Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 21
20 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989
C 21
Þeir f ingralöngu
fóru á kostum
Kæru farþegar.
Varið ykkur á vasaþjófunum! Þeir eru sérstaklega iðnir í jól-
aösinni. Þeir njóta sín best í troðfullum almenningsfarartækjum og
þegar farþegar fara inn og út úr vögnunum. Gætið að og haldið
fast um töskurnar. Geymið buddumar og seðlaveskin í innri vösum.
Gefið þeim ekki tækifæri til að ræna ykkur.
Eitthvað á þessa leið hljómaði
viðvörun almenningssam-
göngukerfisins í Ziirich. Henni var
útvarpað í spor- og strætisvögnum
af og til yfir daginn og minnti fólk
á að vera varkárt. En hún vakti
einnig tortryggni í garð náungans.
Alsaklaust fólk leit allt í einu út
eins og það gæti verið að koma úr
tíma hjá Fagin, læriföður Olivers
Twists. Peningaveski sem áður voru
talin örugg hjá lyklakippunni á kafi
í úlpuvasanum voru nú geymd í
rammhnepptum bijóstvasa og
ósjálfrátt var af og til athugað hvort
hlutirnir væru ekki örugglega á
sínum stað.
Lögreglan kom í veg fyrir þjófn-
aði á þennan máta. Kærulaust fólk
bauð jú hættunni heim.
Það kom við kaunin á borgarbú-
um þegar þeir heyrðu að 72 ára
kona hafði verið margstungin til
bana á fyrsta farrými í lest eitt
kvöldið í desember. Lestin fer á
milíi nágrannabæja borgarinnar og
stoppar á hveijum stað. Konan, sem
kenndi enn leikfimi, kom inn þó
nokkrum stöðvum frá Zúrich og var
ein á fyrsta farrými. Lestarvörður-
inn fann hana látna í sæti sínu í
neðanjarðargöngum tveimur eða
þremur stöðvum frá aðalbrautar-
stöðinni. Hann sendi strax út neyð-
arkall og lögreglan var tii staðar
þegar lestin renndi í hlað í mið-
bænum. Hún handtók strax eitur-
lyfjaneytanda sem var á rangli við
lestina. Hann var í blóðflekkóttum
fötum og viðurkenndi verknaðinn
fljótlega. Hann hafði myrt konuna
en bara haft nokkra tugi franka
upp úr krafsinu. Þeir hefðu varla
nægt honum lengi til að svala
fíkninni.
Þetta minnti enn einu sinni á hóp
eiturlyfjaneytenda sem heldur til í
garði við minjasafn borgarinnar.
Þeir eru ofurseldir heróíni. Af og
til birtast myndir, teknar úr fjar-
lægð, af þeim í dagblöðum og fjall-
að er um bölvun þeirra og vandann
sem þeir skapa samfélaginu. Borgin
reynir að hjálpa þeim en þeir láta
eins og þeir viti ekki af morfín-
kúrum sem eru í boði og krókna
frekar úr kulda úti við en að leita
í húsnæði sem er til staðar fyrir
vegalausa.
Þetta ergir góðborgarana. Það
er sárt að vita af ungu fólki sem
er að dauða komið steinsnar frá
einni fínustu verslunargötu Evrópu.
En hvað er til bragðs að taka ef
það virðist ekki kæra sig um hjálp?
Best að reyna að gleyma því og í
desember ætti það svosem að vera
auðvelt í erli jólanna. En þá glymur
aðvörunin í eyrum fólks: „Kæru
farþegar! Varið ykkur á vasaþjófun-
um.“
Combi Car..K
tjaldvagnar
OPIÐ
laugardag frá kl. 14-17,
sunnudag frá kl. 14-17
Sjón er sögu rikari
BENCO hf.
Lágmúla 7, sími 84077.
Hvernig
ervömin?
MJOLKURDAGSNEFND
Það þarf trúlega ekki að segja þér að góð
sókn dugar skammt ef vörnin er í molum.
Samagildir um uppbyggingu líkamans. Það er
ekki nóg að vaxa - það verður að sjá til þess að
líkaminn fái rétt efni til þess að vinna úr.
12 ára strákur sem er að hefja mesta vaxtar-
skeið líkama síns þarf nauðsynlega að fá úr
fæðunni þau efni sem líkami hans þarfnast til
þess að vaxa og þroskast.
Mjölk er ein fjölhæfasta fæða sem völ er á frá
næringarlegu sjónarmiði. Hún erekki aðeins
mesti kalkgjafinn í fæðu okkar; í henni erfjöldi
annarra bætiefna sem sum eru lífsnauðsynleg.
3 mjólkurglös á dag fullnægja dagsþörf
unglinga af kalki.
Námsgeta og athyglisgáfa skerðast
verulega efunglingarfá ekki holla fæðu
reglulega.
í mjólkinni eru B vítamín sem eru
nauðsynleg til þess að geta myndað nýtt
erfðaefni fyrirnýjarfrumurhjá ungu fólki í
örum vexti.
Við eðlilegar aðstæður dregur mjólk úr
tannskemmdum. Hið háa hlutfall kalks,
fosfórs og magnium er verndandi fyrir
tennurnar.
Unglingar þurfa um 1200 mgr. afkalki á dag
tíl þess að viðhalda vexti beina og tanna.
Mjólk og mjólkurvörur eru langmikilvægustu
kalkgjafarnir.
Kjarkleysi, skynvilla, örlyndi og þunglyndi eru
þekktir kvillar (ásamt mörgum fleiri), semgeta
orsakast af næringarskorti.
Próteiner nauðsynlegt, m.a. fyrir
vöðvauppbyggingu. Strákarþurfa mikið og
gottprótein á svo öru vaxtarskeiði. ímjólk eru
hágæðaprótein, sem nýtast sérstaklega vel.
I leik og starfi skiptir máli að taugakerfið sé í
lagi. í mjólk eru bætiefni sem eru
lífsnauðsynleg fyrir taugarnar.