Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER UR KVOSINHI í KRINGLUNA Guðrún sminkar Guðrúnu. Vigdís og Ragnar yfirsmiður bera saman bækur sínar. Myndin er tekin i ágúst 1973. HUS MINNINGANNA gærdaginn. Getur það verið að allur þessi heimur márgvíslegra leiksýn- inga, víður og stór, hafi komist fyrir á þessu leiksviði? Þennan morgun mældi ég það í fyrsta sinni í skref- um. Það er nákvæmlega 18 skréf nettlega stigin á þverveg og 12 skref sama eðlis inn að bakvegg. Og þá er það jafnframt augljóst að svæði búningaklefanna er af sömu stærð- argráðu, því það er, ásamt hár- greiðslurýminu, beint undir sviðinu, hvorki stærra né minna. Á þessu leiksviði höfum við íslend- ingar töfrað til okkar suðrænar slóð- ir sem austrænar eða vestrænar, þar hefur verið brugðið upp myndum sem standa okkur fjærst sem næst, úr fortíð heimsins og nútíð, af fyrndum tímum á íslandi við reisn eða ör- birgð, og vandamálanútíminn túlkað- ur jafnharðan: lifandi leikhús, betra umdeilt en óumdeilt, oftar vinsælt en óvinsælt, aldrei í lognmollu. Hvaða orðstír getur leikhús kosið sér betri mega þeir spyija sem hafa gef- ið því ævi sína og allan starfsdag. eftir Vigdísi Finnbogadóttur ÉG SKRAPP niður í Iðnó um daginn. Ég samdi við Hús-Jón um að fá að ganga ein um gamla leikbúsið okkar morgunstund. Jón var búinn að kveikja þegar _ ég kom í býtið, líkt og í gamla daga þegar ég kom þar til vinnu á svipuðum tíma og þeir bjá borginni, bandan við Vonar- strætið. Eins og fyrrum ríkti þessa sérstaka morgunró í gömlu Iðnó. Það lifnar aldrei yfir leik- húsdegi lyrr en kl. 10 árdegis, — af þeirri einföldu ástæðu að hon- um hefur ekki lokið íyrr en und- ir miðnætti kvöldið áður. Og leik- hús eru sérstæð á svo margan hátt. Engin hús verða t.d. þögl- ari. Það er eins og þessi hús orðs og athafna verði ímynd hrópandi þagnar þegar sviðið er autt og sæti og bekkir tómir. Allt var þarna með um- merkjum, salurinn, sviðið, búningsklefarn- ir. Salurinn stór í smæð sinni með grænum bekkjunum og svörtum veggjunum. í loftinu enn þessir skemmtilegu ljósaskermar sem piltarnir á leik- myndaverkstæðinu smiðuðu um árið úr blikkdósum þegar við ákváðum að hressa upp á salinn. Við vorum aldrei kvartsár hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó. Við gerðum það sem gera þurfti til að komast af. Það var ekkert sérstaklega verið að fjasa um það hve þessi sálur er þröngur, nema kannske hógværlega útskýrt þegar komu ókunnugir og við skynj- uðum að þeim kom smæðin á óvart í svo mikilvirku leikhúsi. Þá varð einnig að gera grein fyrir því að list- rænar hugsjónir þyrftu stundum að lúta honurn, að bæði hann og leik- sviðið settu frelsi um leikritaval endalausar skorður. Og það kom líka fyrir að okkur sárnaði eilítið þegar við vorum með góðar gangsýningar og gátum ekki fengið inn í aðgangs- tekjum sem svaraði kvöldsýningar- kostnaði enda þótt við seldum hvert það pláss í húsinu sem leyfilegt var fyrir áhorfendur skv. brunavarnalög- um. Einhveijum tíma eyddum við einnig í fundahöld og vangaveltur um hvað það kostaði að fórna þó ekki væri nema nokkrum sætum á fyrsta bekk fyrir leikmynd, byggða fram í salinn í þágu listrænnar heiid- ar leiksýningar, að ekki sé minnst á að fórna bekknum öllum eins og iðu- lega hefur komið fyrir. Þarna til hliðar mótar fyrir iilera í veggnum framan við sviðið til vinstri. Þá var einu sinni þegar liug- vitið um hvernig 'nýta mætti leik- möguleika tók á skeið að sagað var gat á vegginn svo leikari kæmist þar inn á sviðið úr leikmunakompunni á LEYNDABMÁL í LEDÍHÚSI eftir Kjartan Ragnarsson ÉG KOM iðulega inn í forstofuna í Iðnó til að fá að fara í skaut- ana. Jóna í miðasölunni leyfði mér ef það var mjög kalt að skipta um skó inni í hlýjunni. Þetf a var svo dularfullt og allt að því ógnvekjandi hús. Eg tala nú ekki um ef maður fékk að læðast í gegnum salinn og fara á klósettið. Myrkur, stundum skíma með skuggalegum leik- myndum uppi á óupplýstu svið- inu, ógnvekjandi stofum eða mál- uðu landslagi. En allt var það spennandi og hlaðið einhverri eftirvæntingu. Eg fékk að sjá eina leik- sýningu sem krakki í þessu húsi ævintýranna. Það var Grátsöngvarinn með Árna Tryggva í aðalhlutverkinu og_ Helgu Valtýs sem „prímadonnan". Eg varð auðvitað ástfanginn af Helgu og ákvað að verða svona leikari eins og Árni. Það var mikið óþoi í mér að kom- ast í leiklistarnám. Og haustið 1963, 18 ára gamall gekk ég inn í Iðnó-til að innritast í ieikiistarskóla Leik- félagsins. Ég held ég hafi verið heppinn með tímabilið þegar ég byijaði. Það voru afskaplega spennandi tímar hjá Leik- félaginu. Ekki alveg ólíkir því sem nú er að gerast inni í Borgarleik- húsi., Þetta voru þá mestu umbreyt- ingar sem höfðu orðið í sögu félags- ins fyrir utan stofnun Þjóðleikhúss- ins. Þetta haust byijaði húsið nefni- lega að starfa sem fuligilt atvinnu- leikhús. F’yrstu fastráðnu leikararnir voru að fara á samning og féiagið var að ráða í lýrsta sinn leikhús- stjóra. Leikhúsráð með fulltrúa Reykjavíkurborgar var að komast á laggirnar og styrkur frá borginni hækkaði verulega. Það var ungur maður sem var nýbúinn að ljúka leiklistarsögunámi erlendis, Sveinn Einarsson, sem var ráðinn leikhússtjóri. Hann var svo nýbyijaður að það var eitt af fyrstu verkunum hjá Sveini í þessum nýja starfa að skrifa þennan strák inn í leikskóla Leikfélagsins. Ég man þetta eins og það hafi gerst í gær. Þeir sátu saman í pínu kompu uppi á háalofti í Iðnó, Sveinn og Guð- mundur Pálsson. Maður smitaðist strax af eftirvæntingunni sem lá í loftinu. Og alltaf síðan hefur mér fundist að einhver óútskýrð tilhlökk- un og ákefð væri nauðsynleg í hveiju leikhúsi. Þetta skólahald var mjög ólíkt því sem Leiklistarskóli íslands er í dag. Skólinn var eftirmiðdagsskóli, en við fórum hins vegar fljótlega að vinna ýmis aukastörf niðri í Iðnó. Leikhús- fólk var þá þegar farið að finna þessu bakvið, og þar hefur margur stórleik- arinn mátt híma í keng með eyrun sperrt eftir replikkunni fyrir inn- komu. Þar er líka geymd trappan, sem liengd er á leiksviðið hvunndags, eins og kojustigi í skipi, fyrir þá sem ekki hoppa léttilega með sjálfan sig hæð Gunnars á Hlíðarenda upp á sviðið. Það hefur alltaf marrað notalega í þessari láusu tröppu. Fyrst á morgnana er leiksviðið einatt autt. Öll merki dagsins sem er liðinn, leik- munir sem leiktjöld, eru fjarlægð af sviðinu að lokinni sýningu að kvöldi, svo ferskur hugur nýs dags þurfi ekki að byija á því að taka til eftir Niðri í búningaklefum var einnig hljótt. Þar er lágt undir loft og kork- urinn á gólfinu í almenningi slitinn ofan í steinsteypu. Samkvæmt spegl- um og stólum við veggföst borð hef- ur hver leikari haft 60 em til umráða á breiddina, 9 konur í tveim kvenna- klefum og 12 karlar í fimm smás- konsum, og er hálfur annar metri frá dyrum inn að vegg. Ekki þarf að minna leikhúsgesti á að oft hafa verið á leiksviðinu í Iðnó fleiri en tveir tugir manna. Við kaffiborðið í almenningi rúmast átta mannverur í sæti, en það er líka hægt að standa bak við stólana og halla sér upp að veggjunum! Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson Frá Iokasýningu á Sveitasinfóníunni, sem jafnframt var síðasta sýn- ingin í Iðnó. skólafoi'mi margt til foráttu. Nem- endurnir væru í snatti í öllu milli himins og jarðar í leikhúsinu en gerðu minnst af að læra að leika. Þetta er að niörgu leyti rétt. En samt held ég að þessi mikla viðvera okkar í kring um listamennina á þessum árum hafi líka verið góður skóli. Og sennilega betri en maður hefur oft viljað viðurkenna í ákafanum við að beijast fyrir fullkomnara skólaformi fyrir leiklistarfólk. Ég var svo heppinn að ég fékk það starf með skólanum niðri í Iðnó að vera aðstoðarmaður Steinþórs Sigurðssonar við að útfæra leik- myndir. Það var ekki auðveldasti starfinn í leikhúsinu á þessum árum. Að sniíða og útfæra leikmyndir krefst húsnæðis. Félagið hafði enga smiðastofu á þessum árum. Og ba>ði smíði og- málningai'vinna fór fram á nóttunni uppi á sviðinu sjálfu. „Þú segir ekki leikurunum hvar við feng- um greinarnar í skóginn," sagði Steinþór ákveðinn, þegar við eina nóttina vorum að gera rússneskan skógarlund fyrir Vanja frænda. Við vorum komnir með megnið af því sem hafði verið grisjað og höggvið úr gamla kirkjuga((ðinum það vorið. Þetta liengdum við svo upp á sviðinu í Iðnó. Allir íslendingar eru hjátrúar- fullir. En ég held samt engir eins og leikarar. Þau i Vanja fengu aldr- ei að vita þetta og ekki bar á öðru en að sýningin gengi vel. Þetta er sennilega eitt af fáum leyndarmálum í leikhúsi sem ég hef getað þagað yfir fram á þennan dag. Áliuginn var svo mikill að ég man að ég tók minn fyrsta starfa í leik- húsi með mikilli andakt, en það var að vera „páklæder" hjá Erlingi Gísla- syni í „Sunnudegi í New York“. Mér þótti þá hinn mesti sómi að fá að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.