Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 24
24
MOROUNBLAÐIÐ VIDSKIPri/AlVINNUIÍF 'P'RraJOCrAGOR 26. SEPTEMBER 1989
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
ÞORSKVEIÐI — Ef vel á að vera þarf að skera niður þorskveiðikvótann á stærstu miðum Kanada-
manna árið 1989 um meira en helming eða í 125 þúsund tonn.
Viðskiptatækni 128 klst.
Markaðstækni 60 klst.
Fjármálatækni 60 klst.
Sölutækni 36 klst.
Hringdu í síma 62 66 55 og fáðu sendan bækling
\f Viðskiptaskólinn
Borgartúni 24, s í m i 6 2 6 6 5 5
•>
MARKAÐS-
TÆKNI
Hvernig nærð þú
bestum árangri í
markaðsstarfmu ?
Markaðstækni er hagnýtt nám í markaðs- og sölu-
fræðum sem er einkum ætlað núverandi og verð-
andi markaðsstjórum. Markaðstækni er einnig
afar hentug fyrir þá stjórnendur og forráðamenn
fyrirtækja sem ekki hafa hlotið formlega menntun
í markaðs- eða sölufræðum.
Á námskeiðinu er kennt eftirfarandi:
- Grunnatriði í markaðsmálum.
- Vöruhugtakið og vöruþróun.
- Verðlagning.
- Auglýsingar, sölumennska og
kynningarstarfsemi.
- Val dreifileiða.
- Markaðsáætlanir og stjórnun
markaðsstarfseminnar.
Námskeiðið er 60 klst. og spannar 4 VEKUR.
Allt námsefni er á íslensku og sérstaklega samið fyrir
Viðskiptaskólann. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við
15-20 manns. Kennarar á Markaðstækni-námskeiðinu eru
allir sérmenntaðir í markaðsmálum.
Kennt er 4 daga í viku, 4 tíma í senn.
Námskeiðið hefst 16. október.
Námskeiðsgjald er kr. 48.600,-
Hringdu og fáðu sendan bækling.
% ViÖskiptaskólinn
Borgartúni 24, sími 62 66 55
Sjávarútvegur
Kanadamönnum ráðlagt að
minnka þorskveiðar um helming
Ofmat á nýliðun stofnsins hefur leitt til ofveiði
EFTIR að Kanadastjórn tók við
þorskveiðistjórnun á stærstu
miðum vð Nýfundnaland fyrir
rúmum áratug lét sjávarút.vegs-
ráðuneytið gera áætlanir um að
byggja upp fiskstofnana á ný eft-
ir nær takmarkalausa ofveiði sjö-
unda áratugarins.
í kjölfar þeirra óx þorskveiði
Kanadamanna á ný, úr 135 þúsund
tonnum árið 1978 í 266 þúsund
tonn árlega 1984-88. Snemma á
þessu ári kom það aftur á móti
smám saman í ljós, að fiskveiðispár
Success
GUARANTEED jn, ifY,
PERfECIIN Irlrt*
15 MINUTES nklVV
Brown&WitdRice
flavoroi BrvH'/i t'r W/W Rkc wllh Mutftrviinif
Bráðskemmtilegurhnetu-
keimurersérkenniþessa
hrísgrjónaréttar. Blanda af
villi- og brúnum hrísgrjónum
með ekta sveppabitum og
ferskri kryddblöndu. Bragð-
gott meðlæti með öllum mat.
Fyrir 4 - suðutimi 1 5 mín.
Heildsölubirgðin
KARL K. KARLSSON&GO.
Skúlatúni 4, Rcykjavík, sími 62 32 32
undanfarinna ára hefðu verið of
bjartsýnar. Utreikningar hefðu of-
metið bæði stærð veiðistofnsins og
hrygningarstofnsins svo um mun-
aði.
Til þess að fyrri áætlanir um
uppbyggingu stofnsins næðu fram
að ganga þyrfti því að skera niður
þorskveiðikvótann á stærstu miðum
árið 1989 um meira en helming, í
aðeins 125 þúsund tonn. Á síðast-
liðnu ári höfðu fiskifræðingar hins
vegar talið að óhætt væri að veiða
rúm 290 þúsund tonn af þorski.
Vísindi á villigötum
Ráðgjafanefnd á vegum ráðu-
neytisins hefur viðurkennt ýmsar
ástæður fyrir töfræðilegum mistök-
um sínum. Gögnin sem notuð voru
til útreikninganna náðu ekki yfir
nægilega langt tímabil, veiðitölur
fengnar frá fiskveiðiflotanum voru
ekki traustar, treyst var um of á
upplýsingar frá rannsóknarferðum,
auk þess sem nýliðun stofnsins var
Iakari en vænst hafði verið.
Nefndin gerði sér líka grein fyrir
því að svo mikil minnkun á þorsk-
veiðum hefði hrikalegar afleiðingar
fyrir efnahag og félagslega velferð
nærliggjandi byggðarlaga sem
byggja afkomu sína að verulega eða
öllu leyti á sjávarútvegi. Á Ný-
fundnalandi hefur atvinnuleysi um
langt skeið verið margfalt á við
landsmeðaltal, eða milli 20 og 30%,
og færi síst minnkandi ef til stór-
felldrar skerðingar þorskaflans
kæmi.
Því er lagt til að farin verði ein-
hver millileið, t.d. að þorskveiði-
kvótinn á þessum slóðum verði á
þessu ári um 190 þúsund tonn, eða
mitt á milli þess sem vísindamenn-
irnir mæla með og árlegrar veiði
undanfarinna ára:
Að þessu segist fylkisstjórn Ný-
fundnalands sam ekki geta gengið,
en leggur í staðinn til að kvóti verði
235 þúsund tonn á þessu ári, sem
ætti að nægja til að viðhalda stofn-
inum á núverandi stærð. Til þess
að hægt verði að ganga svo langt,
krefjast Nýfundnalendingar opin-
berra yfirheyrslna, þannig að fiski-
menn og aðrir hagsmunaaðilar geti
tjáð sig um málið. Þeir setja líka
það skilyrði, að Frakkar, sem eiga
tvær smáeyjar við suðurströnd fylk-
isins, fái engan þorskveiðikvóta og
að minnkun veiðinnar komi fyrst
og fremst niður á hinum fylkjunum
við Atlantshafsströnd Kanada.
TÖCVUSKÓU STJÓRNUNARFÉLAQS ISLANDS *
tölvuskólarA
TÖCVUSKÓU QlSLA J. JOHNSEN
Þú getur hannað
fréttabréf, auglýsingar,
handbækur,
eyðublöð o.fl.
2. - 6. okt.
kl. 13.00-17.00
í Ánanaustum 15, Reykjavík
Leiðbeinandi: Jón B. Georgson
SKRÁHING í SÍMUM 621066 og 641222.
VERKSTJÓRN- grunnnámskeið
Námskeið ætlað nýjum stjórnendum og þeim sem vilja
bæta stjórnunarstarf sitt. Markmiðið er að þátttakendur
læri að beita grundvallarþáttum stjórnunar,
sem notaðir eru við stjórnun í öllum starfsgreinum.
Námskeiöinu er skipt í fimm meginþætti:
- Mannleg samskipti og samvinna séö frá sjónarhóli stjórnandans.
- verkstjórn og vinnutækni.
- Verkskipulagning og tímastjórnun.
- Vinnuhagræðing.
- Öryggismál og vinnuvernd.
Kennt er á Iðntæknistofnun íslands,
dagana4.-7. okt. 1989.45 kennslu-
stundir. Framhaldsnámskeið
15.-18. nóv. Upplýsingar og skrán-
ing í síma 91- 68 7000.
Leiðbeinendur:
Ágúst Þorsteinsson, Björk Pálsdóttir,
Emil Thóroddsen, Ingvar Kristins-
son, Sigþór Karlsson og Þórður M.
Þóröarson.
lóntæknistofnun
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
1
<
E
E
<u
8