Morgunblaðið - 08.02.1989, Side 41

Morgunblaðið - 08.02.1989, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1989 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS uvuuuáMsuuaUUí Gömul kona hringdi: Ég vilja biðja þá á Sjónvarpinu að sýna Derrick ekki svona seint á kvöldin, því það er margt gam- alt fólk og veikt sem horfír á þáttinn. Ljót saga Þóra hringdi: Mig langar til að taka undir með eldri konu um miðdegissöguna. Eg hef aldrei heyrt éins viðbjóðslega sögu lesna í útvarpinu. Þessar sög- ur eru ekki síst fyrir gamla fólkið. Mér fínnst þetta ekki nógu gott. Mig langar síðan að vita hvort það sé rétt að forseti okkar ætli að verða við j arðaför J apanskeisara. Mér fyndist nær að senda Halldór Ásgrímsson. Hver á að vemda for- setann okkar þama. Fyrirspurn Ari hringdi: Þegar Ólafur Ragnar Grímsson þeyttist um heiminn til að bjarga heimsfriðnum, hver borgaði það og hvemig hefur það verið gefið upp til skatts. Nafnagáta Kjartan Nordal hringdi og sagð- ist vanta framhaldið á tuttugu Á Café Hressó. nafna gátu. Hún hefst þannig: Einn gerir á ísum heija, Bjöm; annar byijar viku hveija, Helgi; þriðji gerir að húsum hlúa, Torfí;... og síðasta vísan er þannig: Með andan- um nær ég þeim tuttugasta, Loftur. Sængur saknað Sæng tapaðist af snúru við Reyk- ás í Árbæjarhverfí, í hvassviðrinu, mánudaginn 30. janúar. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 673024. Lyklar fundust eða við Verslunarmiðstöðina Glæsibæ. Skilvís fínnandi vinsam- legast hringi í síma 12712. Bella Siams seal point læðunnar Bellu er saknað frá Nesbala 30 á Seltjam- amesi frá því á þriðjudaginn í síðustu viku. Bella er með dökk- brúnan haus, fætur og skott, en skrokkurinn er ljógari. Hún er eymamerkt. Þeir sem hafa orðið varir við ferðir Bellu, vinsamlegast hringi í síma 615465 eða 21412. Lyklakippa fannst við Bárugötu. Nánari upplýsingar í síma 10845 eftir kl. 15.00. Pelshúfá Brún pelshúfa tapaðist föstudag- inn 3. febrúar. Annað hvort við Sparisjóð Vélstjóra við Borgartún Hringur á Hressó Stór silfurhringur með hvítum steini gleymdist á snyrtingunni á Café Hressó fyrir helgina. Heiðar- legur fínnandi vinsamlegast hringi í síma 46062 eða skili honum í af- greiðsluna á Hressó. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins og fyrrv. forsætisráð- herra, og núverandi forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, takast á um stjórnmálaviðhorfið og efnahags- vandann á Hótel Borg fimmtudaginn 9. febrúar kl■ f 7.30. Áætlað er að fundinum Ijúki um kl. 18.30. Spyrlar í ham Kæri Velvakandi. Spyrlar blaða, sjónvarps og út- varps taka menn tali. Ýmsum ferst það með ágætum, öðrum herfílega. Tónn þeirra og látæði er með þeim hætti að vænta mætti að kveðjuorð þeirra yrðu: Éttu það sem úti frýs. Nýlegt dæmi er viðtal Stöðvar 2 við forsætisráðherra þann 31. jan. sl. Af tali spyijenda og látbrigðum hefði mátt ætla að þeir munn- hyggjust við götustrák en ekki for- sætisráðherra íslands. Ekki varð þeim á að ávarpa hann réttu starfs- heiti heldur ýmist þú eða Steingrím- ur. Forsætisráðherra sýndi hins vegar reisn og virðuleika og vék sér í engu undan skotum hinna en hefði mátt neita að svara fleiri spumingum. Ættu ekki ráðherrar — einkum þó forsætisráðherrar — að krefjast spumingalista áður en þeir fara í slíkar yfírheyrslur? Engum er ætl- andi að hafa svör á reiðum höndum við hveiju einu sem slíkum spyrlum kann að detta í hug. Þýskt tímarit, Der Spiegel, flytur iðulega samtal við æðstu valda- Kisi í óskilum Ómerktur heimilisköttur hef- ur verið á sveimi í kringum hús- ið hjá flölskyldunni við Kletta- götu 16, Hafnarfirði. Þetta er grábröndótt læða, frekar stór, falleg og vel haldin. Hún hefur fengið að koma inn í vonda veðr- inu, en birtist alltaf aftur þegar hún er sett út. Ef einhver sakn- ar kisunnar sinnar, sem lýsingin gæti átt við ætti hann að hringja í Ólöfu í síma 53738. menn um víða veröld. Þau eru fáguð og þó hnitmiðuð. Viðmælandi er ekki settur í gapastokk sem ótíndur sökudólgur. Spyrlar þar á bæ láta aldrei undir höfuð leggjast að kveðja viðmælanda með þökkum fyrir gefín svör. Menn Stöðvar 2 eyddu ekki tíma sínum í slíka smá- muni, enda hann þrotinn. Jón Á. Gissurarson Allir velkomnir. Vörður Hvöt Óðinn Heimdallur CHEROKEELAREDO1989 TIL AFGREIÐSLU STRAX Bílar þessir eru hlaðnir aukahlutum og með lúxus innréttingu 4ra dyra 4,0L6cyl. 177 hp. vél Sjálfskiptur Selec-trac Vökvastýri Veltistýri Rafdr. rúður Rafdr. læsingar Fjarst. hurðaopnarar Fjarst. útispeglar Hiti íafturrúðu Þurrka á afturrúðu Off-road 225x15 Wrangler dekk Álfelgur Gasdemparar Toppgrind Þokuljós Dráttarbeisli EGILL VILHJÁLMSSON HF Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.