Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.09.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989 13 ' ,1 1 Úr hýbýlum Fagins. Fyrir miðri mynd Þórhallur í hlutverki gyðingsins með Gissuri Páli - Oliver (t.h.) og Ivari Sverrissyni, Hrappi. í Menningarstofnun Bandaríkj- anna á Neshaga 16 sýnir Guð- mundur Björgvinsson nokkur akríl- verk með ýmsa jökla landsins sem viðfangsefni. Guðmundur hefur haldið fjöl- margar sýningar og víða komið við í myndlistinni en verið nokkuð reik- ull um val viðfangsefna þannig að sýningaflóra hans virkar all sundur- laus. Þessi sýning kemur einnig á óvar-t, því við flestu öðru hefði ég búist en blasti við á veggjunum er á staðinn kom. Ekki fyrir það, að viðfangsefnið sé nýtt, heldur frekar vegna þess hvernig hann nálgast það. Hér virðist ekki vera urn djúpar rannsóknir að ræða, hvorki á lit- brigðum og formum jökla að ræða, Guðmundur Björgvinsson heldur öllu frekar óbein áhrif úr fjarlægð, sem kunna þó að vera góðra gjalda verð sé um ríka og skynræna lifun að ræða. En ein- hvern veginn komst ég ekki í sam- band við þessar myndir né túlkun Guðmundar, og við hljótum því að skynja og upplifa jökla á mjög ólík- an hátt. Tvennt gat ég þó vel sætt mig við á sýningunni og það var mynd- in „Fláajökull" (3), sem ég tel tví- mælalaust markverðasta verkið í ljósari flokki mynda, enda mun meiri átök við form og efnivið en í hinum verkunum. Og svo voru þar þijár dökkar myndir nr. 11—13, er mjög stungu í stúf við hinar og sem eru mun jarðrænni og safaríkari í útfærslu, en því miður er lýsingin á þeim ekki upp á það besta svo þær njóta sín naumast til fulls. En mikið þóttu mér það áhuga- verðari efnistök. Athugasemd ritstjóra Alþýðublaðsins við grein Þorsteins Pálssonar: Alþýðublaðið þagði ekki í heilt ár Jöklar Myndlist Bragi Ásgeirsson tOlvusköu stjórnunarfélags Islanos TÖLVUSKÓLAR A TÖLVUSKÖU GlSLA J. JOHNSEN Þú öðlast grunnþekkingu á tölvum og hæfni til að nota þær af öryggi. 10. okt. — 1. des. kl. 19.30-22.30 til skiptis 2-3 kvöld í viku í Ánanaustum 15, Reykjavík Leiðbeinandi: Ólafur H. Einarsson. SKRÁNING I SÍMUM 621066 og 641222. í grein eftir Þorstein Pálsson formann Sjálfstæðisflokksins, sem birtist í Morgunblaðinu laugardag- inn 23. september sj. er fjallað að hluta til um umsvif Stefáns Val- geirssonar alþingismanns í sjóða- og bankakerfi landsins ásamt aðild alþingismannsins að fiskeldisfyrir- tækjum. Þorsteinn segir orðrétt í grein sinni: „Athyglisvert er, hvernig al- þýðuflokksmenn hafa reynt að þvo hendur sínar af þessu hneyksli. Það var Alþýðublaðið, sem fyrst greindi frá málinu síðastliðinn laugardag og hafði þá þagað yfir því í heilt ár.“ Síðan segir Þorsteinn orðrétt: „Nú þegar stjórnarflokkarnir þurfa ekki lengur á Stefáni Valgeirssyni að halda, því þeir hafa keypt nýja menn inn í stjórnina, þykir krötum óljóslega tímabært að losna við Stefán.“ Hér er farið með rangt mál. Al- þýðublaðinu var ekki kunnugt um hagsmunatengsl Stefáns Valgeirs- sonar innan banka- og sjóðakerfis, né heldur um að aðstoðarmaður hans væri á launum sem deildar- stjóri í forsætisráðuneytinu, fyrr en nokkrum dögum fyrir laugardaginn þ. 16. september sl. er Alþýðublað- ið greindi, fyrstur íslenskra fjöl- miðla, frá málinu. Allar fullyrðing- ar Þorsteins Pálssonar að Alþýðu- blaðinu hafi verið kunnugt um mál þetta í heilt ár og þagað yfir því allan þann tíma, eru alrangar og eiga sér enga stoð í veruleikanum. Ennfremur eru þær fullyrðingar Þorsteins Pálssonar fullkomlega rangar, að Alþýðuflokkurinn hafi tengst umræddum fréttaskrifum og notað Alþýðublaðið sem verkfæri til þess að „losna við Stefán. Alþýðublaðið er málgagn jafnað- arstefnunnar og kemur það fram í leiðaraskrifum. Alþýðublaðið er hins vegar sjálfstætt og óháð fréttablað og vinnur sem slíkt að fréttaöflun og fréttaskrifum. Allir þankar utn pólitíska tengingu rit- stjórnar Alþýðublaðsins við frétta- skrif og pólitíska stýringu Alþýðu- flokksins á Álþýðublaðinu eru hug- arórar einir. Með þökk fyrir birtinguna. Ingólfur Margeirsson ritstjóri Alþýðublaðsins. MORSE CONTROL Stjórntæki fyrirvélarog gíra, spil o.fl. Stýrisvélarog stýri. Mikið úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og sverleikar af börkum. Fyrir allar vélategundir og bátagerðir. VÉLASALAN H.F. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122 Hagstætt verð - leitið upplýsinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.