Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.03.1989, Blaðsíða 38
38 C -1- MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989 ÆSKUMYNDIN . . ERAF ÖRNÓLFITHORLACIUS, REKTOR Góður ogglaður kutur HANN var ákafur plöntusafhari, áskrifandi að National Geographic tíu ára og liðtækur teiknari og ljósmyndari. Hugðarefhi Örnólfs Thorlacius, rektors MH, gagntóku hann snemma og hann sinnti þeim af atorku. • • Omólfur fæddist í Austurbæjar- skólanum 9. september 1931, sonur Sigurðar Thorlacius, skóla- stjóra þar, sem nú er látinn, og Áslaugar Thorlacius ritara. Ömólf- ur er elstur fímm systkina; Kristín- ar Rannveigar, Hrafnkels, Hallveig- ar og Kristjáns. Ömóifur og Kristín vom mjög samrýnd og höfðu gaman af því að stríða yngri systkinum sínum. „Ég leit upp til hans og elti hann út um allt. Hann var sífellt að fræða mig um eitthvað, en ekki veit ég hvort öll viskan var úr bók- um eða hans eigin vangaveltur," segir Kristín. Svolítil pempía Áslaug minnist sonar síns sem þægilegs barns, hann hafí verið rólegur og svolítil pempía, rétt eins og bræður hans. „Ornólfur varð t.d. alveg ráðalaus ef hann óhreinkaði á sér hendumar. Hann var líka dálítil skræfa, vildi ekki fara einn í neinar „svaðilfarir“. En hann var mjög vænn og góður, snemma skýr og fljótur að læra. Hann lá í bókum og varð læs á fjórða ári.“ Níu ára gamall féll Ömólfur af efstu hæð í Austurbæjarskólanum niður lyftuop. Öllum til mikillar Ég getsagtR Ömólfur var greindur og hress strákur sem varð sjaldan svarafátt. Örnólfur Thorlacius furðu slapp hann ómeiddur. En hann var ekki heilsuhraustur og dundaði sér við kyrrsetustörf. Hann fékk snemma áhuga á náttúmfræði og var ekki. nema tíu ára þegar faðir hans gaf honum ársáskrift að National Geographic. Nokkm áður hafði hann fengið forláta kassa- myndavél að gjöf og var duglegur við að taka myndir. Þá var hann liðtækur teiknari og safnaði blóm- um og grösum, sem hann þurrkaði. Greindur og málgefinn Málgefinn var hann, sérstaklega við fullorðna. Föðurbróðir hans Birgir Thorlacius segir Ömólf hafa verið glaðan og góðan kút, óvenju greint bam sem hafi verið gaman að tala við. Og Ömólfur var fljótur að svara fyrir sig. Sex ára gamall kom hann á bæ þar sem bjuggu gormæltir bræður. Annar þeirra greip strák í bóndabeygju og spurði hvað hann gæti nú gert. „Ég get sagt R,“ svaraði Ömólfur að bragði. ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Alþingiskosningar 1967 Við hverjar kosn ingar em kjós- endur hvattir til að mæta snemma á kjör- stað. Sunnudaginn 11 júní hlýddi Ólafur K. Magnússon þessu kalli kjörstjómar — og e.t.v. kalli frétta- og ritstjóra. Sumar þeirra mynda sem vom teknar þennan morgun birtust samdægurs í sérstakri síðdegisútgáfu Morgunblaðsins. Alþingiskosningar þykja að jafnaði nokkur viðburður, ekki síður á „ Við- reisnarárunum“ heldur en nú. Kjör- sókn verður líka að teljast hafa verið mjög þokkaleg, 91,4% í þessum kosningunum var deilt um störf og stefnu stjómar Bjama Benedikssonar. Þegar gömlum Morgun- blöðum frá dögunum fýr- ir kosningarnar er flett má oft lesa stuðlunina „Vörður um viðreisn" í ýmsum tilbrigðum — stundum í bláum ramma og ekki þarf lengi að leita eftir litlu x-i framan við stórt D. Það skal engum getum leitt að því við hvaða bókstaf þeir kjósendur sem Ólafur K. Magnússon myndaði þennan morgun settu x-ið. En þess verður að geta að kjósendur stóðu „vörð um viðreisnina", kjörfylgi stjómarflokkanna samanlagt reyndist 53,2% á landsvísu. Birgir Kjaran frammámaður í Sjálfstæðisflokknum með konu sinni, Sveinbjörgu Helgu Sophusdóttur. STARFIÐ Þorbjörg Sveinsdóttir scetavísa BÓKIN ÁNÁTTBORÐINU PLATAN ÁFÓNINUM sælgæti í hléinu, þvo upp og ganga frá á kaffístofu starfsfólks. Þor- björg er í skóla og segir þetta starf kjörið til að vinna með skólanum, hún geti jafnvel stundað heimanám- ið á meðan á sýningu stendur. Þorbjörg segir starfíð hafa orðið til þess að hún fari mun sjaldnar í bíó. Áður hafí hún farið á hvaða mynd sem er en nú hafi hún lært að greina á milli góðra og lélegra mynda og fari ekki nema um góðar myndir sé að ræða. Þorbjörg Sveinsdóttir sætavísa ÞETTA SÖGDU ÞAU t>Á_ Flestir vilja finna sætin sjálfir Það er búið að slökkva í salnum og kvikmyndin er byijuð. Þá rýfiir geisli vasaljóss myrkrið, sætavísan er að vísa þeim sem koma of seint til sætis. Þorbjörg Sveinsdóttir hefur verið sætavísa í Laugarásbíói í eitt og hálft ár. Hún segir það ekki al- gengt að fólk leiti aðstoðar við að rata í sæti sín, helst sé það fullorð- ið fólk sem vilji láta fylgja sér og svo auðvitað þeir sem koma of ’seint, en flestir vilji fínna sín sæti sjálfír. Sætavísumar afgreiða einnnig Guömundur Vlgfússon fyrr- um borgarfulltrúi og forystumaður í Kommúnistaflokk íslands og Sósíal- istaflokknum og Alþýðubandalag- inu. Æskulýðsfydkinguna (Æskulýðsfylkingin, sam- band ungfa sósíalista) kvað hann eiga að vera fyrirmynd annarra æskulýðsfélaga og hlut- verk hennar væri einnig að vinna gegn útbreiðslu áfengra drykkja. Guðmundur Vigfússon á mál- fundi í Æskulýðsfylkingunni. 24 nóvember, 1948. að er alltaf einhver bók á nátt- borðinu. Nú er ég að lesa Bab- bitt eftir Sinclair Lewis, sem er mjög skemmtileg aflestrar. Þá les ég eina og eina ástarsögu úr Great American Love Stories inn á milli. Ég hef áhuga á alls kyns bókum, auk þess að glugga í skáldsögum- ar, hef ég t.d. gaman af ævisögum. Við hjónin vorum að kaupa nýja plötu, Fahrenheit með hljóm- sveitinni Toto, og erum að spila hana þessa stundina. Hér á heimil- inu er hlustað töluvert á tónlist en það er frekar maðurinn minn sem sér um þá hlið mála. Ætli Toto og Sting séu ekki í mestu uppáhaldi. A Eg er hálfnuð með bókina Pas- kval Duarte og hyski hans eft- ir Camilo Jose Cela. Dálítið skrýtin bók, en skemmtileg. Ég hef lesið töluvert af spænskum bókmenntum undanfarið, auk annarra. Nú eru um tíu bækur á náttborðinu; fag- bækur, ljóð og skáldsögur. egar ég get á annað borð hlust- að á tónlist, þá vel ég klassík. Siðast var á fóninum fjórða sin- fónía Beethovens. Allar sinfóníurn- ar hans eru í uppáhaldi hjá mér, að ekki sé nú minnst á Bach. Ég er mikill aðdáandi hans, sérstaklega orgelverkanna. Þau hlusta ég tölu- vert á, auk þess sem ég leik verk Bachs á orgel, sjálfum mér til ánægju. MYNDIN ITÆKINU Haraldur A. Ingþórsson vélvirki Síðast horfði ég á Jumpin’ Jacl Flash með Whoopi Goldberg. Hún er með betri gamanmyndum sem ég hef séð, skemmtileg en vit- laus. Annars leigi ég ekki oft mynd- ir, horfí aðallega á það sem ég tek upp úr sjónvarpinu. Sigrún Krlstjáns- dóttir, kennari Síðast horfði ég á Þjóð bjarnarins mikla, sem er gerð eftir sögu Jane M. Auel. Ekki fannst mér myndin neitt sérstök, hún stendur bókinni töluvert að baki. Ég horfí afar lítið á myndbönd, þá helst til hátíðabrigða og þegar ég á margra daga frí og hef ekkert að gera.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.