Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 29
hjá vatnsveitunni og væri sá vinnu- staður öðrum betri þeim sem hann hefði starfað á. Eins og áður segir kynntust þau ung, Gunnar og Rósa, og mér fannst þau halda áfram að vera það þó að aldurinn færðist yfir. Þau gengu í hjónaband 7. nóvember 1942 og eignuðust ijögur börn. Elstur er Gestur fæddur 27. febrúar 1942. Hann er kvæntur Sigrúnu Ragnars- dóttur og eiga þau tvö böm. Gestur, á auk þess son sem hann eignaðist fyrir hjónaband. Móðir hans heitir Dagný Sighvatsdóttir. Næst er Guð- rún Erla, fædd 7. október 1945. Eiginmaður hennar er Þórður Guð- mundsson og börn þeirra eru tvö. Þá er Katrín, fædd 11. maí 1951. Hún er gift Hreiðari Ögmundssyni og eiga þau fjögur böm. Yngst er Auður, fædd 8. október 1961. Eigin- maður hennar er Hannes Jónsson og þau eiga eitt barn. Þó að Gunnar væri ekki heilsu- hraustur þegar þau Rósa hófu bú- skap gátu þau eignast fallegt, lítið hús á Hörpugötu 12 í Skeijafirði, þar sem þau bjuggu í 30 ár. Að vísu ekki allan tímann því í lok sjötta áratugarins byggði hann nýtt og stærra hús á lóðinni. Þar fæddust telpumar þrjár. Þetta vora góð ár og gjöful í margs konar skiliningi. Börnin uxu og döfnuðu sjálfiim sér og foreldranum til gleði og sóma. Þetta vora _ár hinna miklu hús- bygginga á íslandi og vinna ótak- mörkuð. Góður heimilisfaðir taldi því ekki alltaf vinnustundir sínar og ætlaði sér stundum ekki af. Árið 1973 seldu þau húsið í Skeijafirðin- um og bjuggu á ýmsum stöðum um tíma þar til þau keyptu sér rúmgóða og bjarta íbúð í Dalseli 31 þar sem heimili þeirra hefur verið síðan. Það er erfitt að lýsa nánum ætt- ingja í fáorðri minningargrein en það sem mér fannst ævinlega einkenna Gunnar mest var hlýleiki hans. Hann var virkilega hlýr maður, mjúkur maður á nútímamáli. Hver nema hugulsamur maður og elskulegur hefði haft hugsun á að gefa litlum bróðurbömum sínum jólagjafir fyrstu jólin þeirra „fyrir sunnan". Það gerði Gunnar, þá nýgiftur og hafði tæpast séð eða lieyrt þessi bróðurböm sín úr sveitinni. Eg varð- veitti í mörg ár fallegu bókina sem frændi minn gaf mér þá, bókina um Hans og Grétu. Og vitaskuld elskaði sex ára telpuhnáta umsvifalaust frændann góða óséðan. Það leið þó ekki á löngu þar til ég kynnist hon- um betur og varð ekki fyrir von- brigðum. Eftir að faðir minn dó varð færra um fundi en fyrir nokkrum áram tókum við upp þráðinn aftur og þá sagði hann mér margt frá æsku sinni og uppvexti, foreldram sínum — sérstaklega móður sinni sem hann tregaði alla ævi — Sigur- jóni stóra bróður sem alltaf var hon- um svo góður, fósturforeldranum í Danmörku, frændfólki okkar í Vest- urheimi og mörgu fleira. Það var í einu af þessum samtökum okkar sem kviknaði hugmyndin um að halda ættarmót og kalla saman þau systk- ini Gunnars, þau sem eftir voru á lífi. Þau era reyndar ekki mörg, eitt alsystkin og þijú hálfsystkin sem hann hafði aldrei séð. Þetta gekk eftir, mótið var haldið og þama hitt- ust í fyrsta sinn systkinin Gunnar, Rafn, Geir og Ósk, öll böm Gests Guðmundssonar en móðir hálfsystk- inanna hét Sign'ður Bjamadóttir. Þetta ættarmót varð Gunnari til MlNNIlMÍlHllfk i9; MARZ ,,89 mikillar ánægju því að hann var bæði frændrækinn og trygglyndur og var ætlunin að endurtaka það við fyrstu hentugleika. Og nú er komið að leiðarlokum. Ég er þakklát fyrir að hafa átt Gunn- ar að frænda og vini og hið sama er að segja um systkini mín. Móðir mín — mágkona Gunnars — getur ekki fylgt honum til grafar fyrir elli sakir en hún sendir kveðjur og þakk- læti fyrir tryggð hans vináttu í hálfa öld. Állir sem þekktu Gunnar hafa misst mikið en fjölskylda hans að sjálfsögðu mest. Við bróðurböm Gunnars sendum Rósu, bömum hennar, -tengdabömum og bama- bömum innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Gestsson verður jarð- sunginn frá Seljakirkju í Breiðholti á morgun, mánudaginn 20. mars, kl. 15.00. Helga Siguijónsdóttir Látinn er Gunnar Gestsson. Þeg- ar ég heyrði þessi tíðindi varð mér hugsað, enn einn af okkar gömlu og góðu félögum horfinn yfir landa- mærin lífs og dauða, til hinnar eilífu framtíðar, þar sem andinn lifir af dauðlegan líkama. í minningunni er Gunnar Gests- son einn af þessum mönnum sem taka störf sín alvarlega og skila þeim af sér með slíkum ágætum að eftir er tekið. Þessi mynd er mér í huga þegar ég skrifa þessa stuttu kveðju til míns góða vinar. Skrifa mætti margar greinar um þennan mann listar til hugar og handa, en mig skortir orð til að fjalla um það í löngu máli. Það má hinsvegar víða sjá á löngum starfsferli Gunnars að gjörvur maður hefur lagt hönd að verki. Eftir uppeldisár sín í Dan- mörku kom þessi ungi maður heim til að leggja grundvöll að framtíð sinni, þá 19 ára gamall. Þessi framtíð hófst meðal annars þegar hann lauk námi í pípulögn hjá Helga Magnússjmi með sveinsprófi og námi frá iðnskóla. Gunnar tók virk- an þátt í starfí sveinafélagsins og var meðal annars formaður þar um árabil, einnig átti hann ríkan þátt í undirbúningi og hönnun á ákvæð- isvinnutaxta fyrir pípulagninga- menn og var hann fyrsti starfsmað- ur mælingastofu félaganna. Gunnar sýndi alla tíð mikinn hug til fram- fara í iðngrein sinni og var oft til hans leitað ef um vandasöm verk- efni var að ræða, og þó sérstaklega ef góðan hönnuð vantaði, má þar til nefna fána sveinafélags og marga aðra góða hluti. Árið 1954 gengur Gunnar í Félag pípulagn- ingameistara og er þar í stjóm eitt ár sem ritari auk þess sem hann gegndi öðram trúnaðarstörfum fyr- ir það félag. Árið 1968 eftir að hafa verið í störfum, meðal annars á Keflavíkurflugvelli hjá Vatns- virkjadeild og Hitavirkjun, stofnar hann sitt eigið fyrirtæki, Almenna verktaka, og veitti hann því for- stöðu frá byijun. Nokkrum árum síðar hóf Gunnar störf hjá Vatns- veitu Reykjavíkur og starfaði þar fram á æfíkvöld. Við hjá Félagi pípulagningameist- ara kunnum Gunnari Gestssyni maklegar þakkir fyrir öll hans störf sem hann vann fyrir félagið og all- ar þær gleðistundir sem hann gaf okkur með samvistum við okkur í gegn um árin. I dag kveðjum við þennan góða dreng með söknuði og biðjum al- góðan guð að halda vemdarhendi yfír ástvinum hans og veita þeim huggun í harmi, og með þessum fáu kveðjuorðum biðjum við hinn hæsta höfuðsmið að taka við þessum látna bróður okkar og vemda hann á nýjum leiðum þar sem ný verkefni bíða úrlausnar. Útför hans fer fram á morgun, 20. þ.m. Stefán Jónsson t Eiginmaöur minn, BJÖRN GUÐMUNDSSON, Klapparstíg 9, Reykjavfk, er látinn. Guðlaug Markúsdóttir. HEILSKUSKÓR1 MED TÖKKUM - KR. 695,- Litir: Hvítir/grænir, hvítir/bláir Stærðir: 36-46 Póstsendum 5% staðgreiðsluafsláttur KRINGWN KBIHeNM S. 689212 21212 t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, ÞURÍÐUR SIGMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 20. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Svava Þórisdóttir Eatough, Norman Eatough, Sigmundur Þórisson, Minnie Eggertsdóttir, Örn Þórisson, Stella Aðalsteinsdóttir, og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, ULLA-LILL SKAPTASON, Snekkjuvogi 17, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 22. mars kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélag íslands. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og barnabarna, Gunnar Skaptason. t Móðir okkar, ÞURÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, sem lést 15. þ.m. veröur jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudag inn 21. mars kl. 11.00. María Finnbogadóttir, Guðrún Finnbogadóttir, Guðjón Finnbogason, Pálmi Finnbogason. t Móðir okkar, UNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Barmahlfð 53, Reykjavfk, lést föstudaginn 17. mars sl. Erla Sv. Jórmundsdóttir, Óli GH. Þórðarson. t Faðir okkar, GUÐMUNDUR KJARTANSSON, lést laugardaginn 11. mars. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug. Ólína Guðmundsdóttir, Emanúel Ellertsson. t STEFÁN JÓNSSON arkitekt verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30. Stefán Örn Stefánsson og fjölskylda. t Útför eiginkonu minnar og systur okkar, ARNDÍSAR STEFÁNSDÓTTUR, Stóragerði 38, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. mars kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlegst látið líknarstofn- anir njóta þess. Sigurður Jónsson, Brynhildur Stefánsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir. t Ástkær móðir okkar og fósturmóðir, ÓLÖF ANNA BJÖRNSDÓTTIR, Bergþórugötu 25, Reykjavfk, verður jarðsungin frá kirkju Fíladelfíusafnaðarins mánudaginn 20. mars kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á trúboð Ffladelfíusafnaðarins. Páll Guðmundsson, Lfney Guðmundsdóttir, Axel Guðmundsson, Guðrún Hafliðadóttir, Hafliði Frfmannsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÞORGEIR ÞORLEIFSSON frá Þverlæk, Byggðarholtl 21, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 14.00. Þorgerður Jónsdóttir, Jón Þorgeirsson, Sigurbjörg Runólfsdóttfr, Vilborg Þorgeirsdóttir, Gunnar Þórisson, Friðgeir Þór Þorgeirsson, Anna Davfðsdóttir, Guðmundur Skúli Þorgeirsson, Rósa Dagbjört Hilmarsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.