Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989 17 Morgunblaðið/Sverrir Kristján Guðmundsson bæjarstjóri og Ólafur Önundarson við nýju smábátahöfhina. Ólafur hefur róið frá Kársnesi síðan 1946 og hann klippti á borða þegar höfnin var tekin í notkun s.l. laugardag. Kópavogur: Ný bátahöfti og flotbryggja formlega teknar í notkun NÝ bátahöfh og flotbryggja voru formlega teknar í notkun við Kársnes í Kópavogi á laugardaginn. Nú geta um það bil 40 bátar legið við flotbryggjuna, en þegar framkvæmdum við bátahöfhina verður lokið árið 1992 er gert ráð fyrir að þar rúmist á milli 110 og 120 bátar við bryggju, allt að 60 tonn að stærð. Bæjarstjórn Kópavogs liefur veitt 33 milljónum króna til þessara framkvæmda frá árinu 1982, en á síðasta ári voru þær einnig á fjárlögum hjá ríkinu. Kristján Guðmundsson bæjar- stjóri Kópavogs tjáði Morgunblað- inu að fljótlega eftir að Kópavogur varð sjálfstætt hreppsfélag árið 1948 var farið að huga að því að koma upp höfn á þessum stað að tilstuðlan Finnboga Rúts Valdi- marssonar alþingismanns. Var komið upp lendingaraðstöðu og einnig reist verbúð. Um langt árabil lágu síðan fram- kvæmdir niðri en frá 1982 hefur Bæjarstjórn Kópavogs veitt fé í þessa uppbyggingu. í aðalskipulagi Kópavogs er gert ráð fyrir þessari bátahöfn við Kárs- nesið og viðleguköntum fyrir stærri skip, allt að fraktskipum, við Kárs- nestá. Nú hafa verið byggðir varn- argarðar auk flotbi'yggjunnar og auk þeirra fjörtíu báta sem geta legið við nýju flotbryggjuna er hægt að hafa aðra tuttugu til þijátíu báta í höfninni. Kristján sagði að á Kársnesinu væri 16 hektara landsvæði sem ekki er búið að skipuleggja. Eru hugmyndir uppi um að koma þar upp iðnaði sem tengist útgerð. Þar hefur Síldarútvegsnefnd bæki- stöðvar sínar og Vita- og hafnar- málaskrifstofan er að flytja skrif- stofur sínar þangað. Á þessu svæði eru nokkur lítil fiskiðnaðarfyrir- tæki, vélsmiðjur og önnur fyrirtæki sem tengjast sjómennsku. Hefur róið frá Kársnesi síðan 1946 Ólafur Önundsson hefur róið frá Kópavogi frá árinu 1946, tveimur árum áður en Kópavogur varð sjálf- stætt sveitarfélag. Hann klippti á borðann á laugardaginn, þegar nýja bátahöfnin var tekin í notkun. Ólafur var sjómaður fram að þrítugu en starfaði síðan við park- etlagnir í fjörtíu ár. Frístundum sínum eyðir hann á sjónum. „Það hefur ekki liðið það sumar að ég hef ekki farið á sjó,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið. „Ég stundaði sjóinn fyrst með föður mínum, en hann var lengi vel eini maðurinn sem reri frá Kópavogi. Fyrst í stað lenti hann í fjörunni þar sem Siglingaklúbbur Kópavogs hefur nú aðstöðu. Ég man vel eftir því þegar fyrsta lend- ingaraðstaðan var byggð hér í kringum 1950 í tíð þeirra merkis- hjóna Huldu Jakobsdóttur og Finn- boga Rúts Valdimarssonar. Eftir það fjölgaði bátunum hér, en ann- ars hefur ekki verið mikil útgerð hér fyrr en síðustu árin.“ Óiafur segist hafa fylgst með uppbyggingunni frá byijun. „Nú er aðstaðan orðin reglulega góð fyrir þá sem fara á sjóinn sér til gamans eða hafa sjósókn að at- vinnu," sagði hann. „Hér verður enn betri aðstaða í framtíðinni því mér skilst að þetta sé bara byijun- in. Ég hef alltaf átt þess kost að komast á sjóinn og ætla að halda því áfram. Ég hef afskaplega gam- an að þessu enda er sjómennskan í blóðinu." Könnun Neytendasamtakanna: 80% andvígir land- búnaðarsteftiunni Meirihluti mótfallinn innflutningi búvara NEIKVÆTT viðhorf til landbúnaðarstefnu stjórnvalda kom fram hjá tæpum 80% þeirra sein afstöðu tóku í nýgerðri könnun Neytendasam- takanna. En 70% sögðust þó andvíg því að fluttar væru inn land- búnaðarvörur og var andstaðan mest meðal 50 ára fólks og eldra. Flestir þeirra sem vildu innflutning sögðu að flytja ætti inn græn- meti en fæstir vildu láta flytja inn injólk. I ræðu Jóhannesar Gunnars- sonar, formmanns Neytendasamtakanna, á formannafúndi um helg- ina kom fram að tími væri koininn til að samtökin tækju afstöðu til málsins, ekki síst í ljósi skeytingarleysis sljórnvalda um óskir neyt- enda varðandi breytta steftiu í landbúnaðarmálum. Að sögn Maríu E. Ingvadóttur, varaformanns Neytendasam- takanna, var ekki tekin afstaða til þess, hvort flytja ætti inn lánd- búnaðarvörur eða ekki, á formanna- fundi samtakanna í Borgarnesi. „Þarna er þó um merkilega stefnu- breytingu að ræða,“ segir hún, „tímabært þykir orðið að hugsa al- farið um hag neytenda. Hingað til höfum við fyrst og fremst rætt um gæði vörunnar en nú hefur krafan um hagstætt verð bæst við og þar hljótum við að miða við nágranna- löndin. Mér finnst nokkurt ósam- ræmi í því að fólk er óánægt með stefnu stjórnvalda í iandbúnaðar- málum en andvígt innflutnifigi á iandbúnaðarvörum. Fram kom á fundinum að hægt væri að spara tíu milljarða árlega með slíkum inn- flutningi, spurningin hlýtur að vera hve langt eigi að ganga í að aflétta viðskiptahömlum." I könnuninni sem kynnt var um helgina kom fram að fæstum, eða 60% þeirra sem tóku afstöðu, þótti gæði kartaflna fullnægjandi en mest ánægja ríkti með mjólk, yfir 90% töldu- hana nægilega góða. Kindakjöt kom best út af land- búnaðarafurðum, hvað varðar álit á hvort verð væri nógu hagstætt, en næstverst hvað mat á gæðum varðar. Athygli vekur í niðurstöðum könnunarinnar að helmingur að- spurðra tók ekki afstöðu til stefnu stjórnvalda í iðnaðarmálum. En 47% þeirra sem það gerðu voru já- kvæðir. Álíka margir létu í ljós álit á stefnu stjórnvalda í sjávarútvegs- málum og landbúnaðarmálum, eða rúmt 71%. Tæplega 56% höfðu já- kvætt viðhorf til stefnunnar í sjáv- arútvegsmálum. Meðal þeirra 30% Dr. Ólafur Jensson skipaður prófessor: Vill auka kennslu í mann- erfðafræði við læknadeild DR. ÓLAFUR Jensson, yfir- læknir Blóðbankans, hefúr ver- ið skipaður prófessor við læknadeild Háskóla íslands frá 1. janúar næstkomandi. Hann hefur stundað rannsóknir á sviði mannerfðafæði og erfða- sjúkdóma í tæp þrjátíu ár og kveðst vilja auka kennslu í þessum greinum við lækna- deild. Dr. Ólafur var skipaður í svo- kallaða persónubundna prófess- orsstöðu eftir tillögu læknadeildar til Háskólaráðs og menntamála- ráðuneytis. Undanfarin ár hefur Snorri Páll Snorrason yfirlæknir verið í sams konar stöðu við Há- skólann, en hann lætur af henni um áramót. Það heyrir til undan- tekninga að prófessorstöður teng- ist ákveðnum mönnum, en til dæmis má einnig nefna dr. Kristj- án Eldjárn. Dr. Ólafur hefur stundað rann- sóknir við Blóðbankann frá 1972 og mun áfram gegna þar starfi yfirlæknis. Hann varði doktorsrit- gerð 1978. „Ég reyni áfram að láta rannsóknir blóðbankans hafa áhrif inn á deildir sjúkrahúsanna, vonast raunar til að áhrifin aukist Dr. Ólafur Jensson tekur við prófessorsstöðu l.janúár ánæsta ári. með tilliti til frekari kennslu í læknadeild um erfðasjúkdóma. Hingað til hefur áherslan fremur verið á samvinnu við sérfræðinga og fræðslu til lækna.“ GOODYBAR GBFUR ÖRYGGI GOODjfYEAR ffl HEKLAHF Laugavegi 170 -174 Simi 695500 sem töldu að flytja ætti inn land- búnaðarvörur ef það yrði til áð lækka verðið, vom karlar í meiri- hluta. í skýrslu stjórnar Neytendasam- takanna á fundinum um helgina kom fram að félagsmönnum sam- takanna hefur ijölgað mjög á síðustu tveimur árum; úr rúmlega 2.000 í 13.400. María Ingvadóttir segir þetta endurspegla óánægju fólks með verðlagsþróun að undan- förnu. Erindum og kvörtunum til samtakanna hafi einnig fjölgað mikið, til dæmis hafi 33 formlegar kvartanir borist 1987 en 122 í fyrra. Þá ræddi í skýrslunni um að reynslan af strikamerkingum á öðr- um Norðurlöndum sýndi að þörf væri áfram á að verðmerkja hvern hlut. Norrænar kannanir sýndu að verðskyn neytenda sljóvgaðist af því að verð væri aðeins merkt á hillur, ekki hveija einstaka vöru. Ennfremur var í skýrslunni Ijallað um að mikilvægi vömkannana Neytendafélagsins hefði sýnt sig. Á formannafundi Neytendasam- takanna var samþykkt ályktun um nauðsyn þess að styrkja stöðu landsbyggðarverslunar, sem gegni mikilvægu öryggis- og þjónustu- hlutverki. Myndatökur frá kr. 6.500,- út októbermánuð, öllum tökum fylgja tvær prufustækkarnir 20x25 cm. Ljósmyndastofan Mynd sími 5 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs simi 4 30 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.