Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
5
Frá opnun sýningar á verkum Jóns Stefánssonar. Hér virðir forseti ísiands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrir sér eitt verka Jóns og við hlið hennar stendur Ólafur Kvaran, listfræðingur.
Góð aðsókn að sýningxim á verk-
um Errós og Jóns Stefánssonar
ÞRETTÁN þúsund og fimm hundruð manns hafa sótt listsýningu Er-
rós sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Þá var mjög mikil aðsókn
að yfírlitssýningu á verkum Jóns Stefánssonar, sem opnuð var í Lista-
safni Islands sl. laugardag. Um þrjú þúsund gestir sóttu sýninguna
fyrstu tvo dagana.
Sýning Errós var opnuð laugar-
daginn 16. september og seldust öll
verk Errós upp fyrsta daginn, en þau
eru 110 talsins. Þá eru árituðu eftir-
prentanirnar, 1.200 að tölu, allar
uppseldar líka.
Verkin eru máluð á síðustu fjórum
árum, en síðast hélt Erró sýningu
hér heima árið 1985. Fimm þúsund
manns komu á sýninguna fyrstu
helgina og aðrir fimm þúsujid gestir
komu um síðustu helgi. Að meðal-
tali sóttu sýninguna 700 gestir á
hveijum virkum degi í síðustu viku,
eða samtals þijú þúsund og fimm
hundruð manns. „Þessi fjöldi er
miklu meiri en við höfðum nokkurn
tímann búist við. Ég man ekki eftir
annarri eins aðsókn á nokkra sýningu
hér,“ sagði Gunnar Kvaran, forstöðu-
maður Kjarvalsstaða, í samtali við
Morgunblaðið. Verð myndanna á
sýningunni nemur frá 90 þúsundum
og upp í 400 þúsund. Sýning Errós
stendur til 22. október, en þá taka
við sýningar Sveins Björnssonar og
Arvid Petersen frá Noregi.
Aðsókn að yfirlitssýningu á verk-
um Jóns Stefánssonar í Listasafni
Islands hefur verið mjög góð um
helgina, að sögn Beru Nordal, for-
stöðumanns. Ætla má að um þijú
þúsund gestir hafi komið um helg-
ina, en aðeins var opið í tvo tíma á
laugardag og á sunnudag frá 11.00
til 17.00. Sýningin stendur til 5.
nóvember og er ekki talið líklegt að
hún verði framlengd. Myndirnar, 118
talsins, eru úr einkaeign og úr einka-
söfnum auk þess sem ýmsar íslen-
skar og danskar stofnanir hafa lánað
verk á sýninguna. „Ég vil endilega
hvetja fólk til að koma því þetta er
einstök sýning. Þetta er fyrsta yfir-
litssýningin á verkum Jóns Stefáns-
sonar og svona sýning verður ekki
sett saman á næstunni. Sýningin
spannar allan feril listamannsins,
alveg frá árinu 1910 og til 1960
skömmu áður en hann deyr. Lands-
lagið er hans aðaltjáningarform og
var það íslenska landslagið sem allt-
af sótti á hann,“ sagði Bera.
Listasafn íslands er opið daglega
frá 11.00 til 17.00, en lokað er á
mánudögum.
Fleiri íslenskir laxar fínnast í afla Færeyinga:
„ Allt að 30 prósent tollur
tekinn af hverjum árgangiu
- segir Orri Vigfóssonformaður Laxárfélagsins
TVEIR laxar merktir og sleppt sem seiði í Laxá í Aðaldal í maí 1987
skiluðu sér í línuveiði Færeyinga eftir árainótin. Þar með komu fram
17 laxar með íslenskum merkjum í úthafsveiði Færeyinga og Grænlend-
inga síðasta vetur. Þar af reyndust tíu vera úr umræddri seiðaslepp-
ingu í Laxá í Aðaldal, en hinir sjö voru úr ýmsum ám .
Orri Vigfússon formaður Laxárfé- ingar sem hafa fylgst með þessu
lagsins, sem hefur drjúgan hluta segja líkur benda til að allt að 30
Laxár í Þingeyjarsýslu á leigu sagði prósent tollur sé tekinn af hveijum
í samtali við Morgunblaðið að þetta árgangi og það þýði 30 til 35 pró-
væru vissulega ill tíðindi, en kæmu sent samdrátt í veiði. í sumar veidd-
í sjálfu sér ekki á óvart . „Fiskifræð- ust 1.645 laxar í Laxá, en ef engin
Elsti Reyk-
víkingur-
inn látinn
Þorvaldur Jónsson, fyrrver-
andi verkamaður, andaðist á
Landspítalanum laugardaginn
23. september síðastliðinn. Hann
var á 105. aidursári og elstur
íbúa Reykjavíkur.
Þorvaldur fæddist 31. desember
árið 1884, á bænum Stapa í Tungu-
sveit. Hann stundaði búskap í
Skagafirði í tuttugu ár, en fluttist
síðan til Sauðárkróks, en þar vann
hann meðal annars sem verkamað-
ur við vitabyggingar. Til Reykjavík-
ur fluttist Þorvaldur þegar hann var
rúmlega sextugur að aldri, og
stundaði hann verkamannavinnu
þar þangað til hann var um átt-
rætt. Síðastliðin 41 ár bjó hann á
Þorvaidur Jónsson
heimili Oddnýjar dóttur sinnar og
eiginmanns hennar á Miklubraut
64.
Eiginkona Þorvaldar var Helga
Jóhannsdóttir, sem lést árið 1944,
og eru börn þeirra þijú talsins.
úthafsveiði hefði verið, hefði áin átt
að skila 2.200 löxum, þannig að það
munar um minna,“ sagði Orri.
Orri sagði enn fremur að hin miklu
netaför á löxum sem höfðu dvalið tvö
ár í sjó bentu til mikillar grisjunnar
við Grænland, en sjálfsagt tækju
einnig drauganet og ólögleg net á
heimaslóðum sinn toll. „Nú var veru-
leg niðursveifla í laxveiðinni and-
stætt spám fiskifræðinga. Vegna
þessa hef ég viðrað þá hugmynd við
stjórnvöld að Grænlendingar og Fær-
eyingar verði beðnir að hætta úthaf-
sveiðum sínum í svo sem tvö ár
meðan að við rannsökum niðursveifl-
una,“ sagði Orri.
Minkur í
miðbænum í
Reykjavík
ÍBÚAR í Reykjavík urðu
tvisvar varir við mink á ferli
iiin lielgina.
Skömmu fyrir hádegi á laug-
ardag var lögreglunni tilkynnt
um mink við Klapparstíg. Dýrið
náðist ekki, heldur forðaði sér
á hlaupum. Um klukkan 10 á
sunnudagsmorgun sá fólk við
Bergstaðastræti mink á bif-
reiðastæði þar. Lögregla kom
á vettvang, en fann dýrið ekki.
Sakadómur Reykjavíkur:
Þrír fengu 3-7 mánaða
fangelsi fyrir tékkasvik
Framkvæmdastjóri, meðstjórnandi og gjaldkeri gjaldþrota bygg-
ingafélags liafa verið dæmdir í 3-7 mánaða fangelsi fyrir útgáfu inni-
stæðulausra ávísana. Ávísanirnar, sem voru átta, voru gefhar út
þrátt fyrir að ákærðu væri öllum ljóst, að fyrir þeim var engin inni-
stæða.
Byggingafélagið var stofnað í
júlí 1987 í Kópavogi. Um haustið
1988 dró að gjaldþroti fyrirtækisins
og var ekki handbært fé til að
greiða laun starfsmanna og aðrar
skuldir. Brugðu ákærðu þá á það
ráð, að gefa út tékka á reikning
félagsins í Búnaðarbankanum til
þess að greiða skuldirnar, enda
þótt þeim væri öllum ljóst, að ekki
væri innistæða fyrir tékkunum. í
dómi Sakadóms Reykjavíkur kemur
fram, að það var von þeirra að úr
rættist síðar og hægt yrði að rétta
af reikninginn. Honum var lokað
17. október 1988.
Tékkarnir voru allir gefnir út og
notaðir með vitund og að undirlagi
framkvæmdastjórahs. Sjálfur gaf
hann út tvo og notaði ásamt með-
stjórnandanum, samtals að upphæð
um 800 þúsund krónur. Sex tékk-
anna voru gefnir út og notaðir af
framkvæmdastjóranum og gjald-
keranum, samtals að upphæð rúm-
lega 800 þúsund krónur.
Framkvæmdastjórinn var dæmd-
ur til 7 mánaða fangelsisvistar, en
fullnustu 5 mánaða af refsingunni
var frestað og fellur sá hluti niður
að liðnum .3 árum, haldi hann al-
mennt skilorð. Meðstjórnandinn var
dæmdur í 3 mánaða fangelsi og er
refsingin skilorðsbundin til 3 ára.
Gjaldkerinn hlaut .5 mánaða fang-
elsi og þar af eru 4 mánuðir skil-
orðsbundnir til 3 ára.
í ákæru var ekki krafist fébóta
og þær hafa ekki verið greiddar.
Ákærðu greiða óskipt allan sakar-
kostnað, þar með talin málsvarnar-
laun til Gunnars Jóhanns Birgisson-
ar hdl., 40 þúsund krónur.
Pétur Guðgeirsson, sakadómari,
kvað upp dóminn.
IDÉ •hurðirnar frá Bústofni með fræstum
„fullningum“ prýða heimilið og gefa því virðu-
legan blæ. Þær fást gegnheilar eða með
„frönskum" gluggum, sem hleypa birtu á milli
herbergja. Frönsku hurðirnar eru einnig fram-
leiddar tvöfaldar.
Hurðirnarfaravel í nýtízku husakynnum sem
og til endurnýjunar í eidri húsum. Þær eru því
hvarvetna aðlaðandi og hagnýt lausn.
Arkitektar og iðnaðarmenn hafa lokið lofs-
orði á hurðirnar fyrir vandaða smíði.
Tréerlifandi efni, sem rakastig loftsins hefur
áhrif á. IDÉ-hurðimar eru hannaðar og smíðað-
ar til að þola 70% sveifluaukningu á rakastigi.
• Hurðarfleki samlímdurog karmurúrmassívri
furú eða greni með innfræstum spjöldum.
• Allir karmar m/þéttilista
• Allar hurðir fulljárnaðar með sterkum, sér-
smíðuðum lömum.
• Allar breiddir fáanlegar af ýmsum gerðum.
• Verðið er vitaskuld hagstætt eins og á öllu
öðru hjá BÚSTOFNI.
Biðjið um bækling.