stefna í sama farveg og 1983, þ.e.a.s að keyra kaupmátt niður með offorsi, sem kemur til með að skapa ails konar misgengi." VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA FRAMLENGJUM VIÐ HINUM GLÆSILEGA BÖKAMARKAÐI OKKAR TIL II. FEBRUAR. ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR á hundruðum bókatitla i takmörkuðu upplagi ÖRN OG o oö ÖRLYGUR SÍÐUMÚLA 11 - SÍMI 84866

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.