Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.02.1989, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 18 M i Wm: Morgunblaðið/Leif Glud Holm Asa Báverstam, Kirsten Andersen og Jörgen Ole Börch i hlutverkum sínum i óperunni „Dans á rósum“. Kaupmannahöfii: Operan „Dans á rósum“ frum- sýnd á sviði Borup-háskólans Er byggð á leikriti Odds Björnssonar Jónshúsi, Kaupmannahöfn ÓPERAN „Dans á rósum“ eftir sœnska tónskáldið Ame MellnSs, var frumsýnd 28. janúar á sviði Borup-háskólans við Friðriks- hólm Kanal. Óperan er byggð á „Tiu tilbrigðum", leikriti Odds Bjömssonar og er það Músíkdramatíska leikhúsið, sem stendur að sýningunni undir Ieikstjóra Niels Pihl. Eins og áður er getið í Morgun- blaðinu samdi Ame Mellnás óper- una fyrir 5 árum, að nokkru leyti fyrir tilstilli NOMUS, með upp- færslu á íslandi í huga. Sömdu þeir Oddur Bjömsson óperutex- tann upp úr úr „Tíu tilbrigðum", en leikritið er byggt upp með tón- listaráhrifum og féll því vel að óperu. Er ekki varð af sýningum í Reykjavík leitaði tónskáldið fyrir sér annars staðar. Birgitte Home Jensen þýddi textann á dönsku sl. sumar, er Músíkdramatiska leikhúsið í Kaupmannahöfn hafði sýnt verkinu áhuga. „Dans á rósum" er í einum þætti, en leikmyndir eru tíu og lfða 30 ár milli 3. og 4. myndar. Sviðið er aðeins eitt, lítil íhúð í norrænum bæ. Hlutverk em þijú, Lúðvík tónsmiðurinn, sem dag út og dag inn reynir að semja ódauð- legt meistaraverk, kona hans Málfríður, sem áhyggur ömurlegs hversdagslífsins siiga, og sjúk móðir hennar, ónafngreind, sem ítrekar bæði iífs og liðin tilgangs- leysi og sjálfsblekkingu tónsmiðs- ins klunnalega. Hlutverk Lúðvíks syngur Jörg- en Ole Börch, 37 ára bariton- söngvari, sem hefur sungið hjá Konunglega leikhúsin sfðan 1981. Ása Báverstam er ágæt Málfrfð- ur, en hún er sópransöngkona, faedd í Stokkhólmi 1959 og lærð frá Józka tónlistarháskólanum og hefur sungið hjá Óperuakade- míunni hér. það hefur Kristen Andersen líka gert, en hún er rúmlega þrítug alhiiða altsöng- kona, sem skilar hlutverki tengda- móðurinnar með prýði. 12 manna kammerhljómsveit leikur undir stjóm Flemming Visitsen hljóm- sveitarsijóra. Undirtitill óperunnar er „Opera buffa", gamanópera, en sjálft nafnið er draumur Lúðvíks: „Því þá muntu dansa á rósum", þegar meistarasatykkið er loks fullsmíð- að. Er óperan tileinkuð öllum eig- inkonum listamanna. í sýningar- skrá segir Ame Meilnás, að til- gangur óperunnar sé aðeins að segja sögu að góðum, gömlum, fslenskum sið. í skránni er lfka að finna lista yfir verk tónskáldsins allt frá 1955 og þeirra á meðal er fyrri ópera hans „Canterville-draugur- inn“, sem sýnd var 1980. Þá er ritstörfum Odds Bjömssonar gerð nokkur skil. Fjölmennt var við frumsýning- una og tónskáldinu fagnað inni- lega og einnig leikstjóra, hljóm- sveitarstjóra og söngvurum. - G.L. Ásg. Menntamálaráðuneytið: Leitað hugmynda um forgangsverk- efiii í skólamálum Öllum fijáls þátttaka SVAVAR Gestsson, menntamálaráðherra, hefur ákveðið að ráðu- neyti hans taki upp það nýmæli að leita til ýmissa aðila bæði innan og utan skólakerfísins eftir hugmyndum um forgangsverkefni í íslenzkum skólamálum næstu tíu árin. Á fjórða hundrað bréf hafa þegar verið send til íjölda félagasamtaka, skóla, félaga nemenda og foreldra, fræðslustjóra, fræðsluráða, sveitarstjóma og þing- flokka. Ráðherra tók hins vegar fram að f raun væri hveijum sem væri frjálst að taka þátt í könnuninni og koma hugmyndum sínum um forgangsverkefíii á framfæri, bréf. „Við viljum setja af stað almenn- ar umræður um stefnumótun í skólamálum og fá fram hvað fólk leggur mesta áherzlu á og þykir skipta mestu máli,“ sagði Svavar. „Við gerum þetta vegna þess að við teljum að slíkar umræður hafi skort. Reyndar hafa verið til stefnu- markandi 'plögg, til dæmis grunn- skólalögin og framhaldsskólalögin, en við viljum að fólkið sjálft úti á akrinum verði þátttakendur í stefnumörkuninni til þess að það finni að við eigum þessa stefnu saman." Svavar sagði að skólamenn hefðu ef til vill verið í þeirri stöðu undan- farin ár að þeir ættu sér ekki sam- nefnara, eins og hann orðaði það. Með könnuninni væri meðal annars markmiðið að skapa samhljóm með- al uppeldisstéttanna. „Eg vil taka það fram að hér er ekki verið að búa til eitthvað sem verður Stefnan með stórum staf og greini í menntamálaráðuneytinu, hinn endanlegi_ stórisannleikur í skólamálum á íslandi. Slíkt kerfi viljum við ekki, við viljum laða hug- myndimar fram frá fólkinu sjálfu þótt viðkomandi hefði ekki borizt og leggjum á það áherzlu sem hlut- verk okkar í ráðuneytinu að skapa þjóðarsamstöðu um skólastefnu. Við erum ekki hér til þess að gera til dæmis flokkssteftiu Alþýðu- bandalagsins að hinni íslenzku skólastefnu," sagði menntamála- ráðherra. Ætlazt er til að þeir, sem senda inn hugmyndir til menntamálaráðu- neytisins, geri lista yfir fjögur til tíu mál, sem þeir telja mikilvægust á sviði skólamála á næsta áratug, ásamt rökstuðningi í stuttu máli. Nauðsynlegt er að nota eyðublað frá ráðuneytinu, og fremur mun miðað við að hugmyndir berist frá hópum en einstaklingum. Óskað er eftir því að svör hafi borizt ráðu- neytinu fyrir 20. febrúar. Félags- málastofnun Háskólans mun svo vinna úr hugmyndunum og væntan- lega verður þeirri vinnu lokið í byij- un maí. Þá verður öllum þátttak- endum sendur listi yfír þau tíu mál, sem oftast voru nefnd, og þeir beðnir að raða þeim í forgangsröð. Úr þeim svörum verður svo unnið í júní. Ferðamiðstöðin Veröld: Ný ferðaskrífetoía tekin til starfa Samstarf Álafoss og Hildu á Bandaríkjamarkaði: Æskilegl að skoða þennan mögnleika - segir Kristinn Jörundsson firamkvæmdastjóri Hildu hf ÉG TEL eins og staðan er í dag að það sé æskilegt að skoða þennan möguleika. Það er búið að ákveða að vinna að því að sameina markaðsfyrirtæki Hildu og Álafoss í Bandaríkjunum. Fyrsta skrefið er að koma af stað viðræðum. Hins vegar hefur það samstarf, ef af verður, eng- in áhrif á rekstur fyrirtækjanna hér heima, það hefur aldrei kom- ið til tals,“ sagði Kristinn Jör- undsson framkvæmdastjóri Hildu hf aðspurður um hugsan- legt samstarf fyrirte»lganna. Þeir samstarfsmöguleikar sem á að skoða eru, að sögn Kristins, í fyrsta lagi að fyrirtækin reki í sam- einingu eitt markaðsfyrirtæki sem hefði á boðstólum vörur beggja í Bandaríkjunum. Hinn kosturinn er, ef ekki næst samkomulag um þann fyrri, að fyrirtækin hafí með sér samstarf um markaðssetningu og skipulag sölu í Bandaríkjunum. Kristinn sagði Bandaríkjamark- að vera erfiðan og mikla vinnu kosti að ná þar fótfestu og halda henni. „Það þarf hins vegar að vera grundvöllur til að framleiða hér heima. Stjómvöld þurfa að skapa þann grundvöll í stað þess að niðurgreiða erlent vinnuafl með kolrangri gangisskráningu. Við framleiðum tískuvörur og þær eru alltaf að verulegu leyti háðar tísku- sveiflum, en það hefur ekkf hjálpað til að við höfum á nýliðnum árum þurft að hækka okkar vörur um tugi prósenta." Álafoss og Hilda em nú í sam- keppni á Bandaríkjamarkaði. Það er iðnaðarráðuneytið sem hefur forgöngu að þessum samstarfsat- hugunum fyrirtælganna. Kristinn sagði að uppgangnjr hefði verið á árunum 1982-1985. Síðan dróst saian saman þar til í fyrra og er nú að byija að aukast á ný. 33 Hilduverslanir eru í Banda- ríkjunum, þar af átta í eigu Hildu hf. „Við höfum þegar fengið mjög góðar móttökur og margir litið hér við og óskað okkur til ham- ingju,“ sagði Andri Már Ingólfs- son, framkvæmdastjóri nýrrar ferðaskrifstofu, Ferðamiðstöðin Veröld, sem opnaði í gær. Skrif- stofan er til húsa á annarri hæð við Austurstræti 17, þar sem ferðaskrifstofan Útsýn var áður. Tuttugu og tveir starfsmenn eru hjá ferðaskrifstofunni og koma flestir frá ferðaskrifstofunni Útsýn auk starfsmanna frá Ferðamiðstöð- inni. Að sögn Andra verður boðið, upp á alþjóðlega ferðaþjónustu og meðal annars ferðir á tvær vinsæl- ustu sólarstrandir á Spáni. „Við erum með eitt og annað í pokahom- inu, sem við ætlum að kynna um næstu helgi," sagði Andri. „Við höfum verið að vinna að undirbún- ingi að nýju verkferli, sem kemur til með að flýta fyrir þjónustinni við ferðamenn, þannig að þeir geta fyrr fengið svör varðandi ferðir sínar. Auk þess höfum við verið að undirbúa eitt og annað, sem verður kýnnt á næstu vikum. Við höfðum mjög stuttan tíma til undirbúnings enda mjög stuttur aðdragandi að stofnun skrifstofunnar en þrátt fyr- ir það hefur okkur tekist að und- irbúa nýja áætlun og að flytja í nýtt endurbætt húsnæði. Það er hreint ótúlegt hvað við höfum kom- ið miklu í verk en því er helst að þakka að héma vinnur margt fólk með mikla reynslu, sem getur unn- ið sín verk á skömmum tíma og gert það vel. Undirtektimar hafa verið mjög góðar og lítum við því björtum augum til þess sem koma skal.“ Morgunblaðið/Sverrir Starfsfólk Ferðamiðstöðvarínnar Veröld á nýju skrifstofunnni sem opnuð hefíir verið við Austurstræti 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.