Morgunblaðið - 19.03.1989, Qupperneq 23
: tóÓRttíNfeliÁÐlÐ
19: MARZ 1989
'X
c is
FÓLK
í fjölmiölum
■ÞAÐ er mál manna að Brá-
vallagötuhjónin, Halldór Þor-
geirsson og Sigurbjörg Péturs-
dóttir (verðandi Möller), hafi átt
dijúgan þátt í að Bylgjan endur-
heimti vinsældir sínar meðal
hlustenda, eftir að Stjarnan hafði
haft þar nokkra yfirburði fyrst
eftir að sú stöð tók til starfa.
Eftir sameiningu stöðvanna hafa
menn leitt hug-
ann að því hver
verði afdrif
þeirra hjóna, en
þau eru samn-
ingsbundin
Bylgjunnitil 1.
apríl næstkom-
andi. Edda
Björgvinsdóttir,
sem fer með hlut-
verk Bibbu, sagði
í samtali við
Morgunblaðið að
enn hefði ekki
verið rætt við
þau Júlíus
Bijánsson um júlIus
framhaldið, en þau byggjust þó
fastlega við að um áframhald-
andi samstarf yrði að ræða í ein-
hverju formi.
Aðspurð um upphaflegu hug-
myndina að þáttunum sagði Edda
að þau hjá Gríniðjunni hefðu
heyrt af útvarpsþætti, sem hefði
verið við lýði í sjö ár á BBC og
fjallaði á spaugilegan hátt um
fjölskyldu eina, sem nyti slíkra
vinsælda meðal hlustenda að
ógjörningur væri að hætta með
þáttinn. „Okkur datt því í hug
hvort ekki væri hægt að búa til
sígilda sápuóperu um daglegt líf
venjulegra hjóna, eða þannig lag-
að, því þau eru náttúrulega
smáskrítin þessi hjón,“ sagði
Edda um þau Bibbu og Halldór.
Hún sagði að hjónin hefðu tekið
nokkrum breytingum með tíman-
um. í upphafi var Bibba bara
flámælt með þágufallssýki, en
nú væri talsmáti hennar meira
kominn út í vitlausa málnotkun
og afbökuð orðatiltæki. Edda
kvaðst vita til að sumir væru
ekki alveg sáttir við talsmáta
frúarinnar og teldu það slæmt
fordæmi fyrir börn og ungl-
inga.„Ég svara því nú bara til
að þarna er kjörið tækifæri fyrir
foreldra til að hafa samskipti við
börn sín, með því að spjalla við
þau um íslenskt mál og leiðrétta
ambögurnar í Bibbu. Eg mæli
líka með því að þetta verði notað
sem kennsluefhi í íslensku í skól-
um landsins og býð það hér með
fram í því skyni,“ sagði Edda.
■HALLUR Hallsson, fyrrum
fréttamaður á ríkissjónvarpinu,
hefiir nú hafið störf á fréttastofií
Stöðvar 2 og likar umskiptin vel
að eigin sögn. „Hér rikir góður
andi og menn eru mj ög einhuga
um að standa sig i samkeppn-
inni“, sagði Hallur. Hann sagði
að nokkuð væri um liðið siðan
Páll Magnússon hefði feert það í
tal við sig og
koma yfir á Stöð
2 og það
ið hefði úrslitum
væri að margir
af sinum vinum
og samstarfs-
mönnum á Sjón-
varpinu, bæði úr hallur
hópi fréttamanna og tækni-
manna, hefðu smám saman verið
að flytja sig yfir. „Annars hafði
Ómar Ragnarsson dreymt fyrir
þessu þannig að það má kannski
líta á þetta sem forlög, sem ekki
voru umflúin.“ - Hallur kvaðst
sakna margra góðra félaga af
Sjónvarpinu þótt ekki væri eins
mikil eftirsjá í stjórnskipulaginu
sem þar ríkti. „Sannleikurinn er
sá að skipulagið er of þungt í *
vöfum á Sjónvarpinu og hin lam-
andi hönd útvarpsráðs og kerfis-
ins setur of mikið mark sitt á
stofhunin, því miður“, sagði Hall-
ur.
*
IBretlandi er nú unnið að því að
hefja sendingar háskerpusjón-
varps í árslok 1990, á vegum hins
nýja sjónvarpsfyrirtækis British
Satellite Broadcasting og sendum
verður komið fyrir á öðrum Astra
sjónvarpshnettinum, þótt ekki séu
líkur á að að sjónvarpstækin sjálf,
sem taka eiga við háskerpusending-
unum, verði komin í gagnið fyrr
en eftir fjögur ár.
Ýmsir hafa gert því skóna að hin
nýja tæknibylting í sjónvarpsmálum
á Vesturlöndum kunni að leiða af
sér „tæknilegt járntjald“ milli aust-
urs og vesturs og þar af leiðandi
hafa Sovétmenn sýnt þessari nýju
tækni mikinn áhuga.
Mönnum til nánari glöggvunar
má geta þess að munurinn á venju-
legu PAL-sjónvarpi, eins og við
höfum nú, og háskerpusjónvarpi er
sá, að í Pal-sjónvarpi er myndin
með 625 þverlínum á skjánum, en
háskerpusjónvarp gerir ráð fyrir
mynd með allt frá 1.100 upp í 1.300
þverlínum.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
(Lopateygjudeild)
Hann kvað Borgaraflokkinn
hafa komið fram eins og ábyrgur
stjórnmálaflokkur, en þrátt fyrir
mjög umfangsmiklar og ýtarleg-
ar málalengingar hefði ekki tek-
ist að ná samkomulagi.
Mbl. — Haft eftir
Júlíusi Sólnes
Japanir ríða á vaðið
með háskerpusjónvarp
JAPANIR HAFA nú hafið send-
ingar á svonefhdu háskerpusjón-
varpi (High Definiton Televisi-
on), en tækni þessi gefur sömu
myndgæði og kvikmyndir og
hljómgæði á borð við geisladiska.
Efiii frá Ólympíuleikunum í Seo-
ul var meðal annars sent út með
þessari tækni frá japanska sjón-
varpinu (NHK) og fleiri tilrauna-
sendingar eru fyrirhugaðar á
þessu ári. Japanir stefiia að því
að helja reglulegar sendingar
háskerpusjónvarps til heimila
þegar á næsta ári.
tvær tegundir af birkireykta hangikjötinu okkar,
annars vegar bragðmilt og hins vegar bragðmikið
hangikjöt. Birkireykt hangikjöt gefur ósvikið og ljúffengt bragð.
Þjóðlegur matur eins og hann gerist bestur.
Nú getur þú valið um tvær
tegundir. Önnur þeirra
er áreiðanlega sú sem
þér finnstbest. C*'
w
m