Morgunblaðið - 01.10.1989, Síða 6

Morgunblaðið - 01.10.1989, Síða 6
6 G (j8Gt flaaöTSö .i HuoAauvtvtus aicíAjaviuoHOM, MORGUNBLAÐIÐ' SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1989 hjá afgangnum af rússanum. Olgeir ávarpaði Einar innvirðulega með þessum orðum: „Já, komdu nú bless- aður Einar, það hefði nú eiginlega verið betra ef þú hefðir farið út af svona eins og seytján metrum ofar. Já, en þú hefur náttúrulega ekki haft tíma til að athuga það.“ Á einhvern óljósan hátt höfðu þeir að drösla rússanum heim að Götu. Heimkominn með þennan fyrrver- andi eðalvagn hóf Einar að vappa heldur ábúðarmikill í kring um leif- arnar af bifreiðinni, en áréttað skal að bifreiðin var töluvert útlitsgölluð. Varð þá Þorsteini, sem var hátt í það tengdasonur Einars, að orði: „Heldur þú að þú getir lagað bílinn Einar?“ „Bílinn?" svaraði Einar að bragði, „einhvern veginn hefur hann verið smíðaður." Óþarft er að fara um þetta fleiri orðum, en bifreiðin var ökufær ótrúlega lengi eftir þennan dag. Eftir þriggja sólarhringa törn í nágrenni Landmannalauga var féð rekið að Landmannahelli í íjallið Sátu, en fjallmenn tóku sér bólstað í sæluhúsinu þar sem reimt þykir og tilþrifamikið ef svo ber undir. Hinn góði andi fjallmanna varð þó í engu vísu í sínum stíl: /Laung er nótt þá lægst fer sói /þótt lýsi af stjörnu- bránum. /Halda að venju heilög jól, /hrútamir í ánum. Nauðsynlegt að nota afréttinn í hófi Spilastokkur þessarar ágætu fjall- ferðar stokkaðist vel. Það var blúss- andi kraftur í mannskapnum og lífsins kómidí fékk að leika lausum hala. Meira að segja þeir bröttu í orðfæri fóru aldrei yfir 7 vindstigin. Loftur í Neðra-Seli sem er þekktur fyrir að hnýta upp ærlega íslensku með tvinni og skurði komst nú lengst er það fauk í hann þegar Pálmi á Læk' tvístraði rollum hjá honum í rekstri. Loftur hrópaði á eftir Pálma, en hann heyrði ekkert inni í bílnum og langt á braut. Þá sneri Loftur sér að Hildi dóttur Pálma og sagði: „Er pabbi þinn orðinn eitthvað bilaður?" Minna gat það nú ekki verið. Það voru oft skemmtilegar hnýtingar milli bílstjóranna og þeir gerðu góð- látlegt grín hver að öðrum. í ákveð- inni tónhæð lýsti Olgeir öllum fjar- skiptabúnaði Einars í Götu og sagði að hann gæti ugglaust haft samband við Gufunes og talað síðan við sjálfan Út úr sandstorminum. Þórður í Köldukinn við rétt- arhliðið, sótsvartur af sand- stormi eftir fjárreksturinn. virtist heiðin-ómennilegri þegar ekk- ert var þar fé. „Mér finnst nauðsynlegt að sveita- menn noti afréttinn í hófi,“ sagði Kristinn í Skarði, „það má alls ekki misbjóða landinu, en ekki heldur vanvirða það með því að láta það vera eins og það sé aðeins til þess að horfa á. Það er miklu jákvæðara ef sveitamenn geta notað landið með varfærni og virðingu, enda eiga eng- ir eins mikið undir því komið og sveitamenn að landinu sé ekki mis- boðið og því á þeim að vera best treystandi fyrir.því. Afrétturinn er aðeins hluti af hinu daglega brauði í mannlífsbaráttunni og það á að vera auðvelt að vinna á ásættanleg- um grunni fyrir alla. Allt þarf þetta að vera með skilningi og skynsemi og alveg eins og féð rennur saman af fjalli þarf þéttbýlisfólk og sveita- fólk að starfa saman. Ég tel til dæm- truflaður. Landmannahellir er mó- bergshellir í fjallsrana Hellisíjalls sunnan við Löðmund. Þetta er nærri 15 metra langur hellir, nær 10 metra breiður og 4 metra hár. Var hann lengi notaður sem gististaður af fjall- mönnum. Við Landmannahelli rifj- uðu menn upp vísur sem gerðar voru þegar fjallmenn hittu eitt sinn hóp tannlækna og kennara á fjalli og farið var í gátukeppni þar sem ákveð- ið orð var gefið, en síðan átti að gera vísuna sem vekti spurningu. Fjallmenn Land- og Holtamanna unnu átakalaust með vísum Þórðar. Ein um „kökukefli" hljóðar svo: /Snýst í hringi snemma og seint, /sniðugt kefli laust við tál. /Hiklaust leysir hreint og beint /hjónabandsins vandamál. Önnur var um „gæsalapp- ir“: /Lenda á blaði létt og pent /lið- ugt meður kommum tveim /gefa orðum gagn og mennt /en gæsir bara labba á þeim.Sú þriðja var um kóng: Dinglast oft með drottningu /dregst um kirtill síður, /lofaður af lofnunum /ef liðugt fer í slíður. Eitt kvöldið þegar lagið var tekið sat Olgeir viponstjóri á rúmstokknum milli matráðskvennanna. Þá orti Þórður: /Olgeir tel ég mætan mann /má það dável segja. /Mikrófóninn mundar hann /milli !hreinna meyja. /Það Olgeir telur ekta sess /ekki er héma nein sorg. /Hvíar Sigrún kát og hress, /hvar er penninn, Vilborg. /Pennann fundu píumar, /þær prýði- lega una. /Olgeir var nú enda snar /að auka standbylgjuna. /Olgeir sýnist enda best /að una nálægt konum, /hyggur hann að henti best /að hætta Ijarskiptonum. En Þórður var kominn á skrið og þá var ekki að sökum að spyija. Það rigndi vísum: /Satt og rétt ég segja má /sífellt aukast væntingar, /þrjótum er ég þeysi frá /þegar eru kosningar. /Ráðskonumar reyndust tvær /reyndar gerðist ýmislegt, /fíringuna fundu þær /það fer að verða svaka- legt. Og Þórður hnykkti á með jóla- Náttúruundur. Menn nutu þess að fara í heitu laugamar á háfjöllum að loknum löngum vinnudegi. sig í gegn um aðra talstöð. Og Þórð- ur orti: Einar beitir orku og snilld /ekki skaltu rengja mig. /Tilsvör verða tæpast mild /er talar hann við sjálfan sig. En þetta var allt í góðu, fótmál fyrir fótmál mjakaðist verk- efnið og veðrið lék við hvurn sinn fíngur eins og skáldið sagði. Við fengum öll veður eins og vera bar, en í heild gott veður. Reksturinn í réttina í Áfangagili var skemmtileg- ur þótt sandstormur væri nokkur, sjö klukkustunda rekstur, en mikið Við Landmannahelli. Fjalimenn á Landmannaafrétti 1989 ásamt hluta af reiðskjótum. is að það sé mjög af hinu góða að sveitafólk taki börn í sveit, betri kynningu fáum við e_kki.“ Það var góð stemmning í Áfangagilsrétt, spjallað og gantast og nokkur lög voru tekin á seinna fallinu. Margt manna kom í réttina. Þar voru með- al annarra Kolbeinn í Höfn á Sel- fossi og Bjöm Sigurðsson, nýbakaður bankastjóri á Hellu, og Þórður orti: /í réttirnar var ferðin fín, /af fé og meyjum skari, /svo birtist hér með brennivín /bankastjórinn snari. En endapunkturinn á sérhverri fjallferð er réttarball og sá þáttur var tekinn með trukki í Brúarlundi, félagsheimili Landmanna. Þar var mikil stemmning og húsið titraði af hjartslætti fólksins. En allt tekur enda og nýir dagar verða að fá tíma til þess að vakna. Nábýli við Land- mannaafrétt í snörpum dansi fjall- manna er reynsla sem er gulls ígildí og sá er ekki samur maður er gjörir slíka ferð. Og Þórður orti: Alltaf þrái ég afréttinn inn til hlíða og dala anda frjálst á kinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.