Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 38
MÖRGUNBLÁÐIÖ ÞRÍÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1989
Hjá okkur færðu einhveija þá bestu kennslu sem
völ er á í tölvu- og viðskiptagreinum.
Við kennum á tölvubúnað sem notaður er hjá
helstu fyrirtækjum landsins.
Einn nemandi um hverja tölvu og fámennir
hópar, tryggja hámarks árangur og tímanýtingu.
Betra verð og góð greiðslukjör.
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Patreksfi örður:
Yiðræður um hlutaíjáraukningu
og breytta eignaraðild að Odda hf.
^HREPPSNEFND PatreksQarðar ákvað á fundi á fimmtudagskvöld
'að ganga til samninga við fyrirtækið Odda hf. um opnun Odda fyrir
auknu hlutafé og breyttri eignaraðild.
Úlfar B. Thorodssen, sveitarstjóri
Patreksfjarðar, sagði að fyrir lið-
lega viku síðan hefði komið tilboð
frá Jóni Magnússyni, eiganda fisk-
vinnslunnar Odda, um viðræður um
opnun Odda á þennan hátt. Málið
hefði verið rætt í hreppsnefnd og
þar samþykkt að setja tvo hrepps-
nefndarmenn í viðræður við stjórn
Odda um þessi mál. „Þær viðræður
leiddu til þeirrar niðurstöðu að for-
ráðamenn Odda upplýstu að þeir
væru tilbúnir til að Ieggja félagið
fram í nýtt og stærra fyrirtæki,"
sagði Úlfar. „Þá urðu aðilar sam-
mála um að hluti þeirra samninga-
Viðræðna væri að fá tvo aðila frá
hvorum hópnum til að meta eignir
og búnað Odda hf. og var það sajn-
þykkt á fundi hreppsnefndar á
fimmtudagskvöld."
Hann sagði að framundan væru
samningaviðræður milli fulltrúa
Skrifstofutækninám
hreppsins og fulltrúa Odda. Oddi
hf. er í dag með fiskvinnslu einkum
saltfisk en einnig -einhvetja fryst-
ingu. Markmið hins nýja fyrirtækis
sagði Úlfar meðal annars verða að
auka frystingu Odda og alla aðstöðu
sem fyrirtækið hefði til slíks. „í
þessu félagi er mikil eign og styrk-
ur sem yað hugmyndin er að nýta
til frekari viðfangsefna." Um hugs-
anlega aðstoð ríkisins sagði hann
að það sæjist ekki fyrir í svipinn
hvers væri að vænta frá Hlutafjár-
sjóði í hlutafjárframlagi. Það væri
óskrifað blað.
Aðspurður um hugsanleg báta-
kaup Patreksfirðinga sagði hann
þau mál vera í biðstöðu meðan ver-
ið væri að ganga frá þessu máli.
Hann sagðist heldur ekkert geta
tjáð sig um málefni frystihússins á
Patreksfirði en það verður boðið
upp á mánudag.
Reykhólasveit:
Andakíll:
Danskir bændur í
náms og kynnisferð
Hvannatúni.
NYLEGA voru staddir hér á landi danskir sauðíjárbændur í náms-
og kynnisferð. Sennilega er þetta í fyrsta sinn sem Danir setjast á
skólabekk í íslenskum bændaskóla.
Runólfur Sigursveinsson, endur-
menntunarstjóri, skipulagði dvöl
þeirra hér fyrir Bændaskólann á
Hvanneyri. Þeir hlýddu á fyrirlestur
_>Sveins Hallgrímssonar skólastjóra
þegar fréttaritara bar að garði og
síðan tóku við þeir dr. Sigurgeir
Þorgeirsson og Stefán Scheving
Thorsteinsson. Allir þrír eru fremst-
ir í fræðum sauðfjárræktarinnar hér
á landi.
Sauðfjárbændur nefna sig 25 úr
þessum 35 manna hópi og koma á
vegum endurmenntunardeildar Dal-
um-búnaðarskólans á Fjóni. Þeir
hlýddu á fleiri fyrirlestra á Hvann-
eyri og héldu síðan áfram kynnisför
sinni, m.a. í Oddsstaðarétt, til-
raunabúið á Hesti, sútunarverk-
smiðju á Sauðárkróki, réttir í
Skagafirði og bændabýli. Þá heim-
sótti hópurinn Gunnarsholt á Rang-
árvöllum og ferðamannastaði á
Suðurlandi.
Ef áhugi er fyrir hendi hjá
íslenskum bændum er möguleiki á
áframhaldandi tengslum við Dal-
um-bændaskólann og endurgjalda
heimsókn þessa. Runólfur nefndi í
því sambandi svínabændur, sem .
hugsanlega gætu notið góðs af
þessu samstarfi. - D.J.
ÆR með lamb
úr Borgarfírði í
KrossQ arðarnes
Mióhúsum.
ÆR MEÐ lamb kom að Bakka í
Geiradal í haust og reyndist hún
vera frá Refstöðum í Hálsasveit
í Borgarfirði. Samkvæmt upplýs-
ingum Dagbjarts Dagbjartssonar
bónda á Refsstöðum var ærin 6
vetra og flutti Dagbjartur ána
áleiðis að Arnarvatnsheiði og
sleppti hann á og iambi fyrir
framan Surtshelli. Ætla má að
ærin hafi ætlað í sína sumarliaga
en eins og kunnugt er, voru snjó-
þyngsli mikil í vetur og því líkur
á því að haglendi hafi verið lítið
gróið.
Ætla má að ærin hafi leitað nýrra
beitilanda og tapað áttum og hefur
hún ásamt lambi farið a.m.k. yfir
4 varnarlínur sauðfjáiveikivarna.
Ætla má að ærin hafi farið yfir
girðingarnar á snjó, hins vegar
sagði Dagbjartur að ærin hafi verið
létt á sér og hefðu því hindranir
eins og þessar girðingai1, vart tafið
för hennar. Bein loftlína úr Hálsa-
sveit í Krossfjarðarnes er um 104
km en í sláturhúsinu þar enduðu
ærin og lambið iíf sitt.
- Sveinn
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Ófá stökkin hefur heimasæta Árna Kópssonar tekið fyrir framan
áhorfendur sem hafa skipt þúsundum í sumar á torfærumótum.
Torfæran í Jósepsdal:
Tvöfaldir meistarar og
Islandsmet í jeppaflugi
„EG HEF þurft að hafa mikið fynr þessu og heíúr talsvert af aurum
farið í þetta dæmi. I fyrstu keppninni vissi ég ekki hvort ég færi
afturábak eða áfram á nýsmíðuðu ökutækinu, en komst svo á fullan
skrið. Tækið skilaði mér til sigurs í öllum mótum nema tveimur,“
sagði Árni Kópsson í samtali við Morgunblaðið. Hann vann um
helgina bikarmeistarakeppni Jeppaklúbbs Reykjavíkur í síðustu
torfærukeppni ársins, en hafði helgina áður tryggt sér Islandsmeist-
aratitilinn í flokki sérútibúinna jeppa. Einnig varð Stefán Gunnars-
son tvöfaldur meis.ari í flokki „standard“-jeppa og vann sinn flokk
í keppninni á laugardaginn, sem
Árni Kópsson smíðaði fyrir
keppnistímabilið sannkallað furðu-
tæki,_sem hann kallar Heimasæt-
una. í fyrstu leist mönnum ekkert
á gripinn sem líktist ekki jeppa,
en þegar hver sigurinn af öðrum
leit dagsins ljós fóru fleiri að smíða
álíka tæki. „Ég átti alveg eins von
á þvt að aðrir myndu ganga á lag-
ið og smíða sams konar bíl,“ sagði
Árni. „En þetta er eins og með
tölvur, það er auðvelt að smíða
kassann, en það er innvolsið sem
verður að virka. Öll hlutföll verða
að vera rétt og hlutirnir í lagi og
ég held að minn bíll sé eins góður
og hann getur mögulega orðið.
Hann hefur skilað sínu, leyst marg-
ar erfiðar þrautir. Ég hef lært það
að hika er sama og að tapa í tor-
færu og þetta óvænta sem alltaf
er viðloðandi svona akstur er það
sem ég lifi fyrir,“ sagði Árni.
Annar harður ökumaður setti
svip á keppnina um helgina. Gunn-
ar Guðmundsson setti íslandsmet
í jeppaflugi á Willys sínum. Hann
sveif 19.70 metra fram af trépalli
og og sló eldra met Sturlu Jónsson-
ar. „Ég var nú hálf ragur í fyrstu
tilraun, en lét síðan vaða í þeirri
seinni og fór fram af pallinum á
120 km hraða. Þetta er náttúrulega
ævintýramennska, en jeppar eiga
þola svona stökk. Hinsvegar var
bremsukafiinn of stuttur og ég Ienti
ofaní hvarfi skömmu eftir lendingu
og hélt að hausinn fyki af því högg-
ið var svo mikið. Þetta slapp þó
og ,það er gaman að hafa sett nýtt
met,“ sagði Gunnar.
fram fór í slæmu veðri.
Urslit í torfærunni
Flokkur sérútbúinna stig
1. Árni Kópsson (Heimasæta
(grind) 2655
2. Jón S. Halldórsson Jeepster 2135
3. Ásm. Guðmansson Ford 42 1700
4. Benedikt Eiríksson Willys 1645
5. Haraldur Ásgeirsson Jeepster
„Standard“-flokkur 825
1. Stefán Gunnarsson Willys 2745
2. Trausti Sigvaldason Willys 2735
3. Ríkh. Jónasson Ford 42 26809
4. RafnGuðjónssonWillys 2155
5. Gunnar P. Pétursson Willys 2510
Árni Kópsson er íslands- og
bikarmeistari í torfæruakstri
sérútbúinna torfærujeppa.
Hann er búsettur á Bíldudal.
íslandsmet í jeppallugi. Gunnar Guðmundsson sveif 19.70 metra
á Willys og hirti 70.000 króna verðlaun fyrir ómakið.