Morgunblaðið - 08.02.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.02.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 Fjárhagsáætlun bæjarins lög fram ‘ Húsavík. Á FUNDI bæjarstjórnar Húsavíkur 31. janúar sl. var lögð fram til fyrstu umræðu fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfirstandandi ár. Bæjarstjóri, Bjarni Þór Einarsson, fylgdi henni úr hlaði með langri grein- argerð, þar sem fram kom með- al annars eftirfarandi: Heildarrekstrartekjur bæjar- Sjóðs og fyrirtækja eru áætlaðar 301.5 millj. króna, þar af útsvör 111 millj. króna og kísilgúrskattur 12.5 millj. króna. Útsvör verða 7,5% af útsvarsstofni en voru 6,7% á síðasta ári. Aðstöðugjöld hækka um 10% og álagningarprósenta á INNLENT fasteignir (íbúðir)hækkar úr 0,575% í 0,625% en á atvinnuhús- næði er hún óbreytt. Gert er ráð fyrir að framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði 3.870 krónur á íbúa og er það þá fimmti stærsti tekjustofn bæjar- ins. Framlag bæjarfyrirtækja til bæjarsjóðs eru áætluð frá hita- veitu 7,9 millj. króna og vatns- veitu 12,9 millj. króna eða sam- tals 20,8 millj. króna. Af rekstri bæjarsjóðs er tekjuafgangur áætl- aður 38 millj. króna sem eru tæp 20% af tekjum en var síðastliðið ár áætlað 8,4%. Stærstu liðir rekstrarútgjalda eru: Til almannatrygginga og fé- lagshjálpar 43,7 millj., tii fræðslu- mála 35,7 milíj., áhaldahúss 33,3 millj. og til yfirstjómar bæjarins 25,7 millj. króna. „í þessari íjárhagsáætlun er beitt miklu aðhaldi í rekstrarút- gjöldum, en þó reynt að gæta raunsæis, hvað varðar einstaka kostnaðarliði," sagði Bjami Þór bæjarstjóri í lok framsöguræðu sinnar. Fjárhagsáætluninni var vísað til annarrar umræðu. - Fréttaritari Völsungar eignast félag’sheimili Húnavfk. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Völsungur hefúr keypt húseignina að Höfðavegi 2, Hlöðufell, og hyggst koma þar upp félags- heimili. Völsungar hugsa sér að skapa ungmennunum á staðnum aðstöðu til að hittast og stytta sér stundir við hollan leik og aðra skemmtan. Þar á að koma upp leiktækjum og ýmsu til afþreyingar en starf- semin er enn í mótun. Hlöðufell, sem er byggt 1907, á sína sögu. Vesturhluti hússins var upphaflega hlaða og af þvf er nafnið komið en í austurhlutanum hefur margháttuð starfsemi verið. Húsið var upphaflega byggt sem vörugeymsla verslunar A & P Kristjánssonar. Þar hefur verið salt- að kjöt í margar tunnur og flutt út til Noregs og ullarmóttaka var þar á þeim tíma, sem ull var mikil útflutningsvara. Síðar var húsinu breytt í verslun og árið 1961 var hætt afnotum af hlöðunni og hætt að hafa hænsni og kindur í kjallara og húsinu breytt í veitingahús, sem nefnt var Hlöðufell, og var þar rek- inn veitingarekstur í tæp 15 ár. Þá var húsinu aftur breytt í versl- unarhúsnæði og hefur sfðan að mestu verið þar rekin verslun. Nú hefur gamla húsið fengið nýtt hlut- verk, sem vonandi verður æskunni til góðs. - Fréttaritari. LEIKFÉLAG Akureyrar hefúr ákveðið að fresta frumsýningu á „Hver er hræddur við Virginíu Woolf?“ um viku. Frumsýning hafði verið fyrirhuguð næstkom- andi föstudag, en Ijóst er að fresta þarf henni um vikutíma. Frumsýning verður því föstudag- inn 17. febrúar. Helgi Skúlason og Helga Bachmann fara með aðalhlutverkin í verkinu. Æfíngar á lokaverkefni leikárs- ins heflast síðan í næstu viku, en Húsavík: það er „Sólarferð" eftir Guðmund Steinsson. Leikstjóri verður Hlín Agnarsdóttir og er stefnt að frum- sýningu þann 7. aprfl. Hún hefur nýlega lokið námi í leikstjóm í Lundúnaborg. Verkið er í léttum dúr og fjallar um sólarferð þriggja hjóna og þau ævintýri, sem upp geta komið í slíkum ferðum. Jólaleikrit LA, „Emil í Kattholti", hefur gengið mjög vel. Nær upp- selt er á hveija sýningu, en næsta sýning á þessum vinsæla fjölskyldu- leik á sunnudaginn kl. 15.00. , _ Morgunblaðlð/Silli Iþróttafélagið Völsungur hefúr keypt húseignina að Höfðavegi 2 og hyggst koma þar upp félagsheimili. Húsavík: Kammerhlj óm- sveit Akureyrar: Fjölmenni á Gershwin- tónleikum FJÖLMENNI sótti Gershwin- tónleika Kammerhljómsveitar Akureyrar sem fram fóru f fþróttaskemmunni á sunnu- dagskvöld. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni þess að á ár- inu verða 90 ár liðin frá fæð- ingu Georg Gershwin. Sextfu manns tóku þátt í tónleikun- um og hefúr hljómsveitin aldrei verið fjölmennari. Danski djassleikarinn Erik Tschentscher stjómaði hljóm- sveitinni. Einleikari á píanó var Kristinn Öm Kristinsson, sem er starfandi tónlistarmaður á Akureyri. Þá fékk hljómsveitin til liðs við sig unga söngvara frá Reykjavík, þau Jóhönnu Linnet og Michael Levine. Hver er hræddur við Virgíníu Woolf?: Seinkun á ftnmsýningn Morgunblaðið/Rúnar Þór Jóhanna Linnet og Michael Levine sungu með Kammerhljóm- sveit Akureyrar á tónleikum, sem fram fóru á sunnudagskvöld. Morgunblaðið/Rúnar Þór Minní saltkjötssala var á Akureyri nú en áður á sprengidaginn. Auknu svartamarkaðsbraski með kjöt eftir að matarskatturinn var lagður á er kennt um auk þess sem bændur Cá sífellt minni kvóta til skiptanna. Svartamarkaður blómstr- ar eftir matarskattinn segir Búi Ármannsson kjötmaður hjá KEA ÆTLA MÁ að Qögur tonn af kjöti hafi farið f salt á Akureyri nú fyrir sprengidaginn. Hinsveg- ar urðu kaupmenn á Akureyri varir við mun minni sölu á salt- kjöti nú en oft áður. Sama var uppi á teningnum i hangikjöts- „vertíðinni“ fyrir jólin. Mun minna seldist af hangikjöti fyrir síðustu jól heldur en tíðkast hef- ur áður. „Það er alveg ljóst að svarta- markaðurinn hefur blómstrað eftir að matarskattinum var komið á. Ég hef orðið var við mikinn sam- drátt í kjötsölu og það getur varla verið vegna þess að fólk er hætt að borða kjöt. Fólk hlýtur að fá kjötið annars staðar en í verslunum. Maður hejnár að minnsta kosti miklu meira um sölu á heimaslátr- uðu kjöti nú en áður þó sala á því sé bönnuð samkvæmt lögum," sagði Búi Ármannsson, lq'ötmaður hjá KEA í Hrísalundi, í samtali við Morgunblaðiið í gær. Hann sagði að fyrst og fremst virtist þetta svartamarkaðsbrask eiga við um stórgripina. Samdrátturinn væri ekki eins stórtækur í lambakjötinu, en þó hefði hann berlega aukist eftir að matarskatturinn svokallaði var settur á. Jólasalan í hangikjöt- inu og saltkjötssalan nú styddu þær kenningar. Búi sagði að eftirlit með sölu á heimaslátruðu kjöti hlyti að vera nær óframkvæmanleg. Menn seldu kjötið sitt væntanlega til vina sinna og kunningja og varla væri hægt að fylgjast með því hvað fólk að- hæfist í bflskúrum sínurti og öðru geymsluhúsnæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.