Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989 4 Morgunblaðið/Rúnar Þór Hjónin Bergljót og Bjarni Rafnar héldu áleiðis til Reykjavíkur um hádegisbil í gær, en eftir rúmlega Qörutíu ára búsetu á Akur- eyri eru þau nú að flytja heimili sitt nær börnum og barnabörnum í höfúðborginni. Tímamót hjá Berg- ljótu og Bjama Rafiiar „NÚ ERUM við að kveðja bæinn, sem okkur þykir vænt um og eigum eftir að sakna,“ sögðu þau Bergljót og Bjami Rafnar rétt í þann mund er þau óku burtu frá Akureyri og suður til Reykjavíkur, en þangað eru þau hjónin að flytja búferlum eftir rúmlega Qörutíu ára búsetu á Akureyri. Bjami Rafnar hefur starfað „Mér hefur líkað ljómandi vel sem læknir á fæðingardeild Fjórð- að starfa í bæjarstjórninni, meiri- hlutinn hefur verið afskaplega samhentur og góður. Það er ágæt- is fólk í bæjarstjóminni og allir vilja bænum sínum vel,“ sagði Bergljót. Þijú bama þeirra Bergljótar og Bjama em búsett í Reykjavík og eitt í Bandaríkjunum. „Við viljum vera meira með fjölskyldunni og nú ætla ég að snúa mér að því að vera góð og skemmtileg amma og njóta lífsins með barnabömun- um, en við eigum eftir að koma oft í heimsókn til gamla bæjar- ins,“ sagði Bergljót. ungssjúkrahússins á Akureyri öll þessi ár, utan þau ár er hann stundaði sémám í útlöndum. Hann hefur verið yfirlæknir fæð- ingardeildar frá árinu 1970, en þar á undan var hann deildar- læknir um árabil. Bergljót hefur verið bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á síðasta kjörtímabili, en kjörtímabilið þar á undan var hún varamaður í bæjarstjóm og kom inn sem aðalmaður skömmu fyrir kosningar. Hún sat í félags- málaráði þá er hún var varamaður í bæjarstjóm og var hún formaður ráðsins á þessu kjörtímabili. Skinnaiðnaður Sambandsins: Góðar söluhorfur, en skortur á gærum „VIÐ SJÁUM fram á að geta selt allar þær gærur sem við höfiim til ráðstöfúnar á þessu ári,“ sagði Bjami Jónasson for- stöðumaður Skinnaiðnaðar Sam- bandsins á Akureyri. Um er að ræða 530 þúsund gæmr, en það er nokkuð minna magn en verið hefúr til ráðstöfúnar á undanför- um ámm. Á síðasta ári féllu til um 560 þúsund gæmr og árið þar á undan tæplega 600 þúsund. Vegna samdráttar í landbúnaði hefur Skinnaiðnaðurinn ekki fleiri gæmr til ráðstöfunar, en Bjarni sagði söluhorfur í greininni nokkuð góðar og því hefði verið hægt að semja um sölu á meira magni, hefði það verið fyrir hendi. Framleiðslu- geta verksmiðjunnar er tæplega 700 þúsund gærur á ári, en síðasta haust féllu til í landinu öllu tæplega 715 þúsund gærur. Megnið af gærunum er unnið í mokkaskinn og aðalmarkaðurinn nú í ár er á Ítalíu. Hinn hefðbundni Skandinavíumarkaður hrundi á síðasta ári og sagði Bjarni að á þann markað hefði á síðasta ári einungis farið um 20% þess magns sem þangað var selt árið 1987. „Markaðurinn er að flytjast frá þessum hefðbundnu kuldamörkuð- um og meira yfir á tískumarkað- inn,“ sagði Bjami. „Við emm þokkalega ánægðir með söluhorf- umar nú í ár, en það er svo annað mál að okkur líst ekkert á rekstrar- skilyrði í þessum útflutningi. Þó salan sé lífleg þýðir það ekki endi- lega að við séum að græða mikla pemnga." Hjá Skinnaiðnaði er einnig unnið við fullvinnslu fataleðurs; um 20% af heildarmagni allra skinna fer til slíkrar framleiðslu og er stærsti hlutinn seldur til Skandinavíu. Um 200 manns vinna nú hjá Skinnaiðn- aði. Snjómokstur hefiir kostað tólf milljómr SNJÓMOKSTUR hefúr aldrei verið Akureyringum eins kostn- aðarsamur og síðustu þijá mán- uðina, en tæplega tólf milljónir króna hafa farið í siyómokstur frá áramótum. Þar af er sölu- skattur um 1,7 milljónir króna. Á fjárhagsáætlun var áætlað að níu og hálf milljón króna yrðu notaðar til mokstursins. Guðmundur Guðlaugsson yfir- verkfræðingur á tæknideild Akur- eyrarbæjar sagði að menn hefðu aldrei séð jafn stóra tölu og nú hefði verið greidd vegna snjóm- oksturs. Fyrir sama tíma á síðasta ári höfðu tæpar sex milljónir verið greiddar vegna snjómoksturs, eða helmingi minna en nú. Þó sagði Guðmundur, að janúar í fyrra hefði verið hressilegur hvað varðar snjómokstur. Tiltölulega litlu fé var varið til snjómoksturs á haustmán- uðum og fram að áramótum. Guðmundur sagði að aukin bíla- Framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar fiindaði á Akureyri: Fatlaðir þurfi ekki að hrekjast að heiman vegna skorts á þjónustu - segir Jóhann Pétur Sveinsson FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, hélt fimd með stjórn Sjálfsbjarg- ar, félagi fatlaðra á Akureyri, á laugardaginn. Á sunnudag var haldið til Húsavíkur þar sem haldinn var almennur fúndur. „Við þurfúm ekki síst að beijast fyrir því, Sjálfsbjargarfélagar, að aUt hrúgist ekki upp á suð- vesturhominu. Við verðum að spoma mót þeirri þróun að hver sá sem er fatlaður eða fatlast þurfi ekki að hrekjast úr sinni heimabyggð og þess vegna er mikilvægt að ýmiskonar sér- fræðiþjónusta og ekki síst öflug heimaþjónusta sé í boði úti um landið," sagði Jóhann Pétur Sveinsson í samtali við Morgun- blaðið. Á fundinum á Akureyri var mik- ið rætt um heimaþjónustumálin og er fyrirhugað að halda námstefnu um þau mál í næsta mánuði, þar sem kallaðir yrðu til þeir sem með þau mál hafa að gera; þeim sem taka ákvarðanir, þeim sem vinna við heimaþjónustuna og ekki síst neytendum hennar. Jóhann Pétur sagði að í framhaldi af námstefnu þe8sari myndi verða unnið að heild- arstefnú I þessum málaflokki. „'Svo til alls staðar skortir á að heima- þjónustumálin séu í viðunandi horfi, en hér á Akureyri hefur þjónustan farið mjög batnandi á síðustu árum, þó talsvert skorti á að hún teljist fullnægjandi. Við teljum óviðunandi að þeir einstaklingar sem þurfa á aðstoð að halda við daglegar at- hafnir þurfi að hrekjast úr heima- byggð sinni inn á stofnun í Reylqavík," sagði Jóhann Pétur. Hann taldi að það sem eflaust hefði staðið heimaþjónustunni fyrir þrifum væri að hún er greidd af sveitarfélögurruen ekki opinberum aðilum. Hann sagði það í raun þjóð- félagslega hagkvæmt að veita fötl- uðum þjónustu heima fremur en vista þá á sólarhringsstofnunum, sem oft væri eina úrræði manna. Á Akureyri er nýlega farið að veita þjónustu fyrir hádegi um helgar auk þjónustunnar virka daga og taldi Jóhann Pétur það skref í rétta átt. „En eftir sem áður stendur það að menn eru ekki bara fatlaðir hluta úr sólarhring og þurfa á þjónustu að halda utan þess tíma sem hún er veitt." Jóhann Pétur sagði að viðhorf til fatlaðra hefði gjörbreyst á þijátíu ára ferli Sjálfsbjargar, en |)ó þætti Sjálfsbjargarfélögum' márgir hlutir vera fulllengi að komast í gegnum kerfið. „Þó ýmislegt hafi áunnist er margt eftir, en eftir því sem fleiri koma til liðs við okkar málstað þeim mun léttara verður verkið,“ sagði Jóhann Pétur. Á Akureyri sat hann fundi með Jóni Bjömssyni félagsmálastjóra og Bjama Krist- jánssyni forstöðumanni öldmnar- þjónustu og sagði hann að viðbrögð þeirra við aukinni heimaþjónustu hafi verið jákvæð. „Ég vona að þess verði ekki langt að bíða að Akureyrarbær gangi á undan í þessu máli með góðu fordæmi," sagði Jóhann Pétur. Á fundinum á laugardag var samþykkt ályktun þar sem þeim eindregnu óskum var beint til sam- taka launafólks, sem nú eiga í kjarabaráttu, að þau styðji jafnrétt- isbaráttu fatlaðra og að þau beri fram kröfur Sjálfsbjargar um hækkun á örorkulífeyri almanna- trygginga og bótum tengdum hon- um, þannig að nægi til mannsæm- andi lífs. í ályktuninni segir þar um að grunnlífeyrir örorkulífeyrisþega hækki umtalsvert frá því sem nú er, eða úr kr. 9.697 krónum í 16.000 krónur, frítekjumörk örorkulífeyris- þega hækki úr 127.980 í 250.000 þann 1. júlí næstkomandi. Þá segir ennfremur að grunnlífeyrir öryrkja verði greiddur sem einstaklingslíf- eyrir á sama hátt og nú ér með eign skipti töluverðu máli í þessu sambandi, götur þyrfti að breikka mun meira en á meðan færri bif- reiðar voru á ferðinni og það þýddi mun meiri vinnu starfsmanna. Reynslan hefur verið sú, að sögn Guðmundar, að kostnaður vegna snjómoksturs hefur að einum þriðja hluta fallið á haustmánuði og að tveimur þriðju hlutum frá áramótum og fram á vor. Ef mið væri tekið af þeirri reynslu gætu kostnaðartölur vegna mokstursins farið upp í 17-18 milljónir í heild- ina. Stal tveim- ur bílum EFLAUST hefúr manninum sem stal bifreið á Dalvík legið mikið á að komast til Akureyrar. Þegar Dalvíkurbifreiðin lenti ut- an vegar skammt utan við bæinn Hvamm í Arnarneshreppi, gekk hann heim að bæ og stal bifreið, sem stóð í hlaðinu. Maðurinn var handtekinn á Akureyri og leikur grunur á að um ölvun ökumanns hafi verið að ræða. Óverulegar skemmdir urðu á bifreiðinni sem útaf lenti. Morgunblaöið/Rúnar Þór Jóhann Pétur Sveinson formaður Sjálfsbjargar hampar nýrri stefúuskrá samtakanna, en fram- kvæmdasljóm Sjálfsbjargar og stjóm Sjálfsbjargarfélagsins á Akureyri héldu sameiginlegan fúnd á laugardaginn. tekjutryggingu og að tekjutrygging öryrkja verði aðeins tengd öðrum tekjum hans sjálf, en ekki tekjum maka, ef um hjón er að ræða. Einn- ig er lögð á það áhersla að uppbót sem greidd er vegna mikils auka- kostnaðar, s.s. heimilishjálpar, hjúkrunar eða lyfjakostnaðar, verði undanþegin tekjuskatti, sem og einnig bensínstyrkur. Norskur biskup í heimsókn SÉRA Hákon Andersen, biskup frá Tönsberg í Nor- egi kemur til Akureyrar á morgun, miðvikudag. Hann er þekktur prédikari í heimalandi sínu. Hann er fyrrum aðalfram- kvæmdastjóri Heimatrúboðs- ins norska og hefur tekið þátt í alþjóðlegu kirkjulegu starfi. Hann er í stjórn Lausenne- hreyfingarinnar sem er þver- kirkjuleg hreyfing. Hákon hef- ur komið til íslands og kom þá til Akureyrar. Samkoma verður í félagsheimili KFUM- og KFUK í Sunnuhlíð miðviku- dagskvöldið 5. apríl og hefst kl. 20.30 og gefst Akureyring- um þá tækifæri á að hlýða á biskupinn. Séra Jónas Gíslason prófessor túlkar mál hans á íslensku. Allir eru hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.