Morgunblaðið - 15.10.1989, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.10.1989, Qupperneq 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER LOGFRÆDI/£r skilnabur leid til ad koma eignum undan gjaldþrotaskiptum ? Riftunarreglur gjaldþrotalaga ur K og þess m.a. krafist að skiln- aðarsamningi þeirra M og K að því er varðaði ráðstöfun íbúðar- hússins yrði rift. Helsta röksemd lögmanns þrotabúsins var sú að yfirfærsla á eignarrétti að um- ræddri húseign hefði verið komið í kring með skilnaðarsamningi og afsali sem í raun hafi verið gjafa gerningur. Hafi tilgangurinn verið sá einn að skjóta eign M undan gjaldþrotaskiptum, sem aðilum máttþvera ljóst að voru á næsta leiti. í þessu sambandi var bent á að samkvæmt reglum um skipti á búi bjóna við skilnað geti hvort hjóna um sig krafist helmings af þeirri hjúskapareign hins sem er umfram skuldir. Þegar skilnaðar- samningurinn hafi verið gerður í september 1986 hafi M ekki átt eignir til tryggingar skuldum sínum og því hafi hann í raun ekki átt neitt til skiptanna. Verð- mæti annarra eigna M hafi verið lítið og engar ráðstafanir verið gerðar til að tryggja greiðslur þeirra skulda sem á honum hvíldu. Taldi lögmaðurinn að í skilnaðar- samningnum fælist gjöf til K sem félli undir 51. gr. gjaldþrota- skiptalaga. í l.tl. nefndrar lagagreinar kemur fram að krefjast megi rift- unar gjafagernings, ef gjöfin var dæmd til'að skila annarri af tveim- ur íbúðum í húsinu. Skýringin á því er sú að K hafði áður en málið var höfðað selt aðra þeirra. I stað þess að skila henni var K einfaldlega dæmd til að greiða þrotabúinu matsverð hennar á þeim degi er skilnaðarsamningur- inn var gerður að frádregnum áhvílandi veðskuldum. Þetta dæmi ætti að vera fróð- legt fyrir þá sem hafa látið sér koma til hugar að skilnaður og ráðstöfun eigna með skilnaðar- samningi væri leið til að koma þeim undan gjaldþrotaskiptum. ÞEGAR skuldastaðan versnar og gjaldþrot virðist óhjákvæmilegt grípa menn gjarnan til ýmissa örþrifaráða til að forða eignum undan skiptum, sjálfum sér eða öðrum til hagsbóta. Þá er til í dæminu að gripið sé til ráða til að mismuna kröfuhöfum, t.d. með því að greiða kröfu eins frekar en annars án réttmætrar ástæðu. Ráðstafanir af þessu tagi geta að sjálfsögðu bakað öðrum kröfuhöfum tjón þar sem minna verður til skiptanna. Við þessu er reynt að sjá í VIII. kafla gjaldþrotaskiptalaga nr. 6/1978 þar sem er að finna svokallaðar riftunarreglur. Þessar reglur eru settar til að tryggja svo sem kostur er jafnræði kröfuhafa við úthlutun eigna þrotabús. Með þessum riftunarreglum er mögu- legt fyrir þrotabú að ónýta ráðstafanir allt að rúmum 2 árum aftur í tímann i þeim tilgangi að afstýra mismunun kröfuhafa og til að draga meiri verðmæti undir skipti. afhent 6 mánuðum fyrir frestdag (frestdagur er í þessu tilfelli dag- urinn þegar krafa um gjaldþrota- skipti kom fram). í niðurstöðu dómsins, sem kveðinn var upp af Allan V. Magnússyni borgardóm- ara, var talið sannað að hjúskap- areign M hafi verið neikvæð þeg- ar skilnaðarsamningurinn var gerður. Með hliðsjón af því hafi í raun verið um gjöf að ræða. Þar sem þetta hafi verið gert innan 6 mánaða áður en skipta var krafist var talið að skilyrðum framan- greinds lagaákvæðis væri full- nægt og riftun því heimiluð og K Eitt þessara lagaákvæða er 51. gr. gjaldþrotaskiptalaga. Þar er að finna heimildir til að rifta gjöfum sem gefnar eru innan til- skilins tíma fyrir upphaf gjald- þrotaskipta að uppfylltum viss- um skilyrðum. Á þessa riftunar- reglu reyndi í dómi bæjarþings Reykjavíkur frá 15. júní sl. Málavextir voru þeir að M og K voru í hjúskap. M var orðinn all skuldugur þegar hjónin fengu leyfi til lögskilnaðar í september 1986. í tilefni af skilnaðinum gerðu hjónin með sér samning um eftir Davíð Þór Björgvinsson skiptingu eigna og skulda. Sam- kvæmt honum fékk K íbúðarhús á tveimur hæðum, sem var við skiptin samtals að verðmæti 6.250.000 samkvæmt mati dóm- kvaddra matsmanna. Var húsinu afsalað til K sama dag. M fékk hins vegar í sinn hlut óverulegar eignir. Fyrir skilnaðinn var M þinglýstur eigandi íbúðarhússins og varþví um að ræða hjúskapar- eign hans. Með úrskurði skipta- réttar Reykjavíkur í febrúar 1987 var bú M tekið til gjaldþrota- skipta. Námu lýstar kröfur í búið alls um 8 milljónum króna en eign- ir búsins voru óverulegar, að framangreindu íbúðarhúsi undan- skildu sem nú var á nafni K. Mál var höfðað af þrotabúi M á hend- Robert Koch fyrir, en margir telja þó að merk- asta framlag hans til sýklafræð- innar hafi verið sú hugdetta að hreinrækta sýkla á föstu efni í stað fljótandi eins og hann og starfsbræðúr hans höfðu áður gert, Hann bræddi límkennt efni og blandaði það með kjötseyði, dýrablóði eða hveiju öðru sem hann kaus að velja til sýklafóðurs í það og það skiptið, hellti því síðan í grunnar skálar og lét það kólna og storkna. Þegar sýklum er svo sáð um yfirborð ætiskökunnar vaxa hreiður þeirra upp hvert á sínum stað en ekki í allsheijar súpu eins og þegar ætið er fljót- andi efni svo sem blóðvatn eða kjötseyði. Koch var sívinnandi, bæði af eigin hvötum og vegna þess að stjórnvöld heilbrigðismála sendu hann hvað eftir annað í rann- sóknaleiðangra, stundum til fjar- Iægra landa. Hann ferðaðist til Egyptalands og siðan Indlands vegna kólerufaraldra og varð það engin erindisleysa því að hann fann kólerusýkilinn og leiddi í ljós samband hans við mengun í mat og drykk og óhreinindi í um- hverfi, ám og vötnum ekki síst. I Afríku athugaði hann ásamt öðr- um kvikindi það sem veldur svefn- sýki í hjtabeltislöndum og bæði þar og á Ítalíu var hann hjálplegur við rannsóknir á mýraköldu og flugunum sem bera hana og breiða út. Þegar Koch var búinn að hand- sama berklabakteríuna hugðist hann gera hana sér undirgefna og nota hana gegn sjúkdómnum. Hann lét vinna lyf úr sýklagróðri, nefndi það túberkúlín og gerði sér vonir um að í því væri móteitur sem gæti dregið úr vexti og við- gangi lifandi sýkla í líkama sjúkl- ingsins. Því miður reyndist lyfið ekki búa yfir lækningamætti og voru það Koch sár vonbrigði, en til greiningar á sjúkdómnum hefur það verið mikil hjálp og munu les- endur kannast við það sem berkla- próf. Dropa af þynntu túberkúlíni er sprautað inn í húð eða þá að plástur með efninu er límdur á bringuna. Ef í ljós kemur roða- blettur eftir nokkur dægur telst prófið jákvætt og sýnir að viðkom- andi hefur einhvern tíma ævinnar orðið fyrir berklasmitun. Koch andaðist árið 1910 en finnn árum áður hafði hann hlotið nóbelsverðlaun í læknisfræði. Hann lagði gjörva hönd á ótrúlega margt í grein sinni og sá oftast árangur iðju sinnar. Ekkert var honum fjær skapi en baða sig í geislum frægðarinnar og segja: Nú komumst við ekki lengra. Hann vildi sí og æ kanna nýjar slóðir og má vera að þar hafi útþrá Roberts hins unga verið að verki í öðrum farvegi. Skömmu eftir að hann fann berklasýkilinn lét hann svo ummælt að það væri hreint ekki víst að bakteríur værú ævin- lega að verki í smitsjúkdómum. „Því skyldu ekki aðrar og óþekkt- ar smáverur geta sest að í líkama manna og dýra"og lifað þar sníkjulífi?" spurði Koch. Var hann svona mikill spámaður? Skyggnd- ist sagnarandi hans inn í þá fjar- lægu framtíð sem er okkar nútíð? LÆKNISFRÆÐI SV / brautrybjandinn fram í tímann? Robert Koch og berklamir maður í miklu áliti hjá þeim sem kunnu gott áð meta. Eitt af mörgu nýstárlegu í vinnubrögðum Kochs voru mynd- irnar sem hann tók. Ejósmyndun átti þá ekki langa sögu að baki og myndavélar voru sjaldséðir gripir. Koch hafði orðið sér úti um vél og komist upp á lag með að tengja hana smásjánni. í þessum efnum var hann líka sjálflærður og þreifaði sig áfram af eigin hyggjuviti. Hróður hans barst svo víða að áður en langt um leið hlaut hann að yfirgefa Wollstein og fluttist til Berlínar þar sem hann var skipaður í nefndir og ráð sem hann vildi þó helst ekki eyða dýr- mætum tíma í að sinna. Hann var farinn að leita að berklasýklinum og það höfðu fleiri reynt en sá þijótur var vel falinn. Sjúkdómur- inn sem hann var valdur að birtist líka í margvíslegu gei-vi og settist að í ýmsum líffærum: Lungum, eitlum, liðamótum, þvagfærum og jafnveí húð; stundum birtist hann sem blóðeitrun eða heilahimnu- bólga og voru menn því oft í vafa um hvort berklaveiki væri á ferð- inni og erfitt var að sanna það eða afsanna meðan1 t sýkillinn var ófundinn. Koch hafði nú hjálpar- menn og betri aðstöðu en áður; hann gat gert fjölbreyttari dýratil- raunir og var endalaust að prófa nýja liti og litunaraðferðir. Honum tókst að lokum að finna skaðvald- inn og er fundur berklabakteríunn- ar það sem Koch varð frægastur Þ AR var seinast komið sögu af héraðslækninum í Wollstein árið 1876 að hann hafði flett ofan af grimmdarverkum miltis- brunabakteríunnar og enníirem- ur komist að raun um að hún getur lagst i dvala og sprottið svo upp að nýju eftir langan svefh og látið öllum illum látum. Koch tók sér nú ferð á hendur til Breslau að hitta Ferdinand Cohn prófessor í grasafræði en í þá daga var fróðleikur um bakter- íur eins konar undirgrein grasa- m^^mmmmi^m fræðinnar. Við háskólann í Bres- lau var harðsnúið lið vísindamanna í ymsum greinum sem voru í tengsl- um við læknis- eftir Þórarin fræði og urðu Cuðnason sumir þeirra víðfrægir af verk- um sínum. Prófessorinn bauð þeim að koma og kynnast því sem Koch hafði fram að færa og þótti þeim að vonum mikið til þess koma og fannst synd og skömm að slíkur maður einangraðist í sveitahéraði. Þeir útveguðu honum læknisstarf í Breslau en það varð skammgóður vermir því sjúklingar létu ekki sjá sig á viðtalsstofu hans. Hann sneri því aftur heim til Wollstein og var tekið með kostum og kynjum. En nú var Koch ekki lengur lítt þekkt- ur sveitalæknir heldur vísinda-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.