Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989 29 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Heilsnmál Til forna var stjörnuspekin nátengd læknisfræði og margir læknar stjörnuspek- ingar. Ég ætla á næstu dögum að ijalla um það hvaða líkams- hlutum einstök merki stjórna, byija á Hrútsmerkinu og enda á Fiskamerkinu. Ég mun styðjast við verk H.L. Cornell sem var læknir og jafnframt starfandi stjörnuspekingur á árunum fyrir síðari heims- stytjöld og bókina Astrology & Health eftir Sheilu Geddis. Hrútur Hrúturinn stjórnar höfðinu og því eru sjúkdómar fólks í þessu merki oft tengdir þeim líkamshluta. Cornell segir að þegar Hrútar leiti til læknis sé það oft vegna eymsla í höfði. Meðal algengra sjúk- ^ióma hjá Hrútum má nefna veik augu, slímhúðarþroti í háls eða nefi, kvef, höfuð- verki, mígreni, erfiðleikar með heyrn, ský á auga er veldur starblindu, óeðlilegar bólgur í nefi, heilahimnubólga, heila- blóðfall og í raun flest það sem getur komið fyrir þann hluta líkamans sem er fyrir ofan háls. Það virðist einnig al- gengt að Hrútar slasi sig á höfði, litlir Hrútar detta t.d. oft á höfuðið eðg reka sig á. Hugmyndaríkur Fyrir utan hinn líkamlega þátt má nefna hin vitsmuna- lega. Hrúturinn erhugmynda- ríkt merki með kraftmikla hugsun. Hann er ákafur í hugsun og á til að hlaupa á sig, fá einhveija ágæta hug- mynd sem skýra þarf strax frá eða framkvæma í hvelli. Höfuðið er því oft óvinur hans, eða réttara sagt fljótfærni sem stafar af hugmyndaleg- um ákafa. Veikleikar Hrúts- ins tengjast því höfði, bæði líkamlega og vitsmunalega. Þrjóskur Til er á ensku orðið „head- strong“. í beinni þýðingu má segja að það þýði það að vera höfuðsterkur, en réttari þýð- ing er þijóskur eða þrályndur. Þetta er eiginleiki sem oft og með réttu er tengdur Nauts- merkinu en á eigi að síður einnig ágætlega við Hrútinn. Hrútar bíta oft ákveðin mál í sig, loka eyrunum fyrir utan- aðkomandi tilmælum og vaða áfram. Framkvæma hug- myndir sínar og áætlanir hvað sem það kostar. LausbeislaÖir Cornell segir eitt athyglisvert um Hrútinn: „Það komu ekki sérlega margir Hrútar til mín og þeir sem ég hitti virtust frekar lausir í rásinni, virtust ekki halda sér lengi við sama málið. Yfirleitt voru þeir farn- ir, byijaðir að eltast við ný viðfangsefni sem þeir héldu að gætu bætt hag þeirra, áður en ég hafði fengið tíma til að gera margt fyrir þá.“ Það virðist samkvæmt þessu sem Hrútar séu almennt lítið fyrir það að fara til lækna og hafi einnig takmarkaða þolinmæði til að dvelja lengi hjá einum og sama lækninum. Mörg merki Að lokum er rétt að geta þess að allir í viðkomandi merki koma ekki sjálfkrafa til með að veikjast í þeim líkamshluta sem merkið stjórnar. Einungis er talað um viðkvæma líkams- hluta og möguleika. Rétt er og að gota þess að hver ein- staklingur þarf einnig að huga að hinum merkjum sínum þegar heilsufar er annars veg- ar. Það er ekki alltaf Sólar- merkið sem skapar veikleika, heldur fullt eins það merki sem hefur plánetur í erfiðum afstöðum og 6. húsið. GARPUR si/tfe tv/bngja n sbaí eerr ST/K*V ÚfZH/>rTJKIO/M /H/NU/Of Kb/MO/S Hé/e /yiep FéLÖGUM Sl/JUAI ÍM/Ö'i-D- ___ v: ( pESSl LHKT - E&U AD f/ELl A IL/rn/A TKU LA/ZU \ illu yF/é /yuG.‘ KK/JFTASi/BKÐ /0 AHTT.' ÞA ■ þA£> eeAB hverfaJ 3/h /// '/ u— y jt i GRETTIR BRENDA STARR þESS/ HAUN<3/ HEFUt AGÆT /ABOAA'E.l/, EN HAtJN TALA/Z VEKFA AA'AL BN STJÓKN/iA'ALA - /yiAÐUFí þÚSKALT SA/HT , K/tÐA HAHH \ LJÖFAN TOMMI OG JENNI FERDINAND Af * 1 7 /'éM M*i SMÁFÓLK /SIR, I TMlNK'j /MATEE HOT, 'OUR 6UIPE } /MARCIE..ME'S IS LOST../ 1 LOOKING AT A MA THAT ISNV A MAPJT'S AN APVERTI5EMENT F0RP06 FOOPÍ Herra, ég held að leiðsögumaður okkar hafí villzt. Kannske ekki, Magga, hann er að skoða kort. Þetta er ekki kort, þetta er auglýs- ing fyrir hundafæðu. Engin furða að ég skyldi ekki finna Omaha. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Vinnugleðin vafðist fyrir mörgum í þessari grandslemmu, sem kom upp hjá BR sl. miðviku- dag. Norður gefur; AV á hættu. Norður ♦ 86 V K98 ♦ G74 ♦ ÁDG87 V2102 Austur 107663Í*7543 D632 ¥G4 3 4Á ♦ 1096642 Suður ♦ ÁKDG9 VÁD ♦ K10985 ♦ K Það liggja margar leiðir í slemmu og koma reyndar fjórar til greina. Þeir sem völdu lengsta tromplitinn — tígul — áttu aldr- ei vinningsglætu, en spaða- slemman er mjög traust og vinnst auðveldlega í þessari legu. En hvað með 6 grönd? Segjum að vestur spili út hjarta. Besta áætlunin er aug- ljóslega sú að drepa á hjartaás, taka laufkóng og yfirdrepa hjartadrottningu með kóng. Þá eru 12 slagir í höfn ef laufið. fellur 4—3, eins og algengast er. Annar og verri möguleiki er að yfirdrepa laufkóng og svína fyrir tíguldrottningu. Flestir tóku fyrrnefnda kost- inn og gáfu frá sér alla von þegar lauflegan kom í ljós. Margir höfðu reyndar tekið spaðaslagina fyrst og hent tveimur tíglum úr blindum. Og þá spilið farið. En ef byijað er á því að prófa laufið er til langsótt vinnings- leið: Einn laufhákarl er skilinn eftir í borðinu áður en spaða er spilað. Síðan lítill tgull og austur verður að spila laufi inn á blind- an þar sem 11. slagurinn bíður. En sá 12. hefur verið fríaður á tígulkóng!! SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á World Open-mótinu í Philad- elphia í Bandaríkjunum í sumar tefldu lítt þekktur bandarískur meistari og heimsmeistara kvenna þessa stuttu skák. Hvítt: Joseph Fang (2.280), Svart: Maja Chi- burdanidze (2.495), Grúnfelds- vörn, 1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 - d5 4. Rf3 - Bg7 5. Bg5 - Re4 6. cxd5 - Rxg5 7. Rxg5 - e6 8. Dd2 - exd5 9. De3-i— Kf8 10. Df4 - Bf6 11. h4 - Kg7? (Nauðsynlegt er strax 11. - h6 og svarta staðan er í góðu lagi. Nú þarf hvítur aldrei að hörfa með riddarann og nær stórsókn) 12. e4! - dxe4 13. Bc4 - Hf8 14. 0-0-0 - Rd7 15. Rcxe4 - h6 16. g4! - Rb6 (Ef 16. - hxg5 17. hxg5 - Be7 þá 18. Rf6! - Hh8 19. Hxh8 - Dxh8 20. Rh5+! og vinnur) 17. Rxf7! - Rxc4 18. Rxd8 - Bg5 19. Rxg5! og svart- ur gafst upp, þvi 19. - Hxf4 er svarað með 20. Rge6+. Chiburd- anidze hefur ekki teflt sérlega vel eftir að hún varði titil sinn sl. haust. Hún er nú í þriðja sæti á stigalista kvenna með 2495 stig, en Polgarsysturnar Judit með 2555 og Zsusza með 2520 tróna á toppnum. Pia Cramling hefur heldur aldrei verið betri en núna og er i fjórða sæti með 2480 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.