Morgunblaðið - 15.10.1989, Síða 22

Morgunblaðið - 15.10.1989, Síða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER DJASS/Er ekki hœgt ab lifa afþví ab spila djass? Eyjadjassinn og Guðni Hermansen eftir Vernharö Linnet RÉTT fyrir jólin 1960 flutti ég úr Reykjavík til Vestmannaeyja. Þá var ég sextán ára og þó ég væri ekki heimilisfastur þar nema tæp tvö ár eru Eyjarnar snar þáttur í lífí mínu. Ég var ‘fljassgeggjari og í Eyjum var blómlegt djasslíf. Mér er til efs að nokkursstaðar utan höfuð- borgarsvæðisins hafi verið spil- aður jafii mikill djass og í Eyjum á þessum árum. Djasslíf hafði blómgast í Eyjum þegar Haraldur heitinn Guð- mundsson trompetleikari. starfaði þar og 1949 var haldinn fyrsta djammsessjónin í Eyjum. Þá var —mmmmmmmm IiG-sextettinn í fullu fjöri: Stjórn- andinn á trompet, Guðni Hermansen á altó, Gísli Bryn- geirsson á klari- nett, Alli Wosa á píanó, Haraldur Baldursson á gítar og Siggi á Háeyri á trommur. Guðni, Gisli og Siggi voru í fullu fjöri þegar ég kom til Eyja, en Alli Wosa fékkst lítið við píanóleik þó hann væri fljótur að finna púðrið í Orn- ette Coleman. Gaui Páls var helst- ur píanista Eyjanna en Guðni Her- _2jansen með gullinn Selmer-tenór- inn djasskóngurinn. Hann stjórn- aði þá Rondó-sextettnum þarsem tvíburarnir Valgeir og Huginn léku á gítar og klarinett, Erling Ágústsson sló víbrafón og söng, Aðalsteinn í Biynjólfsbúð þandi bassann og Nonni í Skuld barði trommur. Aðalsteinn var mikill Mingusisti og aðrir helstir módern- istar í Eyjum um þessar mundir vom Sissi Þórarins trommari og Gylfi prent sem var að skipta úr trompet yfi'r í tenór og barrýtón- saxafón og var á kafi í Coltrane. í Alþýðuhúsinu var djannnað þegar færi gafst og þá bættust ýmsir í hópinn s.s. Haukur á Hól, £>ísli og Palli Steingríms, Gísli Brynjólfs og Gutti Einars með básúnuna. Menn komu og sungu og í þeim hóp var Raggi Lár, sem var á sjónum með Asa í Bæ. Á þeim bát var líka Oskar á Háeyri sem fékk snemma djassbakterí- una, mamma hans varð að kalla á hann í hvert skipti sem Louis Armstrong heyrðist í útvarpinu. Rúnar Georgs blæs með Guðna í Eyjum. L'J°smynd/TorfníaraM5ií Gaf Óskar þá boltann á næsta peyja og hljóp heim að hlusta á meistarann. Ýmsir ágætir utanbæjarmenn störfuðu í Eyjum s.s. Arni Elfar og Axel Kristjánsson og þegar ég kom var Krummi Páls þar og svo kom Gaukurinn. Allt lífgaði þetta uppá djasslífið. Meira að segja Rúnar Georgsson bjó í Eyjum á uppvaxtarárum sínum og blés í munnhörpu rheð hljómsveit Gauja Páis og Guðni Hermansen blés bak við drenginn. Nú er Guðni Hermansen fallinn frá fyrir aldur fram. Hann var þekktastur fyrir listmálun á síðari árum og vissu fæstir utan Eyjanna hvílíkur snillingur hann var í djass- inum. Gunnar Reynir Sveinsson sagðist einhvern tímann hafa lært mest i tímum hjá Lionel Hampton og um Guðna má segja að hann hafi lært mest í tímum hjá Cole- man Hawkins. Að vísu nutu Gunni og Guðni ekki handleiðslu meistar- anna utan hvað grammafónninn leyfði en slíkt var ómetanlegt. Þegar ég heyrði Guðna fyrst undr- aðist ég þennan mikla breiða og volduga tón sem hann töfraði úr rörinu. Besturvarhann í ballöðun- um því djasstilfinningin var ósvik- in. Þegar ég kom síðast til Eyja heimsótti ég Guðna og vildi fá hann til að segja mér sitthvað um ferilinn. Hann eyddi því en í stað- inn pakkaði hann upp Selmernum, sem lengi hafði legið óhreyfður, og blés inná bandið Stardust. Hann hafði engu gleymt. Guðni sendi mér stundum snældur með Eyjadjassi frá ýms- um tímum og gjarnan línu með, þar sem mér var tjáð að þetta væri sosum ekki merkileg tónlist. En það var nú öðru nær því innan- um voru sannar perlur sem vert væri að leyfa sem flestum að heyra. Guðni Hermansen var Hawk- inisti og svingari, en uppúr sjötiu verður nokkur breyting á tónlist hans. Það er einsog að Lester Young fari að skjóta upp kollinum. En það var aðeins tímabundið og á síðustu árum var Hawkinssveifl- an öllu ráðandi sem fyrr. Djassleikarar íslenskir af kyn- slóð Guðna Hermansens urðu að hafa list sína sem aukastarf. Lifi- brauðið var danstónlist, kennsla eða einhver önnur launavinna. Sem betur fer er orðin breyting á, þó í litlu sé. Enginn veit hvaða árangri Guðni og félagar hans hefðu náð ef þess hefði verð kost- ur að stunda djassinn sem at- vinnu. En sem betur fer eigum við til hljóðritanir úr Eyjum sem inn- gróin djasstilfinning Guðna Her- mansens gæðir það lifi er aldrei deyr. - STOFNUN OG REKSTUR FYRIRTÆKJA Námskeid ætiað þeim sem hyggjast stafna fyrirtæki, hafa stofnað fyrirtæki eða hafa áhuga á rekstri fyrirtækja. Markmiðið er að bæta rekstrarþekkingu og auka yfirsýn þátttakenda. rm A SKEIÐ Meðai annars er fjallað um: - Frumkvöðla - Stofnáætlun - Fjármál - Form fyrirtækja - Markaðsmál - Reynslu stofnanda Kennt er á Iðntæknistofnun íslands, dagana 24. október til 4. nóvember 1989. Leiðbeinendur: Daníel Helgason, Emil Thóroddsen, Guðbjörg Pétursdóttir og Ingvar Kristinsson. Upplýsingar og skráning í síma 91-68 7000. lóntæknistofnun 11 ©NTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholt, 112 Reykjavík Leikfélag Akureyrar — í vetur verður aðaláherslan í verkefna- vali lögð á íslenska sköpun og íslenskan veruleika. LEIKLIST /Hvert er ebli og tilgangur listarinnar? á Norðurlandi Fyrir tæpum áratug varð Leik- félag Ákureyrar að atvinnu- leikhúsi með fastráðinn kjarna leik- ara og starfsfólks. Breytingin úr áhugaleikfélagi í atvinnuleikhús kallaði á nýja ímynd leikhúss- ins. Sú ímynd gerði auknar kröfur um fagleg og listræn vinnu- brögð innan leik- hússins, sem nú eftir Hlín laut forystu leik- Agnarsdóttur hússtjóra. Saga Akureyrarleikhússins er enn óskráð, en þar hafa skipst á skin og skúrir bæði í listrænu og fjár- hagslegu tilliti. Fjárveiting til LA er um 25 millj- ónir á ári, þar af greiðir Akureyrar- bær helming á móti ríkinu. Leik- húsið hefur oft átt við lánleysi að stríða bæði hvað varðar aðsókn og stjórnun. Þegar svo hefur árað hjá LA rísa gjarnan upp þursar, sme eru á móti öllum opinberum styrkj- um til lista og menningar og telja að fjármunum LA væri betur varið, t.d. til atvinnuknattspyrnu í bæjar- félaginu svo nýlegt dæmi sé tekið. Þarna er ákaflega barnalegur mis- skilningur á ferðinni, því hvorug starfsemin leysir hina af hólmi. Með slíku sjónarmiði er líka alið á gamalii firru um að listin þrífist best þegar hún ér stunduð í hjá- verkum. Umræðan um hver eigi að borga hallarekstur í menning- unni fer bráðum að tilheyra eilífð- armálunum, það eru engar einfald- ar lausnir til á því dæmi. Það vakna aðeins fleiri spurningar um eðli og tilgang listarinnar í þjóðfélaginu yfirleitt og tengsl hennar við fjár- magnið. . í bæ af sömu stærðargráðu og Akureyri gengur það kraftaverki næst að rekið sé atvinnuleikhús. Annað mál er að Akureyringar sjálfir hafa ekki notið kraftaverks- ins af miklum skilningi eða áhuga. Aðsóknarleysi þeirra hefur háð LA og hefur þeim þó staðið til boða að sjá nokkuð breitt úrtak af leik- bókmenntum heimsins. Meira að segja söngleikirnir virka ekki leng- ur. En það eru ekki einungis knatt- spyrnuáhugamenn sem gagnrýna tilvist leikhússins, raddir úr röðum leikhúsfólks vilja meina að ekkert þýði að reyna að „troða“ leiklist upp á Akureyringa, peningum væri betur varið til leiklistarinnar á Suð- vesturhorninu. Slíkar úrtölur eru beinlínis til að vinna gegn þeim sigrum sem LA hefur þó unnið. LA er nú einu sinni Þjóðleikhús Norðurlands ef svo má að orði kom- ast. Það er eina landsbyggðarleik- hús landsins sem rekið er á at- vinnugrundvelli. Það þjónar ekki einungis Akureyri, heldur öllu Norðurlandi. Sigurður Hróarsson nýráðinn leikhússtjóri LA vill leggja ríka áherslu á að LA sé í góðum tengslum bæði við áhorf- endur og öll áhugaleikfélög á Norð- urlandi. Það hefur LA m.a. gert með því að standa fyrir námskeiða- haldi hjá leikfélögum í nágranna- byggðunum og greiða götu þeirra varðandi uppsetningar á leikverk- um. Þetta starf vill Sigurður auka enn meir svo og rækta áhuga Akur- eyringa á leiklistinni. Ábyrgð leik- húsfólks er mikil þegar kemur að því að ala upp nýja kynslóð áhorf- enda. Á tímum síaukinnar mötunaf og íjölmiðlunar er leikhúsið ekki jafn sjálfsögð skemmtun og/eða dægrastytting og það var. Þetta þýðir einfaldlega að flytja þarf leik- húsið til fólksins, það sjálft verður að eiga stærra frumkvæði í að tengjast áhorfendum sínum m.a. með verkefnavali sem tekur mið af lífi þess og starfi. Það þarf að færa leikhúsið inn í skólana og á vinnustaðina, bæði með leiksýning- um og kynningum á starfsemi leik- hússins. í vetur mun aðaláherslan í verk- efnavali LA vera á íslenska sköpun og íslenskan veruleika. Þannig sér leikhússtjórinn framlag LA til að efla íslenska menningu og tungu, sem stöðugt á undir högg að sækja. íslenskir höfundar fylgja í kjölfar Bernörðu Alba frá Spáni. Á jólum verður þeirri meginreglu fylgt að hafa barna- og fjölskyldu- leikrit eins og undanfarin ár. Eyrnalangir og annað fólk heitir það og er eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það hlaut 2. verðlaun í flokki barnaleikrita í samkeppni LR vegna opnunar Borgarleik- hússins. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona er að semja leikrit, sem ber heitið Heill sé þér þorskur og sækir efni og persónur í sjómennsku og sjó- menn. Guðrún byggir leikrit sitt annars vegar á ljóða- og söngva- dagskrá um sama efni sem flutt var af nemendum við Leiklistar- skóla íslands undir hennar stjórn fyrir nokkrum árum. Hinsvegar sækir hún í smásögu eftir Jónas Árnason um fátækan sjómann sem á sér það takmark í lífinu að byggja sér grafhýsi, sem er stærra og veglegra en grafhýsi útgerðar- mannsins. Lokaverkefni LA verður ný leik- görð eftir Böðvar Guðmundsson á endurminningum Tryggva Emils- sonar, sem út komu í bókunum Fátækt fólk og Baráttan um brauð- ið. Böðvar skrifar þessa leikgerð að beiðni LA, en hann býr nú í Danmörku og vinnur þar að rit- störfum. Með þessum tveimur seinni verkefnum hjá LA má hik- laust fullyrða að valið tengist áþreifanlega vinnu og heimahögum áhorfendahóps LA. Nú reynir á Akureyringa og aðra Norðlendinga að gera LA að lifandi og ómissandi þætti í höfuðstað Norðurlands. Fótbolti kemur ekki í stað leikara og öfugt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.