Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 17 eða þjónusta hennar, svo og starfs- menn á hennar vegum, gætu átt ein- hvetja aðild að slíkum málum. Vel kæmi til álita svipuð skipan hér á landi, t.d. í þá átt að núver- andi rannsóknardeild loftferðaeftir- litsins verði formlega flutt undir flug- slysanefnd. Umfang rannsókna og sívaxandi árlegur fjöldi rannsóknar- mála benda til að slík tilhögun geti verið tímabær. Öryggfi í flugrekstri Fyrir íslenskan flugrekstur gildir fjöldi öryggisreglna, sem bæði byggja á alþjóðlegum stöðlum, svo og uppsafnaðri reynslu af samfelldu atvinnuflugi við íslenskar aðstæður í rúmlega fímm áratugi. Framfylgd slíkra reglna hvflir fyrst og fremst á herðum starfsmanna flugrekenda, en einnig þarf þar til aðhald og eftirlit þeirra stofnana ríkisins, sem falið hefur verið að stuðla að bættu flugör- yggi- Við undirbúning áætlunarflugs gilda tilteknar reglur um eldsneytis- magn og varaflugvelli. Sérstök mörk hafa verið sett varðandi hámarksvind í farflugi yfír íslandi, svo og varð- andi flug við ísingarskilyrði. Við blin- daðflug þarf skyggni og skýjahæð að vera yfír ákveðnum gildum. Hlið- arvindur á flugbraut verður að vera innan vissra marka, og er m.a. veru- lega háður mældum hemlunarskil- yrðum á flugbrautinni. Engum, og síst af öllu flugrekend- um, starfsmönnum þeirra, svo og flugfarþegum, er greiði gerður með óeðlilegum frávikum frá viðurkennd- um öryggisstöðlum, er almennt gilda fyrir áætlunarflug til og frá íslandi, svo og í innanlandsflugi við erfíðar aðstæður. Því er nauðsynlegt að fram fari eðlileg rannsókn á öllum þeim atvikum þar sem rökstuddur grunur liggur fyrir um veruleg frá- vik frá slíkum flugrekstrarreglum, og með það markmið eitt fyrir augum að niðurstöður slíkra rannsókna stuðli að bættu öryggi í íslenskum flugrekstri. Höfundur er fotmaður Qugráðs. Það er í þínum höndum hvað verður um penínga heimilísins. Þegar kemur að afborgunum lána, er því undir þér komið að borga á réttum tíma. febrúar Þar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekkí sé talað um ínnheímtukostnað. var gjalddagí húsnæðíslána. 16. februar leggjast dráttarvextir á Ián með lánskjaravísitölu. 1. fnars leg'gjast dráttarvextir á lán með byggingaivísitölu. Greiðsluseðlar fyrir 1. febrúar hafa verið sendír gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. c£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00 Fermingarveislan er í góðum höndum hjá konditori Myllunnar. Þaöan koma kaffihlaðborðin eins og þau gerast best. Hvort sem gestirnir eru 20 eða 200 má treysta á fyrsta flokks veitingar, ferskar og Ijúffengar. Á fermingarborðið setjum við Feneyjatertur Súkkulaðikökur Eplakransa Sachertertur Kransakökur Snittur Brauðtertur Rjóma-marsipantertur Rubinstertur Engar áhyggjur, amstur og bakstur. Við gerum fermingarveisluna fyrirhafnarlitla. Sunnudagana 12. og 19. febrúar verður kaffihlað- borðið til sýnis í konditori Myllunnar í Kringlunni. Upplýsingar og pantanir í konditori Myllunnar í Kringlunni, símar 689140 og 689040. KONDITORI í KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.