Morgunblaðið - 19.03.1989, Page 37

Morgunblaðið - 19.03.1989, Page 37
____í . .. „TT„ , WSftl 'lin . icttfT,i-,tlír\*í MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 19. MARZ 1989 C 37 haft áhrif á viðskiptin hjá honum sagði hann ekki gott að meta. „Það er erfítt að segja nú þegar eru að koma páskar og mikið gengur á. Páskasalan er alltaf góð.“ Þú segir að hækkanimar hljóti að hafa áhrif. Finnst þér að leyfa ætti meira af fijálsum innflutningi á matvælum, eins og t.d. kartöflum? „Já, það á að leyfa innflutning á öllu ef það er ódýrara að kaupa vörana erlendis frá. Ef það er ódýr- ara fyrir viðskiptavininn að flytja inn fínnst mér það eiga rétt á sér og þá hvaða vaming sem er,“ sagði Ómar. „Ef þú gætir framleitt ódýr föt á íslandi þá væri ekkert sjálf- sagðara en að selja þau hér hjá okkur. Við fáum aftur á móti ódýr- ari föt erlendis frá í dag og tökum þau því framyfír. Það er heldur ekki sama úr hvaða efni fatnaður- inn er. Það er t.d. ódýrara að versla í Herragarðinum, en kaupa sam- bærilegan fatnað í Amsterdam og London," fullyrti Ómar. „Hann er 30% ódýrari héma. Ef samskonar fatnaður væri framleiddur á íslandi myndi hann aftur á móti kosta helmingi meira." Laun og veikindafrí ófrískra kvenna h- Til Velvakanda. Nýlega hefur verið dæmt í Hæstarétti um rétt kvenna til launa í veikindaforföllum á með- göngutíma vegna veikinda tengdra þungunum. Af því tilefni langar mig að spyija eftirfarandi spumingar. Verði bamshafandi kona tilneydd á síðasta tíma meðgöngu, segjum 2-4 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag bamsins, að hætta vinnu að lækn- isráði, t.d. vegna of hás blóðþrýst- ings eða þreytuverkja í baki, á hún þá rétt á greiðslum fyrir þá daga frá vinnuveitanda (greidda veik- indadaga) eða ber konunni að taka þessar vikur fyrirfram af bams- burðarleyfi sínu? Ég bendi á tvö dæmi sem ég þekki til persónulega. 1. Konu, sem vinnur líkamlega erfíða vinnu hjá ríkinu, var fyrir- skipað að hætta vinnu mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag bamsins vegna of hás blóðþrýstings. Þar sem þetta var að sumarlagi var þessi tími sem konan var frá vinnu dreg- inn frá sumarleyfí hennar sem hún átti ónýtt. 2. Konan, sem vinnur hjá einka- fyrirtæki við innskrift á tölvu, hætti störfum 3 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag, vegna þreytu í baki. Hennar vinnuveitandi greiddi henni full laun þennan tíma og hélt hún þó óskertu bæði fæðingarorlofí sínu og sumarleyfi, sem hún nýtti sér eftir fæðingu barnsirisf>^ ' tí,i Spurningin er: Átti konan í fyrra dæminu rétt á launum þennan tíma fyrir fæðingu bamsins? Fór vinnuveitandi konunnar í síðara dæminu rétt að? Ég tek það fram að í báðum dæmunum höfðu konumar ekkert verið frá vinnu vegna veikinda und- anfama tólf mánuði og báðar höfðu langan starfsaldur og þar með áunnið sér rétt til launa í veikinda- forföllum í allt að þijá mánuði. Með ósk um að einhver speking- urinn geti gefið skýr svör. Kona í 'Réylyavik SPURT OG SVARAÐ \ \ Rpvlfíavílf• SPURNING: Hvað varð um loka- þátt framhaldsmyndaflokksins Tanners á Stöð 2? Hvers vegna er hann ekki sýndur? Guðrún Elín Jónsdóttir, kynn- ingarstjóri Stöðvar 2. SVAR: Lokaþátturinn um Tanner átti að vera á dagskrá sunnudaginn 12. febrúar, en féll niður sökum rafmagnsleysis. Hann var því sýnd- ur laugardaginn 18. febrúar og var það kynnt í dagblöðum, þar á með- al Morgunblaðinu. Þörunga- blómi getur valdið unga- dauða Til Velvakanda. Ungadauði við Mývatn í vor. Þetta er yfirskrift á greinarkomi eftir Valtý Guðmundsson í Velvak- andi 2. mars. Fyrst talar hann um skammsýni mannanna, og mengun nútímans er tröllríður nú lífríki jarð- arbúa. Síðan segir: „Ungadauðinn á Mývatni stafaði ekki af neinskon- ar ólyfjan, heldur blátt áfram af fæðuskorti." Hvemig V.G. getur staðhæft að ungadauðinn stafí ekki af ólyfjan skil ég ekki, til dæmis má benda á að þörangablómi í Mývatni síðasta sumar var 100 milljónir pr. lítra á móti 10 milljónum sumarið 1987 eða tíu sinnum meiri. Þegar þör- ungablóminn er orðinn mikill getur hann drepið bæði fugl, físk og át- una líka. Síðan segir V.G.: „Lífríkið í Miklavatni í Aðaldal er mjög svip- að líftíki Mývatns, nema þar er rykmý en ekki bitmý“. Þama verða V.G. á alvarleg mistök í frásögn sinni, því bitmý hefur aldrei verið í Mývatni og mun aldrei verða af þeirri einföldu ástæðu að bitmý kviknar eingöngu í straumvatni og hér er það Laxá sem bitmýið kvikn- ar í. En rykmýið kviknar aftur á móti í Mývatni og er stór þáttur í fæðu fugls og silungs. V.G. kennir þrálátum stormum seint í júní um mýdauðann. Þarna er frásögn V.G. málum blandin því rykmýið við Mývatn kviknar á vorin strax og ísa fer að leysa af vatninu, en það gerðist síðasta vor, að ekki kvikn- aði neitt tykmý og stormamir í júní komu seinna, svo ekki er hægt að kenna þeim um, enda segja líffræð- ingar að stormur hafi ekki áhrif á kviknun á lykmýi. V.G. segir einn- ig: „Gráendur, er við köllum svo, era háðar allt öðram skilyrðum, þær taka viðurværi sitt úr jurtaríkinu að langmestu leyti. Þær láta skor- dýrin sig litlu varða og koma ungum sínum þessvegna vel á legg.“ Þetta get ég fallist á en þessari reglu var ekki til að dreifa síðasta sumar við Mývatn því gráandaranginn drapst eins og aðrir ungar. Eg vil geta þess að lokum að samkvæmt taln- ingu sem gerð er árlega á öndum sem koma á vorin á Mývatn, átti sá ijöldi anda sem kom síðasta vor að koma 29 þúsund ungum á legg en útkoman varð nánast núll, enda kviknaði ekkert rykmý í vor né síðar um sumarið. Einnig má geta þess að lífríki í vötnum hér í nágrenni Mývatns var á síðasta vori með eðlilegum hætti og sumstaðar með ágætum svo sem í Másvatni. moe oriibiBvsLf 11' Ls *it Arni Halldórsson. WBSTggTI VBi O Borðstofuborð og 4 stólar Verð kr. 58.000 afb. kr. 52.000 stgr. Greiðslukortaþjónusta VALHÚSGÖGN ARMÚLA 8. SÍMI 82275 byrjendanámskeið Fjölbreytt, vanda'ð og skemmtilegt byrj- endanámskeið fyrir fólk á öllum aldri. Tilva- lið námskeið til að losna við alla vanmáttar- kennd gagnvart tölvum. Dagskrá: ★ Grundvallaratriði við notkun PC-tölva. ★ Stýrikerfið MS-DOS. ★ Ritvinnslukerfið WordPerfect. ★ Töflureiknirinn Multiplan. ★ Umræður og fyrirspurnir. Tími: 20., 22., 28. og 30. mars. kl. 20-23. Innritun í símum 687S90 og 086790. VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku í námskeiðinu. Tölvufræðslan Borgartúni 28. FJARKENNSLA HÁTT OG SNJALLT eru nýir enskuþættir sem fluttir verða í samvinnu Mímis og Fræðsiuvarpsins á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21,30 - 22,00 f rá og með 28. mars á RÁS 2. Hafðu samband við okkur sem fyrst og vertu með frá upphafi. Málaskólinn Mímir Símar: (91) - 10004 oq (91) - 21655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.