Morgunblaðið - 08.02.1989, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989
21
Andrej Sakharov á Ítalíu:
Umbætur í Sovétríkjun-
um kosta mikla baráttu
Tórínó. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunbladsins. Reuter.
SOVÉSKI nóbelsverðlaunahafínn, Andrej Sakharov, kom til Ítalíu á
sunnudag og í dag, miðvikudag, verður hann sæmdur heiðursdoktor
i stjarnfræði við háskólann í Bologna. Elena Bonner kona hans kom
með Sakharov til Ítalíu og ætla hjónin að fara til Bandaríkjanna
að lokinni dvölinni á Ítalíu. Sakharov, sem ræddi við Jóhannes Pál
páfa D á mánudag, sagði að umbætur í Sovétríkjunum myndu kosta
„mikla baráttu" og kvaðst hann ekki ætla að þegja yfír því sem
miður færi í sovésku þjóðfélagi.
Andrej Sakharov heldur fyrir-
lestra í háskólunum í Bologna og
Siena, og Elena Bonner notar tæki-
færið og fer í læknisrannsókn í Si-
ena, þar sem hún hefur áður geng-
ið til Iækna vegna augnsjúkdóms.
Hjónin skoða Flórens áður en þau
halda til Bandaríkjanna.
Elena Bonner sagði við frétta-
menn á mánudag að þau myndu
ekki dvelja lengi á Ítalíu, þar sem
Sakharov væri önnum kafínn vegna
Bretland:
Rannsókn lokið
í nýrnasölumali
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðains.
RANNSÓKN breskra heilbrigðisyfírvalda á meintri sölu á nýrum
úr mönnum er nú lokið. Talið er víst, að rikissfjórnin leggi fram
firumvarp til laga, sem banni sölu á líðærum úr mönnum.
Heilbrigðisyfirvöld hafa lokið Síðar í vikunni munu ráðherrar
rannsókn á ásökunum þess efnis, taka ákvörðun um, hvort lög verði
að keypt hafi verið nýru úr Tyrkjum
til að græða í nýmasjúklinga. Nið-
urstöður rannsóknarinnar hafa ekki
verið gerðar opinberar, þótt sumar
þeirra hafi lekið út. Humana-Well-
ington-spítalinn er gagnrýndur fyr-
ir að hafa ekki eindregnar reglur
um meðferð mála af þessu tagi.
Enginn sé ábyrgur fyrir, að ekki
sé grætt nýra í einstakling óskyldan
nýmagjafanum. Einnig vanti yfir-
lýsingu frá Tyrkjanum, sem þetta
mál snýst um, þar sem hann sam-
þykki aðgerðina. Sjúkrahúsið er
ekki talið hafa tekið þátt í kaupum
á nýrum.
Rannsóknin á nýmamiðstöðinni,
sem fékk Tyrkjann til að koma til
Bretlands, hefur leitt í ljós, að ferð-
um Tyrkja á vegum stöðvarinnar
til London hefur flölgað mjög á
síðustu árum. Einnig hafa komið í
ljós tengsl á milli stöðvarinnar og
Tyrkjans, sem var milligöngumaður
í Ankara og situr nú í fangelsi þar.
sett, sem banna sölu á líffærum úr
mönnum. Margaret Thatcher for-
sætisráðherra hefur lýst andstyggð
sinni á slíkri sölu og sömuleiðis leið-
togar stjómarandstöðunnar. Fmm-
varp til slíkra laga ætti því greiða
leið í gegnum þingið.
Umtalsverðar umræður hafa orð-
ið meðal sérfræðinga um málið.
Spumingin stendur um það, hvort
menn hafí eignarrétt yfir líkama
sínum. Hafi þeir það, er spurt, af
hveiju þeir séu þá ekki ftjálsir að
því að ráðstafa honum, eins og
þeim best hentar, svo framarlega
sem þeir glata ekki lífinu. Aðrir
spyrja sig, hvort blátt bann við sölu
á nýrum muni ekki draga úr fram-
boði á nýmm yfirleitt og þar með
leiða til dauða fleiri manna en ella
hefði orðið. Stjómmálamenn virðast
vera búnir að gera það upp við sig,
að á þessu sviði skuli hinn frjálsi
markaður ekki ráða.
framboðs síns í Sovétríkjunum. „Ég
vona að hann vinni ekki," sagði
Bonner brosandi við blaðamenn.
„Það myndi þýða aukið vinnuálag
og ég vil frekar hafa hahn heima,
þar sem hann getur unnið að rann-
sóknum sínum.“
Sakharov sagðist hins vegar vona
að nokkrir frambjóðendur úr röðum
umbótasinna ynnu sæti á fulltrúa-
þinginu í kosningum í næsta mán-
uði. „En þetta kostar mikla baráttu
vegna þess að kerfið getur á ýmsan
hátt orðið til trafala," sagði Sak-
harov, sem var sjö ár í útlegð í
Sovétríkjunum þar til árið 1986.
í bréfi sem birt var í málgagni
sovésku stjómarinnar, Ízvestíu, á
mánudag segir Sakharov að þótt
hann styðji Míkhaíl Gorbatsjov Sov-
étleiðtoga ætli hann ekki að þegja
yfír mikilvægum málum. „Ég met
hlutverk upphafsmanna perestrojku
mikils og á þetta einkum við um
Míkhaíl Gorbatsjov. Ég hef rætt
þetta bæði í Sovétríkjunum og á
Vesturlöndum. Þ'ess vegna ber mér
skylda til og mér er það aukin-
heldur fullkomlega heimilt að tjá
mig opinskátt um allt það neikvæða
og hættulega í sovésku þjóðfélagi,"
segir í bréfi Sakharovs.
Nóbelsverðlaunahafinn fór til
Bandaríkjanna og Frakklands í nóv-
ember og desember, eftir að sovésk
yfirvöld höfðu gefið honum ferða-
leyfi. Þetta verður hins vegar í
fyrsta sinn sem hjónin fara saman
til Bandaríkjanna. Mikill mannflöldi
tók á móti Sakharov-hjónunum er
þau komu til Rómar.
15 þúsund manns á Péturstorgi í Róm:
Mótmæltu fóst-
ureyðingum
Tórínó. Frá Hrynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins.
15 þúsund manns söftiuðst saman á Péturstorgi í Róm á sunnudag
til að mótmæla fóstureyðingum. Var haldið á kröfuspjöldum og
borðum með áletrunum á borð við „Lengi lifi lifíð“. Jóhannes Páll
II páfí kom út á svalir Páfahallarinnar og ávarpaði hópinn. „Síhækk-
andi meðalaldur stofnar framtíð sumra þjóða í hættu,“ sagði páfí
meðal annars.
Boðskapur páfa var einnig á
þessa leið:„Aukin tíðni fóstureyð-
inga og ýmiskonar eigingimi á sinn
þátt í þessari neikvæðu þróun. Allt
líf er Guðs gjöf; líf þess sem bíður
þess að fæðast, þess sem kominn
er að því að deyja, þess sem er
veikur og þess sem er heilbrigður.
Lífið er jákvætt og við eigum ekki
að raska því.“
Miklar og ákafar umræður hafa
átt sér stað á Ítalíu undanfarið um
fóstureyðingar. Fyrir 10 árum voru
samþykkt lög sem leyfðu fóstureyð-
ingar í ákveðnum tilvikum. Lögin
voru samþykkt í kjölfar þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið, þar sem
um 65% ítala lýstu sig hlynnta lög-
um um fóstureyðingar.
Nú standa ítalir frammi fyrir því
að á sumum spítölum virðast fóstur-
eyðingar vera framkvæmdar allt
að því fram á 5. mánuð meðgöngu,
en nokkur slík tilvik hafa verið
Radial
stimpildælur
= HEÐINN =
VÉLAVERSþUN SiMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Riðstraumsrafalar (alternoforar) fyrir
bifreiðar, vinnuvélar og báta. Varahlutir,
viðgerðarþjónusta. Hagstœð verð.
Ármúli 1, 108 Reykjavík
Sfmar: 686824 - 685533 - 37700
kærð, og virðast aðgerðimar hafa
verið framkvæmdar, án þess að líf
eða heilsa móðurinnar væri í hættu.
Á Ítalíu er leyfilegt skv. lögum að
framkvæma fóstureyðingu fram að
90. degi meðgöngu ef líf eða (líkam-
leg eða andleg) heilsa bams eða
móður em í hættu, ef ljóst þykir
að fóstrið sé að einhveiju leyti van-
skapað, eða ef félagslegar eða fjár-
hagslegar aðstæður móðurinnar em
slæmar. Eftir þriggja mánaða með-
göngu getur kona látið eyða fóstri
eingöngu ef líf eða líkamleg heilsa
eru f hættu.
Á öðmm spítölum neita yfirlækn-
ar að framkvæma fóstureyðingar
og hafa sptalar því orð á sér fyrir
að vera „góðir" eða „vondir“ hvað
þetta varðar. Lög um fóstureyðing-
ar em teygjanleg og „félagslegar
og fjárhagslegar" ástæður em
matsatriði í hvert sinn og einnig
„andleg heilsa móðurinnar".
FYRIR VORUGJALDSHÆKKUN
INNRÉTTINGAR
GÆÐAVARA A GÓÐU VERÐI
V örugjaldshækkunin er að
skella á. Nú er rétti tíminn til að
festa kaup á baðinnréttingmeld-
húsinnréttingu eða fataskápum.
Verðið hjá okkur hefur ekki
hækkað síðan í júní 1988 —
það eitt tryggir þér hagstætt
verð.
Hjá okkur í IB-búðinni fara
verð og gæði svo sannarlega
saman.
Komdu og skoðaðu úrvalið og
fáðu nánari upplýsingar.
^BCIÐIN ARMCILA 17a
BYGGINGAtUÓNCISTA SÍMAR 84585-84461
k A> «lr-«S - V *■ á