Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 8
(g 0 e8ei SHAM 5IUO'Aa!J!WU3 >aiG>uiaKUOíK)!/ 8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989 MITTBÖL EROFMIKH ORKA — Þú ert sem sagt ekki alveg viss um stefnuna? Það má vissulega segja að ég standi á krossgötum. Ég hef það gott eins og er og mér líður vel í því sem ég hef verið að gera. Ég veit að fari ég út í næturklúbba- bransann gæti ég lent í sama strögl- inu og veitingamenn hér heima hafa átt við að glíma og ég reyndar þekki sjálfur af eigin raun. En ein- hverra hluta vegna get ég ekki hætt. Kunningjar mínir kalla þetta þurrafyllerí. En það er nú bara orð sem menn eru famir að nota yfir þá sem hafa mikla orku. Það er að vissu leyti mitt böl að ég hef of mikla orku.“ Skuggahliðar næturlífsins Þorsteinn er með svart belti í kárate og var um skeið keppnismað- ur í þeirri íþrótt en hætti 1982 þeg- ar liðbönd í hné slitnuðu. Hann kvaðst þó vera að taka íþróttina upp aftur enda hefði það oft komið sér vel í veitingabransanum að vera vel á sig kominn líkamlega. Hann segist hins vegar hafa haft það sem eins konar kjörorð að betra sé að eyða háiftíma í að tala menn til en tveimur tímum í réttarsal. Fortölur dugi hins vegar ekki alltaf. „Það fólk sem stundar næturlífið í Kaupmannahöfn er af öðru sauða- húsi en venjulegir íslendingar, sem fara út að skemmta sér um helgar. Meðal þessa fólks eru eituriyfja- neytendur og jafnvel glæpamenn. Þetta em menn sem svífast einskis ef í harðbakkann slær. Það er með- al annars ástæðan fyrir því að ég hef takmarkaðan áhuga á að fara aftur út í rekstur staða eins og Bonaparte og Pussycat. f fyrra rak ég stað sem heitir Rock Café, sem naut mikilla vinsælda og var alltaf troðfullur. En þangað söfnuðust margir af þessum svokölluðu „hell’s angels“ og þess vegna losaði ég mig við staðinn þótt hann gengi vel. Ég nennti ekki að standa í uppákomunum sem fylgja þessu fólki. Ef þú ert í næturbransanum í Kaupmannahöfn verður þú að vera vel á þig kominn til líkama og sálar því þú veist aldrei hvenær þú lendir í klandri. Forstjórinn í einu þekkt- asta diskótekinu í Kaupmannahöfn hefur til dæmis ekki komið í vinn- una frá því í desember, því hann var barinn svo illa í klúbbnum eitt kvöldið. Eitt sinn komu sex fílefldir karlmenn í klúbbinn til mín og æt- luðu að leggja hann í rúst af því ég hafði hent einum þeirra út mán- uði áður. Okkur tókst að koma þeim út eftir talsverð átök og ég missti tvær tennur. Fyrir ári var fjórðungur þeirra sem fóru út að skemmta sér í Kaup- mannahöfn með hnífa á sér, en það hefur eitthvað dregið úr því eftir að ný lög voru sett sem banna hnífa. En það er ekki óalgengt að fólk sé með byssur í vösunum á skemmtistöðum í Kaupmannahöfn. í næturlífinu er mikið af svokölluð- um „fljótum peningum“, peningum sem skipta hratt um eigendur og þar er yfirleitt um að ræða fólk sem græðir á glæpastarfsemi eða ein- hveijum viðskiptum sem mega ekki sjá dagsins ljós. Þetta fólk er yfir- leitt sjúkt að einhveiju leyti og þú kemst ekki hjá því að kynnast því. Þar af leiðandi kemur að því annað slagið, að þú lendir í klandri með það. Það er því ekki síður nauðsyn- legt að menn séu andlega sterkir til að starfa við þennan rekstur þótt óhjákvæmilega séu líkamleg átök einnig fylgifiskur næturlífsins. Mér hefur reiknast til að ég hafi um 400 sinnum lent í líkamlegum átökum á þessum 20 árum sem ég hef verið í þessum bransa og það eina sem ég hef tapað eru tennum- ar tvær, sem ég nefndi áðan. En þetta er munurinn á því að vera í veitingarekstri í Kaupmannahöfn og hér heima. Hér er ekki þetta ofbeldisfólk, þótt einstaka sterkir sjómenn sleppi sér kannski stundum í fylleríi. En þarna ertu í návígi við glæpamenn og þú veist aldrei hve- nær einhver þeirra dregur upp byssu og skýtur þig.“ Að lifa sínu eigin lífi — En þegar þú slappar af frá öllu Joessu, hvað gerir þú þá? „Ég er í góðu hjónabandi og við ferðumst mikið. Ég hef sérstaklega gaman af að keyra suður Evrópu og eins að fara í siglingar á fjarlæg- um stöðum, svo sem í Karabíahaf- inu. Annars lifi ég nú orðið ákaf- lega rólegu lífi. Ég er kominn á þann aldur að lífið fer að verða eins konar endurtekning á því sem mað- ur hefur upplifað áður. Það er hætt að koma manni á óvart. Til dæmis er ég hættur að æsa mig upp út af hlutum, sem kannski fóru í taug- arnar á mér hér áður fyrr. Ég hef tvisvar misst allt mitt. 1 fyrra skiptið þegar ég var með Storkklúbbinn hér heima og síðan þama í Danmörku á árunum milli 1980 og 1984. Það tók mig auðvit- að tíma að sætta mig við þessi áföll og gera þetta upp við sjálfan mig. Allt sem ég gerði á þessum tíma mislukkaðist, en það sem hélt mér gangandi var að ég ákvað að taka því eins og maður. Ég hugsaði með mér að úr því ég gat rifið mig upp einu sinni gæti ég alltaf gert það aftur. Maður má aldrei missa trúna á sjálfan sig. — Varstu einhvern tíma, á þessu tímabili, nálægt því að leggja árar í bát og gefast upp? ' „Nei, það hvarflaði ekki að mér. Ég hef kennt sjálfum mér að úti- lok*a öll vandræði úr huganum þeg- ar ég þarf á því að halda. Þegar maður nálgast vandamálin svo aft- ur seinna, kannski út frá öðrum sjónarhóli, eru þau oft leyst. Ann- ars heid ég að oft á tíðum stafi vandræði fólks af einhvers konar innri erfiðleikum. Fólk er þá jafnvel að hugsa um hvað aðrir halda: Ef ég nú missi allt sem ég á, hvað hugsar fólk þá um mig? Ef ég fer á minni bíl, ætli fólk haldi þá að ég sé kominn á hausinn? Þessi hræðsla við almenningsálitið fer oft verst með fólk, en auðvitað eiga menn bara að lifa sinu eigin lífi án tillits til þess hvað aðrir hugsa, og keyra sinn bíl glaðir og ánægðir burtséð frá því hvort hann er lítill eða stór. Þegar ég hafði tapað öllu hélt það mér gangandi að ég hugs- aði: Hvað með það. Ég get alltaf byijað aftur. — Ég gengst ekki upp í peningum þvf ef maður byijar að láta þá ráða lífi sínu þá getur mað- ur alveg eins farið út í stiga- mennsku.“ KRINGIUNNI4 dagana 17.—22. mars ■ fTniKKA.]))í)L]) afsláttur af öllum vörum í NÁMSMENN ATHUGIÐ! Ný hraðvirk, létt og handhæg TA Triumph-Adler skríf- stofurítvéi á verði skólaritvélar. Umboðsmenn um land allt: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík, Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði, Bókabúðin Gríma, Garðabæ, Grifill, Reykjavfk, Hans Árnason, Reykjavík, Jón Bjarnason, Akureyri, Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kaupf. A-Skaftf., Hornafirði, M.M. búðin, Selfossi, PC tölvan, Akranesi, Penninn, Reykjavík, Rás s.f., Þorlákshöfn, Stuðull s.f., Sauðárkróki, Sameind, Reykjavík, Skrifvélin, Reykjavík, Tölvuvörur hf., Reykjavík, Traust, Egilsstöðum. Sendum í póstkröfu • Prenthraði 13slög/sek • ”Lift off” leiðréttingar- búnaður fyrir hvern staf eða orð. • 120 stafa leiðréttingarminni • Sjálfvirk: miðjustilling undirstrikun feitletrun • Handfang og lok. auk ýmissa annarra kosta sem prýða eiga ritvél morgun- dagsins. Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 Kringlan 4 S: 689789 Opið kl. 10-19, laugardaga kl. 10-16 Góð hönnun og glæsilegt útlit einkenna ritvélarnar frá TA Triumph-Adler

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.