Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989 Frystihús HPP selt á uppboði: Slegið Fiskveiðasjóði á 95 milljónir króna Ibúð og skreiðargeymsla frystihúss- ins boðnar upp í næsta mánuði FRYSTIHÚS þrotabús Hraðfrystihús Patreksfjarðar var í gær slegið Fiskveiðasjóði á 95 milljónir króna á þriðja og síðasta nauðungarupp- boði. Þetta var eina boðið sem barst á uppboðinu. Að sögn Stefáns Skarphéðinssonar sýslumanns var boðið samþykkt í réttinum og var húsið útlagt Fiskveiðasjóði, sem átti um 114 milljóna króna kröfiir á efstu veðréttum. Að sögn Svavars Ármannssonar hjá Fiskveiða- sjóði hefiir sjóðurinn ekki ákveðið hvað gert verður við húsið. Aðrir stórir kröfuhafar á upp- Landsbanki íslands, auk fjölda boðinu vom Byggðasjóður og kröfuhafa sein tekið höfðu fjárnám --------------------- í eigninni. Sýslumaður hafði ekki Ol _________1 • JL handbærar tölur um heildarfjárhæð ÖKemmair íl uppboðskrafnanna. Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Tveir lögreglubílar skemmdust þegar ölvaður ökumaður ók bíl sínum á þá. Bíll hans er einnig mikið skemmdur. VEÐUR Brotist inn í LyQaverslun ríkisins: Þjófurinn faldi sig fyr- ir öryggisverði og slapp Var í flórar klukkustundir í húsinu - öryggisvörður kom þrisvar á vettvang BROTIST var inn í Lyfjaverslun ríkisins í Reykjavík aðfaranótt föstu- dags. Þrátt fyrir fúllkomið þjófavarnarkerfi uppgötvaðist ekki fyrr en á fostudagsmorgun að sýnishornum af ávana- og fíknieftium hafði ver- ið stolið af rannsóknastofu. Þjófurinn faldi sig fyrir öryggisverði Secu- ritas, sem kom þrisvar á vettvang. Þjófúrinn hafði ekki náðst í gær, en hluti þýfísins var fundinn. / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gaer) 13 bifreiðum SKEMMDIR voru unnar á 13 bif- reiðum, sem stóðu í Garðastræti og Sólvallagötu, aðfaranótt sunnudags. Skemmdarvargarnir höfðu brotið og beyglað rúðuþurrkur og loftnet á bifreiðunum þrettán. Ekki er vitað hveijir þarna voru á ferð. Að sögn Stefáns Skarphéðins- sonar er það annað helst að frétta af málefnum þrotabúsins að íbúð og skreiðargeymsla hraðfrystihúss- ins verða boðnar upp í næsta mán- uði. Þá á Stálskip hf. í Hafnarfirði að vera búið að greiða 257,5 millj- onir króna vegna kaupa á Sigurey BA fýrir fyrir 11. nóvember næst- komandi. Ölvaður ökumaður: Skemmdi tvo lögreglubíla TVEIR lögreglubílar skemmdust á laugardagskvöld þegar ölvaður ökumaður neitaði að stöðva bif- reið sína og ók utan I þá, eftir að lögreglan hafði verið að eltast við hann um austurborgina. Lögreglan gaf manninum merki um að stöðva bíl sinn, eftir að und- arlegt ökulag hans hafði vakið at- hygli. Maðurinn sinnti því engu, gaf í og reyndi að komast undan. í Tranarvogi, vestan Súðarvogar, ók hann bíl sínum utan í lögreglubíl og ók svo á brott. Nálægt mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar ók hann bílnum utan í annan lög- reglubíl. Loks stöðvaði hann við Réttarholtsveg, stökk út úr bílnum og hljóp á brott. Hann náðist þó síðar um kvöldið. Annar lögreglubílanna skemmd- ist á framhorni. Hinn er öllu meira skemmdur, önnur hliðin beygluð og rispuð, afturstuðari farinn af og fleira. Bíll ölvaða ökumannsins, Honda Civic, er mikið skemmdur. Maður þessi hefur áður reynt að aka lögregluna af sér. í slíkri flótta- tilraun fyrir nokkrum mánuðum ók hann jeppa út af veginum á Mos- fellsheiði, en festi bílinn og náðist. Lögreglumaðurinn, sem handtók hann þá, var á laugardag í öðrum lögreglubílnum, sem elti manninn uppi. VEÐURHORFUR íDAG, 26. SEPTEMBER YFIRLIT f GÆR: Suðvestan- og sunnanátt, kaldí eða stinnings- kaldi. Skúrir suðvestan- og vestanlands, en léttskýjað um norðaust- an- og vestanvert landið. Hiti 3-7 stig. SPÁ: Gengur í norðvestlæga átt, víða allhvasst. Slydduél við norður- ströndina, skúrir vestanlands, en léttir heldur til á Austurlandi. Hiti 1-6 stig, hlýjast sunnanlands. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG:Vestanátt. Súld um suðvestan- og vestanvert landið, en þurrt og bjart í öðrum lands- hlutum. Hiti 3-6 stig. TÁKN: Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / r r / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 H'itastig: 10 gráður á Celsíus Sj Skúrir = Þoka = Þokumóðs ’ , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR I(ÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 léttskýjað Reykjavtk 7 úrkoma Bergen 14 alskýjað Helsinkí 14 þokumóða Kaupmannah. 18 léttskýjað Narssarssuaq 2 snjókoma Nuuk -3 léttskýjað Osló 17 skýjað Stokkhólmur 13 þokumóða Þórshötn 8 léttskýjað Algarve 22 þokumóða Amsterdam 19 mistur Barcelona 25 hálfskýjað Berlfn hálfskýjað Chicago 4 heiðskfrt Feneyjar 23 þokumóða Frankfurt 17 skýjað Glasgow 14 rlgning Hamborg 18 mistur Las Palmas 26 skýjað London 21 skýjað Los Angeles 18 skýjað Lúxemborg 15 skruggur léttskýjað Madrid 25 Malaga 26 mistur Mallorca 26 léttskýjað Montreal 7 léttskýjað New York 11 hálfskýjað Orlando 24 rignlng Paris 19 léttskýjað Róm 24 léttskýjað Vin 20 mistur Washington 10 alskýjað Winnipeg vantar Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins fór þjófurinn inn í húsið með því að spenna upp glugga á annarri hæð hússins. Þjófavarnar- kerfi, sem er tengt stjórnstöð ör- yggisfyrirtækisins Securitas, fór þá af stað. Vörður frá fyrirtækinu fór á staðinn, en fann þjófinn ekki. Talið er að hann hafi falið sig í húsinu þar til vörðurinn var á brott. Skynjarar tengdir þjófavarnarkerf- inu á annarri hæð hússins fóru af stað oftar um nóttina og er ljóst að maðurinn hefur verið um fjórar klukkustundir í fyrirtækinu. Örygg- isvörður kom þrisvar á vettvang, en varð ekki var við manninn og mun ekki hafa séð að gluggi hafði Úr bráðri lífshættu MAÐURINN, sem varð fyrir bifreið á Hringbraut aðfara- nótt-fbstudags, var í gær ekki talinn í bráðri lifshættu. Maðurinn slasaðist mikið og var gerð á honum höfuðaðgerð á laugardag. Þar sem hann hafði engin skilríki á sér sendi lögregl- an út lýsingu á honum. Það bar árangur og er nú ljóst hver hann er. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í gær var maðurinn ekki talinn í bráðri lífshættu. verið spenntur upp. Vörðurinn hafði ekki samband við lögreglu eða for- svarsmenn Lyfjaverslunarinnar. Að sögn Þórs Sigþórssonar, for- stjóra Lyfjaverslunarinnar, eru öll lyf læst inni í rammgerðum hirslum, en maðurinn náði sýnishornum' af ávana- og fíkniefnum á rannsóknar- stofu fyrirtækisins, þar á meðal morfíni og amfetamíni. Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, sagði að Lyljaverslun ríkisins væri í stórri og mikilli byggingu, sem erfitt væri að leita í. „Það sáust engin merki um innbrot á staðnum og öryggiskerfi geta farið af stað af mörgum ástæðum," sagði Hannes. „Öryggisvörðurinn mat aðstæður þannig, að ekki hefði verið framið innbrot, en það er Ijóst að það var ekki rétt mat. Við sjáum nú, að ýmislegt á staðnum hefði átt að sýna vel þjálfuðum manni að inn- brot hefði verið framið. Vörðurinn dró rangar ályktanir og við verðum að sjálfsögðu að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að svoná geti átt sér stað. Það gerum við fyrst og fremst með aukinni áherslu á þjálfun öryggis- varða okkar. Það er stefna ókkar að kalla ekki á lögregluna fyrr en ljóst er að innbrot hefur verið fram- ið og því var það ekki gert í þessu tilviki." Rannsóknarlögregla ríkisins leit- ar nú þjófsins. Hluti lyfjanna hefur fundist, en rannsóknarlögreglan verst allra frekari frétta af rann- sókn “málslns. '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.