Morgunblaðið - 15.10.1989, Side 30
30 . C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIVIIÐ SlNNaiAGUK 15. OKTÓBER
ÆSKUMYNDIN...
ER AFÁSGEIRISIGURFINSSYNIKNATTSPYRNUMANNI
ÚR MYND ASAFNINU
RAGNAR AXELSSON
Þoldi illa
aðtapa
Það koma snemma í ljós að Ásgeir Sigur-
vinsson, eða Geiri eins og hann er stundum
kallaður, ællaði sér að verða knattspyrnu-
maður. Um leið og hann lærði að ganga
fékk hann ódrepandi áhuga á boltum og
- sparkaði reyndar frá sér öllu hnöttóttu sem
varð á vegi hans.
A
Asgeir fæddist 8. maí 1955, son-
ur Vilborgar Andrésdóttur
matráðskonu og Siguivins Þorkels-
sonar vélstjóra sem nú er látinn.
Ásgeir á þijá eldri bræður; Andrés
sem fæddur er 1949, Ólaf sem
fæddist 1951 og svo hálfbróðurinn
fjuðmund Sigui-vinsson sem fæddist
1948 og er því elstur. Ásgeir er
fæddur og uppalinn í Vestmanna-
eyjum. Hann var á síðasta ári í
gagnfræðaskóla þegar eldgosið
varð í Eyjum 1973 og lauk því
gagnfræðaprófi í Reykjavík. Sama
ár lést faðir hans en móðir hans fór
* ekki aftur til Eyja fyrr en 1975.
Og án Ásgeirs, því hann var orðinn
atvinnumaður í knattspyrnu og bjó
í Belgíu. Fór hann strax út um
sumarið. að loknu gagnfræðaprófi
og var því orðinn atvinnuleikmaður
18 ára gamall.
Vilborg móðir Ásgeirs segir að
hún muni varla eftir honum öðru
vísi en sparkandi. Með því fyrsta
sem hann lék sér að var bolti og
um leið og hann var orðinn stöðug-
ur í fótunum byrjaði hann að sparka
T honum frá sér. Reyndar þurfti ekki
bolta til, allt sem var hnöttótt freist-
aði og voru bandhnyklar móður
hans til dæmis oft á ferð og flugi
um húsið. Að sögn hennar var Ás-
geir afar þægt barn. Var hann mjög
atorkusamur og ekkert komst að
annað en íþróttirnar. Hafði hann
áhuga á mörgu s.s. golfi, fijálsum
íþróttum og svo áuðvitað fótbolta.
Var hann iðulega orðinn friðlaus a
vorin, þegar prófin fóru í hönd, að
komast niður á völl og byija að æfa.
Páll Magnússon fréttastjóri
Stöðvar 2 er æskufélagi Ásgeirs.
Kynntust þeir kornungir og bröll-
uðu margt saman. Að sögn Páls
var Ásgeir aiitaf ákaflega mikill
keppnismaður og þoldi iila að tapa.
Spiluðu þeir oft póker upp á eldspýt-
ur og vildi Ásgeir aldrei hætta fyrr
en honum hafði tekist áð vinna.
Greip Páll oft til þess ráðs að „leyfa“
Ásgeiri að vínna, til að hægt væri
að ljúka spilinu og snúa sér að öðru.
Fimm ára í fyrsta sinn á
ljósmyndastofu.
Páll segir Ásgeir strax hafa ver-
ið óvenjulega fjölhæfan íþrótta-
mann og hafi honum alltaf gengið
vel hvort sem hann var að eiga við
spjót eða bolta. Þeir félagarnir hitt-
ast nú sjaldnar en áður enda Ás-
geir búsettur ytra, en Páll segir að
endurfundir þeirra séu þó alltaf jafn
ánægjulegir. Ásgeir hafi ekkert
breyst frá því að hann var strákur
og sé alltaf jafn hógvær,. „þrátt
fyrir ríkidæmi og velgengni í starfi.
— Hann er alltaf sami gamli Geiri“.
Maðurínn með
hasshundana
Fyrir tólf árum birtist greina-
fiokkur um fíkniefnamál í
Morgunblaðinu, sem óhætt er að
segja að hafi vakið
mikla . athygli. Ein
greinin fjallaði um
„Manninn' með hass-
hundana", en það var
Þorsteinn Steingríms-
son rannsóknarlög-
regluþjónn, sem þá var
við ávana- og fíkniefna-
dómstól. í greininni var fjallað um
það starf, sem unnið var með hund-
unum, og fíkniefnavandann, eins
og hann horfði við Þorsteini, sem
þá var einn með þessi mál á sinni
könnu.
Á þeim tíma sá Þorsteinn um tvo
hasshunda, labradorinn Prins og
scháferinn Skugga. Þorsteinn
sagði, sem nú starfar hjá.Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, í viðtali við
Morgunblaðið, að hundarnir hefðu
drepist 'fyrir um tíu árum, en nyt-
semi þeirra hefði verið
óumdeilanleg, eins og
ijöldi upplýstra mála
væri til staðfestingar
um. Það hefði hins veg-
ar staðið í mönnum að
hundarnir eru dýrir,
þjálfun erfið og í raun
fullt starf fyrir einn
mann að halda hund af þessu tagi.
Reynir Kjartansson hjá fíkni-
efnadeild Lögreglunnar í Reykjavík
segir að nú sé aðeins einn hundur
hjá deildinni, sem hann telur engan
veginn nægja. Álítur hann tvo
hunda vera lágmark, en heppilegast
væru þeir þrír. Hins vegar kvaðst
ekki vita hvort slík fjölgun væri á
döfinni.
Þorsteinn
Steingríms-
son ásamt
Skugga, sem
greinilega
hefur fundið
lykt af ein-
hverju áhuga-
verðu.
STARFID
ÞURÍÐUR BERGMANN JÓNSDÓTTIR
ÚTSTILLINGAHÖNNUÐUR
BÓIiIN PLATAN
ÁNÁTTBORDINU Á FÓNINUM
MYNDIN
ÍTÆKINU
Þuríður Bergmann
Jónsdóttir.
Þang í
gluggann
Segja má að gluggar séu audlit
verslana — ef útstillingar eru
freistandi eru enn meiri líkur á
að fólk reki inn nefið. Kemur það
oft í hlut útstillingahönnuða að
gera „andlitslyftingar" á verslun-
um og ein þeirra sem fást við þá
iðju er Þuríður Bergmann Jóns-
dóttir.
kuríður lærði útstiilingahönnun
í Danmörku fyrir 25 árum og
^ hefur unnið sjálfstætt síðan. Sér
hún mest um gluggaútstillingar en
hannar einnig af og til bása á sýn-
ingum. Þuríður sagðist vinna mikið
með náttúmleg efni s.s. mosa, lauf
og steina en einnig söl og þang sem
hún sækti sér niður í fjöru. Einnig
hefur hún mikið dálæti á gifsi og
notar stundum vei'k í gluggaútstill-
ingar sem hún hefur gert sjálf.
Sagði Þuríður að mikil breyting
væri orðin á frá því að hún kom
fyrst frá námi, er varla tíðkaðist
annað en að verslunareigendur sæju
sjálfir um gluggaútstillingar. Nú
leituðu menn í æ ríkari mæli til
fagfólks eftir aðstoð.
ÞETTA SÖGDU
ÞAU ÞÁ...
Lesendabréf í
Þjóduiljanum
28.ágúst1967.
Fékk Elmar
Geirsson
knöttinn í höfuð-
ið, og fékk snert
af heilahristing... Þetta hafðist
upp úr því að nota höfuðið, það
ættu íslenzkir knattspyrnumenn
að forðast eins og þeir hafa
gert fram að þessu.
Bjarney I.
Gunnlaugs-
dóttir nemi
Guðrún
Brynjólfs-
dóttir skrif-
stofumaður
Eg er að lesa bók sem heilir
My Many Years og er ævisaga
Arthurs Rubinsteins píanóleikara.
Mér finnst hún mjög góð. Ég hef
gaman af bókum sem fjalla um
tónlist á einhvern hátt en svo er
ég líka sólgin í skáldsögur.
*
Eg hlustaði síðast á plötuna The
Trinity Session með hljómsveit-
inni, Cowboy Junkies. Ég var að
kaupa_ hana og finnst hún mjög
góð. Ég hlusta á allt milli himins
og jarðar. Hef þó mikið dálæti á
Bvuce Spvingsteen og sömuleiðis
Art oí' Noise.
Myndin sem ég horfði síðast á
hét Die Hard. Mér fannst hún
mjög góð og feiknalega spennandi.
Ég horfi nokkuð oft á myndbönd
og þá helst á spennumyndir. Einnig
hef ég mjög gaman af tónlistar-
myndböndum, sem ég kaupi í hljóm-
plötuverslunum.
Um þessar mundir er ég að lesa
bókina Islensk málfræði eftir
Skúla Benediktsson. Ég hafði ekki
litið í málfræðibók í ein 40 ár, eða
frá því ég var í menntaskóla, og
fannst kominn tínii til að hressa
.aðeins upp á íslenskukunnáttuna.
Platan sem ég hlustaði síðast á
heitir Time Pieces og er með
Eric Clapton. Þetta er safnplata pg
mér finnst hún æðislega góð. Ég
hef mest gaman af Clapton en
hlusta líka mikið.á djasstónlist, s.s.
með Biliie Holiday og Louis Arm-
strong.
A
Eg horfði síðast á myndina Pri-
vate Road og fannst hún ekki
góð. Fyrir stuttu sá ég aftur á
móti mjög góða mynd, Beast of
War, en hún ér rosalega spenn-
andi. Ég ieigi af og til myndir og
þá helst þegar veðrið er leiðinlegt.