Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 2
2 MORGUNBI-A'ÐIÐ MUÐJUDAGUR 26. SEFlT.MBKR 1989 Stj órnarformaður Hafskips leggur fram ítarlega skýrslu: Hörð gagnrýni á alla þætti rann- sóknarinnar HAFSKIPS- og Útvegsbanka- mál voru tekin fyrir í Sakadóini Reykjavíkur í gær. Fimm af fímmtán verjendum í málinu kröfðust þess að upplýsinga- skýrsla sem Ragnar Kjartans- son fyrrum sljórnarformaður Hafskips hefur tekið saman um málið verði lögð fram sem dómsskjal. í skýrslunni gagn- rýnir Ragnar harðlega meðferð málsins á öllum stigum. Hann hefur gert viðamikla úttekt á reikningsskilum fjölda íslenskra fyrirtækja og færir rök að því að reikningsskil Hafskips haf! verið fullkomlega eðlileg samkvæmt því sem tíðkist hérlendis. Ragnar telur að við rannsókn hafi ekki verið farið að fyrirmæium laga um að rannsaka jöfnum hönd- um þau atriði sem bent gætu til sektar og sýknu heldur hafi allt verið lagt út á versta veg fyrir Hafskips'mönnum. í skýrslunni segir Ragnar að Hafskip hafi ekki verið gjaldþrota heldur hafi félagið verið þvingað til gjaldþrots og að eignir þess hafi í raun verið gefnar Eimskipafélagi íslands, sem hafi fengið 128,9 millj- ónir króna í hreina meðgjöf við samning um kaup eigna úr þrota- búi Hafskips. Dómurinn hafnaði því að skýrsl- an verði lögð fram með dómsskjöl- um. Sú ákvörðunin var kærð til Hæstaréttar. Framhald málsins bíður nú niðurstöðu Hæstaréttar en veijendur hafa boðað að við næstu fyrirtöku verði lögð fram frávís- unarkrafa. Sjá nánar á bls. 18. Fundur Samtaka sparigáreigenda: Kvennalisti styður ekki frumvarp um skatt á vaxtatekjur FULLTRÚAR Framsóknarflokks, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista lýstu yfír stuðningi við þá hugmynd, að raunvaxta- tekjur einstaklinga yrðu skatt- lagðar, á fundi hjá Samtökum sparifjáreigenda á sunnudag. Kvcnnalistinn mun þó ekki styðja frumvarp ríkisstjórnarinnar þessa efnis á næsta þingi. Kjaradeila raf- virkja og ríkisins: Fundur boðað- ur á morgun FUNDUR hefur verið boðaður með raf- og rafeindavirkjum, sem starfa hjá ríkinu, og Samninga- nefnd ríkins hjá ríkissáttasemjara á morgun, miðvikudag, en á mið- nætti hefst verkfall þeirra hafi samningar -ekki tekist fyrir þann tíma. Þá hefur ríkissáttasemjari boðað fund í dag vegna sjö flugvirkja Land- helgisgæslunnar, en þeir hafa tvíveg- is fellt kjarasamninga, sem gerðir hafa verið fyrir þeirra hönd, síðast í liðinni viku. Þórhildur Þorleifsdóttir, þingmað- ur Kvennalista, sagði á fundinum að þrátt fyrir að Kvennalistinn væri í grundvallaratriðum sammála skatt- lagningu af þessu tagi teldi hann að tímasetningin væri ekki rétt núna auk þess sem flokkurinn treysti ríkis- stjórninni ekki fyrir því að fram- kvæma þetta mál á réttlátan hátt. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sagði Sjálfstæðis- flokkinn vera andvígan skattlagn- ingu sparifjár og taldi óðs manns æði að ætla að hrinda þessum hug- myndum í framkvæmd nú. Ólafur Nilsson, endurskoðandi, hafði uppi verulegar efasemdir um að raunhæft væri að ætla að hefja skattlagningu af þessu tagi. Sagði hann skattayfirvöld nú vera vanbúin að framfylgja þeim skattalögum sem í gildi væru og myndu hinar fyrir- huguðu breytingar hafa gífurleg áhrif á vinnuálag þeirra. Þá gæti orðið mjög flókið að reikna út hver væri skattstofninn, þ.e. raunvextir umfram verðbólgu, á meðan verð- bólga væri eins misjöfn og raun bæri vitni. Taldi hann að ef af þess- ari skattlagningu ætti að verða, væri rúmur aðlögunartími nauðsyn- legur, til dæmis fimm ár. Sjá nánar frétt á miðopnu. Til greinahöfunda Aldrei hefur meira aðsent efni borizt Morgunblaðinu en nú og því eru það eindregin tilmæli rit- stjóra blaðsins til þeirra, sem óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æskilegt er, að greinar verði að jafnaði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4 í aðra hverja línu. Þeir, sem óska birtingar á lengri greinum, verða beðnir um að stytta þær. Ef greinahöfundar telja það ekki hægt, geta þeir búizt við verulegum töfum á birt- ingu. Minningar- og afinælisgreinar Af sömu ástæðum eru það ein- dregin tilmæli ritstjóra Morgun- bfaðsins til þeirra, sem rita minn- ingar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri 'greinar eru skrifað- ar um sama einstakling. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir-í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. Ræður Töluvert er um það, að Morgun- blaðið sé beðið um að birta ræð- ur, sem haldnar eru á fundum, ráðstefnum eða öðrum manna- mótum. Morgunblaðið mun ekki geta orðið við slíkum óskum nema í undantekningartilvikum. Ritstj. „ • Morgunblaðið/Theódór Slatur selt í sláturhúsi Kaupfélags Borgfirðinga. A myndinni eru: Hafdís Þórðardóttir, Heiðbjört Asmundsdóttir og Arni Þorsteinsson í Fljótstungu. Fimmtíu manna slátur- máltíð á 2 þúsund krónur SLÁTURSALA er nú hafin í Kjötmarkaði Sambandsins á Kirkjusandi og hefst sala slát- urs á vegum Sláturfélags Suð- urlands í lok vikunnar í Austur- veri. Þá er slátursala úti á landi víðast hvar hafin. Verð á slátrum og innmat hefur verið gefið fijálst. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins munu fimm slátur í kassa hjá SS kosta 2.490 krónur og hjá afurða- deild Sambandsins kostar sama magn 2.450 krónur. „Þeir, sem taka slátur, gera reyfarakaup fyrir utan það hve slátur er bæði hollur og góður matur,“ sagði Árni S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri búvörudeildar Sambandsins. „Miðað við meðal- matmenn má ætla að sláturmáltíð fyrir 50 manns kosti aðeins um tvö þúsund krónur sé verðið ein- göngu tekið inn í reikninginn. Þá er að sjálfsögðu ótalin sú vinna, sem fer í sláturgerðina sjálfa," sagði Árni. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins: Handhafar veiðileyfa greiði fiskirannsóknir og eftirlit Kostnaður vegna þessa nemur um 500 milljónum króna á þessu ári unar fiskiðnaðarins- 67,7 og 39,4 FRIÐRIK Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, leggur til að við framtíðarskipulag fiskveiðistjórnar hér á landi, verði hand- höfum veiðileyfa meðal annars gert að greiða fyrir þau gjald, í hlut- falli við hlutdeild sína, sem standi undir eftirliti með veiðum og rann- sóknum á fiskistofnum. Miðað við fjárlög yfirstandandi árs nemur þessi kostnaður rétt um 500 milljónum króna, sé tekið mið af áætluð- um útgjöldum ríkisins vegna Hafrannsóknastofnunar, Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins og Veiðaeftirlitinu. Samkvæmt upplýsingum frá hagfræðingi LÍÚ, eru tekjur fiskveiðiflotans á þessu ári áætlaðar um 30 milljarðar króna og tap af útgerð hans alls um 700 milljónir, Friðrik Sophusson fjallar um framtíðarskipulag fiskveiðistjóm- unar í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segir Friðrik m.a.: „Innan Sjálfstæðisflokksins fóru nýlega fram gagnlegar og hreinskiptar umræður um þessi mál, þegar sjáv- arútvegsnefnd flokksins hélt opinn fund til að safna saman mismun- andi ábendingum. Eftir að hafa hlýtt á þær umræður sýnist mér ástæða til að varpa fram eftirfar- andi hugmyndum um framtíðar- skipulag fiskveiðistjórnar: 1. Sérhvert fiskiskip (stærra en 6 rúmlestir) fái hlutdeild í heildar- afla til 10 ára með árlegri endurnýj- unarskyidu. 2. Horfið verði frá sóknarmarki. 3. Aflahlutdeildin miðist við var- anlega kvóta skipa á árinu 1989. 4. Aflahlutdeildin verði hindrun- arlaust framseijanleg milli aðila árlega eða að fullu og öllu. 5. Handhafar veiðileyfa greiði i hlutfalli við hlutdeild sínagjald, sem standi undir fiskirannsóknum og veiðaeftirliti. 6. Handhafar veiðileyfa fái aðild að ákvörðunum, sem varða eftirlit með veiðum og rannsóknir á fiski- stofnum. Þessar hugmyndir ber að skoða í ljósi nýrrar gengisstefnu og fijáls- ari gjaldeyrisviðskipta, sem ættu að bæta afkomu útflutningsgrein- anna.“ I fjárlögum yfirstandandi áf§ eru útgjöld ríkisins vegna Hafrann- sóknastofnunar áætluð 392,2 millj- ónir króna, vegna Rannsóknastofn- vegna veiðaeftirlitsins, samtals um 500 milljónir króna. Áætlaðar tekj- ur botnfiskveiðiflotans á þess.u ári eru áætlaðar 20,9 milljarðar króna, frystitogara 5,3 og loðnuflotans rúmlega 2 milljarðar. Heildartekjur má því áætla nálægt 30 milljörðum króna. Aætlað tekjutap fiskveiði- flotans er á þessu ári um 700 millj- ónir króna. Sjá grein Friðriks Sophusson- ar Fiskveiðistjórn til frambúðar á bls. 12. Öryrkjabandalag íslands: Tekjur af lottói að nálg- ast 250 milljónir króna 40 íbúðir hafa verið keyptar GERT er ráð fyrir að tekjur Oryrkjabandalags íslands af sölu lottómiða verði orðnar um 250 milljónir króna um næstu ára- mót. Að sögn Arnþórs Helgason- ar formanns Oryrkjabandalags- ins hafa verið keyptar tæplega 40 íbúðir lyrir fatlaða frá því Islensk getspá hóf sölu lottó- miða. Öryrkjabandalag íslands á 40% eignarhlut í íslenskri getspá, og samkvæmt logum á hlutur þess að renna til íbúðaframkvæmda í þágu fatlaðra, eða til almenns reksturs bandalagsins. Að sögn Arnþórs hefur tilkoma íslenskrar getspár skotið styrkum stoðum undir hús- sjóð Öryrkjabandalagsins, en sjóð- " úrinn héfur éinkum býggt' Ibúðir fyrir þá einstaklinga sem ekki hafa getað haslað sér völl á almennum lánamarkaði. „Síðan lottóið tók til starfa hafa verið keyptar og byggð- ar íbúðir á vegum Ói-yrkjabanda- lagsins vítt og breitt um landið. Hússjóðurinn hefur einnig hlaupið undir bagga með svæðisstjórnum um málefni fatlaðra og keypt hús- eignir undir sambýli, sem leigðar eru svæðisstjórnunum og þær leigja síðan áfram. Áður en lottóið tók til starfa hafði verið nánast algjör stöðnun í húsnæðismálum fatlaðra um nokkurt árabil, en síðan hafa verið keyptar eða byggð- ar nálægt 40 íbúðir. I ársbyijun 1986 voru um 250 manns á bið- lista hjá Öryrkjabandalaginu vegna húsnæðisskorts, og í dag eru ennþá Úifi'200'manns 'á biðnstá.“....

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.