Morgunblaðið - 06.02.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
tvgnnMjiMfe
STOFNAÐ 1913
30. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Míkhaíl S. Gorbatsjov á miðstjórnarfundi sovéska kommúnistaflokksins;
Höfiium öllu því sem ein-
angrað hefiir sósíalísk ríki
Míkhaíl S. Gorbatsjov á fundi
með fulltrúum námamanna í
Moskvu.. Að sögn Pravda, mál-
gagns sovéska kommúnista-
flokksins, gaf Gorbatsjov til
kynna á fundinum að sovéskir
kommúnistar væru reiðubúnir til
að afsala sér alræðisvaldi í sov-
ésku samfélagi, sem flokknum
er tryggt samkvæmt sjöttu grein
stjórnarskrár ríkisins.
Segir fjölflokkakerfi hugsanlegt og
hvetur til þess að úreltum kennisetning-
um um heimsbyltinguna verði haftiað
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph, dpa.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, sagði
í ræðu er hann flutti í Moskvu í gær að hugsanlegt væri að lýðræðis-
þróunin í Sovétríkjunum leiddi til þess að starfsemi stjórnmála-
flokka, annarra en samtaka kommúnista, yrði leyfð. Gorbatsjov lét
þessi orð ialla við upphaf tveggja daga fundar miðsljórnar kommún-
istaflokksins og fullyrti ennfremur að fjölflokkakerfl væri í raun
þegar við lýði í Sovétríkjunum. Hvatti hann flokksmenn til að hafna
úreltri hugmyndafræði og kennisetningum stalínismans, hugmynd-
inni um heimsbyltinguna og stöðnuðu viðhorfl til þróunar mannlegs
samfélags. Að sögn TASS-fréttastofunnar lýsti Gorbatsjov yfir því
að það væri í andstöðu við umbótastefnuna að tryggja forystuhlut-
verk kommúnista í sovésku samfélagi í stjórnarskrá landsins likt og
nú er gert. Flokkurinn gæti aðeins gegnt hlutverki sínu væri hann
viðurkenndur sem lýðræðislegt afl.
Vestrænir sendimenn í Moskvu
sögðu ræðu Gorbatsjovs í gær djörf-
ustu tilraun hans til þessa til að
treysta umbótastefnuna, perstrojk-
una, í sessi og kváðu ummæli hans
byltingarkennd. Töldu þeir að skýr-
ingarinnar væri að að leita í hruni
kommúnismans í A-Evrópu. Gorb-
atsjov gerði sér ljóst að umbóta-
stefnan hefði enn engum árangri
skilað og þörf væri á róttækari
aðferðum ætti honum að takast að
fá hjól efnahagslífsins til að snúast
í Sovétríkjunum. Bent var á að
Gorbatsjov hefði sagt í ræðu sinni
að sósíalísk ríki hefðu einangrast
og að hafna bæri öllu því sem kall-
að hefði það hlutskipti yfir þau.
Fréttamenn höfðu leitt getum að
því að Gorbatsjov kynni að boða
að slakað yrði á valdaeinokun
kommúnista og raunar hafði því
verið slegið föstu í fréttabréfi
Moskvu-útvarpsins að slík tillaga
yrði rædd á miðstjórnarfundinum.
Þá skýrði dagblaðið Pravda frá því
að Gorbatsjov hefði lýst því yfir á
fundi með námamönnum á föstudag
að sovéskir kommúnistar gerðu
ekki skilyrðislaust tilkall til valda
og að nauðsynlegt væri að endur-
nýja forystusveit flokksins. Þykir
sýnt að hreinsana sé að vænta í
flokknum.
Heimildarmaður Reuters-frétta-
stofunnar sagði að Gorbatsjov hefði
ekki kynnt sérstakar tillögur um
afnám valdaeinokunar kommúnista
í Sovétríkjunum. Hann hefði á hinn
bóginn hvatt fundarmenn til að
horfast í augu við staðreyndir; fjöl-
flokkakerfi væri þegar við lýði í
Sovétríkjunum. Virðist Gorbatsjov
með þessu hafa haft í huga samtök
stjórnarandstæðinga í Eystrasalts-
ríkjunum og víðar, sem sprottið
hafa upp á undanförnum tveimur
árum og hafa þegar haft umtals-
verð pólitísk áhrif. Þá hermdu heim-
ildir að Gorbatsjov hefði lagt til að
flokksþingi sem halda átti í haust
yrði fiýtt.
Síðar um daginn skýrði TASS-
fréttastofan frá þeim ummælum
Sovétleiðtogans að hugsanlegt væri
að starfsemi stjórnmálaflokka yrði
leyfð í iandinu. Hefði Gorbatsjov
sagt ráðamenn reiðubúna til við-
ræðna við leiðtoga hinna ýmsu
stjórnmálasamtaka svo framarlega
sem starfsemi þeirra færi saman
við stjórnarskrá ríkisins. Fréttinni
fylgdi að Sovétleiðtoginn hefði lagt
til ýmsar breytingar á skipulagi
flokksins m.a. að miðstjórnarmönn-
um yrði fækkað og flokksformaður
kjörinn í stað aðalritara en því
embætti gegnir Gorbatsjov sjálfur.
Sagði fréttastofan að nokkrir mið-
stjórnarfulltrúar hefðu lýst sig
andvíga hugmyndum Gorbatsjovs
og sagt umbótastefnu hans hafa
getið af sér upplausn og stjórn-
leysi. Aðrir hefðu hvatt til þess að
stjórnarskrá landsins yrði breytt og
krafist aukins lýðræðis.
Á sunnudag komu rúmlega
200.000 manns saman í miðborg
Moskvu og kröfðust stjórnmálaum-
bóta og afsagnar harðlínukommún-
ista. Að sögn erlendra fréttaritara
í borginni voru mótmælin þaul-
skipulögð og þótti greinilegt að
stjórnvöld hefðu lagt blessun sína
yfir þau.
Sjá frétt á bls. 26.
Reuter
Ný bráðabirgðasljórn í Austur-Þýskalandi:
Kommúnistar í minni-
hluta í fyrsta skipti í 40 ár
V-Þjóðverjum bannað að taka þátt í kosningabaráttunni
Austur-Berlín. Reuter, dpa, The Daily Telegraph.
ÞING Austur-Þýskalands sam-
þykkti í gær með miklum meiri-
hlutra atkvæða skipan nýrrar
bráðabirgðastjórnar sem ætlað
er að tryggja pólitískan stöðug-
leika í landinu þar til frjálsar
kosningar hafa farið fram þann
Rúmenía:
Alnæmisfarald-
ur meðal barna
Búkarest. Reuter.
Forseti læknasamtakanna „Medicins du Monde“ sagði á blaða-
mannafundi í Búkarest í gær að alnæmisfaraldur geisaði meðal
barna í rúmenskum sjúkrahúsum og á munaðarleysingjahælum.
Forseti samtakanna,
Jaques
Lebas, sagði að í ijós hefði komið
að 367 af 1.025 börnum sem rann-
sökuð hefðu verið væru sýkt af
alnæmisveirunni. Bætti hann við
að einkenni sjúkdómsins hefðu
þegar gert vart við sig í-sex af
hveijum tíu tilfellum og væri eng-
in von til þess að unnt yrði að
bjarga lífi barnanna sökum þess
hve ónæmiskerfi þeirra væri lítt
þroskað. Börnin sem rannsökuð
voru eru öll þriggja ára. Lebas, sem
er virtur alnæmissérfræðingur,
sagðist aldrei á ferli sínum hafa
staðið frammi fyrir svo hrikalegu
ástandi og hvatti þjóðir heims til
að skipuleggja hjálparstarf hið
fyrsta. Kvaðst hann telja að börnin
hefðu fengið sýkta blóðskammta
auk þess sem sömu sprauturnar
hefðu greinilega verið notaðar
„mörg hundruð sinnum".
Stjórn Nicolae Ceausescus, fyrr-
um einræðisherra í Rúmeníu, við-
urkenndi ekki að alnæmissjúklinga
væri að finna þar í landi og var
sjúkdómurinn sagður merki um
siðferðislega hnignun kapítalískra
ríkja.
18. mars. Konnnúnistar eru í
minnihluta í nýju stjórninni í
fyrsta skipti í 40 ára sögu ríkis-
ins. Þá samþykktu þingmenn
einnig að vestur-þýskum stjórn-
málamönnum skyldi ekki heimilt
að taka þátt í kosningabaráttunni
og fordæmdu stjórnvöld í V-
Þýskalandi þessa ákvörðun í gær-
kvöldi.
Fulltrúar átta stjórnmálasamtaka
tóku sæti í ríkisstjórninni í gær en
þeir eru allir ráðherrar án ráðu-
neyta. Fyrir voru í stjóminni 26
ráðherrar og eru kommúnistar þar
með komnir í minnihluta en auk
þeirra eru í stjórninni fulltrúar
þriggja jafnaðarmannaflokka og
Bændaflokksins. Flokkur kommún-
ista hefur skipt um nafn og nefnist
nú „Flokkur hins lýðræðislega sósí-
alisma."
Stjórnmálaskýrendur segja að
Hans Modrow forsætisráðherra hafi
neyðst til að leita eftir samstarfi við
stjórnarandstöðuna sökum þess að
allsherjar upplausnarástand hafí
blasað við í A-Þýskalandi. Um 2.000
manns yfirgefa landið á degi hveij-
um og hefur það leitt til þess að
áhrifamenn í V- og A-Þýskalandi
hafa hvatt til þess að efnahagsleg-
um samruna ríkjanna verði hraðað
svo sem kostur er. Yfirmaður gjald-
eyrismála í Austur-Þýskalandi hafn-
aði í gær tillögum sem fram hafa
komið um að ríkin taki upp sameig-
inlegan gjaldmiðil. A-þýski Jafnað-
armannaflokkurinn, sem almennt
er talinn standa best að vígi í kosn-
ingabaráttunni, hafði fyrr um dag-
inn hvatt til þess að vestur-þýskt
mark yrði tekið upp í stað þess
austur-þýska í landinu og að fullum
efnahagslegum samruna ríkjanna
yrði lokið fyrir lok þessa árs.
Áætlanir í þá veru sem og sam-
einingu ríkjanna liggja þegar fyrir.
Athygli vakti að Hans Modrow lýsti
yfir því á laugardag að tillaga aust-
ur-þýskra ráðamanna um sameinað
og hlutlaust Þýskaland væri aðeins
hugmynd sem lögð hefði verið fram
í umræðu þessari en ekki ófrávíkjan-
legt skilyrði. Áður höfðu vestur-
þýskir ráðamenn hafnað hlutleysis-
kröfunni eins og hún var skilin er
Modrow lagði sameiningaráætlun
sína fram í síðustu viku.
Tugþúsundir manna komu saman
í Leipzig í gær og gagnrýndu ráða-
menn kirkju mótmælenda fyrir að
hafa skotið skjólshúsi ýfir Erich
Honecker, fyrrum leiðtoga austur-
þýskra kommúnista, og eiginkonu
hans. Slagsmál brutust út er hægri
öfgamenn úr flokki repúblikana,
sem heimilt er að starfa í V-Þýska-
landi, höfðu afskipti af mótmælun-
um en flokkurinn hefur nýverið tek-
ið til starfa austanmegin.