Morgunblaðið - 06.02.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6V FÉBRÚAR 1990
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Nornin fylgistmeð
Á myndinni sést norska eftirlitsskipið Nomin á loðnumiðunum við
Austurlandið. Allt að 50 norsk loðnuskip hafa verið þar að undan-
fömu en Nomin fylgist m.a. með að einungis 20 þeirra séu samtímis
að veiðum. Meirihluti skipanna frystir aflann um borð og þau geta
yfirleitt fryst 25-30 tonn á sólarhring. Varðskipið Ægir var á loðnu-
miðunum í síðustu viku en varðskipið Týr hefur verið þar í þessari
viku og hafa varðskipsmenn m.a. athugað veiðarfæri erlendu skip-
anna.
Norræna húsið:
Rætt um niðurskurð á verk-
efiium Norðurlandaráðs
ÞRIÐJUDAGINN 6. febrúar kl.
17.15 verður haldinn fúndur í
Norræna húsinu þar sem kýnnt
verður tillaga frá nefhd sem hef-
ur haft til umfjöllunar og kynnt
sér sérstaklega norrænar sto&i-
anir og norrænar ne&idir sem
starfa á sviði menningarmála.
Þar er meðal annars lagt til að
fjórar norrænar stofnanir verði
lagðar niður. Hér er um að ræða
Nordiska institutet för folkdiktning
í Ábo, Nordisk institut for Asien-
studier í Kaupmannahöfn, Nordisk
institut for sjorett í Osló og Nor-
diska institutet för samhállsplaner-
ing í Stokkhólmi.
Ennfremur er lagt til að fjárveit-
ing til allra norrænu menningar-
stofnananna verði skorin niður um
10% á tveimur árum. Þá peninga,
sem þannig sparast, á að nota til
nýrra verkefna á sviði menningar-
mála.
VEÐUR
I DAG kl 12.00.
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR I DAG, 6. FEBRUAR
YFIRLIT I GÆR: Allhvöss norðaustanátt norðvestantil á landinu,
vestankaldi norðaustanlands en hæg breytileg átt í öðrum lands-
hlutum. Um landið norðanvert var víða snjókoma eða slydda en
smáél um landið sunnanvert. Þó var sums staðar léttskýjað á
Austurlandi. Kaldast var 6 stiga frost á Hveravöllum en hlýjast 5
stiga hiti á Dalatanga.
SPÁ: Austan- og norðaustankaldi eða stinningskaldi og él eða
slydduél norðan- og austanlands, en suðaustankaldi og slydda eða
rigning á Suður- og Suðausturlandi. Smáél eða slydduél á annesjum
suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Fremur hæg vestan-
og suðvestanátt, víða smáél sunnan- og vestanlands en bjartviðri
í öðrum landshlutum. 3ja til 4ra stiga frost.
s. Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■|0o Hitastig:
10 gráöur á Celsíus
V Skúrir
*
V El
Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
% £ %
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri +3 skýjað
Reykjavik +1 skýjað
Bergen 9 alskýjað
Helsinki 2 rigning
Kaupmannah. 8 skýjað
Narssarssuaq +11 heiðskírt
Nuuk +15 snjókoma
Osló 9 skýjað
Stokkhólmur 9 alskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 15 þokumóða
Amsterdam 10 léttskýjað
Barcelona 10 þokumóða
Berlin 10 léttskýjað
Chicago 0 léttskýjað
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 7 heiðskírt
Giasgow 12 úrkoma i grend
Hamborg 10 léttskýjað
Las Palmas vantar
London 12 skýjað
Los Angeles 8 heiðskfrt
Lúxemborg 6 heiðskírt
Madríd 9 skýjað
Malaga 16 alskýjað
Mallorca 16 skýjað
Montreal +16 alskýjað
New York +4 alskýjað
Orlando 11 léttskýjað
París 11 hálfskýjað
Róm 16 heiðskírt
Vín 8 léttskýjað
Washington +1 heiðskírt
Winnipeg +13 alskýjað
Tillagan hefur vakið miklar um-
ræður og verður að öllum líkindum
eitt aðalmálið á þingi Norðurlanda-
ráðs í Reykjavík síðar í þessum
mánuði. Árni Gunnarsson, deildar-
stjóri og fulltrúi í nefndinni, mætir
á fundinum, sem er opinn öllum sem
áhuga hafa á málinu.
Þungaskattur og bifreiðagjald:
Hertar aðgerðir
vegna vanskila
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur óskað eftir því við innheimtumenn
ríkissjóðs að þegar verði ha&iar aðgerðir til að innheimt þau vanskil
sem eru á þungaskatti og bifreiðagjaldi frá síðasta ári og fyrri árum.
Heildarvanskil á þungaskatti eru um 363 milljónir króna og á bifreiða-
gjaldi um 357 milljónir.
Á vegum tollstjórans í Reykjavík
fara tveir hópar lögreglumanna um
borgina í dag, leita uppi bifreiðar
þar sem ekki hafa verið gerð skil
á umræddum gjöldum og taka af
þeim skráningarmerki. Ráðuneytið
hefur óskað eftir sambærilegum
aðgerðum hjá öllum innheimtu-
mönnum ríkissjóðs.
Þungaskattur er innheimtur
samkvæmt heimild í lögum nr.
3/1987, um fjáröflun til vegage'rð-
ar, með síðari breytingum, en bif-
reiðagjald er innheimt samkvæmt
heimild í lögum nr. 39/1988, um
bifreiðagjald.
Gert er ráð fyrir að umræddar
innheimtuaðgerðir taki nokkra
daga, en ráðuneytið mun kynna
árangurinn í byijun næsta mánað-
ar.
Laxveiðibátarnir:
I verkahring Dana
að stöðva veiðarnar
-segir Guðmundur Eiríksson, sendiherra
FÆREYSKIR lögreglumenn og veiðaeftirlitsmenn menn fóru um borð
í pólsk-danska laxveiðibátinn Minnu í Þórshöfh síðastliðinn föstudag.
Þeir fúndu þar lax, sem ekki gat verið veiddur annars staðar en á
umræddu svæði norðaustur af Langanesi. Þeir fundu hins vegar ekk-
ert, sem braut í bága við færeysk lög og gátu því ekki stöðvað bátinn.
Landhelgisgæzlan flaug yfir
svæðið í gær, en varð bátanna þá
ekki vör. Ekki var símasambandi
við Færeyjar í gær og því ekki vit-
að hvort Minna hefði farið út að
nýju að lokinni viðgerð í Þórshöfn.
Guðmundur Eiríksson, sendiherra
og þjóðrettarfræðingur, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að nú
væri sannað að bátar þessir væru
að laxveiðum, sem óheimilar væru
dönskum aðilum vegna aðildar
Dana að Norður-Atlantshafs lax-
vemdunarstofnunni og EB. Tengsl
bátanna við Danmörku væru ótví-
ræð og því litu íslenzk stjórnvöld
svo á, að það væri í verkahring
danskra yfirvalda að stöðva þessar
veiðar.
Matthías Haraldsson
yfírkennari látinn
MATTHÍAS Haraldsson, yflr-
kennari við Langholtsskóla í
Reykjavík, lést á heimili sínu
hinn 5. febrúar.
Matthías var borinn og barn-
fæddur Reykvíkingur, fæddur 11.
júní 1929. Foreldrar hans voru
Valgerður Ólafsdóttir frá Fossá í
Kjósarsýslu og Haraldur Frímanns-
son trésmiður frá Skagaströnd.
Matthías lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum við Lind-
argötu og fór að því loknu til Finn-
lands í frekara nám. Hann lauk
síðan kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands árið 1954. Hann hóf
kennslu við Austurbæjarskólann í
Reykjavík og stundaði jafnframt
sérkennslu við sérdeild Miðbæjar-
skólans og síðar fyrir sálfræðideild
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
Honum voru fljótlega falin ýmis
trúnaðarstörf í þágu samtaka kenn-
ara. Hann var í stjórn Sambands
barnakennara í Reykjavík og stjóm
og samninganefnd Landsambands
framhaldsskólakennara og Félags
gagnfræðaskólakennara í Reykja-
vík.
Matthías helgaði kennarastarf-
inu alla sína krafta, og var kennari
og yfirkennari í Langholtsskóla um
áratugaskeið.
Matthías tók virkan þátt í stjórn-
málum og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Um árabil hefur hann verið fulltrúi
flokksins í Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur.
Matthías og eftirlifandi eigin-
kona hans, Elín G. Ólafsdóttir kenn-
ari, eiga sex börn sem öll eru bú- j
. sett. í Reykjavík.