Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26.'SÉPTEMBER 1989 Næg atvinna í Hrísey út árið NÆG atvinna hefur verið í Hrísey það sem af er þessu ári og útlit fyrir að svo verði fram —til áramóta. Um fimmtíu manns starfa nú við frystihúsið, nánast allt heimamenn, en mjög mikið er um að fólk víða af landinu spyrjist fyrir um vinnu. Guðjón Jónsson sveitarstjóri Akureyrarkirkja: Tónleikar Almut Rössler ÁLMUT Rössler orgelleikari heldur tónleika í Akureyrar- S kirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, og hefjast þeir kl. 20.30. Almut Rössler gegnir kantor- starfi við Jóharinesarkirkjuna í Diisseldorf og er orgelprófessor við tónlistarháskólann þar í borg. Hún hefur ásamt öðrum staðið fyrir umfangsmiklum Messiaen-hátíðum í Dússeldorf og skrifað bækur og greinar um orgeltónlist tónskálds- ins. Þykir hún einn fremsti túlkandi verka eftir Messiaen og hefur leikið öll prgelverk hans inn á hljómplötur. . Á efnisskránni eru verk eftir J.S. Bach og Oliver Messiaen. Almut Rössler er hér á vegum Göete- institut, Musica nova, listvinafélags Hallgrímskirkju og Akureyrar- kirkju. Kapella Akur- eyrarkirkju: Erindi um trúarlega mótun barna TRÚARLEG áhrif og frum- félagsmótun er heiti á erindi sem dr. Pétur Pétursson flytur í kapeliu Akureyrarkirkju næstkomandi fimmtudags- kvöld kl. 20.30. Dr. Pétur er fæddur og uppal- inn á Akureyri, sonur hjónanna Péturs Sigurgeirssonar biskups og Sólveigar Ásgeirsdóttur. Hann stundaði nám í trúarlífs félagsfræði í Svíþjóð og varði doktorsritgerð í þeirri grein. Hann er nú háskólakennari í Lundi í Svíþjóð. í fréttatilkynningu segir að öld fram af öld hafi kynslóðirnar miðlað börnum sínum trúararfi sem reynst hafi ómetanlegur og sjaldan hafi verið meiri þörf á því en nú að hinir ungu í landinu eignist þann fjársjóð sem fólginn er í trúnni. Nauðsynlegt sé því að hafa mótandi áhrif á börn og láta ekki arf kristinnar trúar týnast úr veganesi hinna ungu. Þess er sérstaklega vænst að kennarar, fóstrur, foreldrar og prestar fjölmenni. auglýsingor Wéiagsúf I.O.O.F. R.b. 1 = 1399268 - I.O.O.F. 8 = 1719278V2 = □ EDDA 59892697 Kosning Stm. .... i i ■ ......... Fjhst. sagði að atvinnuástand hefði verið mjög gott það sem af er ári. „Mér sýnist á öllu að þetta verði í fína lagi fram að áramótum. Stóran hluta ársins hefur verið mjög mik- il vinna hér í Hrísey," sagði Guð- jón. I sumar hafa verið í byggingu eitt einbýlishús og iðnaðarhúsnæði og nýlega urðu báðar þessar bygg- ingar fokheldar. Guðjón sagði að enn væri næg vinna fyrir iðnaðar- menn því eftir útivertíð væri mikið eftir ógert inni við. Þá er einnig unnið við hluta af nýju skólabygg- ingunni, en þar er verið að inn- rétta kennslustofu og geymslur. Jóhann Þór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri frystihússins, sagði allt útlit fyrir næga vinnu á frysti- húsinu fram til áramóta. Súlnafel- lið á eftir að veiða á milli fjögur til fimm hundruð tonn af blönduð- um afla, en Sólfellið er að búa sig undir síldveiðar. Gert er ráð fyrir að aflinn verði fluttur um borð í Snæfellið þar sem hann verður frystur. „Við hrósum okkur svo sem ekki af þeim kvóta sem við eigum eftir, en hann nægir okk- úr,“ sagði Jóhann Þór. Um fimmtíu manns vinna nú við frystihúsið, svo til allt heima- menn. Jóhann Þór sagði að aldrei hefði verið jafnmikið um að fólk hringdi og spyrðist fyrir um vinnu og væri þar um að ræða fólk víða af landinu. Það væri hins vegar ekki meiningin að ráða aðkomu- fólk til vinnu nema mjög takmark- að. „Það getur verið að við ráðum eitthvað af karlmönnum, en það verður lítið um það.“ Morgunblaðið/Rúnar Þór Kennarar á haustþingi BKNE voru áhugasamir um námskeið í silkimálun. Á myndinni eru Soffia, Omar, Sigrún Olafur, Iðunn, Ingibjörg, sem umsjón hafði með námskeiðinu og Ragnheiður. Á nám- skeiðinu var farið yfir grunnatriði varðandi silkimálun. Haustþing BKNE: Fyrirlestur um aga og hegðun vakti mikla athygli kennara Jón Eyflörð nýr formaður BKNE ÞING Bandalags kennara á Norðurlandi eystra var haldið á Stórutjörnum í Ljósavatns- hreppi fyrir helgi. Á aðalfundi BKNE sem haldinn var á fimmtudag urðu formannaskipti, Jón Eyfjörð kennari í Glerár- skóla á Akuröyri tók við af Þó- runni Sighvatsdóttur kennara í Lundarskóla sem gegndi for- mennsku síðasta ári. Hólmíríður Guðmundsdóttir kennari í Þela- merkurskóla var kosin vara- formaður. Á aðalfundi Félag skólasljóra og yfirkennara var lét Þórunn Bergsdóttir skóla- sljóri Dalvíkurskóla af störfúm formanns og við tók Svanhildur Hermannsdóttir skólastjóri Barnaskóla Bárðdæla. Þingið sóttu um 250 kennarar, að sögn Jóns Eyfjörð formanns BKNE. Þingið er fyrst og fremst fagþing og var boðið upp á fjöl- marga fyrirlestra og námskeið að venju. Fyrirlestrar Sólveigar Ás- grímsdóttur sálfræðings um aga og hegðun og Hreins Pálssonar um barnaheimspeki voru afar vel sóttir og luku kennarar á þá miklu lofs- orði. Á vegum BKNE, Fræðsluskrif- stofu Norðurlands eystra og Náms- gagnastofnunar var boðið upp á námskeið um tölvur í skólastarfi sem Peter Dunne hafði umsjón með, en þar var m.a. kynntur breskur kennsluforritunarpakki. Þá voru námskeið í leðuivinnu og silkimálun. Tveir fyrirlestrar voru haldnir í tengslum við málræktarátak sem nú er í gangi. Jónína Friðfinns- dóttir fjallaði um börn og bækur og Margrét Pálsdóttir um íslenskt mælt mál og framsögn. Þá fjallaði Minnie Eggertsdóttir um sér- kennslu á geðdeild. Tónmenntakennarár af svæðinu héldu með sér fund á þinginu, þar sem efnið tónmennt og tölvur var kynnt. Þá var fjallað um gildi tón- listar fyrir börn á sérstökum fræðslufundi og af íþróttasviðinu var jn.a. Ijallað um hvernig hægt er að mæla hreyfiþroska 6 ára barna og stuðningskennslu í íþrótt- Alþýðusamband Norðurlands: Stofnaður verði einn öflugur lífeyrissjóður á Norðurlandi Iðgjaldagreiðslur launþega á Norðurlandi í lífeyrissjóði nema á bilinu 1300-1700 milljónum króna á ári, en þar af renna einungis um 462 milljónir króna til lífeyrissjóða sem staðsettir eru á Norður- landi. Tíu lífeyrissjóðir eru starfandi á Norðurlandi og nemur rekstr- arkostnaður þeirra rúmum 30 milljónum króna. Kostnaður við rekst- ur sjóðanna á Norðurlandi er nokkuð misjafn, frá rúmum 6% upp í 19,5% þar sem hann er mestur. Ef rekstrarkostnaður væri um 3% af iðgjaldagreiðslum, sem eðlilegt er talið, lækkaði rekstrarkostnað- ur sjóðanna úr 30 milljónuin í 14 milljónir króna. Þessar upplýsingar komu fram á gerði rekstrarkostnað sjóðanna að þingi Alþýðusambands Norðurlands sem haldið var á Illugastöðum í Fnjóskadal um helgina. I ályktun um málefni lífeyrissjóðanna sem samþykkt var á þinginu voru launa- menn á Norðurlandi, stjórnir verka- lýðsfélaganna og lífeyrissjóðanna hvattir til að vinna ötullega að sam- einingu lífeyrissjóðanna á Norður- landi. „Sameiningin skal hafa það að markmiði að stofnaður verði einn öfiugur lífeyrissjóður er nái til alls Norðurlands og taki til a.m.k. allra þeirra launamanna á Norðurlandi sem starfa á samningssviði Al- þýðusambands íslands,“ segir í ályktuninni. Kári Arnór Kárason, forstöðu- maður Lífeyrissjóðsins Bjargar á Húsavík, hafði framsögu um lífeyr- ismál á þinginu. í máli hans kom fram að lífeyrissjóðirnir eru margir og smáir, en alls eru starfandi tíu lífeyrissjóðir á Norðurlandi. Kári umtalsefni og sagði að stærstu sjóð- irnir færu með 2-4% af iðgjaldatekj- um í rekstur og miðlungsstórir með um 6-8%, en þeir smæstu enn meira. Rekstrarkostnaður sjóðanna á Norðurlandi er á bilinu rúmlega 6% og upp í 19,5% þar sem hann er mestur. Þetta sagði Kári skipta miklu máli ef sjóðirnir eiga að geta staðið við skuldbindingar og greitt þann lífeyri sem þeir lofa að gera. Því væri það ekki síst hagsmunir sjóðfélaga smærri sjóðanna sem þungt vega í þessu sambandi, stærri einingar sköpuðu meira öryggi. Rekstrarkostnaður sjóðanna á Norðurlandi er nú rúmar 30 milljón- ir króna á ári, en ef hægt yrði að ná kostnaði við rekstur sjóðanna niðut' í um 3%, sem Kári taldi eðli- legt, yrði kostnaðurinn um 14 millj- ónir króna. Launamenn á Norðurlandi greiða á bilinu 1300-1700 milljónir króna áriega; í iðgjöld og þar af fer tæpur milljarður til lífeyrissjóða á höfuð- borgarsvæðinu. Kári sagði að með einum stórum sjóði sköpuðust möguleikar til að beita því mikla valdi sem yfirráð yfir svo miklu fjár- magni hefði í för með sér, og þá í byggðapólitískum tilgangi. Norð- lendingar yrðu einnig betur í stakk búnir til að krefjast betri þjónustu af hinu opinbera, t.d. með þeim hætti að ýmis útibú frá opinberum stofnunum yrðu í fjórðungnum. Á þinginu var samþykkt að stofna nefnd sem afla á ítarlegra upplýsinga um stöðu lífeyrissjóða á Norðurlandi og gera tillögur um framtíðarskipan þessara mála. Stefnt er að því að nefndin skili áliti árið 1990 og boðað yrði til aukaþings AN um haustið það ár er tæki tillögur nefndarinnar til umræðu og afgreiðslu. Lögregla: Dyravörður rotaður Talsvert um rúðubrot að undanförnu NOKKUR órói var í mönnum um helgina, að sögn lögreglu og tals- vert um stympingar. Til átaka kom í anddyri Sjallans aðfara- nótt sunnudags og var einn af dyravörðum Sjallans rotaður. Var hann fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en fékk að fara heim næsta morgun. Töluvert hefur verið um rúðu- brot, einkum í miðbæ Akureyrar, að undanförnu. Um helgina var brotin stór rúða í Útvegsbankanum, en áður hafa verið brotnar stórar rúður í íþróttahúsinu við Laugagöfy í Herradeild KEA og í tískuverslun- unum Fan Uniqe og Akurliljunni. Flest rúðubrotamálanna eru óupp- lýst og eru þeir sem upplýsingar geta gefið beðnir að hafa samband við rannsóknarlögreglu. Um helgina var brotist inn í sund- laugina á Dalvík og einnig inn á billjardstofu. Ekki hafðist mikið upp úr krafsinu, en eitthvað smávegis af peningum hvarf á báðum stöðum. Að sögn rannsóknarlögreglu hefur verið brotist inn á nokkra staði á Dalvík á síðustu dögum. Málin eru j rannsókn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.