Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 24
24 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989 MYNDLISTÆr^ listaverk dýrf MiUjónimar og málverkin þá upphæð sem borguð var fyrir Gullfjöllin Svavars. Notaður vasa- klútur getur verið milljónavirði ef sannað þykir að Adolf Hitler eða annar ámóta „snillingur“ sögunn- ar hafi snýtt sér í hann. Ef aðrar listgreinar en myndlist eru skoðaðar kemur margt skrý- tið í ljós. Til dæmis fékk leikarinn Marlon Brando hundruð, ef ekki þúsundir milljóna fyrir það eitt að birtast í upphafsatriði kvik- myndarinnar Superman og tók senan um fimm mínútur. Michael Jackson og Madonna raka hæg- lega saman þeirri upphæð fyrir kúnstir sínar þótt mér sé til efs að þau verði eins langlíf í listasög- unni og Svavar okkar Guðnason. En þá er því til að svara að list- markaðurinn gengur ekki endi- lega út á gæði og langlífi. Skyndi- list getur verið markaðnum margfalt dýrmætari en list sem endist. Enda hef ég aldrei séð hneykslast á baksíðum blaða yfir tekjum þekktra poppara. Þeir fita flárhirslur heimalanda sinna og spyija þá fæstir að vöruvöndun. En flestar þjóðir með viti reyna þó jafnframt að stýra efnahag UM DAGINN var það birt á baksíðu eins dagblaðanna að Listasafn íslands hefði keypt „Gullfjöll", eittaföndvegis- verkum Svavars Guðnasonar frá 5. áratugnum, fyrir rúmar þijár milljónir. Einhver vand- lætingartónn fylgdi skrifunum, enda vitnað í erlenda „sérfræð- inga“ með meiru, sem töldu verkið í hæsta lagi hálfrar milljónar virði. Nú er það svo að rúmar þrjár milljónir eru mikið fé og skal ekki deilt um það við nokkum mann. En við búum ekki lengur í veröld með föstum gildum eins mmmmmmmmmm og forðum. í nútímanum er allt á reiki og köllum við það afstæði. Það era hin margum- töluðu markaðs- sjónarmið sem ráða verðlagi hluta og gildir þá einu hvað í boði er. Hægt er að kaupa frímerki fyrir margfalda eftir Halldór Bjöm Runólfsson Hiö umdeiida málverk Gullfjöll eftir Svavar Guðnason (1946). sínum eftir svokölluðum langtímamarkmiðum. Bretar, sem eiga sæg ágætra poppara, reyna jafnframt að selja heiminum var- anlega list. Má þar nefna hinn þekkta og ágæta Habitat-vaming sem prýðir mörg íslensk heimili. Þótt sá vamingur sé enginn Bítla- galdur á markaðstorgi þjóðanna er áreiðanlega ekkert tap á hon- um. Og hver veit nema komandi kynslóðir eigi fremur eftir að minnast Breta fyrir Habitat en Bítlana? „Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina," sagði sá ágæti háðfugl Storm Pedersen. Og víst fellur meistaraverk eftir Svavar Guðnason undir langtímamark- mið. Þó er það svo að undirritaður átti þess eitt sinn kost að kynna Listasafn íslands fyrir þýskum túristum með góða menntun og óskerta sjón. Eftir að hafa fengið sig fullsadda á sveitasælumynd- um margra okkar ágætu meistara og látið sér fátt um finnast, því þeir sögðust eiga svo margfalt fleiri og tilþrifameiri „fífilbrekku- málara“ í sama dúr, þustu þeir að þeim Svavari og Kjarval eins og mýflugur að mykjuskán. „Við viljum sjá meira af svona löguðu," sagði frúin í Hamborg og undir það tók sú í Miinchen. „Þessir eru einstæðir eins og landið ykkar. Margir hinna eru ágætir, en það er eins og þeir hafí smitast um of af aka- demískri list utan úr Evrópu." Eftirvæntingarkliðurinn jókst og æ fleiri olnboguðu sig í átt að verkum meistaranna tveggja. Mér veittist erfitt að finna nokkuð haldbært svar við tæpitungulaus- um athugasemdum þessara áhugasömu útlendinga. En glöggt er gests augað, og ekki kom mér til hugar að andmæla því mati þeirra að Svavar og Kjarval væru í sérflokki. Á leiðinni út keyptu Þjóðveijamir póstkort af verkun- um sem svo mjög höfðu hrifið þá og sumir splæstu meir að segja í bækur og bæklinga. Ef til vill mun taka nokkum tíma, nokkur póstkort og nokkrar bækur til að borga upp Gullíjöllin Svavars. En kröfur erlendra ferðalanga um að sjá meira af menningu okkar gerast sífellt háværari. Ferðamannalönd lifa nefnilega ekki á náttúrunni einni saman. Þá munu þeir útlendingar sem á annað borð lq'ósa að heimsækja Listasafn íslands, ekki frekar en Þjóðveijamir títtnefndu, velkjast í vafa um gæði okkar fremstu listamanna. Þótt það sé einhver lenska að hafa bestu list í flimt- ingum nær sá ósiður sem betur fer ekki langt út fyrir landstein- ana. Því ér lítil ástæða til annars en óska Listasafni íslands til ham- ingju með ágæt kaup. Þijár millj- ónir fyrir meistaraverk eftir Svav- ar em ekki stórfé í landi þar sem listaverk eftir minni spámenn, lífs og liðna, hlaupa á hundruðum þúsunda. Það var löngu tímabært að koma á skarpari skilum milli þess sem best er gert og hins sem minna er vert. Þá verður þjóðin að skilja að milljónir má greiða fyrir margt fleira en flotta bfla og uppstoppaða geirfugla. brother HL-8 Laser tilboð Brother HL-8, er fullkominn laser prentari er býður upp á margar íslenskar leturgerðir, og er samhæfður við alla helstu prentstaðla. Bjóðurn útmars mánuðþennan fullkomna laserprentara á einstöku tilboðsverði aðeins Kr. 129.000 Einstakt tækifæri er ekki býðst aftur. Eigum emnig á lager minnisstækkanir og umbrotsforrit fyrir HP samhæfða laser prentara á sérstöku tilboðsverði. Digital-Vörur hf, Skipholti 21, sími 24255 og 622455 TLEIKLIST/Hver rcedur í leikhúsinuf Jafnræði eða einræði Fyrir nokkmm vikum nefndi ég til sögunnar breskan leikara í tengslum við sýningu á einþáttung- um Allans Bennetts er ganga þar ytra. Nafn þessa leikara og reyndar leikstjóra líka, er Simon Callow og nú fyrir fáum dög- um rak á fjörur mínar bók er þessi ágæti maður sendi frá sér fyrir fjórum árum og nefnist hún BEING AN ACTOR. Líklega fínnst einhveijum sem lítið nýnæmi sé að svo „gamalli" bók en innihald- ið er svo sannarlega ekki gengið úr sér og vakti undirritaðan til umhugsunar um ýmislegt sem á góma hefur borið hér heima að undanfömu. Við nánari eftir- grennslan kom svo auðvitað í ljós að bókin þessi vakti mikla athygli á sínum tíma og hefur verið gefin út í einum fjómm útgáfum síðan. Simon Callow er fæddur árið 1949 og lauk leiklistamámi sínu árið 1973 og er dijúgur hluti bókar- innar helgaður frásögn af leikara- ferli höfundar, samskiptum hans við hina ýmsu leikstjóra og meðleik- ara og er þetta fróðleg lesning á lífi og skilyrðum leikara í Bretlandi á þessum tíma sem um ræðir 1973 - 1984. Það sem gefur bókinni eink- um gildi umfram margar aðrar bækur af svipuðum toga er misk- unnarlaus hreinskilni höfundar á öllum sviðum og sterkur hug- myndafræðilegur grundvöllur sem Callow byggir á skoðanir sínar og gagnrýni á breskt Ieikhús þessara ára. Þá er bókin gagnleg fyrir þær sakir að hún veitir skýra innsýn í hugsanagang leikarans á öllum stigum vinnu hans og er hún að því leyti mun aðgengilegri en Ld. tyrfinn texti Stanislavskys sem undirritaður hefur satt að segja aldrei komist í gegnum svo mark- tækt sé. En Stanislavsky er hér nefndur til sögunnar þvi Callow nam leiklist við Drama Centre í London þar sem stíft er fylgt eftir kenningum hálfguðsins rússneska. Callow gagnrýnir harðlega þá stefnu sem breskt leikhús hefur tekið þar sem leikstjórar ráða ferð- inni á öllum sviðum, hvort sem lýt- ur að túlkun verka, rekstri leik- húsa, listrænni stefnu þeirra og loks segir hann þá í rauninni einvalda þegar kemur að því að ákvarða hvort leikarinn hafí vinnu þá stund- ina eða ekki. „Samt em það leikam- ir sem framkvæma - leika leikritið - en sýningin er engu að síður kennd við leikstjórann." I augum Callows hefur leikarinn orðið að handverks- manni sem lýtur byggingameistar- anum í öllum atriðum. Sköpunar- kraftur leikarans, ímyndunarafl hans og fmmkvæði má sín lítils við slíkar aðstæður. Ábyrgðartilfinning leikarans gagnvart hlutverki sínu og sýningunni í heild minnkar í samræmi við þetta. „Leikarinn bíður eftir að verða ráðinn og síðan bíður hann eftir að vera sagt hvem- ig leika eigi hlutverkið og aðalmark- mið hans er að þóknast leikstjóran- um svo hann fái tækifæri til að stunda handverk sitt síðar.“ Þá bætir Callow því við að höfundar hafi orðið að lúta sömu stjórn, þeim hafi verið talin trú um að eina rétta leiðin sé að vinna sem nánast og mest með leikstjóra; leikstjórinn viti best hvernig setja eigi saman leikrit og enginn höfundur sé full- gildur í leikhúsi nema hafa sér við hlið ráðhollan og alvitran leikstjóra. Þetta þýðir segir Callow að í stað þess að bein tengsl séu á milli leik- arans og höfundarins hafí á síðustu áratugum skapast milliliður - leik- stjórinn - sem oftar en ekki heimti stimpil sinn á bæði handritið og einnig vinnu leikarans. Ekki skildi þó misskilja þessi orð svo að leikstjóri í nútímaleikhúsi sé til bölvunar einnar - ijarri því, Callow viðurkennir fúslega að leik- stjórinn sé jafnnauðsynlegur og leikarinn eða höfundurinn. Callow rekur samskipti sín við ýmsa af þekktustu og virtustu leikstjómm Bretlands síðustu ára s.s. Peter Hall og John Dexter, Þá hefur hann einnig unnið undir stjóm leikskáld- anna Edwards Bond og David Hare. Gildi þessara frásagna felst í því hversu vel Callow tekst að lýsa innri viðbrögðum sínum sem leikara gagnvart mjög mismunandi Ieik- stjómaraðferðum. Er greinilegt að Callow er mjög meðmæltur mjúkri“ leikstjóm þar sem við slíkar aðstæð- ur fái leikarinn notið sín best. Framtíðarsýn þessa skelegga leikara lýsir leikhúsi þar sem leik- arnir velji sér leikstjóra á gmnd- velli sérþekkingar hans á viðkom- andi leikriti, „innri heimi þess og sýningarhefðum" svo vitnað sé beint í manninn. Bendir hann á að slíkt sé í raun ekki annað en aftur- hvarf til fýrri tíma - og hliðstæðu í nútímanum megi finna í skipulagi o g uppbyggingu sinfóníuhljóm- sveita. Þetta væri auðvitað að hafa endaskipti á hlutunum miðað við þær hefðir sem skapast hafa í leik- húsi síðustu áratuga - með fjöl- mörgum undantekningum að vísu - en þetta er sjónarmið sem á fylli- lega rétt á sér. eftir Hávar Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.