Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989 Búa sér byrgi UNG líbönsk móðir heldur á þriggja daga gömlu barni sínu og fylgist með dætrum sínum og syni fylla sandpoka sem ætlað var að verja hús þeirra í Beirút. Sveitir kristinna manna og múslima hafa borizt á banaspjót í borginni og hafa 120 menn fallið vegna bardaganna undanfamar þijár vikur. Alaska: Yaldez-höfti opnuð fyrir skipaumferð Valdez. Reuter. OPNA átti höfhina í Valdez í Alaska í gær fyrir umferð og útskipun en þá vár búið að dæla í annað skip oliunni, sem eftir var í Exxon Valdez. Er það enn á strandstað en mengunin frá því er sú mesta, sem um getur í Norður-Ameríku. Gefín hefúr verið út skipun um handtöku skipstjórans. Steve Cowper, ríkisstjóri í Al- aska, hótaði á laugardag að loka olíuleiðslunni, sem liggur þvert yfir landið til hafnar í Valdez, ef ekki yrði gripið til aukinna varúðarráð- stafana en um hana fóru að jafnaði tvær milljónir olíufata daglega. Strandgæslan hefur krafíst þess, að dráttarbátar fylgi olíuskipunum út á örugga siglingaleið og einnig, að siglingar verði bannaðar nema í björtu. Joseph Hazelwood, skipstjóri Exxon Valdez, var í klefa sínum þegar skipið strandaði en við stjórn- völinn var þriðji stýrimaður, sem ekki hafði réttindi til að sigla á þessum slóðum. Blóðprufur, sem teknar voru eftir strandið, sýna, að Hazelwood var drukkinn og af þeim sökum rak Exxon-olíufélagið hann úr starfi sl. fimmtudag. Lögreglan í New York, þar sem Hazelwood býr, skýrði svo frá því í gær, að gefin hefði verið út handtökuskipun á hann. Ahafnir á 100 skipum vinna nú að því að hreinsa upp olíuna en flestir telja þetta starf til lítils úr því, sem komið er, enda nær olíu- slikjan yfir 2.300 ferkm, svæði, sem er álíka stórt og Luxemborg. Færeyjar-Grænland: NORDAFAR-fisk- vinnslufyrir- tækið gjaldþrota Kaupmannahöfti. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins. FÆREYSKA landstjórnin hefúr ákveðið að hætta að styrlga hlutafé- lagið NORDAFAR í Færeyingahö&i á Grænlandi og verður það því gjaldþrota. Fiskvinnsla var stunduð á vegum fyrirtækisins á Grænl- andi annað hvert sumar fram til 1984 en þá var vinnslu hætt vegna þess að þorskafli brást. Landstjómin hefur annast viðhald á byggingum fyrirtækisins síðan 1984. Auk þess ábyrgðist stjómin rekstur NORDAFAR í mörg ár er halli var á rekstrinum og nemur heildartap landstjórnarinnar vegna gjaldþrotsins um 70 milljónum dan- skra króna (500 milljónum ísl.kr.), Þorskstofninn við Grænland er nú að braggast og hafa stjómvöld í löndunum báðum hug á nánara samstarfi í fiskveiðimálum. Rætt hefur verið um að byggingar NORDAFAR í Færeyingahöfn verði nýttar í slíku samstarfi en eigi að koma rekstrinum af stað aftur verð- ur fýrst að greiða skuldimar. NORDAFAR var sett á stofn 1953 og upprunalega stóðu að því fyrir- tæki í Noregi, Danmörku og í Fær- eyjum en norsku og dönsku fyrir- tækin hættu síðar afskiptum sínum af fyrirtækinu. Kosningar í Túnis: Stj ómarflokkurinn hirti öll þingsætin Túnisborg. Reuter. STJÓRNARFLOKKURINN í Túnis, Lýðræðislega sljórnarskrársam- bandið (RCD), hlaut öll þingsætin í kosningum sem fóru fram í landinu á sunnudag. Helstu andstöðuflokkarnir saka sljórnarflokk- inn um kosningasvik en yfírvöld vísa öllu slíku á bug. Segir talsmað- ur þeirra að borist hafí kvartanir jaftit frá RCD sem stjórnarand- stöðuhópum en öll svik hafí verið hindruð í tæka tíð. RCD hefur farið með völdin í 30 ár en Zine al-Abidine Ben Ali for- seti, sem tók við völdum 1987 af Habib Bourgiba, hét þá að koma á raunverulegu ijölflokkalýðræði í landinu. Heittrúaðir múslimar buðu sig fram sem einstaklingar þar sem þeir höfðu ekki enn stofnað lögleg- an stjórnmálaflokk. Talsmenn þeirra röktu fjölmörg dæmi um meint svik og ýmiss konar harð- ræði af hálfu RCD í kosningabarát- tunni og á kjördag. Fulltrúum heit- trúaðra hefði verið fleygt út af kjör- stöðum með valdi og yfirvöld hefðu fjarlægt kosningaspjöld stjórnar- andstæðinga. „Þeir hafa gengið af lýðræðinu dauðu,“ sagði óánægður liðsmaður múslimanna í símtali við erlendan fréttamann. Stjómarandstöðuhreyfmgin Só- síalískir lýðræðissinnar (MDS) gagnrýndi einnig stjómvöld og sagði að mörg dæmi hefðu verið um valdníðslu. MDS dró fulltrúa sína á kjörstöðum brott til að mót- mæla meintum kosningasvikum. Atta flokkar og hópar kepptu um þingsætin sem em 141 og vom frambjóðendur 486. Japan og Norður-Kórea: Afsökunarbeiðni Hvernig olíumengunin í Alaska verkar á fiskinn Aillr fi$kar eru f haattu þegar þelr éta svif, þara og aðrar llfvemr sem mengast hafa af kolvatnsefni ( hráolfu. Hrygnur og ungfiskar eru f sérstakri hættu. Mengunarslysíð í Alaska varð skammt frá hrygningarstöðvum sfídar. Lax: 30 til 35 milljónir laxa hrygna á sumrin (ám sem renna f Prins William-sund. Unglöxum, sem synda til hafs, stafar sama hætta af menguninni og ungsfldum. Sfld: Hrygnurhrygnaá fjöru skammt frá sjávarströndinni. HráoKa geturmengað hrognin eöa komiö I veg fyrir aö ungsdd fái fæðu. Ung- | fiskar Hrogn á þara: Hrogn, sem föst eru við þara, eru talin mikiö lostæti og eru seld háu veröi. Minnsta mengun af hráoKu gerir hrognin éhæf til matar. Hrogn, semtekin eru úr hrygnum, geta einnig mengast af kolvatnsefnum. HEIMILD: Chlcago Tribuna. boðar betri satnbúð Tókíó. Daily Telegraph. JAPANIR báðust á fímmtudag afsökunar á harðúðugri undirok- un á Kóreumönnum er Kórea var nýlenda Japana á árunum 1910-45 og er talið að afsökunarbeiðnin sé fyrirboði bættra samskipta Japana og Norður-Kóreumanna. „Japanir gera sér fullkomlega grein fyrir því að aðfarir þeirra á þessum tíma ollu nágrannaþjóðum miklum þjáningum," sagði Noboru Takeshita forsætisráðherra á jap- anska þinginu. „Ég vil í fyllstu ein- lægni og fyrir hönd japönsku þjóðar- innar biðja alla Kóreumenn afsökun- ar á misgjörðum okkar á þessum tíma,“ sagði forsætisráðherrann. Með þessari síðbúnu afsökunar- beiðni vilja Japanir friðmælast við Norður-Kóreumenn en engin stjóm- málatengsl eru á milli þessara þjóða. „Japanir vonast eftir bættum sam- skiptum við Alþýðulýðveldið Kóreu og vilja að beinar viðræður hefjist sem fyrst," sagði forsætisráðher- rann. Afsökunarbeiðnin þykir ekki hvað síst merkileg vegna þess að Japanir.hafa hingað til sniðgengið stjómvöld í Norður-Kóreu. Álíka afsökunarbeiðni árið 1965 var und- anfari þess að Japanir tóku upp stjórnmálatengsl við Suður-Kóreu- menn. Takeshita sagði að ástandið á Kóreuskaga hefði breyst að undan- fömu og fréttaskýrendur sögðu að afsökunarbeiðnin sýndi að Japans- stjóm vildi bregðast við breyttum aðstæðum í tæka tíð. Holland: Skemmdi málverk Arnhcm. Frá Eggerti H. Kjartanssyni, lréttaritara Morgunblaðsins. MAÐUR á sextugsaldri stórskemmdi nýlega tíu 17. aldar málverk á lista- safni Doordrechtborgar í Hollandi. Þau voru metin á mörg hundruð milljónir ísl.kr. Maðurinn sagðist við yfirheyrslur hafa unnið skemmdar- verkin í bræðiskasti. Hann hafði nýlega misst starf sitt og sagði er- lendra verkamanna hafði verið tekna fram yfír sig. Honum var bannað að heimsækja söfn í Hollandi næsta hálfa árið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.