Morgunblaðið - 08.02.1989, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989
3
Ég er ekki vön
að vera hrædd
- segir Katrín Petit, sloppin frá Kabúl
„VIÐ vorum svo heppin að það
stytti upp í Kabúl svo hægt var
að halda flugvellinum auðum af
snjó. VöUurinn er f nokkurs konar
skál f faUegum snævi þöktum
fjallahring er nær upp undir 3.400
m hæð og við komumst vandræða-
laust þaðan f gærmorgun í flug
tíl Nýju DeU,“ sagði Katrín Petit,
eina konan sem fór með sfðustu
vestrænu sendiráðsmönnunum frá
Kabúl. Sovéskir hermenn eru nú
að yfirgefa höfuðborg Afganist-
an. Katrin og eiginmaður hennar,
Raymond Petit, komu f gærmorg-
un tíl Parfsar, þar sem Morgun-
blaðið náði f hana f síma. Maður
hennar hafði hins vegar farið
nánast beint tíl viðræðna f utanrfk-
isráðuneytinu. Hann veitti franska
sendiráðinu f Kabúl forstöðu og
fékk á fostudag skipun að heiman
um að yfirgefa staðinn sfðastur
Frakkanna.
„Jú, það er rétt, við vorum síðust
út. Engir eftir utan nokkrir í sendi-
ráðum Austur-Evrópulanda, en þeir
voru fáir og engar konur,“ sagði
Katrín. „Það eru búin að vera óskap-
leg læti í kringum ferðina. Við urðum
að hafa 5-6 tíma viðdvöl í Nýju Delí
og 35 franskir blaðamenn sendu
Katrín Petit
fréttir heim um gervihnött, svo okk-
ur er sagt að við höfum verið í öllum
fjölmiðlum hér í gær. Ættingi Raym-
onds tók þetta upp og nú ætlum við
að borða með fjölskyldunni í kvöld
og sjá spólumar."
Katrín sagði að þau hefðu síðustu
vikumar talið öruggara að búa í
húsinu sem þau leigðu en sendiráð-
inu, þvf það er svo nálægt höllinni.
Borgin er umkringd skæruliðum f
fjöllunum. „Það hafa lengi fallið
sprengjur á borgina, var bara svolít-
ið svikahlé í nokkra daga. Það var
ekki fyrr en nú síðast að við fluttum
úr húsinu okkar f sendiráðsbygging-
una, fómm þangað með nokkuð af
húsgögnunum okkar, því við urðum
að skilja allt eftir nema fatnaðinn.
Jú, jú, það hafði fallið sprengja á
sendiráðsbygginguna, en hún er stór
svo þar var ágætt að vera og við
vorum umkringd öðrum sendiráðs-
byggingum.
Manni leið auðvitað ekki vel þegar
sprengjumar féllu. Fólk hefur fengið
heilahristing og blætt úr eyrum, ef
þær falla nærri. Það er mikill uggur
í bænum, fólk óttast blóðbað og
matarskort þegar Rússamir eru
famir. Það er mjög lítið um mat í
borginni og það sem til er kemur
ekki fram, er einhvers staðar falið
og á okurverði. En það var allt í lagi
með okkur og mig sjálfa. Ég lét mér
ekki líða illa og er ekki vön að vera
hrædd. Mér líður yfirleitt vel alls
staðar. Ég trúi á guð og held ekki
að minn tími sé kominn, ég gæti
alveg eins farið undir bíl í þessari
ógurlegu umferð hér í París.
Katrín sagði annríkið hjá Raym-
ond hafa verið mikið. „Það slasaðist
franskur blaðamaður og þurfti að
koma honum undir læknishendur.
Allt símasamband er slitið, svo öll
fjarskipti fóru um gervihnött og áður
en við fómm varð að taka tækin öll
niður og með okkur til Nýju Delí og
Parísar. Ég vona að við getum hvílt
okkur þegar það mesta er afstaðið
hér, kannski á íslandi. Annars veit
ég ekki nema Raymond þurfi að fara
aftur. Allt er svo óljóst núna,“ sagði
Katrín Petit."
Morgunblaðifl/Snorri Snorrason
Nú þegar spjór er yfir öllu eiga smáfiiglamir víða erfitt með að finna sér æti, og því Inmna þeir
vafalaust vel að meta þegar þeim er gefið fuglafóður.
Kaupmannahöfin:
Islendingur ákærður fyrir
stórfellt fíknieftiasmygl
ÍSLENDINGUR, 34 ára gamall, er nú fyrir rétti í Dan-
mörku, ákærður fyrir að hafa smyglað til landsins og selt
rúmlega sjö kíló af amfetamini og tíu kíló af hassi. Maður-
inn hefúr aðeins játað hluta þessa.
Þetta kemur fram í frétt danska
dagblaðsins Politiken í gær. Þar
segir, að 26 manns hafí verið
handteknir vegna málsins. Lög-
reglan álíti Islendinginn aðal-
manninn í málinu, en ákæruvaldið
hafí þegar fellt niður hluta ákær-
unnar á hendur honum, sem fyall-
aði um sölu á fímm kílóum am-
fetamíns.
í fréttinni segir að íslendingur-
inn hafí viðurkennt að hafa farið
ásamt kunningja sínum til Holl-
ands í ágúst 1987, til að kaupa
hass. Að því loknu fór hann heim
tii íslands, en kunningi hans var
handtekinn af tollvörðum í Röd-
byhavn. í bifreið hans fundust 3,2
kíló af hassi og 2,2 kíló af am-
fetamíni.
íslendingurinn var handtekinn
í Danmörku í aprfl á síðasta ári.
Þá fundust 6,5 kfló af hassi f bif-
reið hans og viðurkenndi hann að
hafa smyglað því til landsins.
í frétt Politiken er frá því skýrt,
að ákæruvaldið hafí leitað eftir
skýringum íslendingsins á þvl,
hvemig á því stæði að hann ætti
um 5 milljónir króna á banka-
reiknigum í Lúxemborg, íslandi,
Spáni og Belgíu. Á bankareikningi
mannsins í Danmörku voru að
auki um 2 milljónir, sem voru
lagðar inn í erlendum gjaldeyrj.
íslendingurinn gaf þá skýringu,
að peningana hefði hann eignast
vegna viðskipta með físk, bifreiðar
og vegna sölu íbúðar. Málflutning-
ur hélt áfram í gær, með yfír-
heyrslum yfír manni, sem hefur
hlotið dóm fyrir að hafa keypt 5
kfló af amfetamíni af fslendingíi-
um.
Samkvæmt upplýsingum fíkni-
efíiadeildar lögreglunnar f
Reykjavík hefur rannsókn þessa
máls ekki teygt anga sína til ís-
lands. Maðurinn hefur verið bú-
settur erlendis í mörg ár.
Tillögnr að skipulagi Tjarnargötu og vesturbakka Tjarnarinnar.
Morgunblaðið/Júlíus
Vesturbakki Tjamarinnar endumýjaður
NÚ STENDUR yfir kynning á skipulagi við Tjarnargötu í
Reykjavík og gefst íbúðaeigendum og fbúum við götuna, ásamt
ölium almenningi, kostur á að koma með ábendingar og athuga-
semdir. Sýning á tillögunum var sett upp í glugga Gallerí Borgar
við Austurvöil í gær. Höfundur tillagnanna er Kjartan Mogens-
en, landsiagsarkitekt.
í tillögunum, sem ná til skipu-
lags fy'amargötu og Tjamarbakk-
anna, er gert ráð fyrir að ríkjandi
gróðurmynd við götuna haldi sér,
þ.e. niður hlíðina frá Suðurgötu
og kirkjugarðinum niður að Tjöm.
Tjamargatan verði einstefnugata
frá Skothúsvegi niður til móts við
hús númer 12, en þar er gert ráð
fyrir tvístefnu vegna innkeyrslu í
bílageymslur ráðhússins.
Við Tjamargötu verða tvö
hellulögð torg, annað fyrir framan
Ráðherrabústaðinn og hitt niður
undan húsi númer 20. Á torgun-
um verða runnar, tré og bekkir.
Torg þessi em í raun hugsuð sem
hraðahindranir.
Akrein verður malbikuð, nema
í gegnum torgin, sem eru hellu-
lögð sem áður sagði. Þá verða
bílastæði og gangstéttir hellu-
lagðar. Tré á torgum verða í keij-
um og stakstæð tré á gangstétt-
um og bílastæðum.
í tillögunum er gert ráð fyrir
að Tjamarbakkinn við Tjamar-
götu verði endurgerður. Tveir set-
pallar verða niður undir vatns-
borði og göngustígur á milli.
Götustæðið liggur hærra, líkt og
nú er, og gróður á milli. Þá verð-
ur sandfjara, eða vísir að sand-
fjöru, niður af styttunni af Ólafí
Thors, Við suðurenda Tjamarinn-
ar.
Höfundur reiknar enn fremur
með gönguleið milli Ijamargötu
og Suðurgötu, um lóð hússins að
Tjamargötu 20. Þar verður þá
gerð trétrappa á milli. Enn fremur
er stungið upp á göngustíg, eða
göngubrú, með Suðurgötu aust-
anverðri, til að vegfarendur þar
geti notið útsýnis yfir Tjömina.
Endanlegur frágangur og
hönnun norðurenda Tjamarinnar,
þar sem ráðhúsið er nú að rísa,
verður unninn í samvinnu við
hönnuði ráðhússins.
Júlíus Hafstein, formaður um-
hverfismálaráðs, sagði í samtali
við Morgunblaðið að með þessari
tillögu væri verið að ganga frá
Tjamarbakkanum til frambúðar.
„Þessi lagfæring á bakkanum
tengist byggingu ráðhússins, eins
og lagfæring bakkans við
Fríkirkjuveg og tenging hans við
norðurbakkann," sagði Júlíus.
„Núna tökum við vesturbakkann
um leið og ráðhúsið rís, yfír í
suðurbakkann og austurbakkann.
Þar með erum við búin að móta
Tjömina, að minnsta kosti um
nána framtíð. Ég tel þessa fram-
kvæmd þá mestu vöm sem gerð
hefur verið fyrir Tjömina í
Reykjavfk. Með þessu emm við
ekki að minnka Tjömina, eins og
sumir hafa haldið fram, heldur
emm við að vemda hana," sagði
Júlíus Hafstein, formaður um-
hverfísmálaráðs.
Tillögumar verða til sýnis í
glugga Gallerí Borgar til 14. febr-
úar og að því loknu hjá Bygging-
arþjónustunni að Hallveigarstíg 1
út febrúarmánuð. Athugasemdir
þurfa að hafa borist Borgarskipu-
lagi fyrir 1. mars næstkomandi.